Morgunblaðið - 21.06.2018, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018VIÐTAL
Magnús bendir líka á virðisaukann í þekk-
ingunni sem orðið hefur til í kringum áliðn-
aðinn hér á landi. Hún sé fyrir löngu orðin út-
flutningsvara.
Við framleiðslu íhluta úr áli er íblöndunar-
efnum blandað í álið til að auka gæði og
fjölga eiginleikunum. Spurður að því hvort
rætt hafi verið um að nota íslensk íblöndunar-
efni, eins og úr nýju kísilverksmiðjunni á
Bakka, segir Magnús að slíkt hafi verið rætt.
„Ímyndarlega yrði það gott fyrir báða aðila.
Það eru engin viðskiptasambönd komin á
ennþá, en menn hafa íhugað þetta og rætt
saman.“
Ímynd áliðnaðarins hér á landi hefur lengi
litast af umhverfisverndarumræðunni í kring-
um virkjanaframkæmdir. Magnús segir að
fyrirtækið framkvæmi reglulega viðhorfsk-
annanir í nærumhverfi og á landsvísu. „Fyrir-
tækið nýtur mjög mikils trausts hér í nær-
umhverfinu. Við leggjum áherslu á að vera
góður nágranni. Ég held að ímyndarvandi ál-
iðnaðarins sé minni en margur heldur, og
ímyndin hefur batnað á þeim tíma sem liðið
hefur síðan ég tók við sem forstjóri. Ég held
að fólk sé sífellt að átta sig betur á því hvað
það er mikilvægt að framleiða ál með endur-
nýjanlegum orkugjöfum eins og gert er hér.
Það ætti að vera baráttumál umhverfisvernd-
arsinna að ál sé frekar framleitt hér á Íslandi
en annars staðar.“
Magnús segir að auk þess sem framleiðslan
sé umhverfisvæn, þá standist fá hráefni álinu
snúning þegar komi að endurvinnslu. „75% af
öllu áli sem framleitt hefur verið í heiminum
Íslensk starfsemi Alcoa skiptist í þrjá hluta.
Fyrst ber að telja tvö eignarhaldsfélög sem
einkum sjá um fjármögnun, Alcoa á Íslandi
og Alcoa Reyðarál. Þriðja félagið, Alcoa
Fjarðaál, sér síðan um rekstur álversins á
Reyðarfirði. 354 þúsund tonn voru framleidd í
kerskála Fjarðaáls í fyrra, sem var met, en
framleiðslan í steypuskála gaf 357 þúsund
tonn af vörum eftir að íblöndunarefnum hafði
verið bætt í.
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa
Fjarðaáls, tók upphaflega við sem forstjóri
eignarhaldsfélaganna tveggja árið 2012, en
árið 2014 var hann ráðinn forstjóri rekstrar-
félagsins.
Alcoa Fjarðaál er hluti af hinu alþjóðlega
stórfyrirtæki Alcoa, sem skráð er á hluta-
bréfamarkað í New York og er með starfsemi
um allan heim. „Það varð stór breyting á
félaginu fyrir ári þar sem Alcoa Inc. hafði
vaxið mikið í framleiðslu fullunninna vara
fyrir viðskiptavini. Ákveðið var að skipta
félaginu í tvennt, en álitið var að báðir hlutar
félagsins væru orðnir nógu stórir til að geta
staðið sem sjálfstæðar einingar. Þar með urðu
til fyrirtækin Alcoa Corporation, sem í dag
leggur áherslu á hrávöruframleiðsluna, sem
segja má að sé gamla Alcoa og framleiðir súr-
ál og ál, og Arconic, en það félag vinnur íhluti
beint fyrir viðskiptavini, og þá einkum flug-
vélaiðnaðinn,“ segir Magnús í samtali við
ViðskiptaMoggann.
Hann segir að til samanburðar hafi Alcoa
Fjarðaál frá upphafi framleitt bæði virðisauk-
andi vörur og hráál. „Hráál, sem er án íblönd-
unarefna, er steypt í svokallaða hleifa og þeir
eru fluttir út til Rotterdam eins og allar okk-
ar vörur. Viðskiptavinirnir okkar bræða hleif-
ana svo upp og nota í ýmsa framleiðslu, eins
og til dæmis drykkjarvöruumbúðir. Virðisauk-
andi vörurnar okkar eru svo tvær, annars-
vegar álvír sem er notaður í rafmagnsvíra-
framleiðslu, og svo álstangir með íblöndunar-
efnum, sem notaðar eru í bifreiðaiðnað, meðal
annars í felgur. Vírinn er framleiddur í mis-
munandi sverleika, 9-25 mm, og svo unninn
áfram hjá viðskiptavininum í rafmagnsvíra,
teygður og valsaður.“
Aukning í virðisaukandi vörum
Magnús segir aðspurður að hlutföll í fram-
leiðslu Fjarðaáls hafi breyst á þeim 11 árum
sem liðin eru frá gangsetningu verksmiðj-
unnar. Upphaflega hafi hlutur hrááls verið
meiri en í dag. Hlutur virðisaukandi vara hef-
ur aukist eftir því sem fyrirtækið hefur náð
betri tökum á þeirri tækni sem þarf til slíkrar
framleiðslu. „Við erum í dag kannski komin á
þann stað í afköstum sem við teljum okkur
geta náð.“
Spurður að því hvernig vöruþróun sé háttað
í framleiðslunni hér á Íslandi, segir Magnús
að markaðssetningin á vörunum fari öll fram í
Rotterdam. „Í raun tökum við við pöntunum
þaðan.“
Hann segir aðspurður að sérstaða verk-
smiðjunnar sé víraframleiðslan.
