Morgunblaðið - 30.06.2018, Qupperneq 44
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 181. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Team Sensa fyrstir …
2. „Það hefur verið þaggað niður í …
3. Eldur í bíl á Bústaðavegi
4. Borgin kaupir fasteignir …
Asa-tríóið kemur fram á fimmtu
tónleikum sumardjasstónleikaraðar
veitingahússins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu í dag kl. 15. Í tríóinu eru
Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar,
Agnar Már Magnússon á Hammond-
orgeli og Scott McLemore á tromm-
um og munu þeir leika blöndu af
þekktum djasslögum og verkum eftir
Thelonious Monk og liðsmenn hljóm-
sveitarinnar. Tónleikarnir fara fram á
Jómfrúartorgi.
Djassblanda á Jómfrú
Rithöfundarnir
Jón Kalman Stef-
ánsson, Áslaug
Jónsdóttir og
Yrsa Sigurðar-
dóttir koma fram
á mörgum og mis-
munandi við-
burðum á aðal-
dagskrá Bóka-
messunnar í Gautaborg sem haldin
verður 27.-30. september og er um-
fangsmesta og fjölsóttasta bóka-
messa Norðurlandanna. Verður m.a.
fjallað um kjarnann í skáldskapnum,
glæpasögur, þýðingar og mynd-
skreytingar.
Jón Kalman, Áslaug
og Yrsa í Gautaborg
Rokkhljómsveitin Valdimar, með
söngvarann Valdimar Guðmundsson
í fararbroddi, mun halda uppi stuð-
inu í Havaríi á Karls-
stöðum í Berufirði í
kvöld kl. 21. Á undan
Valdimari kemur fram
tónlistarmaðurinn
Snorri Helgason sem
gaf nýverið út
hljómplötuna
Margt býr í þok-
unni.
Valdimar og Snorri
koma fram í Havaríi
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 5-10 m/s og rigning með köflum eða skúrir í flestum
landshlutum. Hiti 9 til 19 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á sunnudag Hæg suðlæg átt og bjartviðri austan til en þurrt um landið vestanvert fram
yfir hádegi. Gengur í sunnan 8-15 m/s með rigningu vestan til síðdegis. Hiti 10 til 20 stig,
hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi.
Á mánudag Sunnanátt og víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi og hiti 15 til 23 stig.
Rigning með köflum sunnan og vestan til og hiti 10 til 15 stig.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta
mátti þola tveggja stiga tap, 88:86,
fyrir Búlgaríu í fimmtu umferð riðla-
keppninnar í undankeppni HM sem
fram fer í Kína á næsta ári. Með sigri
gat Ísland tryggt sér sæti í milliriðli,
en tap gerir það að verkum að slíkt sé
afar langsótt. Ekkert nema sigur á
Finnum á útivelli á mánudaginn getur
hjálpað upp á sakirnar. »2
Staðan versnaði með
naumu tapi í Búlgaríu
Ef íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik kemst í milli-
riðil undankeppni HM er út-
lit fyrir að það þurfi að leika
þar án síns besta leikmanns,
Martins Hermannssonar.
ALBA Berlín, sem Martin
gengur til liðs við í sum-
arlok, leikur í Evrópubik-
arnum, sem er B-deild Evr-
ópudeildarinnar. Keppni í
deildinni rekst á við dag-
skrá landsliðsins. »1
Martin ekki með
landsliðinu?
Stærstu stjörnur karlaknattspyrn-
unnar í heiminum verða báðar í eld-
línunni á heims-
meistaramótinu í
Rússlandi í dag þegar
16-liða úrslit hefjast.
Lionel Messi og
samherjar í arg-
entínska lands-
liðinu mæta
Frökkum og
Cristiano Ron-
aldo verður í
eldlínunni með
Evrópumeisturum
Portúgals á móti
Úrúgvæ. »4
Messi og Ronaldo í eld-
línunni á HM í dag
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Ég er eiginlega búinn að vera
hérna samfleytt í þrjár vikur. Það er
eins gott að það er stutt heim til mín
svo ég geti lagt mig inn á milli,“ seg-
ir Rúnar Bragason, vallarstjóri
Landsmóts hestamanna.
