Morgunblaðið - 23.07.2018, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is
»Ráðstefnan Comic Con fór fram í San Diego í
Kaliforníu 19.-22. júlí en á henni koma saman
aðdáendur teiknimyndasagna og -kvikmynda og
vísindaskáldskapar, bæði í myndasagna- og kvik-
myndaformi, og sjá það nýjasta og það sem er
væntanlegt í þeim geira. Gestir mæta margir
skrautlegir til fara og í gervum uppáhaldssöguper-
sóna sinna og mátti til dæmis sjá ofurhetjur og
uppvakninga spóka sig á götum borgarinnar.
Götur San Diego iðuðu af lífi á meðan ráðstefnan Comic Con fór fram þar í borg
AFP
Nunnuganga Þessar nunnur vöktu athygli þar sem þær gengu um götur til að kynna kvikmyndina The Nun.
Skuggaleg Tveir gestir Comic Con. Kollegar Kóngulóarmaðurinn ræddi við Kóngulóarhundinn.
Þreyttur Aðdáandi Marvel-Þórs hvílir lúin bein á veitingastað.
þar sem farið er yfir íslensku tón-
listarsöguna frá þessu tímabili með
þessum hætti. Vitaskuld eru efn-
istökin víðfeðm og svona tónleikar
gætu aldrei orðið tæmandi lýsing á
sögunni en við drepum niður fæti
hér og þar og heyrum verk sem
hafa skírskotun til tíðarandans
hverju sinni.“
Útkoman er merkileg, að sögn
Sigurgeirs, og ágætt að minnast
þess á afmæli fullveldisins hvað
þessi fámenna þjóð á lítilli eyju
nyrst í Atlantshafi hefur afrekað á
tónlistarsviðinu. „Það er ekki að
ástæðulausu að tónlistarmenningin
hérna vekur víða undrun og marg-
ir útlendingar eigi t.d. erfitt með
að átta sig á því að Ísland skuli
eiga eins góða sinfóníuhljómsveit
og raun ber vitni, með ekki fleiri
íbúa en sæmilega stórt úthverfi í
einhverri stórborginni.“
Hljómar tónlistin
betur í sveitinni?
Á efnisskrá hinna þrennra tón-
leikanna er blandað saman inn-
lendum og erlendum tónskáldum.
Á opnunartónleikunum, að kvöldi
föstudags, fá gestir að hlýða á
verk eftir Schumann, Atla Heimi
Sveinsson og Ralph Vaughan
Williams en flytjendur eru Krist-
inn Sigmundsson bassi, Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanóleik-
ari, Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleik-
ari, Sigurður Ingvi Snorrason
klarinettuleikari og Sigurgeir Agn-
arsson á selló.
Fyrri tónleikar laugardagsins
hafa yfirskriftina „Sumarkveðja“
en þar kemur fram söngflokkurinn
Hljómeyki undir stjórn Mörtu
Guðrúnar Halldórsdóttur. Sungnar
verða íslenskar kórperlur úr ýms-
um áttum og frá ýmsum tímabil-
um. Um kvöldið taka svo Mozart
og Bartók við á fallegum kamm-
ertónleikum.
Reykholtshátíðin hefur verið ár-
viss viðburður frá 1996. Fyrstu
fimmtán árin var Steinunn Birna
Ragnarsdóttir listrænn stjórnandi
hátíðarinnar. Við henni tók svo
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari
en frá árinu 2013 hefur Sigurgeir
verið við stjórnvölinn á hátíð-
inni.„Þegar Reykholtshátíð er sett
á laggirnar var lítið um að vera í
íslensku tónlistarlífi á sumrin. Úti
í heimi er hefð fyrir hátíðum tón-
listarfólks að sumri til sem eiga
sér mjög langa sögu, en á Íslandi
er Reykholtshátíð í hópi þeirra
elstu og hátíðin í Skálholti senni-
lega sú elsta,“ segir Sigurgeir. „Á
mjög skömmum tíma hefur hátíð-
unum fjölgað til muna og nú er svo
komið að yfir sumarmánuðina má
finna tónlistarhátíð af einhverjum
toga í öllum landsfjórðungum.“
Allt frá upphafi hefur Reyk-
holtshátíð verið vel sótt og segir
Sigurgeir að skýringin sé kannski
sú að það fylgi því eitthvað spenn-
andi og ferskt, fyrir bæði flytj-
endur og gesti, að koma inn í nýtt
umhverfi og anda að sér sveitaloft-
inu. „Fyrir flytjendur er þetta
tækifæri til að brjóta upp þann
hversdagsleika sem getur einkennt
tónleikahald í bænum yfir vet-
urinn, þegar meir rútína er á öllu
tónlistarstafi.“
Gestir finna fyrir þessum sömu
töfrum: „Ekki aðeins er Reyk-
holtskirkja góður tónleikastaður,
byggingin falleg og hæfilega stór,
með náttúrufegurð allt um kring,
heldur eru tónleikar í Reykholti
tækifæri fyrir fólk til að bregða
sér af bæ og skjótast í um það bil
klukkustundarlangan bíltúr til að
hlusta á góða tónleika, kannski
snæða á notalegum veitingastað
um kvöldið eða gista á sveitahóteli
áður en ekið er aftur heim til höf-
uðborgarinnar. Sumir láta það
jafnvel eftir sér að njóta lífsins í
Borgarfirðinum alla þrjá tónleika-
dagana.“
Klár Æft fyrir opnunartónleika: Ari Þór Vilhjálmsson, Pétur Björnsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Þórunn Ósk
Marínósdóttir, Sigurgeir Agnarsson, Kristinn Sigmundsson, Sigurður Ingvi Snorrason og Berglind Stefánsdóttir.
Ljósmynd / Valgerður G. Halldórsdóttir