Morgunblaðið - 30.06.2018, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
hefja sitt 32. starfsár á morgun,
sunnudag, kl. 17 með fjölskyldu-
tónleikum Dúó Stemmu. Dúóið
skipa Herdís Anna Jónsdóttir
víóluleikari og Steef van Ooster-
hout slagverksleikari og munu þau
fagna sumrinu með íslenskum þjóð-
vísum, þulum, ljóðum og hljóðum
tengdum sumrinu með dagskrá
undir yfirskriftinni Ó blessuð vertu
sumarsól. Einnig munu þau flytja
skemmtilega hljóðsögu með hljóð-
færunum sínum, að því er segir í
tilkynningu. „Leikið verður á ýmis
hefbundin hljóðfæri á borð við víólu
og marimbu en líka óhefðbundin,
svo sem hrossakjálka, íslenska
steina og barnaleikföng.
Herdís Anna lauk prófum frá
Tónlistarskóla Akureyrar 1983,
Tónlistarskólanum í Reykjavík
1986 og Hochschule für Musik und
Darstellende Kunst í Stuttgart
1992. Hún er fastráðinn víóluleikari
í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Steef
van Oosterhout lauk einleikaraprófi
frá Sweelinck Conservatorium í
Amsterdam 1987. Hann starfaði í
Hollandi með ýmsum kammer-
hljómsveitum, m.a. Nederlands-
blazersensemble og lék með
sinfóníuhljómsveitum, þ. á m. Con-
sertgebouw-hljómsveitinni í Amst-
erdam. Síðan 1991 hefur Steef ver-
ið fastráðinn sem leiðari í slag-
verksdeild Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Stemma Dúóið skipa Herdís Anna Jónsdóttir og Steef van Oosterhout.
Sumartónleikar hefjast
í Akureyrarkirkju
Gagnrýni um skáldsögu Steinars
Braga, Kötu, birtist í danska dag-
blaðinu Politiken í fyrradag og er
gagnrýnin í jákvæðara lagi og bók-
in hlýtur fjögur hjörtu af sex mögu-
legum. Gagnrýnanda þykir bókin
heldur brokkgeng en áhrifamikil í
raunsæi sínu.
Í Kötu segir af menntaskóla-
stúlku sem fer á ball og hverfur
sporlaust. Móðir hennar er þess
fullviss að hún sé á lífi. Dag einn
hringir nafnlaus maður í lögregl-
una og tilkynnir um lík í gjótu utan
við borgina.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Höfundurinn Steinar Bragi.
Kata hlýtur fjögur
hjörtu í Politiken
Hinn gríðarvinsæli, enski tónlist-
armaður Ed Sheeran hefur verið
lögsóttur og krafinn um hundrað
milljóna dollara skaðabætur fyrir
að hafa í leyfisleysi notað búta úr
góðkunnu lagi Marvin Gaye, „Let’s
Get It On“, að sögn stefnanda. Sá
telur að söngvarinn hafi stælt bút-
ana í lagi sínu „Thinking Out Loud“
sem notið hefur mikilla vinsælda.
Sheeran hefur áður verið lög-
sóttur fyrir sömu meintu sakir og
að þessu sinni er það fyrirtækið
Structured Asset Sales sem krefst
skaðabóta en það á að hluta höf-
undarréttinn að lagi Gaye.
Gaye samdi lagið með banda-
ríska söngvaranum Edward
Townsend sem lést árið 2003 og
lögsóttu erfingjar Townsend
Sheeran árið 2016 en í frétt BBC
um málið segir að ekki sé ljóst
hverjar voru lyktir þeirrar mál-
sóknar. Í nýju málshöfðuninni er
útgáfufyrirtæki Sheeran einnig
lögsótt, Sony/ATV Music Publ-
ishing, sem og Amy Wadge sem
samdi lagið með honum.
Lögsóttur á ný fyrir að stæla lag Gaye
AFP
Lögsóttur Ed Sheeran segist alsaklaus
af því að stæla lag Marvin Gaye.
Boðið verður upp
á hönnuðarspjall
með Anítu Hir-
lekar í Listasafn-
inu á Akureyri í
dag kl. 15 og er
aðgangur að því
ókeypis.
Hlynur Halls-
son, sýningar-
stjóri og safn-
stjóri listasafnsins, ræðir við Anítu
um sýningu hennar í Listasafninu,
feril og framtíð og er gestum vel-
komið að taka þátt í samtalinu og
gefst gott tækifæri til að kynnast
hönnun Anítu betur.
„Í hugmyndafræði Anítu Hirlek-
ar sameinast handverk og tískuvit-
und með einkennandi hætti. List-
rænar litasamsetningar og hand-
bróderaður stíll eru áberandi
þættir í hönnun hennar,“ segir í til-
kynningu.
Aníta er fædd á Akureyri árið
1986, lauk BA-námi í fatahönnun
með áherslu á textílprent 2012 og
MA-gráðu í textílhönnun fyrir
tískufatnað frá Central Saint Mart-
ins í London 2014.
