Morgunblaðið - 11.07.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
SKECHERS GRATIS DÖMUSKÓR
MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41.
DÖMUSKÓR
KRINGLU OG SMÁRALIND
7.797
VERÐ ÁÐUR 12.995
30%
AFSLÁTTUR
Inga Guðrún Birgis-dóttir er fimmtug ídag. Hún hefur starfað
síðustu 10 ár við mannauðs-
mál, síðast sem mannauðs-
stjóri hjá Mjólkursamsöl-
unni en þar áður hjá 1912
samstæðunni. Fyrir það hjá
LSH við verkefni sem
tengdust stefnumótun,
gæðastjórnun og starfs-
mannatengdum málum.
Hún útskrifaðist með meist-
aragráðu í mannauðs-
stjórnun 2007 frá HÍ, og
með meistaragráðu í stjórn-
un og stefnumótun 2006 frá
sama skóla. „Ég er á milli
starfa núna. Ég er róleg
með það og vil finna mér
eitthvað spennandi. Reynd-
ar finnst mér ég alltaf velja
vel, mér finnst ég alltaf
vera í besta starfi í heimi.“
Þannig eru þetta tíma-
mót í ýmsum skilningi hjá
Ingu. „Mér líður ekkert eins
og ég sé að verða fimmtug.
Ég er auðvitað ánægð að ná
þessum aldri og þakklát. Nú er bara seinni hálfleikurinn að hefjast.“
Það eru bjartir tímar fram undan. „Nú langar mig að fá meiri tíma til
að ferðast, sinna áhugamálunum. Ég uni mér best á fjöllum, sem er
kannski skrýtið því að ég fór ekki að fara í göngur fyrr en eftir fertugt.
Hafði ekki einu sinni komið á Esjuna.“
Inga er ekki ein í fjölskyldunni um að standa á krossgötum í lífinu um
þessar mundir því tvö barna hennar útskrifuðust í vor, Helena Sól úr
sálfræði við HÍ og Gabríel Máni úr 10. bekk, nú á leið í Verzló. „Börnin
mín eru eitt af helstu afrekum mínum. Að sjá þau verða að þeim ein-
staklingum sem þau eru í dag gerir mig stolta. Þau eru algjörir móður-
betrungar.“ Þessu fögnuðu þau stórfjölskyldan í Króatíu fyrr á árinu
en í þokkabót áttu foreldrar Ingu þá gullbrúðkaupsafmæli, þau Birgir
Jónsson jarðverkfræðingur og Dagrún Þórðardóttir viðskiptafræð-
ingur.
Inga Guðrún á þrjú börn, þau Helenu Sól, f. 1995, Aþenu Örk, f. 1998,
og Gabríel Mána, f. 2002.
Tímamót hjá allri
fjölskyldunni
Inga Guðrún Birgisdóttir er fimmtug í dag
Mannauðsstjóri „Mér finnst ég alltaf
vera í besta starfi í heimi.“ B
jörn Sigurðsson fæddist
11. júlí 1968 í Reykja-
vík. Hann bjó fyrstu
fjögur árin í Hraun-
bænum en þá fluttist
fjölskyldan í Hafnarfjörð og hefur
búið þar síðan.
Björn gekk í Víðistaðaskóla en
fluttist innan Hafnarfjarðar og tók
síðustu þrjú ár grunnskóla í Öldu-
túnsskóla. „Sumrin fóru aðallega í
íþróttaiðkun, ég æfði fótbolta með
FH en dvaldi hluta af sumrum hjá
afa og ömmu í Stykkishólmi.“
Björn stundaði nám við Flens-
borgarskólann í Hafnarfirði og út-
skrifaðist þaðan árið 1988 og var
hann mjög virkur í félagslífi innan
skólans. Hann stundaði nám við
Tækniháskóla Íslands og lauk það-
an BS-prófi í alþjóðamarkaðsfræði
árið 1994.
Eftir stúdentspróf og áður en
farið var í háskólanám fékk ég, fyr-
ir algjöra tilviljun, starf sem jóla-
starfsmaður í Skífunni í Kringlunni
en þar með voru örlögin ráðin
næstu 20 árin eða svo. Ég kynntist
Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Auto Trade ehf. – 50 ára
Fjölskyldan Frá hægri: Björn Sigurðsson, Sif, Daði, Arnór og Aðalbjörg Ólafsdóttir öll í stíl.
Ákvað að söðla um og
fara í bílabransann
Stórfjölskyldan Bræðurnir, fjölskyldur þeirra og foreldrar.
Hveragerði Thea Líf
Matthíasdóttir fæddist
16. ágúst 2017 kl. 9.46.
Hún vó 3.510 g og var
52 cm að lengd. For-
eldrar hennar eru
Agnes Linda
Þorgeirsdóttir og
Matthías Karl
Þórisson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is