Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 204. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Í framúrakstri er slysið varð 2. „Hugsanlega - rétt …“ 3. Ekki ráðlegt að spyrja … 4. Drap mann en sleppur …“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Leikkonan Charlotte Bøving skrifar og leikur í einleiknum Ég dey, þú líka, sem verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins 4. janúar á næsta ári. Þetta er þriðji einleikur Charlotte en hún hefur áður gert Hina smyrj- andi jómfrú árið 2002 og Þetta er líf- ið – og nu er kaffen klar árið 2010 og var hún tilnefnd til Grímuverðlauna fyrir þá báða. Í Ég dey, þú líka mun Charlotte skoða lífið frá sjónarhóli dauðans og skoða dauðann frá sjónarhóli lífsins. Charlotte var, að eigin sögn, orðin fimmtug þegar hún uppgötvaði að hún myndi einhvern tíma deyja og furðaði sig á því hvernig hún gat komist hjá því í svona langan tíma að horfast í augu við dauðann og mun sýningin vera unnin út frá þeirri upp- götvun. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir einleiknum, Þórunn María Jónsdóttir sér um leikmynd og búninga og Gísli Galdur Þorgeirsson semur tónlistina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skoðar lífið frá sjónarhóli dauðans  Franskir tónar munu hljóma á næstu sumartónleikum Listasafns Sigurjóns sem haldnir verða annað kvöld kl. 20.30. Björg Brjánsdóttir flautuleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari flytja Sónötu fyrir flautu og píanó eftir Franc Poulenc; Air Vaudois og And- ante et Allegro eftir Mel Bonis og Sónötu eftir Claude Debussy sem samin var fyrir fiðlu og píanó, en er útsett fyrir flautu og píanó. Franskir tónar í Laugarnesi Á þriðjudag Norðaustan 5-10 m/s norðvestan til, annars hægari breytileg átt. Rigning eða skúrir en skýjað og þurrt um landið norð- vestanvert. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast sunnan- og suðvestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s, hvassast norðvestan til. Rigning eða skúrir, en úrkomulítið um landið norðvestanvert eftir hádegi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands. VEÐUR Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leik- mönnum 20 ára og yngri er komið í milliriðla á EM í Slóveníu eftir dramatískt 25:25-jafntefli við Þýska- land í gær. Svíþjóð gerði strákunum okkar svo greiða með því að vinna Rúmeníu og senda Ísland áfram. Í milliriðlinum bíða leikir við Slóveníu og Serbíu og tvö efstu lið hans fara í undan- úrslit. »1 Ísland í milliriðla eftir dramatík Valsmenn náðu þriggja stiga forystu Knattspyrnumaðurinn Kári Árnason leikur í Tyrklandi í vetur og frestar hann þar með heimkomu sinni í Vík- ing R. um eitt ár. Í samtali við Morg- unblaðið í gær sagðist Kári ekki mega greina frá um hvaða félag væri að ræða. Hann sagðist hins vegar ekki hafa heyrt í Erzurum BB, eins og tyrkneskir miðlar greindu frá á með- an HM í Rússlandi stóð yfir. » 1 Kári Árnason spilar í Tyrklandi í vetur ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Fjórar systur; þær Brynja, Edda Ýrr, Margrét Rós og Íris Einars- dætur verða meðal þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 18. ágúst nk. Systurnar ætla að hlaupa 10 km fyrir tengdamóður Brynju, Katrí Raakel Tauriainen, sem greindist með beinmergsæxli vorið 2017. Systurnar safna styrkj- um fyrir Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabba- meinsgreinda