Morgunblaðið - 09.07.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.07.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. a 595 1000 GRAN CANARIA að ve rð ge tur br e st án fyr irv a 11. OKTÓBER Í 18 NÆTUR Frá kr. 135.075 Frá kr. 97.725 ALLTAÐ25.000KR. AFSLÁTTURÁMANN Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Icelandair Group lækkaði afkomuspá sína og sendi Kauphöllinni tilkynn- ingu þess efnis í gærkvöldi. Miðað við fyrirliggjandi forsendur áætlar félagið að EBITDA ársins 2018, þ.e. hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, verði á bilinu 120 til 140 milljónir bandaríkjadala, en afkomuspá eftir fyrsta ársfjórðung gerði ráð fyrir 170 til 190 milljónum dala EBITDA-hagnaði í ár. Horfurnar verri en talið var Í tilkynningu frá Icelandair Group segir að rask í flugáætlun, seinkun á innleiðingu flugvéla, veðurfar o.fl. hafi valdið auknum kostnaði auk þess sem tekjur hafi tapast. Fram kemur að spár flugfélagsins um hækkandi meðalverð á síðari hluta ársins hafi hingað til ekki gengið eftir, þrátt fyrir að olíuverð hafi hækkað um 50% á síðustu 12 mánuðum. „Af þeirri ástæðu hefur fé- lagið ákveðið að lækka tekjuspá félagsins fyrir síð- ari hluta ársins. Töluverðar afbókanir hafa verið hjá hópum hjá Iceland Tra- vel vegna minnkandi samkeppnis- hæfni Íslands sem mun valda lakari afkomu í þeim rekstri á þessu ári,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur hafi mikil framboð- saukning yfir Atlantshaf á nokkrum lykilmörkuðum félagsins haft áhrif á verðþróun á háönn. Til lengri tíma litið séu horfur í rekstri félagsins þó góðar; vöxtur sé á flestum mörkuðum félagsins, það sé fjárhagslega sterkt og með góða stöðu á mörkuðum. Bókanir farið hægt af stað Einnig segir að félagið fjárfesti á þessu ári í nýjum áfangastöðum til að styrkja leiðakerfi til lengri tíma og að bókanir hafi farið hægar af stað á þessum stöðum en ráðgert hafi verið. „Sú staða sem við erum að horfa upp á núna er okkur talsverð von- brigði. Sú þróun á meðalverði sem við gerðum ráð fyrir á síðari hluta ársins virðist ekki vera að ganga eftir og því lækkum við tekjuspá félagsins. Verðþróun á mikilvægum áfangastöð- um hefur ekki verið eins og áætlanir okkar gerðu ráð fyrir og það hefur neikvæð áhrif á rekstrarspá,“ er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Icelandair Group. „Talsverð vonbrigði“  Icelandair Group lækkar afkomuspá um 50-70 milljarða dala  Talsvert verið um afbókanir hópa hjá Iceland Travel Björgólfur Jóhannsson Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Vel hefur gengið að sinna sjúkling- um á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi um helgina. Hjartagátt spítalans var lokað á fimmtudag og því er tekið á móti hjartveikum á bráðadeildinni. Læknum hefur verið fjölgað á bráðadeild og þar eru til taks sérfræðingar af hjartagátt. Sjúklingar hafa farið að leiðbein- ingum um að leita til Læknavaktar- innar og Heilsugæslunnar með minni tilfelli, að sögn Jóns Magnús- ar Kristjánssonar, yfirlæknis bráða- deildar Landspítalans. „Hingað hafa komið færri en komu að meðaltali á báðar deildir samanlagt fyrir sameininguna. Í heildina hefur gengið vel og við höf- um getað sinnt þeim málum sem upp hafa komið. Við sjáum að það er að- eins að þyngjast hjá okkur róðurinn í dag [sunnudag], fyrst og fremst vegna þeirra sem bíða eftir innlögn á legudeildir, aðrar en hjartadeild.“ Læknum fjölgað á Læknavakt Að meðaltali koma 110 sjúklingar á bráðadeild og hjartagátt saman- lagt á hverjum sólarhring. Nokkuð hefur verið um komur erlendra ferðamanna, einkum farþega skemmtiferðaskipa sem lágu við höfn í Reykjavík um helgina. „Á síð- asta sólarhring hafa alls komið 86 og það eru jafn margir og koma að meðaltali á bráðadeildina á sólar- hring. Þegar fjöldinn er þessi, þá ráðum við mjög vel við þetta og þá ættu allir að geta fengið góða þjón- ustu hratt og örugglega,“ segir hann og nefnir að bráðadeildin taki að sjálfsögðu við þeim sjúklingum sem eiga við alvarleg vandamál að stríða. „Ef fólk er með brjóstverk viljum við endilega að það komi hingað á bráðadeildina. Ef fólk er með minna alvarleg veikindi eða slys, þá fær það mjög góða þjónustu á Læknavakt- inni eða heilsugæslustöðvum. Þær hafa opnað fyrir bráðatíma allan daginn, þannig að fólk getur fengið þjónustu án þess að panta tíma. Þetta er fyrir vægari bráð tilvik.