Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Page 24
HEILSA Þess vegna finnst mér orðið lystarstol vera alveg fáránlegt. Því maðurer alltaf að hugsa um mat og er alltaf svangur. Maður er ekki með neitt lystarstol, heldur er bara að neita sér um að borða. Lystarstol ekki réttnefni 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018 Fyrir nokkrum árum var KatrínÞóra Sigurbjörnsdóttir langtleidd af átröskunarsjúkdómn- um anorexíu. Í dag er hún hreystin uppmáluð og vinnur sem hóptíma- kennari hjá Reebok Fitness ásamt því að stunda meistaranám í íþrótta- fræði við Háskóla Íslands. Katrín æfði ballett fram á ung- lingsár en ballettdansinn hefur ein- mitt oft verið bendlaður við átrösk- unarsjúkdóma. „Ég kenni honum engan veginn um þetta en hann hafði samt áhrif; það þykir betra að vera grannur ballettdansari. Ég held bara að það séu alltaf einhverjir persónu- leikaþættir sem ýta undir þetta; full- komnunarárátta og einhver þörf fyrir að hafa stjórn. Og ég hef alveg haft tilhneigingu til að vera með þrá- hyggju,“ segir Katrín. Hún segist oft hafa velt því fyrir sér af hverju hún hafi fengið anorexíu en á þessum tíma hafi orðið miklar breytingar í lífi hennar á stuttum tíma sem líklega höfðu áhrif. Hún hætti í ballettinum sem hafði verið líf hennar og yndi í mörg ár. Það voru líka mikil viðbrigði að byrja í Mennta- skólanum í Reykjavík, þar sem hún skaraði ekki lengur fram úr í námi eins og hún hafði gert í grunnskóla. „Það eina sem ég gat haft stjórn á var hvað ég lét ofan í mig. Ég lagði bara allan minn metnað í það að borða sem minnst.“ Borðaði einu sinni á dag Átröskunin byrjaði þegar Katrín var fimmtán ára en þá segist hún hafa skrifað niður í litla bók hvað hún ætl- aði að borða daginn eftir og áætlað hvað það voru margar hitaeiningar. „Auðvitað áætlaði ég þær langt um- fram það sem þær voru í raun. Eitt epli var alltaf tvö hundruð kaloríur í minni bók. Síðan hugsaði ég að ég gæti nú alveg sleppt einhverju á list- anum og sleppti því næsta dag. Svo jókst það.“ Katrín Þóra var farin að borða að- eins eina máltíð á dag og foreldra hennar grunaði ekkert til að byrja með. „Ég var í skólanum og ballett allan daginn og kom heim klukkan níu á kvöldin. Þá borðaði ég kvöldmat en ég hafði ekkert borðað allan dag- inn. Þannig að mamma og pabbi sáu mig alltaf borða kvöldmat. Mamma sendi mig með nesti í skólann en ég henti því nú bara einhvers staðar á leiðinni í skólann.“ Og Katrín reyndi alltaf að vera vöknuð fyrst á morgn- ana til að geta þóst vera búin að borða morgunmat á undan hinum í fjöl- skyldunni. „Fyrst fannst mér alveg frábært að vera að grennast og fólk hrósaði mér fyrir að líta vel út. En svo kom að því að fólk var farið að hafa áhyggjur af mér. Foreldrar mínir töluðu við mig og systkini mín líka og vinkonur. En þá fannst mér þau bara vera að skipta sér af og varð pirruð og fór í vörn. Mér fannst þau ekki skilja mig; að ég hefði bara metnað fyrir dansinum og þetta væri það sem ég þyrfti að gera til að ná árangri.“ Katrín segir að margir átröskunar- sjúklingar nái aldrei að losa sig við þann hugsunarhátt en hann sé mjög hættulegur. „Það fyrsta sem maður þarf að gera áður en maður fer í bata er að átta sig á því að maður glími við vandamál. Maður verður að losa sig við þann hugsunarhátt að maður sé að gera rétt.