Hönnuðarspjall með Anítu Hirlekar
Aníta Hirlekar
Vargur 16
Bræðurnir Erik og Atli eiga
við fjárhagsvanda að stríða.
Þeir grípa til þess ráðs að
smygla dópi. Erik skipulegg-
ur verkefnið og allt virðist
ætla að ganga upp, en
óvænt atvik setur strik í
reikninginn.
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 20.00
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 22.00
Svanurinn 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 18.00
101 Reykjavík
Metacritic 68/100
IMDb 6,9/10
Bíó Paradís 20.00
On Body and Soul 12
Metacritic 77/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 22.00
In the Fade 12
Metacritic 64/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.00
The Big Sick Bíó Paradís 17.45
Krummi Klóki Bíó Paradís 16.00
Doktor Proktor og
tímabaðkarið
Bíó Paradís 16.00
Sicario: Day of the
Soldado 16
Barátta Bandaríkjamanna
við eiturlyfjabaróna í Mexíkó
tekur á sig jafnvel alvarlegri
mynd þegar hryðjuverka-
mönnum er smyglað yfir
landamærin.
Laugarásbíó 17.20, 19.50,
22.25
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 19.10, 20.00,
21.50, 22.40
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.50
Love, Simon Myndin fjallar um samkyn-
hneigðan strák sem heitir
Simon. Hann veit ekki hver
hinn nafnlausi bekkjarbróðir
er, sem hann er orðin skot-
inn í á netinu.
Metacritic 72/100
IMDb 7,8/10
Smárabíó 16.30, 17.20,
19.30, 22.00
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 15.20,
19.30
Tag 12
Metacritic 56/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 17.20, 17.30, 20.00,
22.15
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 14.30,
17.00, 19.40, 22.00
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.15
Sambíóin Keflavík 22.30
Book Club Metacritic 53/100
IMDb 6,3/10
Líf fjögurra góðra vinkvenna
breytist til frambúðar, eftir
að þær lesa söguna 50 Sha-
des of Grey í bókaklúbbnum
sínum.
Smárabíó 14.00, 14.30,
17.00, 19.40
Háskólabíó 18.20, 21.10
Borgarbíó Akureyri 17.30
Ocean’s 8
Debbie Ocean safnar saman
liði til að fremja rán á Met
Gala-samkomunni í New
York.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 61/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 21.00
Sambíóin Akureyri 22.30
Sambíóin Keflavík 22.20
Solo: A Star Wars
Story 12
Ævintýri Han Solo og Chew-
bacca áður en þeir gengu til
liðs við uppreisnina.
Sambíóin Álfabakka 19.40,
22.30
Sambíóin Egilshöll 14.00,
22.20
Deadpool 2 16
Smárabíó 22.00
Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf
að annast Jack-Jack á með-
an Helen, Teygjustelpa, fer
og bjargar heiminum.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,9/10
Laugarásbíó 14.00, 14.30,
16.30
Sambíóin Álfabakka 12.30,
14.00, 14.30, 15.00, 16.30,
17.00, 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 13.00,
14.00, 15.00, 16.00, 17.00,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 13.30,
14.30, 16.00, 17.00, 18.30,
19.30, 22.00
Sambíóin Akureyri 14.00,
15.00, 16.30, 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 14.00,
14.50, 16.30, 17.20, 19.50
Háskólabíó 15.30, 18.00
Draumur Myndin skoðar ósagða sögu
Mjallhvítar, Öskubusku og
Þyrnirósar, sem komast að
því að þær eru allar trúlof-
aðar sama draumaprins-
inum.
Smárabíó 13.00, 15.20,
17.40
Háskólabíó 15.40
Pétur Kanína Pétur reynir að lauma sér
inn í grænmetisgarð nýja
bóndans og þeir há mikla
baráttu.
Smárabíó 12.50, 15.05
Lói – þú flýgur aldrei
einn Morgunblaðið bbbbn
Smárabíó 13.10, 15.20
Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins þurfa
Owen og Claire að bjarga risaeðlunum frá út-
rýmingu.
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 52/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 14.00, 22.00
Sambíóin Álfabakka 19.30, 22.15
Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.50, 22.30
Borgarbíó Akureyri 21.40
Jurassic World:
Fallen Kingdom 12
Kona fer í stríð
Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir
yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar-
verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há-
lendi Íslands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn
í líf hennar.
Morgunblaðið
bbbbb
Laugarásbíó 19.50
Háskólabíó 15.50,
18.30, 21.00
Bíó Paradís 20.00
Adrift 12
Myndin fjallar um unga konu, Tami sem þarf að takast á við
mótlæti eftir að skúta sem hún og unnusti hennar sigldu gjör-
eyðilagðist. í 4. stigs fellibyl.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 56/100
IMDb 6,7/10
Laugarásbíó 17.30, 19.50,
22.00
Smárabíó 17.25, 19.50, 22.15
Háskólabíó 15.40, 18.10
Borgarbíó Akureyri 17.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio