Morgunblaðið - 23.07.2018, Side 18

Morgunblaðið - 23.07.2018, Side 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018 Ilmur hinnar gullnu stundar Terre de Lumière L’Eau Kringlan 4-12 | s. 577-7040 Hvað er virðing? Er hægt að krefjast virð- ingar. Er ekki miklu frekar virðing eitthvað sem menn ávinna sér með framkomu sinni, gerðum sínum; eitt- hvað sem gerir að ein- staklingar skara fram úr og vekja aðdáun annarra og öðlast þar með virðingu og gleði? Það er alltaf mjög ánægjulegt þegar fólk fær virðingu vegna verðskuld- aðra hæfileika sinna og verka og þar sem umhverfið á að njóta virðing- arinnar, embættið og vinnustað- urinn. En það er líka mjög fljótlegt að glata virðingu hafi hún einhver verið. Er það nokkuð undarlegt að Al- þingi og alþingismenn fái ekki virð- ingu almennings þegar þeir sjálfir sýna enga virðingu fyrir neinu? Ekki þjóðlegum gildum, ekki vinnustað sínum, ekki embætti sínu, ekki er- lendum fulltúum í boði hins háa Al- þingis. Sýna sjálfum sér og þjóðinni rak- inn dónaskap og móðgun og ekki bara eigin þjóð heldur líka vinaþjóð sem er að taka þátt í 100 ára fullveld- isveislu Íslendinga. Gamla herra- þjóðin sem er að sýna Íslendingum virðingu og vináttu. Hverskonar hroki er hér á ferðinni? Þing- maður sem hefur sjálf- an sig yfir allar kurteis- isreglur með þessari framkomu. Réttlæta hegðun sína með því að viðkomandi fulltrúi, þingforseti danska þingsins hafi ekki sömu skoðanir og þeir sjálfir. Á að bera virðingu fyrir þing- manni sem í krafti stöðu sinnar og vel vitandi um val þingsins á boðs- gestinum velur að ganga af virðu- legum og þjóðlegum þingfundi í of- boði? Eftir Kristján Baldursson Kristján Baldursson »Er það nokkuð und- arlegt að Alþingi og alþingismenn fái ekki virðingu almennings þegar þeir sjálfir sýna enga virðingu fyrir neinu? Höfundur er tæknifræðingur og eldri borgari. kribald@gmail.com Virðing Ríkisútvarpið, eft- irlæti okkar allra, sem bráðum erum komin í síðasta áfanga æviferð- arinnar, gerir það ekki endasleppt við hlustendur sína, held- ur veitir af rausn sem löngum fyrr. Margt er það æði dýrmætt, sem flutt er, og fyrir það ber að þakka, eins og t.d. slög gömlu útvarps- klukkunnar, morgunbænin, veð- urfréttirnar, sunnu- dagsmessan, dánarfregnirnar Pass- íusálmarnir, jólakveðj- urnar, Litla lúðrasveit- in í bítið á jóladag, tónlistin á nýársdags- morgun og síðasta lag- ið fyrir fréttir, fyrir utan ýmislegt fleira gott, sem of langt yrði upp að telja. Þó sökn- um við mörg þeirrar hátíðlegu tónlistar sem var einlægt spiluð í út- varpið á sunnudags- morgnana hér fyrr meir. Jakob sæli góðvinur minn Hallgrímsson fór til náms í Moskvu og hafði með sér hljómplötur með tónlist Bachs svo öruggt væri að hann færi ekki á mis við huggunarríkan og upp- örvandi boðskap fimmta guð- spjallamannsins á hvíldardaginn. Þessi hlustandi hér má ekki til þess hugsa að Ríkisútvarpið verði lagt niður, eins og stundum heyrist fleygt; hann þyldi ekki að vera án þess frekar en Morgunblaðsins. Ætli það sé ekki best að biðjast forláts að færa í tal smámuni, þeg- ar sæmra væri að vera til- lögugóður stærri mála. Og vonandi fyrirgefst gömlum og geðvondum nöldursegg og hlaðvarpaspekingi svartagallsrausið, en gott var að fundið skyldi upp á því að kalla hina virðulegu stofnun RÚV, sem hljómar ólíkt betur en það fornfá- lega orð „Ríkisútvarp“. Þegar við árrisul gamalmennin hlýðum bæninni í morgunsárið, er þakkarefni, að við skulum greina, svo sem í fjarska, rétt