“ Foreldrar Katrínar, systkini og vinkonur gáfust þó ekki upp á að tala um þetta við hana og það segir Katrín hafa verið gríðarlega mikilvægt. „Þótt ég hafi alltaf farið í vörn og ver- ið bara hundleiðinleg, þá hafði það áhrif að heyra þetta frá þeim. Fólk má ekki gefast upp. Kannski halda foreldrar að barnið þeirra hætti að tala við þá ef þeir reyna að tala um þetta en þetta síast inn.“ Lystarstol ekki rétta orðið Katrín segist hafa gert sér grein fyrir því að ástandið væri alvarlegt en samt hafi hún haldið sveltinu áfram. „Þegar ég var sem veikust, þá snerist þetta ekkert um að verða mjó. Mér fannst ég ógeðsleg og ég vissi að ég væri allt of mjó. Ég sá hvernig fólk horfði á mig. Strákar höfðu ekki áhuga á mér í menntaskóla. Og ég vissi að fólk hafði áhyggjur af mér. Mér leið svakalega illa og fannst ég algjör aumingi að geta ekki bara ver- ið eðlileg. Samt hélt ég áfram. Þetta snerist bara um að ég þurfti að hafa stjórn á einhverju.“ Líkamlegt ástand Katrínar var orðið mjög slæmt. „Ég gat ekki sofið á nóttunni af því að ég var svo svöng. Ég var farin að vakna í svitabaði, sjálfsagt vegna einhverra hormóna- breytinga. Mér var alltaf kalt og illt í maganum, ég var alltaf þreytt og gat aldrei gert neitt. Svo tekur þetta gríð- arlega á mann að þurfa alltaf að hugsa um hvernig maður ætlar að sleppa því að borða. Þetta heltekur mann alveg.“ Katrín segir að þessu hafi fylgt mikið þunglyndi og á hana hafi leitað sjálfsvígshugsanir. „Ég grét á hverju einasta kvöldi og bað til Guðs að hjálpa mér. Það er náttúrlega ekkert meira niðurdrepandi en að vera alltaf svangur. Þess vegna finnst mér orðið lystarstol vera al- veg fáránlegt. Því maður er alltaf að hugsa um mat og er alltaf svangur. Maður er ekki með neitt lystarstol, heldur er bara að neita sér um að borða.“ Setti sér afarkosti Þegar Katrín var sautján ára, og orð- in hvað veikust, vó hún aðeins fjörutíu og þrjú kíló en hún er 178 sentimetr- ar á hæð. Hún var því um þrjátíu og fimm kílóum undir kjörþyngd. Hún féllst loksins á að hitta geðlækni og segir að það hafi verið upphafið á bataferlinu þótt sér finnist það ekki ástæða batans. Það hafi verið boot camp-æfing sem gerði útslagið. „Ég hef alltaf elskað hreyfingu en hafði ekkert hreyft mig eftir að ég hætti í ballettinum og saknaði þess mjög mikið. Þegar ég byrjaði hjá geð- lækninum var það alltaf takmarkið hjá mér að fara að hreyfa mig á ný þegar mér yrði batnað.“ Þyngdin hafði farið upp um örfá kíló þegar eldri bróðir hennar, Frið- rik, bað hana um að koma með sér á æfingu í boot camp. „Ég fann að hann hafði rosalegar áhyggjur af mér og mér þótti ofboðslega vænt um að hann skyldi bjóða mér með. Ég vissi alveg hvað hann var að gera og ég er honum mjög þakklát. Það að hafa far- ið á þessa æfingu með honum er það besta sem hefur komið fyrir mig,“ segir Katrín og brosir. Hún segir að þjálfararnir hafi strax séð að hún væri ekki í neinu ástandi til að fara í þessar erfiðu brennsluæfingar sem voru í boði. „Einn þjálfaranna, Arn- aldur Birgir Konráðsson, Biggi, tók mig bara að sér og við gerðum þetta í samráði við geðlækninn, sem var mjög efins um þetta í fyrstu. Venjan er nefnilega að taka anorexíu- sjúklinga úr allri hreyfingu, sem ég er mjög ósammála. Sumir þurfa kannski að hætta algjörlega í hreyf- ingu á meðan þeir eru að ná bata, en hjá mér hafði það þveröfug áhrif. Þegar ég hætti að hreyfa mig þá virkilega datt ég niður í þunglyndi.