Morgunblaðið - 09.07.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 09.07.2018, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2018 Er ferðavagninn rafmagnslaus? TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu örugg t start með TUDO R Frístunda rafgeymar í miklu úrvali, AGM þurr rafgeymar eða lokaðir sýrurafgeymar. Ingunn Guðbrandsdóttir er fertug í dag. Hún er fjármálastjóriBókunar ehf., hugbúnaðarfyrirtækis sem nýlega var keypt afTripAdvisor. Hún er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun og er sjálfstætt starfandi jógakennari. Loks er hún persónulegur markþjálfi og þar renna saman þessi störf, sem í fyrstu virðast sundurleit. Hún er líka nýfarin að hlaupa. Og gefur lítið eftir. „Ég gaf sjálfri mér í fertugsafmælisgjöf að hlaupa tvö hálf- maraþon,“ segir Ingunn glöð í bragði. Hún er hæstánægð með áfang- ann, fagnar því að eldast. „Ég er sífellt að vaxa og prófa nýja hluti. Ég gat aldrei hlaupið, fékk bara hlaupasting og gafst upp. Ég á hund og í vetur ákvað ég að prófa að fara út að hlaupa með hann, þannig slá tvær flugur í einu höggi, að hreyfa mig og um leið hundinn.“ Ingunn er orðin hugfangin af íþróttinni og á Jónsmessu síðastliðinni hljóp hún sitt fyrsta hálfmaraþon og tekur annað í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst. Það er ekki auðvelt að vera fjármálastjóri í kringum mánaðamót. Ingunn ætlar í dag að reyna að skila af sér bunka af verkefnum. Að því loknu liggur beinast við að reima á sig hlaupaskóna og fara beint út að hlaupa. „Ef ég hef tíma reyni ég að skella mér líka í jóga. Ég verð að komast að hlaupa enda æfi ég enn stíft fyrir næsta hálf- maraþon.“ En er þetta ekki í höfn, fór hún ekki létt með hitt? „Ég hélt ég myndi ekki ná í mark. Við getum orðað það þannig.“ Hlaupakona Það er aldrei of seint að prófa nýja hluti, eins og hlaup. Úr hlaupasting í hálfmaraþon Ingunn Guðbrandsdóttir er fertug í dag B ryndís Schram fæddist 9. júlí 1938 í Reykjavík. Hún stundaði nám við Listdansskóla Þjóðleik- hússins frá 1950, lauk stúdentsprófi frá MR 1958, stundaði frönskunám í Sorbonne 1958-59, nám við Edinborgarháskóla 1959-60, við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1962- 64, var á kennaranámskeiði í frönsku við háskólann í Aix-en Provence 1971 og við háskólann í Nice 1975, og lauk BA-prófi í ensku, frönsku og latínu við HÍ 1973. Með námi stundaði Bryndís m.a. fiskvinnslu, framreiðslu og leiðsögn fyrir erlenda ferðamenn. Hún varð fegurðardrottning Íslands 1957. Bryndís dansaði við Listdansskóla Þjóðleikhússins til 1970, lék við Þjóð- leikhúsið 1964-70, lék, kenndi leiklist og leikstýrði á Ísafirði 1970-78, var kennari við MÍ 1971-78, skólameistari þar 1976-77, kenndi við Póst- og síma- skólann 1978-79, vann við dagskrár- gerð hjá ríkissjónvarpinu 1978-83 og hjá Stöð 2 frá upphafi og um árabil, vann að myndbandagerð 1984, var ritstjóri tískublaðsins Lífs 1983-84 og framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs Íslands 1992-1996. Hún var sendi- Bryndís Schram, fv. fjölmiðla-, leikkona og ballerína – 80 ára Hjónin Bryndís og Jón Baldvin stödd á Möltu fyrir tveimur árum, en þau búa núna hálft árið í Andalúsíu. Í nýrri heimsálfu við hvert stórafmæli Afmælisbarnið „Mér finnst ekkert erfitt að eldast því að árin segja í raun ekkert til um aldur. Ég er líka svo gæfusöm að njóta góðrar heilsu.“ Garðabær Ólafur Tinni Pálsson fæddist 17. desember 2017. Hann vó 15 merkur og var 52 cm að lengd. Foreldrar hans eru Hildur Ýr Hvanndal og Páll Arnarson, en Páll er þrítugur í dag eins og sjá má hér á síðunni til hægri. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.