og aðstandendur þeirra. Brynja hljóp einnig fyrir tengda- móður sína í hlaupinu í fyrra og safn- aði áheitum fyrir Krabbameinsfélag Íslands. Þá var mágkona Brynju, Saara Annikki Guðmundsdóttir, og systir Katríar, Saara Grönbörg, með Brynju í för í 10 km hlaupinu. „Ég tek systurnar mínar með í ár því mágkonan mín, sem hljóp með mér í fyrra, er kasólétt, þannig að ég þurfti að finna annan hóp og þær voru að sjálfsögðu til í að koma með mér,“ segir Brynja í samtali við Morgunblaðið. Tóku systurnar fjór- ar m.a. þátt í Miðnæturhlaupi Suzuki fyrir um mánuði. „Hún er mín helsta fyrirmynd“ „Hún er alveg ótrúlega mögnuð og sterk manneskja, afar dugleg og ein sú jákvæðasta, sem ég hef á ævinni kynnst og hún er mín helsta fyrir- mynd í einu og öllu,“ segir Brynja um tengdamóður sína. Aðspurð hvernig Katrí heilsist í dag segir Brynja hana vera nokkuð stöðuga. „Hún er inni á spítala eins og er en kemst vonandi heim á næstu dögum. Þetta hefur verið ansi strembið ár. Hún hefur oft fengið bakslag, til að mynda fengið inflúensu og sýkingar ofan í það, sem hefur ekki hjálpað til,“ segir Brynja en bætir við að þrátt fyrir erfiða baráttu sé Katrí ávallt jákvæð. „Þannig að jákvætt viðhorf og rétt hugarfar heldur manni gangandi í þessum málum eins og í hlaupunum,“ segir Brynja. Katrí er fædd í Finnlandi en flutt- ist fimm ára að aldri með fjölskyldu sinni til Svíþjóðar. Þar kynntist hún síðar eiginmanni sínum, Guðmundi Rúnari Guðmundssyni. „Svo ætlaði hún bara að prófa að kíkja hingað til Íslands og búa hér í eitt ár, árið 1984, en hún hefur ekkert farið síð- an,“ segir Brynja um Katrí. Var engin hlaupamanneskja Brynja segist alltaf hafa tekið þátt í hreyfingu af einhverju tagi en lang- hlaup hafi verið nýr vettvangur fyrir hana þegar hún hljóp 10 km í fyrsta sinn í fyrra. „Viku fyrir hlaupið í fyrra gat ég varla hlaupið einn kíló- metra vegna eymsla í hné, en ein- hvern veginn fór ég þessa 10 km á hörkunni á rétt rúmum klukkutíma án þess að stoppa. Þannig að það er eitthvað í hausnum á manni, sem heldur manni gangandi,“ segir Brynja og bætir við: „Svo hættir maður þessu ekkert eftir að hafa prufað einu sinni.“ Áframhaldandi barátta Hún segir að baráttan hjá tengda- móður sinni og aðstandendum haldi áfram. „Þetta veitir manni þá tilfinn- ingu hversu magnað er að geta farið út að hlaupa, að geta hreyft sig og maður á að gera eins mikið af því og hægt er,“ segir Brynja um Reykja- víkurmaraþonið þar sem þúsundir, líkt og systurnar, hlaupa til góðs. Hlaupa fyrir tengdamömmu  Fjórar systur hlaupa 10 km til styrktar Ljósinu Systur F.v. Brynja, Edda Ýrr, Margrét Rós og Íris Einarsdætur ætla að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu. Brynja tók þátt í fyrra ásamt mágkonu sinni, Saara Annikki Guðmundsdóttur, og systur Katrí, Saara Grönborg. Bros Katrí bregður á leik ásamt sonum Brynju, þeim Ólíver Fróða (Hulk) og Victori Flóka (górillu). Valsmenn náðu þriggja stiga forskoti í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gær með auðveldum sigri á Víkingi, 4:1, á meðan KR lagði Stjörnuna að velli, 1:0. Breiðablik vann glæsilegan sigur á FH, 4:1, í slag liðanna í þriðja og fjórða sæti og er komið í toppbarátt- una af fullum krafti. Ásgeir Sigur- geirsson skoraði þrennu fyrir KA- menn sem burstuðu Fylki, 5:1, og Fjölnir og ÍBV skildu jöfn í líflegum leik, 1:1. » 2,4,5

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.