Morgunblaðið - 01.08.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 179. tölublað 106. árgangur
FERÐALÖG
SAMEINUÐ
ÁHUGAMÁLUM
TOPPTÓNLISTARFÓLK
YFIRVINNA UNNIN
TIL AÐ KLÁRA
RAPPPLÖTU
BOWIE-TÓNLEIKAR Í HÖRPU 33 YUNG NIGO DRIPPIN’ 31MENNINGARFERÐIR 12
Vandamálið þekkt lengi
Fulltrúi Pírata segist bjartsýnn á að lausnir skili árangri í málefnum heimilis-
lausra Meirihlutinn viðurkenndi loks vandann, segir oddviti Sjálfstæðisflokksins
spurð sagðist Sigurborg ekki hafa
skýringu á þessari fjölgun, en kvaðst
vera bjartsýn á að þær lausnir sem
samþykktar voru á fundinum myndu
skila tilsettum árangri. Þeim verður
þó að líkindum ekki hrint í fram-
kvæmd fyrr en á haustmánuðum.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti
Viðreisnar og formaður velferðar-
ráðs borgarinnar, tók í svipaðan
streng. Hún sagði fyrrverandi meiri-
hluta í borginni hafa vitað af vand-
anum frá því í nóvember á síðasta
ári. Þá sagði hún félagslegan vanda
heimilislausra ekki verða leystan
með húsnæði eingöngu.
„Það áhugaverða á fundinum var
að meirihlutinn fékkst líklega í
fyrsta skipti til að viðurkenna að það
er brýnn húsnæðisvandi í Reykja-
vík,“ sagði Eyþór L. Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borginni.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Þetta var frábær fundur,“ sagði
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borg-
arfulltri Pírata, í samtali við Morg-
unblaðið og vísar í máli sínu til auka-
fundar borgarráðs Reykjavíkur sem
haldinn var í gær, en fundarefnið var
málefni heimilislausra.
Fjöldi heimilislausra í Reykjavík
hefur aukist talsvert á milli ára. Að-
Borgarráðsfundur
» Þeir sem stjórna eru í mikilli
vörn, sagði oddviti Miðflokks-
ins eftir fundinn.
» Verið er að velta vandanum
á undan sér í stað þess að
grípa til aðgerða strax, sagði
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. MVandinn leystist ekki ... »9
Ekkert lát virðist vera á áhuga ferðamanna á
Gullfossi, frægasta fossi Íslands. Þeir sem sóttu
fossinn heim nýverið hafa vafalaust fundið fyrir
ógnarkrafti Hvítár sem af miklum þunga
streymir þrep fram af þrepi og myndar við það
þéttan vatnsúða sem leggst yfir svæðið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ógnarkraftur náttúru heillar ferðalanga
Dregið hefur verulega úr notkun
plasts í umbúðir um vörur kjöt- og
grænmetisbænda síðustu ár og ráð-
gert er að þróunin muni halda áfram á
næstu árum. Samkvæmt upplýsing-
um frá Ferskum kjötvörum, kjöt-
vörukeðju Haga, hafa nýjustu að-
gerðir fyrirtækisins minnkað plast-
notkun í tengslum við vörur kjöt-
bænda um þrjátíu tonn á ári. Í
kjölfarið hefur flutningskostnaður
fyrirtækisins lækkað talsvert en nú
flytur fyrirtækið inn einn gám af
plasti í stað tólf líkt og það gerði fyrir
breytingar.
Sambærilegar aðgerðir hafa verið í
gangi hjá Íslensku grænmeti, sölu-
félagi garðyrkjumanna, en þar hefur
tekist að minnka plastnotkun um 60%
síðustu ár. Þá eru frekari aðgerðir í
bígerð en að sögn Kristínar Lindu
Sveinsdóttur, markaðsstjóra hjá Ís-
lensku grænmeti, verða umbúðir fyr-
irtækisins gerðar úr jarðgeranlegu
efni. „Við höfum verið að skipta út
umbúðum hjá okkur og munum hægt
og rólega færa okkur yfir í pakkning-
ar úr jarðgeranlegu efni. Umbúðirnar
verða sérstaklega merktar og munu
jarðgerast þegar þeim hefur verið
fleygt,“ segir Kristín. »18
Plastnotk-
un dregst
saman
Kjöt og grænmeti
sett í nýjar umbúðir
Morgunblaðið/Golli
Kjöt Umbúðir matvöru hér á landi
hafa breyst töluvert síðustu ár.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framboð á atvinnuhúsnæði eykst
um tugþúsundir fermetra á næstu
mánuðum með því að margar ný-
byggingar verða teknar í notkun.
Verktakafyrirtækið ÞG Verk er
þar af með rúma 40 þúsund fer-
metra af atvinnuhúsnæði og alls 20
þúsund fermetra bílakjallara.
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri
ÞG Verks, segir 50-60% af nýju at-
vinnuhúsnæði á Hafnartorgi hafa
verið leigð út. Þá sé búið að leigja
um 20% af nýju 16.500 fermetra
skrifstofuhúsi í Urðarhvarfi í Kópa-
vogi. Áætlað sé að senn muni um
þúsund manns starfa í húsinu.
Hafnartorgið verður tekið í
notkun í haust og með því bílakjall-
ari sem nær undir Geirsgötu.
Þorvaldur segir eftirspurnina
vitna um efnahagsbata síðustu ára.
Kostar 200-300 þúsund á íbúð
ÞG Verk er líka umsvifamikið í
byggingu íbúðarhúsnæðis.
Þorvaldur segir hamlandi skipu-
lagskröfur enn að aukast á höfuð-
borgarsvæðinu. T.d. kosti djúpgám-
ar við íbúðir sem félagið er að
byggja í Vogabyggð í Reykjavík
200 til 300 þús. á hverja íbúð. »10
Teikning/ÞG Verk
Urðarhvarf 8 Svona sjá arkitektar húsið fyrir sér fullgert. Bygging hússins
hófst 2006 en það stóð hálfklárað í um áratug eftir efnahagshrunið.
Tugþúsundir fermetra á markaðinn
Stór skrifstofuhús að verða tilbúin
Húsbyggjandi segir skort á markaði
Verð á stökum miða í sund í
Hafnarfirði er 600 krónur sam-
kvæmt verðskrá sveitarfélagsins en
í sundlauginni á Húsafelli er það
1.300 krónur. Skýrist sá munur að
mestu leyti af því að sundlaugin á
Húsafelli er ekki niðurgreidd af
sveitarfélaginu þar. Þá er verð á
stökum miða í sundlaugum Reykja-
víkur 980 krónur. Í stærstu sveit-
arfélögum landsins er 10 miða kort
ódýrast í sundlaugum Mosfells-
bæjar en dýrast í sundlaugum
Kópavogs og Akureyrar.
Reglulegir sundlaugagestir eru
með kort sem gildir í margar sund-
ferðir eða til lengri tíma og er þá
hver ferð mun ódýrari en með
stöku gjaldi. Skrifstofustjóri hjá
ÍTR segir að rekstrarumhverfi
sundlauga höfuðborgarinnar hafi
batnað mjög á síðustu árum. »6
Allt að 700 króna
munur á sundverði