Morgunblaðið - 11.07.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
Sagt hefur verið um Vestfirð-
inga að þeir hnýti ekki alltaf
bagga sína sömu hnútum og aðrir
landsmenn. Þeir vilja efla gömlu
atvinnuvegina, landbúnað, sjávar-
útveg og iðnað hvers konar. En
„þið þarna fyrir sunnan“ viljið
endilega að þeir verði bugtandi
ferðaþjónar. Fylli fjórðunginn af
stjórnlausu ferðafólki og þjóni því
allan ársins hring. Hreyfi sem
minnst við landsins gögnum og
gæðum svo blessaðir ferðalang-
arnir fái ekki sjokk af sjón-
mengun.
Vilja menn að Vestfirðir
verði Mallorca norðursins?
Íslendingar eiga erfitt með að
stjórna sjálfum sér svo vel sé. Og
kunna ekki og vilja ekki forgangs-
raða fjármunum. Íslenska stjórn-
sýslan hefur stundum ekki hug-
mynd um hvað er að gerast í
kringum hana, til vinstri né
hægri. Því eru litlar sem engar
líkur á að við getum haft almenni-
legt kontról á mörgum milljónum
ferðamanna á ári að óbreyttu.
Þetta er náttúrlega bilun, en það
er svona samt!
Ferðamenn, farið heim, segja
nú sumir innfæddir á Mallorca og
Kanaríeyjum. Þrátt fyrir allan
gróðann. Margir hérna fyrir vest-
an vilja ekki að Vestfirðir verði
Mallorca norðursins. „Þið þarna
fyrir sunnan“ verðið bara að
skilja það.
Ferðamenn eru góðir sem slíkir
að vissu marki. En stjórnlausir
ferðamenn í massavís geta orðið
algjör plága, sbr. miðbæinn í
Reykjavík. Megum við þá frekar
biðja um frumatvinnuvegina. En í
hæfilegri blöndu með ferða-
mennskunni. Best að hafa þetta
sitt af hverju tagi.
Almannarómur segir að þegar
Vestfirðingar eru hættir að geta
rifið kjaft séu þeir búnir að vera.
„Þið þarna fyrir sunnan“ eruð sí-
fellt að leiðbeina þeim hvernig best
er að standa að ýmsum hlutum í
Vestfirðingafjórðungi. En „þeir
þarna fyrir vestan“ vilja alltaf gera
eitthvað annað og öðruvísi og
brúka bara munn eins og gamla
konan sagði.
Vestfirska rafmagnið
Flestir atvinnuvegir þurfa raf-
magn. En þetta eilífa basl Vestfirð-
inga að halda rafmagninu inni er
brandari á landsvísu. Þeir eru
löngu orðnir þreyttir á einhverjum
hundi að sunnan, sem er góður út
af fyrir sig. En hann hleypur alltaf
út og suður þegar verst gegnir.
Flestar ef ekki allar stórvirkjanir
okkar eru staðsettar á sívirku eld-
gosabelti landsins. Sú staða getur
því hæglega komið upp að Vest-
firðir fái ekki eitt einasta kílóvatt
eftir hundinum að sunnan, jafnvel
langtímum saman. Á þetta hafa
vísir menn margoft bent.
Það var kraftaverk að rafvæða
Vestfirði fyrir 60 árum. Og koma
orkunni nánast á hvert byggt ból.
Mikilvirkir, stórhuga og lagtækir
menn voru þar að verki. Ekki er
vitað til að nokkur Vestfirðingur
né aðrir hafi beðið tjón á sálu sinni
þrátt fyrir alla þá nauðsynlegu tré-
staura sem stóðu undir rafmagns-
línunum og standa enn. Hitt er
annað að auðvitað vilja flestir góðir
menn að rafstrengir séu í jörðu.
Það ætti nú ekki að vera ofverkið
okkar í dag miðað við fyrri afrek í
dreifingu rafmagns.
Mjólkárvirkjun hefur
malað gull í 60 ár
Mjólkárvirkjun hefur nú malað
Vestfirðingum gull í slétt 60 ár.
Þegar byrjað var á Mjólká 1, 1956,
2,5 MW, var enginn vegur í Borg-
arfirði. Allt byggingarefni og tæki
flutt á sjó. Ótrúlegt þrekvirki. Alls
konar stíflur reistar á hálendinu
ofan Mjólkár. En þar efra á
Glámuhálendi, í 500-700 metra
hæð, eru veður ströng þegar svo
ber við. Efri og neðri stífla. Stærð-
ar lón. Vegir og vatnsmiðlanir.
Margra kílómetra vatnsrör ofan-
jarðar. Seinna kom svo Langa-
vatnsmiðlun ásamt fleiri miðlunum.
Vatni sums staðar veitt neðan-
jarðar. Svo kom Hófsárveita. Stífla
þar, lón og langur skurður. Svo
kom Mjólká 2 og 3. Bara alls kon-
ar.
Við sem næstir búum höfum
ekki heyrt nokkurn einasta mann
kvarta yfir þessum mannvirkjum.
Engan. Mjólkárfossar eru ein-
hverjir fegurstu fossar hér um
slóðir. Þeir eru stundum þurrir svo
vikum og jafnvel mánuðum skiptir
á ári vegna vatnssöfnunar Orku-
búsins. Enginn kjaftur segir eitt
einasta orð. Enginn beðið tjón á
sálu sinni svo vitað sé! Og það
jafnvel þótt þjóðvegurinn liggi neð-
an fossanna. Þetta er náttúrlega
bilun!
Mjólkárvirkjun
– Hvalárvirkjun
Nú er upplagt að þeir sem vit
hafa á setji á blað samanburð á öll-
um framkvæmdunum í kringum
Mjólkárvirkjun í gegnum tíðina og
væntanlegri Hvalárvirkjun. Í það
þarf ekki að fara nema dagstund.
Skyldi vera einhver raunverulegur
munur þar á ef grannt er skoðað?
Við leikmennirnir (einn okkar var
starfsmaður á plani við Mjólká 1)
höldum að þetta sé nákvæmlega
sama tóbakið. Hvalárvirkjun jafn-
vel náttúruvænni ef eitthvað er. En
sem áður segir hefur Mjólkár-
virkjun malað Vestfirðingum gull í
60 ár. Og það án þess nokkur mað-
ur hafi tekið eftir því.
Eru Vestfirðingar eitthvað
skrýtnir eða jafnvel klikkaðir?
Eftir Hallgrím Sveinsson,
Guðmund Ingvarsson og
Bjarna G. Einarsson
» Við sem næstir
búum höfum ekki
heyrt nokkurn einasta
mann kvarta yfir
þessum mannvirkjum
í Mjólkárvirkjun.
Engan. Þetta er
náttúrlega bilun!
Hallgrímur
Sveinsson
Bjarni Georg
Einarsson
Guðmundur
Ingvarsson
Hallgrímur er bókaútgefandi, Guð-
mundur fyrrverandi stððvarstjóri
Pósts og síma á Þingeyri og Bjarni
fyrrverandi útgerðarstjóri KD á
Þingeyri.
Við gerum við bremsur í
ÖLLUM BIFREIÐUM
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi | Sími 587 1400 | motorstilling.is
20% afsláttur af
bremsuvarahlutum*
HAFÐUSAMBANDog bókaðu tímafyrir bílinn þinn
* Gildir einungis með bremsuviðgerðum
TILBOÐ Í JÚLÍ