Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 29
» LjósmyndasýningBjargeyar Ólafsdóttur,
Vasaspegill, var opnuð í
fyrradag í galleríinu
Ramskram við Njálsgötu.
Bjargey segist fyrir ljós-
myndaseríuna m.a. hafa
velt fyrir sér hvernig væri
best að mála með ljósi og
fanga andrúmsloft með
myndavél. Myndirnar tók
hún í ýmsum löndum og í
samstarfi við fólk sem hún
bæði þekkti og treysti.
Bjargey fæst í list sinni við
kvikmyndagerð, hljóð-
verk, gjörninga, teiknar,
málar og ljósmyndar.
Bjargey Ólafsdóttir opnaði ljósmyndasýninguna Vasaspegil í galleríinu Ramskram á laugardag
Listamaður Bjargey Ólafsdóttir við eitt verkið á sýningunni.
Kátar Jóhanna Ólafsdóttir og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Gestir Tómas Símonarson og
Guðlaug Erla Jónsdóttir létu sig
ekki vanta og nutu verkanna.
Morgunblaðið/Árni SæbergListunnendur Bragi Þór Jósepsson og Ármann Reynisson.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
Stýrðu birtunni heima hjá þér
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
ICQC 2018-20
Leonardo DiCaprio, Brad Pitt, Matt
Damon og Ryan Phillippe eru meðal
þeirra stórstjarna sem afþökkuðu
hlutverk í kvikmyndinni Brokeback
Mountain. Myndin, sem er ástarsaga
tveggja samkynhneigðra kúreka og
hlaut Óskarsverðlaun, skaut leik-
urunum Heath Ledger og Jake Gyl-
lenhaal upp á stjörnuhimininn.
Leikstjórinn Gus Van Sant, sem
þróaði verkefnið, segist hafa verið
ákveðinn í að hann þyrfti stórstjörn-
ur í aðalhlutverkin en enginn hafi
viljað taka þau að sér.
Ástarsaga Jake Gyllenhaal og Heath
Ledger í Brokeback Mountain.
Stórstjörnur höfn-
uðu hlutverkunum
Verið er að vinna að rómantískri
jólamynd sem gerist í London og
sækir innblástur sinn í sígilda jóla-
smellinn „Last Christmas“ sem
George Michael gerði frægan með
félaga sínum Andrew Ridgeley í
dúettinum Wham árið 1984.
Leikkonan Emma Thompson
skrifar handritið ásamt listakon-
unni Bryony Kimmings og Paul
Feig (Bridesmaids) mun leikstýra
kvikmyndinni. Þróun verkefnisins
hófst í samstarfi við George Mich-
ael áður en hann lést árið 2016.
The Guardian segir að Thomp-
son sé komin með fyrsta uppkast að
handriti og það innihaldi þónokkuð
af þeim hinseginleika sem Michael
hafði áhuga á. Hann hafi verið mik-
ill baráttumaður fyrir réttindum
samkynhneigðra og það verði virt í
kvikmyndinni.
Jólasmellur George Michael í mynd-
bandinu við „Last Christmas“.
„Last Christmas“
verður kvikmynd