Morgunblaðið - 11.07.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 11.07.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Talsverð spenna hefur ríkt í aðdraganda leið- togafundar Atlantshafsbandalagsins sem hald- inn verður í Brussel í dag og á morgun. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri bandalagsins, hefur jafnvel gengið svo langt að lýsa yfir áhyggjum um framtíð þess. Ástæðan er aukinn rígur sem borið hefur á milli Bandaríkjanna og annarra aðildarríkja samhliða versnandi sam- skiptum þeirra við Rússland. Fyrir hönd Íslands sækja fundinn Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Þrátt fyrir skugga sem ásakandi ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta í garð bandalagsríkjanna og fjárframlags þeirra til varnarmála hefur varp- að yfir fundinn sagðist Guðlaugur ekki hafa áhyggjur af samheldni bandalagsins í viðtali við Morgunblaðið. Ólíkt ýmsum aðildarríkjum hafi Ísland ekki fengið orðsendingu frá Banda- ríkjaforseta með kröfu um hærra fjárframlag til varnarmála þar sem Bandaríkjamenn sýni sérstöðu landsins skilning. „Staða Íslands er þekkt innan Atlantshafs- bandalagsins. Það hefur alltaf verið ljóst að við erum herlaus þjóð og staða okkar er því ekki sambærileg við hin aðildarríkin. Við tökum þátt í Atlantsbandalaginu á okkar hátt eins og við höfum gert á undanförnum árum og mun- um halda áfram að efla okkur og styrkja okkur þar. Við erum með fulltrúa meðal annars í Eistlandi og Georgíu og tökum þátt í borg- aralegri starfsemi NATO í Afganistan og Írak. Við erum virkir þátttakendur í bandalaginu og erum að efla það enn frekar eins og aðrar aðild- arþjóðir.“ Gagnrýni Trumps ekki ný Guðlaugur sagði ummæli Trumps Banda- ríkjaforseta ekkert einsdæmi í sögu banda- lagsins. „Núverandi Bandaríkjaforseti er ekki fyrsti forsetinn sem hefur hvatt til þess að framlag aðildarríkjanna yrði aukið. Það hefur verið umræða í langan tíma. Á fyrri fundi NATO sem ég hef sótt sem utanríkisráðherra hef ég ekki orðið var við annað en samstöðu um mikilvægi bandalagsins.“ Guðlaugur bætti við að þótt ummæli Banda- ríkjaforseta hafi verið gagnrýnin sýni Banda- ríkin í verki fram á áframhaldandi hollustu við bandalagið. „Þetta snýst ekki bara um orð, heldur gerðir,“ sagði hann. Jafnframt væri aukin samvinna með nánustu samstarfsþjóðum bandalagsins, Finnum og Svíum, til merkis um áframhaldandi mikilvægi þess. Aðspurður hvort það hefði nokkur áhrif á viðhorf gagnvart Íslandi að forsætisráð- herrann sem sæti fundinn væri meðlimur í flokki sem hefði það á stefnuskrá sinni að ganga úr NATO svaraði Guðlaugur neitandi. „Það liggur alveg fyrir hver stjórnarsáttmál- inn er. Þegar tveir eða fleiri flokkar fara í sam- starf ná menn saman með ákveðna stefnu og stefna okkar byggist á þjóðaröryggisstefnu sem mjög breið samstaða er um á þingi. Eftir því er unnið og það kemur fram í okkar starfi.“ Rætt um mál Rússa Að sögn Guðlaugs kemur helsta umræðuefni fundarins til með að vera samband aðildarríkja við Rússland. Guðlaugur taldi ekki að nein grundvallarbreyting á samskiptum við Rúss- land hefði orðið síðustu daga eftir að bresk kona í bænum Amesbury lést af völdum rúss- nesks taugaeiturs. Viðskiptaþvingunum var bætt á Rússland og margir vestrænir leiðtogar sniðgengu heimsmeistarakeppnina í knatt- spyrnu sem stendur yfir í Rússlandi vegna svipaðs atviks sem átti sér stað í mars í Sal- isbury. „Það er samstaða um að vilja sjá Rúss- land í evrópsku fjölskyldunni, ef þannig má að orði komast. Þrátt fyrir refsiaðgerðirnar eiga flest ríki í ágætis samstarfi við Rússa á mörg- um sviðum, þar með talið Ísland í norður- skautsmálunum. Salisbury-atvikið var í raun- inni kornið sem fyllti mælinn, en það var margt annað sem var búið að ganga á frá innlimun Krímskaga árið 2014. Það hefur orðið mikil breyting síðan það gerðist.“ Áhyggjulaus um samheldni NATO  Forsætisráðherra og utanríkisráðherra halda til leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Brussel  Guðlaugur Þór segir gerðir Bandaríkjamanna sýna fram á áframhaldandi hollustu við bandalagið Á fundinum verður fundað með leiðtogum Georgíu og Úkraínu um umbætur og ör- yggismál í Suðaustur-Evrópu. Katrín Jakobsdóttir mun hitta fulltrúa ICAN (International Campaign to Abolish Nuclear Weapons) á fimmtudaginn. Hún mun einnig eiga tvíhliða fundi með Jens Stoltenberg og ýmsum leiðtogum aðildar- ríkjanna. Auk þeirra Guðlaugs verður með í för Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Ís- lands hjá NATO. Þétt dagskrá hjá Katrínu UM FUNDINN Ljósmynd/NATO NATO Aðalritari Atlantshafsbandalagsins, Jens Stoltenberg, ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni ut- anríkisráðherra. Leiðtogafundur NATO hefst í Brussel í dag og verður fram haldið á morgun. Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Trilene XL nylon línur til lax- silungs- og sjóveiða í fjölbreyttu úrvali einnig taumaefni. Fjölbreyt úrval af hjólum og stöngum, til sportveiða fyrirliggjandi. Vöðluskór með skiptanlegum sóla, filt, gúmmí og negldir sólar. Tvennir sólar fylgja. Þessir skór voru valdir bestu Vöðlu skórnir á Efftex veiðisýningunni 2016. Ugly Stik kaststang- irnar eru sterku stangir á mark- aðnum. Gott úrval af kast- stöngum og hjólum, strandveiðstangir, Combo strand- veiðistöng og hjól, sjóstangir. Stærsta úrval stanga og hjóla til sjóveiði. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Veiðisport Selfossi Þjónustustöðvar N1 um allt land. Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.