“ Hjartagáttin verður lokuð til 3. ágúst nk. Aðspurður kveðst Jón Magnús eiga von á því að róðurinn þyngist eftir því sem líður á mán- uðinn og sjúklingum fjölgi. „Reynslan er sú að þegar frá líður svona breytingum, þá fara hlutirnir oft í fyrra horf. Við hvetjum fólk áfram til að sækja þjónustu til Heilsugæslu og Læknavaktarinnar svo aukningin verði ekki eins mikil þegar á líður,“ segir hann. Oddur Steinarsson, sérfræðingur í heimilislækningum á Læknavakt- inni, segir að fimm læknar Lækna- vaktarinnar séu á vakt, einum fleiri en vanalega og hafa þeir allir unnið fram eftir kvöldi, sem er óvanalegt. Einn læknir til viðbótar sinnir þjón- ustu á bíl Læknavaktarinnar. Undanfarið hafa þeir allir unnið fram eftir kvöldi, en u.þ.b. 200 á dag hafa leitað þangað. Vel hefur tekist að bregðast við auknu álagi  Hjartagáttinni lokað sl. fimmtudag  Beina sjúklingum á Læknavaktina Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bráðadeild Jón Magnús Kristjáns- son, yfirlæknir á bráðadeild. Bráðadeild » Um 110 leita að meðaltali á bráðadeild og hjartagátt sam- anlagt á hverjum sólarhring. » Bráðadeild sinnir nú sjúk- lingum hjartagáttar vegna lok- unar til 3. ágúst. » 86 leituðu á bráðadeild sl. sólarhring og er sá fjöldi við- ráðanlegur að sögn yfirlæknis. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fyrstu sex mánuði þessa árs seldust um 10,3 milljón lítrar af áfengi í verslunum ÁTVR. Þetta er aukning um 2,6% frá sama tíma á síðasta ári. Af einstökum tegundum jókst salan hlutfallslega mest á freyðivíni og kampavíni, eða um 25,3%. Af 10,3 milljón lítrum seldust ríf- lega 7,6 milljón lítrar af lagerbjór frá janúar til loka júní á þessu ári, sem er aukning um 2,3% á milli ára. Sala á rauðvíni jókst um 1,5% en dróst saman um 0,7% á hvítvíni. Enn meiri samdráttur varð í sölu ávaxta- víns, eða um 12%. Af því seldust 139 þúsund lítrar í ár en 159 þúsund lítr- ar á fyrri helmingi síðasta árs. Minni hvítvínssala í júní Gott veður og sala á áfengi hafa oft haldist í hendur. Þess mátti glöggt sjá merki í sölu Vínbúða ÁTVR á Austurlandi, en sá lands- hluti hefur fengið mun fleiri sólar- stundir í sumar en t.d. suðvestur- horn landsins. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að- stoðarforstjóri ÁTVR, skoðaði söl- una á Austurlandi í nýliðnum júní- mánuði en þar eru átta Vínbúðir; á Þórshöfn, Vopnafirði, Egilsstöðum, Seyðisfirði, Reyðarfirði, Fáskrúðs- firði, Djúpavogi og í Neskaupstað. Í þessum verslunum jókst salan um 13% í júní, miðað við sama mánuð í fyrra, og aukningin á fyrri hluta árs- ins er 7,3% borið saman við janúar til loka júní á síðasta ári. „Stundum er talað um að salan á hvítvíni gefi vísbendingu um sum- arveðrið. Það kemur því ekki á óvart að sala á hvítvíni í júní var 4,9% minni í ár en í fyrra,“ segir Sigrún Ósk. Bara neftóbak eykst Sala á tóbaki heldur áfram að dragast saman, nema á neftóbaki. Þar jókst salan um nærri 20% á milli ára. Á fyrstu fimm mánuðum ársins seldist meira en 21 tonn af neftób- aki, var tæplega 18 tonn á fyrri helmingi síðasta árs. Sala á vindlum dróst saman um tæp 10% og um tæp 4% á sígar- ettum. Á fyrstu sex mánuðum ársins seldust um 428 þúsund karton af síg- arettum og um 2.100 vindlar. Til samanburðar má nefna að á fyrri helmingi ársins 2014 seldust 534 þúsund karton af sígarettum. Á fjór- um árum hefur salan því minnkað um tæp 20%, sé miðað við söluna á fyrri hluta áranna. Sala á áfengi og tóbaki fyrstu 6 mánuði ársins 2017 og 2018 Sala á áfengi í þúsundum lítra Sala á áfengi í lítrum í janúar-júní 2018 eftir tegundum Öl Blandaðir drykkir Ávaxtavín Freyðivín/kampavín Sala á tóbaki Heimild: ÁTVR Sala í janúar-júní 2017 2018 Breyting Neftóbak kg 17.978 21.534 19,8% Reyktóbak kg 4.248 3.660 -13,8% Vindlar þús.stk 2.331 2.103 -9,8% Sígarettur karton 445.233 427.857 -3,9% Sala í janúar-júní 2017 2018 Breyting Lagerbjór og pilsner 7.472 7.647 2,3% Rauðvín 878 892 1,5% Hvítvín 534 530 -0,7% Öl (IPA, belgískur o.fl.) 266 293 10,1% Aðrar bjórtegundir 229 241 5,1% Ávaxtavín 159 140 -12,0% Blandaðir drykkir 153 183 19,6% Brennivín og vodka 109 115 6,2% Freyðivín/kampavín 62 78 25,3% Annað 213 222 4,2% Samtals 10.075 10.341 2,6% Lagerbjór, öl og aðrar bjórtegundir Rauðvín Hvítvín Freyðivín, kampavín, ávaxtavín og blandaðir drykkir Brennivín og vodka Annað 2017 2018 266 293 +10,1% 2017 2018 153 183 +19,6% 2017 2018 159 140 -12,0% 2017 2018 62 78 +25,3% Alls 10.341 lítri Meiri sala á áfengi í sólinni fyrir austan  Áfengissala á Austurlandi jókst um 13% í júnímánuði Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hvítvín Sala á þeim drykk dróst saman um nærri 5% í júní sl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.