Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Virkjaðu starfsgleði þína og gakktu
óhræddur á hólm við ný og vandasöm verk-
efni. Talaðu sem minnst um þitt starf, en
hlustaðu betur á aðra.
20. apríl - 20. maí
Naut Það bætir og kætir að grípa til nýstár-
legra vinnuaðferða, þótt einhvern tíma taki
að komast upp á lagið með þær. Haltu þig við
þitt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er ekki góður tími til þess að
leggjast í djúpar pælingar með fjölskyldu-
meðlim, maka eða einhverjum sem verður á
vegi þínum. Varastu að vilja grípa inn í líf ann-
arra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert hæfileikaríkur og fólk dáist að
hugmyndum þínum. Klappaðu þér á bakið
fyrir nýlega gjörð sem krafðist hugrekkis og
dirfsku.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú fer að sjá fyrir endann á því álagi
sem þú hefur búið við og þá máttu búast við
umbun erfiðis þíns. Ef þú ert sjálfum þér trúr
mun allt fara á besta veg.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það þarf ekki mikið til þess að draga
úr þér mátt og þig skortir bæði kraft og ákafa
núna. Raðaðu verkefnum eftir forgangsröð
því þá verður eftirleikurinn auðveldari.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gerðu það sem þig lystir. Brostu framan
í heiminn og taktu hlutunum létt. Njóttu þess
með þeim sem hafa stutt þig og lagt hönd á
plóg.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að ná jafnvægi í lífinu
og umfram allt áttu ekki að hlaupa upp til
handa og fóta, þótt einhver gylliboð séu höfð
í frammi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú getur ekki annað en velt því
fyrir þér hvað aðrir eru að hugsa um þig í
dag. Forðastu að taka mikilvægar ákvarðanir
sem snerta fjölskylduna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ástvinir líta á athygli þína sem
verðmæta gjöf, en vanræksla þín er hræðileg
móðgun. Farðu varlega, einhverra hluta
vegna er einkalíf þitt áberandi um þessar
mundir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt þú sért úrkula vonar um að
finna lausnina á vandamálinu sem þú glímir
við skaltu ekki gefast upp. Ekki leyfa óttanum
að ná yfirhöndinni í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gætir komist að einhverju óvæntu
eða séð eitthvað í algerlega nýju ljósi í dag.
Best er er að hafa allan fyrirvara á hlutunum
og leyfa þeim að sanna sig.
Áföstudag voru þrír fyrstu kaflarmatreiðslubókar kattarins Jós-
efínu Meulengracht Dietrich birtir
hér í Vísnahorni og verður nú fram
haldið. Fimmtudaginn 12. júlí birti
hún á Fésbókarsíðu sinni fjórða kapít-
ulann. Hann fjallar um hundamat og
markar þáttaskil þar sem sýnt er
fram á að hundur er mun neðar í
fæðukeðjunni en talið hefur verið:
Ætlir þú að ala hund er ekki úr vegi
að gleðja hann á góðum degi
og gefa tuggu af súru heyi.
Benedikt Jóhannsson brást vel við
þessari mataruppskrift:
Ef að dapur ert í lund
ertu að dekra svartan hund.
Steinar Frímannsson skrifaði: „Veit
ekki um placeringu í fæðukeðjunni,
en þessi uppskrift ber með sér að
sums staðar séu hundar settir skör
lægra í virðingarstigann en kettir.“
Benedikt Jóhannsson gerði þessa
athugasemd:
Segja má að svartir kettir
séu ennþá lægra settir.
Pétur Þorsteinsson bætti við:
Kunna jafnvel kostbærustu kisulúrur
að háma í sig hundasúrur.
Föstudaginn 13. júlí birtist síðan
fimmti kapítuli matreiðslubókarinnar
með þeirri áminningu „að gæta hófs í
mat og drykk“:
Ég læt mér duga lítið fæði,
lambabita og mjólkursopa,
ét svo karl og kerlu bæði
og kotið allt og södd ég ropa.
Ég gluggaði í „Hvíta hrafna“ Þór-
bergs Þórðarsonar þar sem ég sat
undir vesturveggnum og naut kvöld-
sólarinnar á fimmtudagskvöld. Ein-
hvern veginn festust þessar vísur,
„Bátur sekkur“ í minni mínu:
Dags lít ég deyjandi roða
drekkja sér vestur í mar, –
og konan í bólinu bíður
bóndans, sem dorgar þar.
