Morgunblaðið - 09.07.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.07.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Ríkisútvarpið sagði frétt umfyrirhugaða þéttingu byggð- ar í Skerjafirði undir fyrirsögninni „Það gustar um uppbyggingar- áform í Skerjafirði.“ Rætt var við íbúa í Einarsnesi sem leist illa á þau áform að bæta við stórri byggð í Skerjafirði, næst flugvellinum, þar sem akstursleiðin inn í hverfið lægi um Einarsnesið.    Íbúinn segir mælingar á umferðhafa verið gerðar á sumarleyf- istíma og að auki hefði áður verið gert ráð fyrir að nýju íbúðirnar yrðu 600-800 en nú væri ætlunin að þær yrðu 1.200.    Píratinn Sigurborg Ósk Har-aldsdóttir, formaður umhverf- is- og skipulagsráðs borgarinnar, gefur lítið fyrir áhyggjur íbúans. Umferðin verði ekki nema um sex- föld núverandi umferð, eða um 7.000 bílar á sólarhring í stað 1.200.    Sexföldun umferðar þykir ekkimikið hjá borgaryfirvöldum og píratinn bendir að auki á að ástandið verði ekkert verra en við Hofsvallagötu og Birkimel, en þar hafa borgaryfirvöld sem kunnugt er lengi unnið að þrengingum til að ýta undir umferðarvandann.    Augljóst má vera að með 1.200nýjum íbúðum í Skerjafirði stefnir í óefni í umferðarmálum hverfisins. Og umferðarvandinn hverfur ekki með draumórum um að fólk eigi að breyta um ferða- máta eða fara á fyrirhugaðri göngubrú yfir til Kópavogs.    Á daginn mun koma að ekkigeta allir gengið til vinnu í Kópavogi. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Sexföldun umferð- ar í Skerjafirði STAKSTEINAR Veður víða um heim 8.7., kl. 18.00 Reykjavík 10 rigning Bolungarvík 11 alskýjað Akureyri 13 alskýjað Nuuk 7 léttskýjað Þórshöfn 12 léttskýjað Ósló 23 léttskýjað Kaupmannahöfn 23 léttskýjað Stokkhólmur 25 heiðskírt Helsinki 19 skýjað Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 24 heiðskírt Dublin 23 skýjað Glasgow 21 skýjað London 28 léttskýjað París 29 heiðskírt Amsterdam 21 heiðskírt Hamborg 23 léttskýjað Berlín 27 skúrir Vín 25 heiðskírt Moskva 19 léttskýjað Algarve 26 heiðskírt Madríd 30 léttskýjað Barcelona 30 heiðskírt Mallorca 29 léttskýjað Róm 29 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 21 skúrir Montreal 26 skýjað New York 23 heiðskírt Chicago 25 heiðskírt Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:25 23:42 ÍSAFJÖRÐUR 2:39 24:38 SIGLUFJÖRÐUR 2:20 24:23 DJÚPIVOGUR 2:44 23:22 Nýr stór humar Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja Sjósundkappinn Jón Kristinn Þórsson kláraði ekki sundið yfir Ermarsund á laugardag, sökum of sterkra sjávarfalla á hinum svo- nefnda „grafreit draumanna“. Á laugarsdagsmorgun lagði Jón af stað yfir sundið frá Shakespeare strönd í Dover, kl. 05.28 að stað- artíma. Eftir að hafa synt 47 kílómetra á 14 klukkustundum þurfti hann að hætta sundi. Hann átti fjóra kíló- metra eftir til Frakklands en þurfti að hætta á fyrrnefndum „grafreit“. Svæðið er þekkt fyrir að reynast sundmönnum erfitt vegna öflugra sjávarfalla og Jón fékk einmitt að kenna á þeim sterku straumum. Með honum í för voru tveir Ermarsundsfarar, þau Benedikt Hjartarson, sem synti Ermarsund- ið árið 2008, og Sigrún Þ. Geirs- dóttir, sem synti árið 2015 og varð þar með fyrsta íslenska konan til að synda yfir Ermarsund. Við góða heilsu eftir sundið Jón er vanur sjósundi og hefur meðal annars synt Drangeyjar- sund og frá Vestmannaeyjum til Landeyjasands. Hann hélt aftur til Dover á laugardagskvöld og var í gær sagður við góða heilsu. Lauk ekki sundi yfir Ermarsund  Jón Kristinn hætti sundinu yfir Erm- arsund  Synti 47 km og átti 4 km eftir Ljósmynd/Aðsend Sjósund Jón Kristinn við upphaf sundsins. Hann synti 47 kílómetra. Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hefur upplýst þrjú inn- brot sem voru framin í Kópa- vogi og Garðabæ í byrjun síðustu viku. Um er að ræða tvö innbrot á byggingarsvæði, þar sem fjölda verkfæra var stolið, og eitt á heimili, en þar voru líka tekin verðmæti af ýmsu tagi. Megnið af þýfinu er kom- ið í leitirnar, en það fannst við hús- leit í Kópavogi. Auk þess var lagt hald á fíkniefni á sama stað. Þrír menn, tveir á fertugsaldri og einn á þrítugsaldri, voru handteknir í þágu rannsóknarinnar og játuðu allir sök, segir í tilkynningu frá lög- reglunni. Lögreglan minnir á upplýsinga- síma sinn, 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á fram- færi upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafn- framt koma á framfæri í einkaskila- boðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 3 innbrot upplýst  Þrír handteknir og játuðu allir sök

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.