Morgunblaðið - 23.07.2018, Side 1

Morgunblaðið - 23.07.2018, Side 1
M Á N U D A G U R 2 3. J Ú L Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  171. tölublað  106. árgangur  ÞÓRÐUR 91 ÁRS ENN FULLUR ELDMÓÐS FERÐALAG UM TÓNLIST- ARSÖGUNA BREIÐABLIK OG STJARNAN MÆTAST Í Í FYRSTA SINN TÓNLEIKAR 26 ÍÞRÓTTIR BIKARÚRSLITVANTAR LÓÐIR 11 „Skynjunin er sú að félagskonur hafi að kynningu lokinni labbað nokkuð jákvæðar héðan út,“ sagði Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samn- inganefndar ljósmæðra, að loknum fundi í gærkvöldi þar sem nýr samn- ingur ljósmæðra var kynntur. „Það gekk mjög vel. Það var mjög vel mætt á fundinn og miklar og fjör- ugar umræður sem sköpuðust eftir kynninguna,“ sagði Katrín en að- spurð hvað félagskonur hefðu rætt eftir kynninguna svaraði hún: „Ætli þetta sé ekki fyrst og fremst spurn- ing um traust. Hversu mikið traust maður getur lagt á gerðardóm skip- aðan af ríkinu og svo uppgjör um framkomuna í ferlinu.“ Rafræn kosning um samninginn hefst meðal ljósmæðra í dag og á henni að vera lokið á hádegi á mið- vikudag. »2 Margra mánaða deilu að ljúka  Ljósmæður gengu jákvæðar út af kynningarfundi  Rafræn kosning hefst í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Kynning Vel var mætt á fundinn á Landspítalanum í gærkvöldi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Himinninn fagur við biskupsvígslu í Skálholti Biskupar, prestar og djáknar gengu fylktu liði undir fögrum himni til Skálholtskirkju í gær þegar frú Agnes M. Sigurðar- dóttir biskup vígði sr. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skál- holti, og setti hann inn í embættið. Agnes er hér lengst til vinstri á myndinni og fyrir framan hana er nýr vígslubiskup. Fjöldi fólks var í messunni og við hátíðarsamkomu á eftir. »4 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Mannvistarlög frá landnámsöld og fram á 14. öld hafa fundist við Mosfell í Mosfellsdal og þykja þau geta varpað góðu ljósi á sögu miðalda á svæðinu. Framkvæmdir við gerð nýs bílaplans við Mos- fellskirkju voru stöðvaðar í apríl sl. og leiddi for- rannsókn fornleifafræðinga mannvistarlögin í ljós. Minjastofnun mun í vikunni taka ákvörðun um það hvort frekari uppgröftur verði gerður á svæðinu, en ljóst þykir að hluta svæðisins verði að grafa upp enda verði bílaplanið ekki lagt yfir vegna hættu á raski á minjunum. „Heilmikil saga“ í jarðlögunum „Þetta er stórmerkilegt og það má lesa úr þess- um lögum heilmikla sögu ef það verður farið í frek- ari rannsóknir. Sérstaklega vegna þess að við höf- um svo lítið frá miðöldum. Þetta er mjög áhuga- vert,“ segir Ragnheiður Traustadóttir fornleifa- fræðingur sem hefur rannsakað svæðið í sumar. Hún telur líklegt að miðaldakirkja sem byggð var á Mosfelli geti leynst norðan við Mosfellskirkju þar sem hún stendur nú. Norðan við Mosfellskirkju er að finna minjar frá landnámsöld og austan við kirkjuna eru mannvist- arlög frá landnámsöld og allt fram á 14. öld. „Senni- lega eru þar mannvirki og hús, einhver ruslalög og slíkt. Við grófum ekki mikið ofan í þetta en fundum þrjá gripi, m.a. bökunarhellu innflutta frá Noregi. Þær komu hingað á 11. öld og voru notaðar fram á 13. öld. Síðan fundum við norskt brýni og eldslátt- arstein úr rauðum jaspis,“ segir Ragnheiður. Mannvistarleifar frá landnámi  Könnun fornleifafræðinga leiddi í ljós heilleg jarðlög frá landnámi til miðalda Ljósmynd/Ragnheiður Traustadóttir Mosfell Fornleifafræðingar að störfum. MMerkar minjar við Mosfellskirkju »2 „Síðast var fjallað um umferðarör- yggismál á Þingvallavegi í Mosfells- dal hjá skipulagsnefnd Mosfellsbæj- ar 9. maí sl. Snerust þá mál m.a. um að setja upp svokölluð þéttbýlishlið og skerpa á merkingum, s.s. að mála heilar kantlínur,“ segir Bjarki Bjarnason, forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ, í samtali við Morgun- blaðið. Banaslys varð á Þingvalla- vegi á laugardag og fyrir tveimur ár- um lést bifhjólamaður einnig í slysi á Þingvallavegi. Í fundargerð skipulagsnefndar frá fundinum 9. maí sl. ítrekar nefndin „mikilvægi þess að ráðist verði í úr- bætur á umferðaröryggi í samræmi við framlagðar tillögur á Þingvalla- vegi án tafar“. Vegurinn er í umsjón Vegagerðarinnar en Mosfellsbær hefur vitanlega sínar skoðanir á veg- inum enda mikið hagsmunamál fyrir bæinn. „Okkur í bæjarstjórn finnst að sumt væri hægt að gera strax og myndi kosta lítið fé, t.a.m. þessar hugmyndir sem settar voru fram á fundinum 9. maí,“ segir Bjarki. »4 Lögðu fram tillögur til úrbóta í maí Morgunblaðið/Árni Sæberg Öryggi Íbúar skrifa skilaboð til öku- manna um að leggja ekki bílum við strætóskýli við Þingvallaveg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.