Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
ar Jón Geirmundsson sáu um pípu-
lagnir en í dag er Kári Björn Þor-
steinsson pípulagningameistarinn
fyrir Búhölda. Málarameistarinn er
Þórarinn Thorlacius, Doddi málari,
en áður var það Jón Svavarsson.
Þórður segir þetta allt vera frábæra
iðnaðarmenn sem hafi skilað af sér
vönduðu verki.
Horfa næst til Hofsóss
Þó að Þórður sé kominn á tíræð-
isaldur segist hann ekkert ætla að
hætta á meðan hugur og hönd virka.
Búhöldar vonast til að geta fengið
fleiri lóðir, og horfa nú helst til lóðar
við Hásæti að vestanverðu, fyrir eins
og eitt parhús. En félagið ætlar ekki
að láta Sauðárkrók duga heldur er
farið að horfa austur yfir fjörðinn, til
Hofsóss. Þórður segir mikinn áhuga
vera þar meðal eldri borgara á að
byggja sambærileg hús og á Krókn-
um. Lóðir séu til staðar en ræða
þurfi málið við ýmsa aðila, m.a.
Byggðastofnun og Sveitarfélagið
Skagafjörð.
Búhöldar eiga fjórar íbúðir skuld-
lausar og hafa ekki þurft á aukalegri
aðstoð að halda frá Íbúðalánasjóði
eða öðrum, líkt og sum bygging-
arsamvinnufélög hafa þurft.
„Við héldum að okkur höndum
eftir hrunið en fórum síðan af stað
aftur af fullum krafti. Við höfum ver-
ið skynsamir í peningamálum og
ekki rasað um ráð fram,“ segir Þórð-
ur að endingu.
á Akranesi, sem er í eigu BM Vallár.
Helgi Þorleifsson hefur komið að
smíði allra húsanna frá upphafi,
fyrst hjá Trésmiðjunni Björk með
Ólafi Þorbergssyni og fleiri, en verið
einn með síðustu sex íbúðir við Iðut-
ún.
Tengill hefur séð um raflagnir
allra húsa, Hannes Helgason og síð-
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við höfum haft nóg af sólinni hérna
fyrir norðan, það vantar bara fleiri
lóðir,“ segir Þórður Eyjólfsson við
Morgunblaðið, léttur í bragði en full-
ur eldmóðs, orðinn 91 árs gamall.
Hann hefur stýrt Byggingarsam-
vinnufélaginu Búhöldum á Sauð-
árkróki frá stofnun þess árið 1999 en
félagið er nú að ljúka við byggingu á
nýju parhúsi við Iðutún á Sauð-
árkróki. Þar rísa íbúðir númer 49 og
50 á vegum félagsins en fyrstu íbúð-
irnar voru afhentar í kringum alda-
mótin 2000. Vonast Þórður til að
gefa afhent nýjustu íbúðirnar í byrj-
un september nk.
Með fulla heilsu
Þórður er enn með hamarinn á
lofti og aðstoðar yfirsmiðinn, Helga
Þorleifsson, eftir bestu getu.
„Ég er með fulla heilsu, og minnið
enn nokkuð gott. Ég hef ætlað að
hætta nokkrum sinnum en ekki
fengið. Einn ágætur þáverandi
stjórnarmaður og nágranni, Trausti
Pálsson, sagði við mig að það væri
ekki gott að skipta um hest í miðri á.
Mér varð svo mikið um við þessi orð
míns góða vinar að ég hef ekkert
minnst á formannsskipti síðan,“ seg-
ir Þórður og hlær.
Hann segist reyna að hjálpa til við
smíðarnar eins og hann geti. Nú sé
hann meira í snúningum og ýmsu
snatti. „Það er margt sem þarf að
passa upp á. Stundum koma vitlaus-
ar sendingar að sunnan og þá þarf
að skila og skipta.“
Mikill áhugi og langur biðlisti
Stofnfundur Búhölda var sem fyrr
segir árið 1999 en Þórður segir um-
ræðu um svona félag hafa farið af
stað tveimur árum áður.
„Við fundum fyrir miklum áhuga
eldri borgara á að stofna bygging-
arfélag en í fyrstu gekk illa að stofna
félagið því það átti að reyna að koma
okkur í blokk fyrir eldri borgara
sem stóð til að reisa við Sauðármýri.
Við vildum það ekki, þar áttu engir
bílskúrar að fylgja eða geymslu-
herbergi. Með hjálp góðra manna
gátum við stofnað félagið og hafist
handa,“ segir Þórður og nefnir þar
sérstaklega Pál Pétursson frá Höllu-
stöðum, þáverandi félagsmálaráð-
herra.
Búhöldar hafa eingöngu reist
einnar hæðar parhús, með inn-
byggðum bílskúr. Eru öll húsin með
sömu hönnun, um 130 fermetrar að
flatarmáli, að bílskúr meðtöldum.
„Húsin hafa reynst mjög vel og
áhugi eldra fólks verið mikill, miklu
meiri en við gátum ímyndað okkur.
Þegar mest lét voru 16 á biðlista eft-
ir húsum en núna eru 10 manns sem
bíða,“ segir Þórður en húsin hafa
risið við göturnar Hásæti, Forsæti,
Laugatún, Kleifatún og Iðutún.
Um timburhús er að ræða, á
steyptum grunni, nema þessi nýj-
ustu við Iðutún. Þar er notast við
forsteyptar einingar frá Smellinum
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Búhöldar Þórður Eyjólfsson, stjórnarformaður Búhölda, og Helgi Þorleifsson húsasmiður við 50. íbúð félagsins, sem afhent verður í haust.
„Ekki gott að skipta um hest í miðri á“
Byggingarsamvinnufélagið Búhöldar með 50. íbúðina í smíðum á Sauðárkróki Formaðurinn
Þórður Eyjólfsson er 91 árs og hvergi nærri hættur Segir fleiri lóðir vanta og biðlistinn langur
Parhús Þrjú nýjustu parhús Búhölda við Iðutún eru reist með forsteyptum einingum frá Smellinum á Akranesi.
Búhöldar
» Félagið var stofnað 1999 og
fyrstu íbúðir afhentar um ára-
mótin 1999/2000.
» Félagið hefur reist 25 par-
hús með 50 íbúðum.
» Tíu manns eru núna á bið-
lista Búhölda eftir íbúð, voru
16 þegar mest lét.
50% afsláttur af útsöluvörum
Suðurlandsbraut 30 • sími 553 3755