eru ennþá í umferð. Ál tapar engum eigin-
leikum við endurvinnslu. Það er einfaldlega
brætt upp og svo er íblöndunarefnum bætt í
eftir þörfum.“
Hann segir að mikil framþróun sé í gangi í
alþjóðlegum áliðnaði. „Notkunargildi málms-
ins hefur aukist. Núna er ál ekki bara í yfir-
byggingu bíla heldur líka í grindum og mótor-
hlutum. Bílarnir verða því léttari, og
útblástur minni. Þá er verið að skoða notkun
áls í rafgeyma, sem myndi leysa af hólmi efni
sem eru ekki eins umhverfisvæn.“
Fyrr á árinu tilkynntu álfyrirtækin Alcoa
og Rio Tinto um sameiginlegt verkefni sem
snýr að svokölluðum óvirkum rafskautum, en
með þeim mun umhverfisvænleiki framleiðsl-
unnar ná nýjum hæðum. „Með óvirkum skaut-
um eru ekki notuð kolefni, heldur keramik-
efni. Endingin er betri og útblástur frá
þannig álveri yrði einöngu hreint súrefni.
Áfangasigur varð í þessari þróun í vor, sem
þýðir að lausnin er tæknilega möguleg.
Apple-tæknirisinn er samstarfsaðili álfyr-
irtækjanna í þessu verkefni, en Apple hefur
verið gagnrýnt fyrir að nota ekki umhverf-
isvænt ál í sinni framleiðslu. Fyrirtækið vill
bæta úr því. Alcoa og Rio Tinto stofnuðu
sameiginlega fyrirtækið Elysis sem mun
vinna að því að skala upp lausnina til notk-
unar í nútíma álverum og verður það staðsett
í Quebec í Kanada.“
Krónan hefur óþægileg áhrif
Spurður um reksturinn almennt þá segir
Magnús hann sveiflast eftir heimsmarkaðs-
verði áls, en einnig spili gengismál rullu. „Við
gerum upp í bandaríkjadölum, en höfum mik-
inn kostnað í íslenskum krónum. Gengisbreyt-
ingar krónunnar hafa óþægilega mikil áhrif á
okkar rekstur.“
Magnús segir að almennt hafi náðst af-
bragðsárangur í umhverfismálum verksmiðj-
unnar. Útblástur hafi þannig verið 24 kg af
flúor per tonn af áli, sem sé með því lægsta
sem þekkist í heiminum. PFC-gróðurhúsa-
lofttegundir hafi minnkað um 27% milli 2016
og 2017. „Það er mikilvægur og ánægjulegur
árangur. Við náðum því með stórri fjárfest-
ingu sem við réðumst í varðandi breytingu á
mötun kerja í kerskálanum.“
Næsta verkefni til að ná fram enn hreinni
framleiðslu er að skipta út öllum síupokum í
reykhreinsivirkinu. „Það mun minnka út-
blástur okkar enn frekar. Fjárfestingin er
mæld í milljónum dollara. Breytingin í ker-
skálanum kostaði sem dæmi fimm milljónir
dala.“
Stöðugt er unnið að úrbótum í rekstrinum
að sögn Magnúsar. Mikilvægt sé að ná stöð-
ugt meiri framleiðni. Það vegi á móti auknum
launakostnaði. Eitt af því sem Magnús nefnir
til að auka framleiðnina er aukin sjálfvirkni í
verksmiðjunum. „Álver framtíðarinnar verða
með sjálfkeyrandi ökutæki til dæmis. Í
systurfyrirtæki okkar í Noregi eru slík öku-
tæki komin í notkun, og við horfum til þess að
gera það sama.“
Alcoa Fjarðaál hefur á síðustu árum orðið
fjölskylduvænni vinnustaður en áður var. „Við
styttum vaktir úr 12 tímum í 8 tíma og fækk-
Ætti að vera baráttumál að
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Starfsemi Alcoa á Reyðarfirði hefur
reynst mikil innspýting fyrir atvinnulíf
og menningu í Fjarðabyggð síðustu
11 ár. Þar starfa 550 manns, en til
viðbótar eru 350 starfsmenn verk-
takafyrirtækja. Alcoa Fjarðaál flutti
út vörur fyrir 81 milljarð króna á síð-
asta ári og 36% urðu eftir í landinu.
Þá greiddi félagið einn milljarð
króna í skatta og opinber gjöld á
Íslandi. Magnús Þór Ásmundsson
forstjóri væntir þess að félagið byrji
að borga tekjuskatt hér á landi
snemma á næsta áratug.
Jafnréttismál eru okkur
mikið hjartans mál og við
státum af því að vera með
hæsta hlutfall kvenna í Al-
coa-samsteypunni, eða
24%. Fækkun vinnustunda
hafði meðal annars þau
áhrif að konur hafa skilað
sér betur úr fæðingarorlofi
en ella,“ segir Magnús Þór
Ásmundsson.