Rúnar, sem rekur fyrirtækið
Kranaþjónustu Rúnars, hefur haft í
nógu að snúast síðustu vikur við að
gera svæðið í Víðidal klárt fyrir mót-
ið sem hefst á morgun en hann sér
um allar verklegar framkvæmdir á
svæðinu ásamt því að sjá til þess að
vellir og reiðstígar í Víðidalnum séu í
góðu standi.
Eins og að vinna í lóðinni heima
„Ég gerði þetta líka 2012 og það
er mjög gaman að taka þátt í svona
verkefni, þetta er svolítið eins og að
vinna í lóðinni heima hjá sér þar sem
ég er með hesthús þarna á svæðinu.“
Rúnar hefur verið í hestamennsku
síðan hann man eftir sér en aldrei
keppt á Landsmóti hestamanna
sjálfur. „Ég læt börnin sjá um það,“
segir Rúnar en þrjú barna hans
keppa á mótinu. Eins og gefur að
skilja þá er eftirvæntingin á heim-
ilinu mikil. „Ég á eina tíu ára sem
keppir í barnaflokki, einn sextán ára
sem keppir í unglingaflokki og svo
eina tvítuga sem keppir í ungmenna-
flokki. Þetta er þriðja eða fjórða
landsmótið sem sú elsta keppir á.“
Hjólar fyrir 12 tíma vinnudag
Áskell Heiðar, framkvæmdastjóri
Landsmóts hestamanna, kallar Rún-
ar ofurmann. „Þegar maður mætir
klukkan átta á morgnana í vinnuna
þá er Rúnar búinn að hjóla 20 kíló-
metra áður en hann mætir og svo
vinnur hann tólf tíma hérna upp frá
eins og ekkert sé sjálfsagðara,“ seg-
ir Áskell Heiðar.
Rúnar skellir upp úr þegar hann
er spurður út í þessi orð Áskels.
„Þetta er nú kannski aðeins ýkt. Ég
reyni reyndar að hjóla svolítið á
morgnana. Við hittumst oft góðir
vinir snemma dags, tökum hring úr
Reykjavík og fáum okkur svo einn
kaffibolla áður en við förum að
vinna.“
Gott fyrir hausinn að hjóla
Rúnar kemur af fjöllum þegar
hann er spurður út í það hvaðan ork-
an til að hjóla marga kílómetra, til
viðbótar við það að vera faðir, hesta-
maður og að reka sitt eigið fyr-
irtæki, komi, en að hans sögn hjálpa
hjólreiðarnar honum í raun við
amstur dagsins. „Það er bara svo
gott fyrir hausinn að hreyfa sig.
Maður verður orkumeiri við það,“
segir Rúnar.
Orkumikli vallarstjórinn
Hjólar marga
kílómetra fyrir 12
tíma vinnudag
Morgunblaðið/Valli
Kátur Það er mikil eftirvænting á heimili Rúnars fyrir Landsmót hestamanna sem hefst á morgun. Rúnar sér um
allar verklegar framkvæmdir á svæði mótsins og sér til þess að vellir og reiðstígar í Víðidal séu í sínu besta standi.
Á morgun, 1. júlí, hefst Landsmót
hestamanna í tuttugasta og þriðja
skipti. Frítt verður inn fyrsta dag-
inn, sem verður sannkallaður fjöl-
skyldudagur. Hestar verða teymdir
undir börnum, á svæðinu verða
hoppkastalar og leiksvæði, Leik-
hópurinn Lotta sýnir listir sínar og
landskunnir tónlistarmenn spila
og syngja. Mótið er haldið á fé-
lagssvæði Fáks í Víðidal í Reykja-
vík og stendur til 8. júlí. Talsverðar
framkvæmdir hafa staðið yfir á
mótssvæðinu. Nú er hægt að sitja
nánast allan hringinn í kringum
keppnisvöllinn hjá Hvammsvelli,
þökk sé nýrri áhorfendabrekku, og
kynbótavöllur hefur verið færður
nær áhorfendabrekkunni á
Brekkuvelli hjá félagsheimili Fáks
ásamt fleiru eins og kemur fram á
vef mótsins, www.landsmot.is.
Landsmótinu verða gerð góð
skil í Morgunblaðinu og á mbl.is.
Mikið gert fyrir svæðið
LANDSMÓT HESTAMANNA HEFST Á MORGUN