Morgunblaðið - 11.07.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Björgun tólf pilta og fótboltaþjálfara
þeirra úr helli á norðanverðu Taílandi
lauk giftusamlega í gær þegar kaf-
arar björguðu þeim fimm síðustu,
sautján dögum eftir að þeir urðu inn-
lyksa í hellinum.
Piltarnir eru á aldrinum 11 til 16
ára og fóru inn í hellinn með 25 ára
þjálfara sínum eftir fótboltaæfingu
23. júní. Þeir urðu innlyksa í hellinum
vegna vatns sem flæddi inn í hann í
mikilli rigningu og höfðust við á syllu
yfir vatnsflaumnum í niðamyrkri, um
fjóra kílómetra frá hellismunnanum.
Níutíu kafarar, þeirra á meðal
fimmtíu frá öðrum löndum, tóku þátt
í björguninni. Enginn piltanna hafði
kafað áður og margir þeirra eru jafn-
vel ósyndir þannig að björgunar-
mennirnir þurftu fyrst að kenna þeim
að nota köfunargrímur og súrefnis-
kúta. Björgunarmennirnir óttuðust
að piltarnir myndu missa stjórn á sér
af hræðslu þegar þeir þyrftu að synda
í þröngum hellinum í svartamyrkri.
Gripið var því til þess ráðs að gefa
piltunum milt róandi lyf, að sögn for-
sætisráðherra Taílands, Prayut
Chan-O-Cha. Piltarnir voru bundnir
við kafara sem fylgdu þeim í gegnum
göngin og héldu í reipi sem vísuðu
þeim leiðina að hellismunnanum.
Einn kafaranna sem tók þátt í
björguninni, Ivan Karadzic, sagði að
piltarnir hefðu verið „ótrúlega sterk-
ir“. „Þeir urðu að gera nokkuð sem
ekkert barn hefur gert áður. Það er á
engan hátt eðlilegt að barn þurfi að
kafa í dimmum helli ellefu ára að
aldri,“ sagði hann í viðtali við breska
ríkisútvarpið. „Þeir köfuðu við mjög
hættulegar aðstæður í engu skyggni,
eina ljósið kom frá luktum sem við
komum með.“
Við tiltölulega góða heilsu
Átta piltanna, sem var bjargað á
sunnudag og mánudag, hafa gengist
undir læknisrannsóknir og verða á
sjúkrahúsi í að minnsta kosti viku.
Þeir hafa fengið bóluefni gegn hunda-
æði og stífkrampa og tveir þeirra
hafa fengið sýklalyf þar sem þeir eru
með einkenni lungnabólgu, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Óttast var að piltarnir kynnu að
hafa fengið hættulegan sjúkdóm í
hellinum og þeir verða því í sóttkví
um sinn á sjúkrahúsinu. Gert er einn-
ig ráð fyrir því að þeir þurfi á hjálp
sálfræðinga að halda til að takast á
við sálræna áfallið sem viðbúið er að
fylgi þessari þungu reynslu.
Læknar á sjúkrahúsinu sögðu þó í
gær að piltarnir virtust tiltölulega vel
á sig komnir andlega og líkamlega.
Björgun piltanna vakti mikla at-
hygli úti um allan heim og margir
fögnuðu þeim tíðindum að þeir hefðu
komist heilir á húfi úr hellinum. Man-
chester United bauð þeim í heimsókn
á Old Trafford á næstu leiktíð en Al-
þjóðaknattspyrnusambandið FIFA
sagði að þeir myndu ekki geta þegið
boð þess um vera viðstaddir úrslita-
leikinn í heimsmeistarakeppninni í
fótbolta í Moskvu á sunnudaginn
kemur.
Urðu að gera nokkuð sem
ekkert barn hefur gert
Öllum piltunum tólf og þjálfara þeirra bjargað úr hellinum
AFP
Björgun lokið Sjúkrabifreið ekið frá Tham Luang-hellinum í Taílandi eftir að piltum var bjargað úr honum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hélt í gær í sjö daga Evrópuferð sem
hefst með leiðtogafundi aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins og lýkur
með fundi með Vladimír Pútín, for-
seta Rússlands. Búist er við að
Trump leggi fast að samstarfsríkj-
unum í NATO að auka fjárframlögin
til hermála og leggja meira af mörk-
um til varnarsamstarfs bandalags-
ins.
Leiðtogafundur NATO verður
haldinn í Brussel í dag og á morgun
og gert er ráð fyrir því að Trump eigi
sérstakan fund með Jens Stolten-
berg, framkvæmdastjóra bandalags-
ins. Forsetinn fer síðan til London
síðdegis á morgun, ræðir þar við
Theresu May, forsætisráðherra
Bretlands, og Elísabetu II drottn-
ingu. Þaðan fer hann til Skotlands
áður en hann á fund með Pútín í
Helsinki á mánudaginn kemur.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
Evrópusambandsins, sagði í gær að
Trump hefði gagnrýnt Evrópuríkin í
NATO nær daglega vegna deilna
þeirra um fjárframlögin til varnar-
mála og verndartolla Trumps á inn-
flutt ál og stál frá Evrópulöndum.
