Morgunblaðið - 11.07.2018, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
Dreifingardeild Morgunblaðsins
leitar að dugmiklu fólki 13 ára og
eldra, til að bera út blöð.
Allar nánari upplýsingar
í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
www.mbl.is/laushverfi
Hressandi
morgunganga
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari leikur á tónleikum með Or-
kester Norden, sinfóníuhljómsveit
skipaðri efnilegasta tónlistarfólki
Norðurlanda, þann 22. ágúst næst-
komandi í Norðurljósasal Hörpu.
40 ungmenni munu hittast, æfa af
kappi og halda svo í tónleikaferð
þar sem sígild tónlist er í for-
grunni, að því er fram kemur á vef
Hörpu.
Þar segir að allar götur síðan
1993 hafi alþjóðleg stórmenni á
borð við Esa-Pekka Salonen,
Paavo Järvi og Vasily Petrenko
stjórnað hljómsveitinni og miðlað
menningararfinum áfram til næstu
kynslóðar með sinni einstöku
reynslu. Orkester Norden sé að
öllu leyti norrænt verkefni og allar
stöður skipaðar fulltrúum Norð-
urlanda, þ.e. stöður hljóðfæraleik-
ara, hljómsveitarstjóra, leiðbein-
enda, skipuleggjenda og öll
fjármögnun einnig frá Norður-
löndum.
„Orkester Norden er suðupott-
ur, þar sem hinn norræni menn-
ingararfur er í forgrunni, en ekki
án áhrifa úr ýmsum áttum. Með
þátttöku öðlast tónlistarfólkið
unga ómetanlega reynslu sem það
býr að alla ævi,“ segir á vef Hörpu.
Í tilkynningu frá hljómsveitinni
segir m.a. að tónleikaferðin hefjist
í Musikkens Hus í Álaborg og að
þaðan verði haldið í tónleikahöll
danska ríkisútvarpsins í Kaup-
mannahöfn og svo Hörpu. Vík-
ingur Heiðar leikur einleik en
stjórnandi á tónleikunum verður
Svíinn Olof Boman.
Víkingur leikur með
Orkester Norden
Tónleikar haldnir í Norðurljósum í Hörpu 22. ágúst
Einleikari Víkingur H. Ólafsson.Stjórnandi Olof Boman.
„Við erum virkilega þakklát fyrir að
fá tækifæri til að styðja við bakið á
litla drengnum,“ segir söngvarinn
Geir Ólafsson
sem stendur fyrir
styrktartón-
leikum í Fríkirkj-
unni í Reykjavík
fyrir Ægi Þór
Sævarsson annað
kvöld. Ægir þjá-
ist af Duchenne,
banvænum og
ólæknandi vöðva-
rýrnunar-
sjúkdómi. Honum
hefur tvívegis verið neitað um að-
gengi að lyfi við sjúkdómnum en lyf-
ið gæti hjálpað Ægi og komið í veg
fyrir að hann þurfi að nota hjólastól
seinna á lífsleiðinni. Lyfið er dýrt en
ef foreldrar Ægis geta borgað fyrir
það hafa þau kost á að fá lyfið fyrir
Ægi. Kostnaður fyrir ársskammt af
lyfinu er um það bil 50 milljónir
króna. „Vonandi náum við að fylla
kirkjuna svo við getum safnað ein-
hverju fé upp í þær fimmtíu milljónir
sem þarf að safna til þess að hann fái
lyfin sín,“ segir Geir sem ákvað að
halda tónleika þegar hann frétti af
máli Ægis fyrr í sumar. „Það voru
margir að kalla eftir því að það yrði
að gera eitthvað svo hann fengi lyfin
sín. Ég ákvað bara að verða við því
kalli. Það er oft þannig að fólk kallar
eftir aðgerðum en framkvæmir ekki
sjálft. Það er svolítið mikill munur
þar á.“ Tónleikarnir verða haldnir
klukkan átta annað kvöld. Hægt er
að kaupa miða á midi.is en allur
ágóði af tónleikunum mun renna í
styrktarsjóð Ægis Þórs.
ragnhildur@mbl.is
Kátur Ægi Þór hefur tvívegis verið neitað um lyf sem hægt getur á banvænum og ólæknandi vöðvarýrnunar-
sjúkdómi sem hann þjáist af. Ársskammtur af lyfinu kostar um 50 milljónir króna og er nú safnað fyrir því.
Hljómsveit Jónas Sigurðsson er á meðal þeirra listamanna sem koma fram
á tónleikunum. Vigga Ásgeirs, Davíð Ólafsson og fleiri munu einnig spila.
Spila fyrir lyfjakostnaði
Styrktartónleikar fyrir dreng sem þjáist af ólæknandi
sjúkdómi Geir Ólafsson stendur fyrir tónleikunum
Geir
Ólafsson
Hið íslenzka fornritafélag varð 90
ára 14. júní síðastliðinn. Á aðalfundi
félagsins, sem haldinn var þann dag,
urðu þær breytingar á stjórn félags-
ins að Jóhannes Nordal, sem verið
hafði forseti þess frá árinu 1969, eða
í 49 ár, og Sigurður Líndal gáfu ekki
kost á sér til áframhaldandi stjórn-
arsetu. Halldór Blöndal var kjörinn
nýr forseti félagsins. Með honum í
stjórn sitja þau Ármann Jakobsson,
Guðrún Nordal, Haraldur Ólafsson
og Svavar Gestsson. Þau Guðrún og
Svavar koma ný inn í stjórn.
Á þessu merkisári í sögu Hins ís-
lenzka fornritafélags kemur út nýtt
bindi í ritröð Íslenzkra fornrita:
Jómsvíkinga saga. Þá eru í undir-
búningi útgáfur á Sturlunga sögu og
Guðmundar sögum biskups.
Í tilkynningu segir að afgreiðsla
Hins íslenzka fornritafélags sé í
húsakynnum Hins íslenska bók-
menntafélags í Bændahöllinni við
Hagatorg í Reykjavík. Þar eru til
sölu öll útgefin bindi Fornritafélags-
ins, þ. á m. Íslendingasögur, kon-
ungasögur og eddukvæði.
Ritstjóri Íslenzkra fornrita er
Þórður Ingi Guðjónsson.
Morgunblaðið/Ómar
Halldór tekur við af
Jóhannesi Nordal
Morgunblaðið/Kristinn
Forsetaskipti Jóhannes hættir sem forseti og Halldór Blöndal tekur við.