Morgunblaðið - 23.07.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 23.07.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í fjölþættri starfsemi bæjarins fléttast allir þræðir saman,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, nýr bæj- arstjóri í Hafnarfirði. „Traustur fjárhagur og rekstur er undirstaða góðrar þjónustu, hvort sem það eru til dæms skólar, velferð, um- hverfismál eða íþróttir. Í fram- kvæmdum og skipulagsmálum þarf að tryggja jafnvægi í um- hverfi og byggð svo nægt framboð sé af húsnæði fyrir fólk með ólíkar þarfir. Ég vil leggja áherslu á að efla sífellt þjónustu bæjarins og gera hana skilvirkari. Við eigum að vera leiðbeinandi þegar íbúar og fyrirtæki leita til bæjarins með erindi og innleiða nýjustu tækni í stjórnsýsluna og samskipti við íbúana.“ Fjármálin í jafnvægi Sjálfstæðisflokkur og Fram- sókn og óháðir mynduðu meiri- hluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eftir kosningar nú í maí síðast- liðnum. Rósa Guðbjartsdóttir, odd- viti sjálfstæðismanna, sem verður bæjarstjóri næstu ár, segir verk- efnin framundan áhugaverð og tækifærin fjölmörg fyrir Hafnar- fjörð. Komið sé ágætt jafnvægi í fjármál og rekstur bæjarins eftir umbætur og aðhald á síðasta kjör- tímabili og aukist hafi svigrúm til að fara í ýmis aðkallandi verkefni, svo sem viðhald eigna, nýfram- kvæmdir og fleira. „Mikilvægt er að halda áfram á næstu árin á braut agaðrar fjár- málastjórnunar. Nú er skulda- viðmiðið komið niður fyrir þau mörk sem eftirlitsnefnd um fjár- mál sveitarfélagana setur, það er að skuldir megi aldrei vera meiri en 150% af tekjum. Skuldir Hafn- arfjarðarbæjar eru í dag um 40 milljarðar króna og er lögð áhersla á að greiða þær jafnt og þétt niður. Í rekstrinum þurfum við að halda vel á spöðunum því íbúum fjölgar og eru nú 29.412,“ segir Rósa og heldur áfram: „Á Völlum var tekinn í notkun nýr leikskóli fyrir tveimur árum og í næsta mánuði opnum við fyrsta áfanga Skarðshlíðarskóla, þar sem verður leik-, grunn- og tónlistarskóli. Þessar fram- kvæmdir og fleiri eru fjármagn- aðar fyrir eigið fé sveitarfélagsins, til dæmis sölu lóða í Skarðshlíð, sem er okkar helsta uppbygg- ingasvæði í dag. “ Háspennulína flutt Hverfið sem kennt er við Skarðshlíð er norðan við Krýsu- víkurveg. Á víðfeðmu svæði þar hafa verið skipulagðar íbúða- byggðir, en frekari framkvæmdir eru háðar því að svonefnd Hamra- neslína sem liggur og flytur raf- magn að álverinu í Straumsvík verði fjarlægð. Í stað hennar skyldi reisa Lykjafellslínu, en í mars síðastliðnum felldi úrskurð- arnefnd umhverfis- og auðlinda- mála framkvæmdaleyfi vegna hennar úr gildi. Bar við meðal ann- ars að sá kostur að leggja jarð- strengi í stað loftlína hefði ekki verið fullkannaður. „Núna er unnið að samkomu- lagi við Landsnet um að færa Hamraneslínu til bráðabirgða til suðurs og út fyrir Skarðshlíðar- svæðið. Við gerum ráð fyrir að lín- an verði færð í haust og þá getum við aftur farið að úthluta lóðum í nýju hverfum sem línurnar liggja nú yfir.“ Hlustað á íbúana Það er úrelt, segir Rósa, að skilgreina verkefni sveitarfélaga sem mjúk eða hörð. Væntingar og þarfir fólks til þjónustu hafi breyst og séu meiri en áður. Það eigi ekki síst við um skóla- og velferðarmál. Í Hafnarfirði hafi verið gerð gang- skör í að stytta biðlista eftir fé- lagslegum íbúðum. Nú sé varið hálfum milljarði króna á ári í þann málaflokk sem dugi til kaupa á 15- 17 íbúðum árlega. Þá er verið að byggja nýtt 60 rýma hjúkrunar- heimili við Sólvang sem tekið verð- ur í notkun um áramót. „Hlutverk bæjarstjórans er að fylgja eftir þeim stefnumálum sem starfandi meirihluti hefur á hverj- um tíma og sjá til þess að starfsemi sveitarfélagsins gangi vel. Þú þarft að að hlusta á íbúana og bregðast við óskum þeirra og sjón- armiðum eins og við á hverju sinni. Ég legg mikla áherslu og að allir starfsmenn sveitarfélagsins vinni saman að því markmiði. Við erum að vinna fyrir fólkið. Það á alltaf að vera í forgrunni,“ segir Rósa sem hefur búið í Hafnarfirði nær óslitið frá 10 ára aldri - og á því sínar rætur í bænum við hraunin. Úrelt að skilgreina verkefni sveitarfélaga sem mjúk eða hörð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bæjarstjórinn Þú þarft að að hlusta á íbúana og bregðast við óskum þeirra, segir Rósa Guðbjartsdóttir. Þræðir fléttast saman  Rósa Guðbjartsdóttir er fædd 1965. Hún er stúdent frá Flensborg og með BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ. Starf- aði um árabil við blaða- og fréttamennsku, lengst af á Bylgjunni og Stöð 2. Var fram- kvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2001-2006. Hefur einnig unnið við ritstörf og útgáfu.  Árið 2006 var Rósa kjörin í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, varð oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði 2014 og var for- maður bæjarráðs og fræðslu- ráðs á síðasta kjörtímabili. Gift Jónasi Sigurgeirssyni og eiga þau fjögur börn. Hver er hún? Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is „Það er ekki nýtt að efnamenn beri ví- urnar í laxveiðihlunnindi. Það er kannski nýtt að erlendur auðmaður geri það í svona stórum stíl. Ég hef eðlilega áhyggjur eins og margir aðr- ir,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna og forseti Alþingis, inntur eftir viðbrögðum við úttekt Morgunblaðsins á eignarhaldi Jim Ratcliffe, bresks kaupsýslu- manns, á jörðum á Íslandi, einkum í Vopnafirði. „Það er búið að tala mikið um þetta síðustu tíu til fimmtán ár, en það hef- ur ekki orðið af því að gripið sé til að- gerða. Staðreyndin er sú að jarða- og ábúðarlögin eru í dag ónýtari en nokkru sinni fyrr. Sem dæmi má nefna að forkaupsréttur sveitarfélaga á jörðum sé ekki lengur í lögum. Hann er ákveðin bremsa,“ segir hann, en forkaupsréttur var numinn úr lög- um árið 2004. „Mér finnst að ríki og sérstaklega sveitarfélög eigi að hafa sterkan for- kaupsréttarmöguleika. Í þágu al- mannahagsmuna finnst mér það eðli- legt, sem liður í því að takast á við þessi mál,“ segir Steingrímur. Gert með skipulögðum hætti Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, vænt- ir niðurstöðu starfshóps um endur- skoðun á eignarhaldi á bújörðum í ágúst. Hann segir það koma á óvart hve skipulögð uppkaup jarða í Vopna- firði séu. „Það er ljóst að það er ákveðið skipulag í gangi í uppkaupum á þessu svæði. Þetta er umhugsunar- efni og tengist greinilega kaupum á landi með hlunnindum tengdum lax- veiðiám,“ segir hann. Málið hefur verið rætt í ríkisstjórn enda snertir það málefnasvið nokk- urra ráðuneyta. „Það er augljóst í mínum huga að við þurfum að átta okkur á því hvaða vandkvæði þessi þróun kann að hafa skapað á sumum svæðum,“ segir Kristján og bætir við: „Ýmislegt hefur verið sagt í þess- um málum sem er kannski ekki að fullu fótur fyrir. Umræðan beinist stundum að því að hingað komi ein- ungis vondir útlendingar til að fjár- festa á Íslandi. Í grunninn er ég al- gjörlega ósammála því. Hins vegar kunna að vera uppi þær aðstæður, sama hvort um er að ræða útlendinga eða Íslandinga, að fjárfestingarnar kunni að geta valdið samfélaginu ein- hverjum skaða. Ef sú staða er uppi eigum við að sjálfsögðu að grípa til einhverra ráðstafana,“ segir Kristján Þór ennfremur. Endurveki forkaupsrétt sveitarfélaga  Forkaupsréttur mikilvægur til að bregðast við uppkaupum  Starfshópur skilar niðurstöðum í ágúst Steingrímur J. Sigfússon Kristján Þór Júlíusson Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins og áheyrnarfulltrúa Mið- flokksins, Flokks fólksins og Sósíal- istaflokks Íslands um að útsend dagskrá ráða og nefnda á vegum borgarinnar verði aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar fyrir fundi. Mun sú tilhögun, að birta dag- skrána á vef borgarinnar, auka gagnsæi auk þess að vera í anda góðrar og vandaðrar stjórnsýslu, segir í tillögunni. Í umsögn tillög- unnar, dagsettri 17. júlí, er mælt með því að borgarráð „ríði á vaðið og hefji birtingu dagskrár frá og með næsta fundi sínum.“ Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir í samtali við Morgunblaðið að stjórnarandstaðan sé vitaskuld ánægð með samþykkt tillögunnar í borgarráði. „Okkur finnst eðlilegt að dagskrá sé birt al- menningi og fjölmiðlum áður en fundurinn er haldinn, annars hefur fólk ekki eins gott tækifæri til þess að fylgjast með. Þetta er liður í nú- tímavæðingu, sem þarf að gera meira af,“ segir Eyþór um tillöguna. „Við erum að gera okkar besta til að opna umræðu borgaryfirvalda. Það sem þarf að gera er að opna stjórnkerfið, ekki bara í ráðhúsinu, heldur viljum við líka beita okkur fyrir opnara aðgengi að upplýs- ingum fyrirtækja og stofnana,“ segir Eyþór Arnalds. axel@mbl.is Dagskrá fyrir- fram aðgengileg  Tilhögunin í anda góðrar stjórnsýslu Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn fréttu fyrst af veikindum Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í Frétta- blaðinu á laugardagsmorgun, en þar er greint frá því að Dagur glími við sjaldgæfan gigtarsjúkdóm. Komu fregn- irnar borgarfulltrúum verulega á óvart, segir Eyþór Arn- alds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið, aðspurður hvenær borgarfulltrúar hafi fyrst vitað af veikindum Dags. Lögð var fram bókun á borgarráðsfundi síðasta fimmtudag frá fulltrúum minnihlutans sem lýstu yfir óánægju sinni með fjarveru borgarstjóra á fundinum vegna sumarleyfa. Eyþór sagði aðspurður að bókunin hefði vitanlega ekki verið lögð fram ef flokkarnir hefðu vitað af veikindum Dags. „Við óskum honum að sjálfsögðu góðs bata og að meðferðin gangi vel,“ segir Eyþór. Vissu ekki af veikindum Dags BÓKAÐ Í BORGARRÁÐI UM FJARVERU BORGARSTJÓRA Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.