Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 09.07.2018, Síða 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Ég ætla að brjóta á þér helvítishálsinn,“ öskraði aðstoðar-þjálfari New Jersey Stallions á mig á fótboltamóti í Barcelona í síð- ustu viku eftir að liðið hans hafði unnið okkar lið í úrslitaleik mótsins. Strák- arnir sem spiluðu leikinn voru 15 og 16 ára. Foreldrar strákanna í bandaríska liðinu höfðu kallað okkar stráka öllum mögulegum illum nöfnum allan leik- inn. Hátt og skýrt. Ég er búinn að fylgja strákunum mínum á fótbolta- mót í 16 ár og aldrei áður upplifað svona herskáa stemningu í kringum barna- eða unglingaleik. Foreldrar og þjálfarar bandarísku folanna voru hreinlega á allt öðrum stað en við eig- um að venjast. Þau voru ekki mætt til að horfa á fótboltaleik eða styðja sína stráka á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Þau voru mætt í stríð. Sem þau, í þeirra huga, geri ég ráð fyrir, unnu. Þetta var lærdómsrík upplifun fyrir okkur öll sem komum að okkar liði, leikmenn, þjálfara, liðsstjóra og for- eldra. Við mættum á Barcelona Summer Cup með tvö lið, samtals 35 stráka. Þeir eru búnir að safna fyrir þessari ferð í allan vetur og hlakka mikið til hennar. Þátttaka á svona móti snýst auðvitað mikið til um leik- ina sjálfa, keppnina, og allir vilja að sjálfsögðu vinna þá leiki sem þeir spila. En enn mikilvægara, að mínu mati, er uppeldislegi og félagslegi þáttur- inn. Íþróttir barna og unglinga eiga að snúast um svo margt annað en bara að vinna. Samstaða, samvinna, virðing, gleði og heilbrigði eru orð sem koma upp í hugann. Þátttaka í skipulögðum íþróttum er ein mikilvægasta og öfl- ugasta forvörn sem gott samfélag býður íbúum sínum upp á. Það er margsannað. Gott íþróttafélag heldur vel utan um iðkendur sína og gefur öll- um tækifæri við hæfi. Það er einmitt það sem okkar félag gengur út á. Við fórum á mótið með frábæran hóp af strákum á ýmsu getu- og þroskastigi. Allir fengu að spila. Allir voru hluti af hópnum. Allir fá miklu meira út úr ferðinni en bara að keppa. Við förum heim stolt og ánægð og hlökkum til að halda áfram að styðja og efla okkar krakka á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Það á eftir að skila sér margfalt til baka. Foreldrar mættir í stríð Njóttu ferðalagsins Guðjón Svansson guðjón@njottuferdalagsins.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Sport Þátttaka í skipulögðum íþróttum er öflug forvörn. Á stemningsleik KR og Grindavíkur í körfuboltanum. Guðjón Svansson er Íslendingur, ferðalangur, eiginmaður, fjögurra stráka faðir, rithöfundur, fyrirles- ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og nemandi sem heldur úti bloggsíð- unni njottuferdalagsins.is. Grísk jógúrt www.biobu.is Lífrænar mjólkurvörur Lífrænu Grísku jógúrtina frá Biobú er gott nota í matargerð, svo sem í ídýfur með karríréttum og öðrum sterkkrydduðum réttum, þar sem hún er svalandi og vinnur á móti kryddinu í réttunum. Svo er hún alveg kjörin í alla sósugerð og til mareneringar á grillsteikinni. Jógúrt hvítlaukssósa 250 ml Grísk jógúrt 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) 1-2 hvítlauksrif, pressuð 0,25-0,5 tsk svartur pipar Smá klípa steinselja (má sleppa) Hrærið öllu vel saman. Kælið í a.m.k. 30 mínútur. Lífræn íslensk framleiðsla Lífræn „Verkefnið framundan er spennandi,“ segir Guðrún Björt Yngvadóttir úr Garðabæ sem í síðustu viku tók við embætti alþjóðaforseta Lions- hreyfingarinnar. Í meira en aldar- langri sögu Lions er Guðrún fyrst kvenna til að sinna þessu embætti, enda segist hún ætla að nota tæki- færið sem nú hefur skapast til að hvetja konur til starfa til starfa og áhrifa innan hreyfingarinnar, þar sem karlar hafa verið ráðandi til þessa. Starf í 210 löndum Það var á alþjóðaþingi Lions sem haldið var í Nevadaríki í Bandaríkj- unum sem Guðrún Björt tók formlega við embættinu, að viðstöddum ríf- lega 100 Lionsfélögum frá Íslandi. Á þinginu voru umdæmisstjórar frá alls 170 löndum, en hreyfingin starfar í alls 210 löndum og félagar er um 1,5 milljón. Frá því Guðrún var tilnefnd fyrir nokkrum misserum að verða heimsforseti hefur hún heimsótt mörg þessara landa og sú vegferð heldur áfram nú. „Ég geri ráð fyrir því að heimsækja 50 til 70 lönd næsta árið. Það eru mörg verkefni sem heimshreyfingin beitir sér fyrir og starfar að og því fylgir að alþjóðaforsetinn heimsæki klúbbana, liðsmenn þeirra og ráða- menn í hverju landi,“ segir Guðrún Björt. Baráttan gegn sykursýki í heim- inum hefur verið áherslumál Lions á undanförnum árum. „Þetta er alvar- legur sjúkdómur sem herjar víða og við viljum beina kröfum okkar í bar- áttunni gegn honum. Auðvitað er það þó svo að í sumum löndum er kannski ekki beint áhugi á þessu viðfangsefni og þá geta Lionsfélagar líka sinnt öðrum viðfangsefnum sem við höfum lagt áherslu á, það er barátta gegn hungri, sjónvernd, krabbamein barna og umhverfismál,“ segir Guðrún Björt sem reiknar með að verða tals- vert í Chicago í Bandaríkjnum næsta árið en þar í borg er höfuðstöðvar Lions í heiminum. Konur til áhrifa „Jafnréttismál eru komin langt áleiðis á Íslandi og mér finnst ekkert tiltökumál að vera kona sem heims- forseti Lions. Í ræðu sem ég flutti þegar ég tók við embættinu lagði ég því áherslu á að ég væri fyrsti Íslend- ingurinn sem gengdi því en ekki fyrsta konan og fékk sá málflutn- ingur góðar viðtökur,“ segir Guðrún Björt. Á Íslandi eru konur komnar til áhrifa innan hreyfingarinnar. Nýir fjölumdæmisstjórar eru; Sigfríð Andradóttir í vestur- og norður- umdæmi og Geirþrúður Fanney Boga- dóttir í suður og austurumdæmi. Fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi er Björg Bára Halldórsdóttir. Tekin við sem alþjóðaforseti Lions-hreyfingarinnar Forseti sem ætlar að heimsækja 50-70 þjóðlönd næsta árið Alþjóðaforsetinn Guðrún Björt Yngvadóttir er í forystunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.