“ Katrín segist hafa sett sjálfri sér afarkosti þegar hún byrjaði í þjálf- uninni. „Ég sagði við sjálfa mig að ég skyldi gefa þessu ár og ef þetta tæk- ist ekki hjá mér í þetta sinn, þá mætti ég drepa mig. En það að byrja hjá Bigga hafði úrslitaáhrif. Hann bann- aði mér að fara á boot camp-æfingar og lét mig lyfta. Hann setti upp lyft- ingaprógramm, lét mig skila inn mat- ardagbók og vigtaði mig í hverri viku. Mér fannst þetta geðveikt! Og loksins gat ég sett metnað í að verða sterk og kraftmikil.“ Biggi setti Katrínu ákveðið þyngd- armarkmið og sagði að þegar því væri náð mætti hún mæta á boot camp-æfingu. „Þannig að það voru alltaf einhverjar svona gulrætur svo ég hélt áfram og vildi verða þyngri.“ Aldrei aftur í gamla farið Katrín er lögfræðingur að mennt en stundar nú meistaranám í íþrótta- fræði við Háskóla Íslands. „Ég ætlaði alltaf að verða læknir en hætti við það og vissi ekkert hvað ég ætti að gera. Svo ég skráði mig bara í lögfræði. Það nám hentaði mér alls ekki, ég er meira svona skapandi einstaklingur. Ég ákvað samt að klára BA-gráðu því hún kemur sér vel og ég gat til dæmis farið beint í master í íþróttafræðinni síðastliðið haust.“ Hún segist hafa fengið brennandi áhuga á líkamsrækt og heilbrigðum lífsstíl eftir að hún byrjaði að æfa boot camp. Óttastu einhvern tíma að sjúkdóm- urinn geti tekið sig upp aftur? „Ég held ég geti sagt með fullkom- inni vissu að ég muni aldrei detta aft- ur í þetta far. Af því að ég bara veit hvað þetta er mikið helvíti. Ég myndi ekki óska neinum að lenda í þessu. Manni líður eins og maður sé í ein- hverju svartholi og komist ekki út.“ Katrín segist eiga heilbrigt sam- band við mat í dag. „Núna veit ég hvað matur gerir manni gott. Hann heldur í okkur lífi og mér finnst mik- ilvægt að fólk líti ekki á mat sem ein- hvern óvin. Ég fæ mér alveg nammi og mér finnst pizza rosalega góð. Ég held að ég sé alveg læknuð af anor- exíunni en hins vegar veit ég að ég, eins og svo margir, og sérstaklega stelpur og konur, hugsa alveg að ég hafi borðað of mikið og sé of feit í ein- hverjum buxum. En munurinn á mér núna og þá er að ég fer ekki í ein- hverjar aðgerðir við þessum hugs- unum. Þær bara koma og fara svo. Ef ég hugsaði þetta þegar ég var veik, þá bara borðaði ég ekki í þrjá daga.“ Katrín segist stolt af sjálfri sér fyr- ir að hafa sigrast á veikindunum og skammast sín ekki. „Þetta gerði mig að sterkari einstaklingi og hefur gert mig hæfari til að takast á við lífið. Þetta var bara eitthvað sem ég þurfti að ganga í gegnum, það var erfitt en hefur líka gefið mér aðra sýn á margt.“ Katrínu langar að starfa sem einkaþjálfari í framtíðinni og segir að reynsla hennar af sjúkdóminum muni koma sér vel. „Ég held að þetta hjálpi mér að takast á við þessa menningu sem er í dag; að maður eigi að skammast sín fyrir að borða. Skamm- ast sín fyrir aukakílóin. Ég er algjör- lega á móti þeirri hugsun. Mér finn- ast allir fallegir og ég get sagt það núna af því ég var að glíma við þetta. Mér finnst að fólk eigi bara að fá að vera eins og það er.“ Morgunblaðið/Valli Úr svartholi í ljósið Katrín Þóra sigraði í glímunni við anorexíuna. Hún segist engum óska að lenda í því svartholi sem sjúkdómurinn er. Það sé hreint helvíti. Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is Katrín henti flestum myndum af sér því hún skammaðist sín fyrir þær. Katrín segir hreyfinguna mikilvægasta þáttinn í sínu bataferli og vinnur nú sem hóptímaþjálfari í Reebok Fitness.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.