blábyrj- unina á trúarjátningarsálmi Lúth- ers (Vér allir trúum á einn Guð, Sb. 225), en síðan ekki söguna meir – fyrr en lokið er bæninni, þá berst okkur fjarlægur ómur af nið- urlagi sálmsins, eins og minning, sem líður burt – og er auðvitað meira en nóg. Þessi tilhögun er al- veg bráðsnjöll að ekki sé meira sagt. Varla þarf að taka fram að fyrir þá, sem sofna seint á kvöldin, er engin ástæða til að vera að fara með gott. Við, sem erum að verða með elstu mönnum á landinu, munum vel eftir Menúettinum hans Bocc- herini, sem ávallt var leikinn í dag- skrá Ríkisútvarpsins á morgnana. Nú hefur þeim sið að leyfa þess konar gamaldags músík að hljóma á öldum ljósvakans sem betur fer löngu verið varpað fyrir róða. Stjórnendur morgunvaktarinnar, spilandi geðþekkir menn, greindir og áhyggjulausir að heyra, prýði- lega máli farnir, með þessar klið- mjúku raddir; (segja góðu heilli „líkt og“ í staðinn fyrir „eins og“ og segja „einstaklingur“, svo að ekki fari á milli mála að átt er við mann, manneskju, sál eða jafnvel hræðu; og segja „áskorun“, sem er miklu nýtískulegra en „verk- eða viðfangsefni“.) Þeir vita líka sem er að saxófónninn er konungur blásturshljóðfæranna og af þeim sökum leyfa þeir hrífandi tón- fléttum þessarar hljóðpípu að ná eyrum morgunglaðra landsmanna á hverjum einasta degi sem Guð gefur yfir á meðan þeir skrafa svo notalega um veðrið og dæg- urmálin; undantekningarlaust, ein- lægt og ævinlega er þetta hinn sami glaðlegi spuni sem hefur auð- vitað þann kost í för með sér að við lærum þessar slaufur smám saman utan að; þær taka að hljóma fyrir innri eyrum okkar all- an guðslangan daginn, til uppbygg- ingar. Sjálfur hlýt ég að við- urkenna að ég er svo fullkomlega á valdi þessara dýrlegu stefjabrota að mér eru að kalla liðin úr minni fræg, en úrelt upphöf tónverka eins og til að mynda Sálumessu Mozarts, 5. sinfóníu Beethovens ellegar Vorblótsins hans Stavinskí. Mig dreymdi meira að segja um um daginn að verið væri að spila þessa unaðslegu froðu við útför mína. Þeir, sem til þekkja staðhæfa að Ríkisútvarpið eigi myndarlegt hljómplötusafn, næstum því jafn stórt og Sigurjón heitinn á Hrafna- björgum. Stofnunin er því ekki á hjarni með músík og hægurinn hjá að breyta ögn til um val á henni, ef sá dagur rennur að einhverjum detti það í hug. Eftir Gunnar Björnsson Gunnar Björnsson » Þessi hlustandi hér má ekki til þess hugsa að Ríkisútvarpið verði lagt niður; hann þyldi ekki að vera án þess frekar en Morgunblaðsins. Höfundur er pastor emeritus. Morgunútvarp Enn berast fréttir af leikaranum Jeff Goldblum sem sýna hvað verða vill. Fyrst var sagt frá því að hann væri trúlofaður sér talsvert yngri konu og var það skýr vísbending þess að hann herti nú róðurinn svo um munaði. Næst var frá því greint að Goldblum hefði opnað veit- ingavagn í Ástralíu og byði þar upp á pylsur sem hann nefndi gullblum, silfurblum og bronsblum. Nú er hermt að í Lundúnum hafi verið af- hjúpuð stytta, nær átta metra löng, er sýni Goldblum þar sem hann ligg- ur og hefur hneppt frá sér skyrtunni til þess að leggja áherslu á sjón- armið sín. Sýnir þessi framvinda mála að því fer fjarri að Goldblum hafi lagt árar í bát og er ekki vafi á að af honum er mikils að vænta á næstu árum. Jeff Goldblum er ekk- ert uppáhaldsleikarinn minn. Bara mjög góður leikari. Farsæll kvikmyndahúsagestur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Goldblum sýnir styrk sinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.