Í kveldroðans geisla-gliti
grilli ég Árna minn
bölvandi byltast í djúpið
með bilaðan stimpilinn.
Ingólfur Ómar segir frá því á Leir
að hann hafi fengið sér göngu seint á
mánudagskvöld nálægt miðnætti
enda veður til þess, heiðskírt og hæg-
lát gola:
Faðminn býður friðsæl nótt
foldu geislar hjúpa.
Blærinn andar blítt og rótt
blómin höfði drúpa.
Og síðan segir Ingólfur Ómar frá
því að langafi hans Jón Jóhannesson
bóndi á Auðnum í Sæmundarhlíð í
Skagafirði hafi ort þessa hringhendu
þegar Katla gaus 1918:
Nú er sveitum voðinn vís
vesnar beit á landi.
Katla þeytir eldi og ís
ösku og heitum sandi,
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn er gluggað í matreiðslubók kattarins
FAÐIRINN KOM KL. 19:38 OG VÓG
19.000 MERKUR.
„ERTU BÚINN AÐ ÁKVEÐA ÞIG?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skilja og
samþykkja að þið hafið
ólík áhugamál.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
LJÚGÐU OG
SEGÐU JÁ
ERU SKÓRNIR MÍNIR EKKI FÍNIR? ÞEIR ERU SVOLÍTIÐ…
UMMMM… ÞÚ ÁTT AÐ LJÚGA
OG SEGJA JÁ
LJÚGÐU OG
SEGÐU JÁ
FYLGDU
REGLUNUM,
MAÐUR!
TJA…
ÉG VIL FÁ ÞIG Í
ÁHÖFNINA MÍNA!
EN ÉG KANN EKKERT
FYRIR MÉR Í
ORRUSTU!
GETURÐU
SAGT
BÖÖÖ?
Eymslin í hægri öxl voru léttvæg ífyrstu. Doði sem síðan breyttist
í ferlegan sársauka er versnaði dag
frá degi. Ætla mátti að þetta væri
nokkuð sem liði fljótt hjá en því var
öfugt farið. Verkurinn varð æ verri
og sárari og Víkverji fór heim úr
vinnu, helaumur með höfuðverk.
Heilsugæslulæknir gat lítið sagt og
gert, en sýndi góðan skilning og
sagði íbúfen vera allra meina bót.
Það reyndist lítt stoða og í næsta
tíma skrifaði doktorinn upp á par-
kódín sem virkaði vel um stundar-
sakir. Sjúkraþjálfari tók hressilega
á Víkverja og nuddaði með þéttum
handtökum sem gerðu gott því bæði
vöðvar og sinar voru helaumar og
sárar. En hvað olli verknum?
x x x
Eitt sinn þegar Víkverji var kom-inn á koddann var hann sem
önnur kvöld með snjallsímann í
hægri hendi og renndi í gegnum
allskonar síður og forrit. Spennti
aðeins öxlina og kom henni í ávana-
bundna kreppta stöðu. Og eftir svo-
litla stund braust sársaukinn aftur
fram og þá var eins og kviknaði á
öllum skilningarvitum. Auðvitað var
það ofnotkun á bévítans far-
símanum sem þessu olli. Ofnotkun
og óþægileg stelling. Þegar málið
var sett í samhengi var skýringin
augljós og sjúkraþjálfarinn sam-
mála um það. Sagðist raunar oft fá
á bekkinn fólk með sambærilegan
vanda, en stundum væri þrautin
þyngri að finna út eðli og ástæður
vandans. Hér færi þó ekkert á milli
mála.
x x x
Í augnablikinu getur verið slökkt áfarsímanum, hann utan þjónustu-
svæðis eða allar rásir uppteknar.“
Við þekkjum rödd og rullu símakon-
unnar sem vissulega sinnir sínu
með ágætum. Og slökkvum nú á
apparatinu. Víkverji, sem er óðum
að skána, er að venja sig af óhóf-
legri síma- og netnotkun og þegar
öllu er á botninn hvolft er ekki af
miklu að missa. Fyrir öllu er að
vera sæmilegur í skrokknum og
gæta að sér. Símafíkn er vandi
margra og hér að framan greinir
hve alvarlegar afleiðingar hennar
geta verið. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá
sem fylgir mér mun ekki ganga í
myrkri, heldur hafa ljós lífsins.“
(Jóh: 8.12)
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
KælingHiti
HreinleikiLoftraki
fyrir heimilið