Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Qupperneq 22
Morgunblaðið/Valli
Egill Björgvinson
rekur Cupcake
Cafe sem er á
Grettisgötu 3.
Í hjarta Reykjavíkur, við Grettisgötu,stendur kaffihúsið Cupcake Cafe. Kaffi-húsið er lítið og notalegt, ljósbleik úti-
hurðin er iðulega opin, andrúmsloftið heim-
ilislegt. Á bak við afgreiðsluborðið stendur
Egill Björgvinsson, stofnandi kaffihússins,
vaktina. Kaffihúsið sérhæfir sig í bollakök-
um, hugmynd sem kviknaði hjá Agli fyrir
rúmlega ári, í göngutúr á ströndinni
„Ég var að labba með hundana mína á
ströndinni á Akranesi og var að hlusta á
hljóðbók um venjur farsæls fólks,“ segir Eg-
ill. „Ég var að hlusta á kafla um konu sem
hét Gigi og stofnaði Gigi’s Cupcakes í
Bandaríkjunum, þegar ég leit niður og fann
þúsundkall. Þá kviknaði hugmyndin og ég
fór strax að hugsa hvort ég gæti opnað
bollakökustað á Íslandi.
Ég gerði mér lista með sjö hlutum sem ég
þyrfti að gera, ég komst seinna að því að
það eru svona þúsund hlutir sem þarf að
gera til að stofna fyrirtæki, en á listanum
mínum voru sjö hlutir. Það var meðal annars
að kaupa ofn, gera bestu kökurnar, finna
leiguhúsnæði, einfaldir hlutir. Ég hannaði
logo og fann nafn og síðan lærði ég að baka.
Ég hafði aldrei bakað nokkurn skapaðan hlut
áður en ég opnaði þennan stað, svo ég fór á
Youtube og fann bestu uppskriftirnar þar,
tók eitthvað hér og eitthvað þar og bjó til
mína eigin uppskrift.
Þegar fólk kemur á Cupcake Cafe getur
það búist við bestu kökunum og besta
kaffinu. Ég hef smakkað ýmislegt í gegnum
tíðina, bæði innan og utan lands, og þótt ég
sé vissulega hlutdrægur þá eru kökurnar
mínar betri en aðrar, ég get ekki farið í
kringum það,“ segir Egill hlæjandi.
Bollakökur og kaffibolli
Eftir örlagaríkan
göngutúr ákvað Egill Björg-
vinsson að opna kaffihús sem
sérhæfir sig í bollakökum og
kaffi, þrátt fyrir að hann
kunni ekki að baka.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
Bollakökurnar á
Cupcake Cafe eru
eins fjölbreyttar og
þær eru margar.
MATUR Gott getur verið að skipta út spagettí fyrir linguine sem er mjór ogflatur frændi spagettísins. Linguine hefur afar skemmtilega áferð og
hentar vel með meðalþykkum sósum.
Linguine í stað spagettís
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018