Morgunblaðið - 23.07.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 23.07.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018 Bragð af vináttu • Hágæðagæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Kafbátar eiga vissulega heimaneðansjávar en það þykir þó betra að hægt sé að koma þeim upp á yfirborðið þegar það á við. Það varð því nokkurt uppnám þegar í ljós kom að nýr kaf- bátur spænska sjó- hersins flaut ekki. Þegar mistökin komu í ljós fyrir fimm árum var ráð- ist í að endurhanna bátinn, sem ber heitið S-80, með ærnum tilkostnaði. Nú greina spænskir fjölmiðlar frá nýjum vandamálum. Hinn endurhannaði bátur reyndist of langur og passaði ekki í heimahöfn sína í Cartagena. Þarf því að lengja bryggjuna til að báturinn geti lagst að henni.    Upphaflega kom í ljós að kafbát-urinn væri 100 tonnum of þungur. Þetta hafði þau áhrif á eig- inleika hans til siglinga að hann gæti auðveldlega farið í kaf, en ekki væri víst að hann kæmist aftur upp á yfirborðið. Fyrrverandi spænskur embættismaður sagði fréttastofu AP á sínum tíma að ein- hver hefði sett kommu á vitlausan stað og „engin hefði haft rænu á að fara yfir útreikningana“. Þess í stað reiknuðu verkfræðingar og ráðgjafar út að lagfæra mæti flot- hæfi kafbátsins með því að lengja hann, en virðast hafa gleymt að kynna sér aðstæður þar sem gert var ráð fyrir að heimahöfn bátsins yrði.    Í spænska blaðinu El País sagðiað kostnaður við hina nýju kaf- báta hefði tvöfaldast og kostaði einn kafbátur nærri milljarði evra.    Varnarmálaráðherra Spánar,Margarita Robles, kom verk- efninu til varnar í útvarpsviðtali, leiðréttingar hefðu verið gerðar og það væri „fullkomlega raunhæft“. Viðurkenndi hún þó að á því hefðu verið „annmarkar“. Margarita Robles Annmarki að kaf- báturinn flaut ekki STAKSTEINAR Veður víða um heim 22.7., kl. 18.00 Reykjavík 9 súld Bolungarvík 8 alskýjað Akureyri 11 alskýjað Nuuk 9 léttskýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 21 heiðskírt Kaupmannahöfn 24 heiðskírt Stokkhólmur 25 heiðskírt Helsinki 27 heiðskírt Lúxemborg 26 heiðskírt Brussel 27 heiðskírt Dublin 26 skýjað Glasgow 19 alskýjað London 27 léttskýjað París 27 heiðskírt Amsterdam 22 léttskýjað Hamborg 25 léttskýjað Berlín 27 heiðskírt Vín 22 skýjað Moskva 21 heiðskírt Algarve 25 heiðskírt Madríd 31 heiðskírt Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Róm 28 heiðskírt Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 25 skýjað Montreal 18 skúrir New York 25 alskýjað Chicago 21 rigning Orlando 31 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 23. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:07 23:03 ÍSAFJÖRÐUR 3:43 23:37 SIGLUFJÖRÐUR 3:24 23:21 DJÚPIVOGUR 3:29 22:39 Vegagerðin hefur opnað tilboð í end- urbætur á Landeyjahöfn. Útboðið var auglýst 1. júní og tilboð voru opnuð 10. júlí síðastliðinn. Tvö tilboð bárust í verkið. Ístak hf. bauð 743,5 milljónir króna og Munck Íslandi ehf. bauð 893 milljónir. Bæði tilboðin voru hærri en áætlaður verktakakostnaður, sem var 660 milljónir króna. Um er að ræða byggingu á tunn- um á enda brimvarnargarða, grjót- vörn á garðsendum, byggingu vegar út vesturgarð og stækkun innri hafn- ar. Markmiðið með stækkuninni er að auka snúningssvæði Herjólfs. Grjótgarðurinn gegnt bryggjunni verður færður til austurs og snún- ingsvæðið stækkað með þeim hætti. Tunnurnar sem um ræðir eru stáltunnur sem verða fylltar með grjóti. Þær verða settar upp við enda beggja brimvarnargarða, sem vel sjást á meðfylgjandi mynd. Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2019. Markmiðið með endurbótunum er að auka öryggi í höfninni og gera nýjum Herjólfi kleift að sigla oftar til Landeyjahafnar en núverandi Herj- ólfur hefur gert. sisi@mbl.is Endurbætur á höfninni Morgunblaðið/Árni Sæberg Landeyjahöfn Stefnt er að verklokum í september á næsta ári.  Tveir buðu í lagfæringar á Landeyjahöfn  Ístak átti lægsta boð Skrifstofa for- seta Íslands sendi á laugar- dag frá sér til- kynningu eftir að kvikmynda- gerðarkonan El- ísabet Ronaldsdóttir greindi frá því á fésbókarsíðu sinni að hún mundi skila fálkaorðu sinni til baka. Í bréfi forseta segir m.a. að víða í Evrópu gildi sérstakar reglur um gagnkvæmar orðuveitingar í tengslum við opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja og eigi þessar reglur einkum við á Íslandi við opinberar heimsóknir forseta Íslands til hinna norrænu ríkja og heimsóknir þjóð- höfðingja þeirra til okkar. Þá segir að embættismenn í ríki gestgjafans leggi fram tillögu um einstaklinga sem veita megi orðu, t.d. vegna starfa þeirra í heimalandinu. Guðni Ágústsson, formaður orðu- nefndar, vildi ekki tjá sig um mál Elísabetar þegar Morgunblaðið náði af honum tali í gær. Forseti skýrir orðuveitingarnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.