Tusk hvatti hann til að meta sam-
starfslönd Bandaríkjanna að verð-
leikum. „Bandaríkjamenn hafa ekki
og fá ekki betri bandamenn en ESB-
ríkin,“ sagði Tusk. „Við leggjum
miklu meira fé í varnarmál en Rúss-
land og eins mikið og Kína. Kæru
Bandaríkjamenn, metið bandamenn
ykkar að verðleikum, þegar allt kem-
ur til alls eru þeir ekki mjög margir.“
Telur að fundurinn með
Pútín verði auðveldari
Þessi ummæli virtust ekki hafa
mikil áhrif á Trump. „Bandaríkin
eyða mörgum sinnum meira fé en
nokkurt annað land til að vernda
þau,“ tísti hann á Twitter áður en
hann hélt til Brussel. „Í þokkabót
töpum við 151 milljarði dollara á við-
skiptum við Evrópusambandið.“
Trump sagði einnig við frétta-
menn að hann teldi að fundurinn
með Pútín yrði auðveldari en viðræð-
urnar við leiðtoga samstarfslanda
Bandaríkjanna í öryggismálum.
Hermt er að embættismenn í Evr-
ópulöndunum og Bandaríkjunum
hafi áhyggjur af því að Trump fallist
á tilslakanir á fundinum með Pútín
til að reyna að bæta samskiptin við
Rússland, að sögn The Wall Street
Journal.
Búist er við að leiðtogar NATO-
landanna samþykki yfirlýsingu þar
sem þeir árétta loforð um að útgjöld
aðildarríkjanna til varnarmála nemi
2% af vergri landsframleiðslu og lofa
að hefjast handa við hernaðarverk-
efni sem þegar hafa verið samþykkt
og Bandaríkjastjórn hefur stutt.
Útgjöld til hermála
Sem hlutfall af landsframleiðslu
NATO-ríkja á síðasta ári
H
ei
m
ild
: N
AT
O
3,57%
2,36%
2,12%
2,08%
2,00%
1,99%
1,80%
1,79%
1,75%
1,73%
1,62%
1,58%
1,53%
1,48%
1,31%
1,29%
1,26%
1,24%
1,19%
1,17%
1,15%
1,12%
1,10%
1,06%
1,05%
0,98%
0,92%
0,90%
0,46%
Bandaríkin
Grikkland
Bretland
Eistland
Markmið NATO
Pólland
Rúmenía
Frakkland
Lettland
Litháen
Noregur
Svartfjallaland
Búlgaría
Tyrkland
Portúgal
Kanada
Króatía
Þýskaland
Slóvakía
Danmörk
Holland
Ítalía
Albanía
Ungverjaland
Tékkland
Slóvenía
Spánn
Belgía
Lúxemborg
Tekist á um fram-
lög til varnarmála
Trump gagnrýnir samstarfsríkin
Theresa May, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur varað þingmenn íhalds-
manna við því að óeiningin á meðal
þeirra í deilunni
um brexit, út-
göngu landsins úr
Evrópusamband-
inu, geti orðið til
þess að Jeremy
Corbyn, leiðtogi
Verkamanna-
flokksins, komist
til valda.
Afsagnir Boris
Johnson og Dav-
ids Davis úr ríkisstjórn Íhaldsflokks-
ins í vikunni voru taldar hafa aukið
líkurnar á því harðir brexit-sinnar
reyndu að steypa May af stóli for-
sætisráðherra. Fyrst myndu a.m.k.
48 þingmenn þurfa að óska eftir at-
kvæðagreiðslu um vantraust á May
og bíði hún ósigur þar fer fram leið-
togakjör. Verði þá nýr leiðtogi kjör-
inn myndar hann nýja ríkisstjórn ef
hann nýtur meirihlutastuðnings á
þinginu.
Óttast kosningar
Eitt af því sem hjálpar May er að
leiðtogakjör gæti tekið a.m.k. mánuð
og þingmenn Íhaldsflokksins óttast
að það geti veikt samningsstöðu
Breta í viðræðunum við ESB um
brexit. Margir íhaldsmenn óttast
einnig að leiðtogakjör gæti orðið til
þess að stjórnin félli og boða þyrfti til
þingkosninga sem gætu orðið til þess
að Corbyn kæmist til valda. Biðu
brexit-sinnar ósigur í leiðtogakjöri
myndi það líklega veikja þá verulega í
flokknum.
Stjórnmálaskýrandi breska ríkis-
útvarpsins, Norman Smith, segir að
þótt brexit-sinnar í flokknum séu
óánægðir með nýtt málamiðlunar-
samkomulag stjórnarinnar um brexit
ætli þeir að einbeita sér að því að ná
fram breytingum á því, frekar en að
reyna að steypa May af stóli.
Um 60 af 316 þingmönnum Íhalds-
flokksins eru andvígir því að Bretland
verði áfram í innri markaði og tolla-
bandalagi ESB og bundið af reglum
þess um fjórþætta frelsið svokallaða.
Samkvæmt málamiðlunar-
samkomulagi stjórnarinnar eiga regl-
ur ESB um frjálst flæði varnings að
gilda í Bretlandi eftir útgönguna.
Brexit-sinnarnir eru andvígir þessu
og óttast að samkomulagið verði til
þess að samningamenn ESB krefjist
enn meiri tilslakana af hálfu Breta í
komandi viðræðum. bogi@mbl.is
Óttast að Corbyn
komist til valda
Leiðtogakjör gæti veikt brexit-sinna
Theresa May