Morgunblaðið - 01.08.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mikil eftirspurn eftir nýju atvinnu-
húsnæði vitnar um uppsafnaðan
skort. Framboðið er enda takmarkað.
Þetta segir Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri ÞG Verks, en fyrirtæki hans
er nú með tugi þúsunda fermetra af
slíku húsnæði í smíðum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Stærsta eignin
er í Urðarhvarfi í
Kópavogi. Þar er
ÞG Verk að ljúka
við byggingu á
16.500 fermetra
skrifstofuhús-
næði. Um 10.000
fermetra bíla-
stæðahús fylgir
skrifstofuhúsinu
sem verður með
þeim stærri á landinu. ÞG Verk hóf
smíði hússins árið 2006 en gerði hlé á
framkvæmdum 2008. Íslandsbanki
eignaðist húsið í skuldauppgjöri 2011
og eignaðist verktakafyrirtækið
Þingvangur svo húsið. ÞG Verk
keypti bygginguna aftur í vor og
hyggst afhenda fyrstu leigutökum
rými þar næsta vor.
Að auki er ÞG Verk að byggja
10.000 fermetra af atvinnuhúsnæði
við Dalveg í Kópavogi sem er ætlað
millistórum fyrirtækjum. Þar verður
m.a. gott lagerrými.
Umfangsmesta verkefni ÞG Verks
er á Hafnartorgi í Reykjavík. Þar
verða um 6.400 fermetrar af skrif-
stofurými og 8.000 fermetrar af þjón-
ustu- og verslunarrými. Við það bæt-
ast 69 íbúðir og bílakjallari.
Með alls 41 þúsund fermetra
Samanlagt er ÞG Verk því með um
41 þúsund fermetra af atvinnuhús-
næði í smíðum á höfuðborgarsvæðinu
sem kemur til afhendingar á næstu 12
mánuðum. Til samanburðar má nefna
að Kringlan er um 60 þús. fermetrar.
Við það bætist 10 þúsund fermetra
bílakjallari í Urðarhvarfi og 10 þús.
fermetra kjallari á Hafnartorgi.
Að sögn Þorvaldar er búið að leigja
50-60% af atvinnuhúsnæðinu á
Hafnartorgi. Það fyrsta verði tekið í
notkun í haust. Þá hafi borist margar
fyrirspurnir um húsnæðið á Dalvegi.
Þessi árangur hafi náðst þrátt fyrir
að húsnæðið hafi ekki verið auglýst.
Hann segir aðspurður að lúkningin
á byggingunni í Urðarhvarfi vitni um
efnahagslega endurreisn síðustu ára.
Húsið hafi staðið autt í um áratug
eftir efnahagshrunið. Vöxtur hag-
kerfisins kalli nú á meira rými fyrir
fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Auða húsnæðið að fyllast
„Það hefur skapast ákveðin vöntun,
enda nánast ekkert verið byggt af at-
vinnuhúsnæði öll þessi ár frá hruni.
Fyrstu árin var lítil sem engin eftir-
spurn eftir atvinnu- og íbúðarhús-
næði. Þegar efnahagslífið fór af stað
fóru fyrstu árin í að fylla atvinnuhús-
næði sem var til staðar. Sama gildir
um íbúðarhúsnæði. Upp úr 2014 fóru
íbúðabyggingar að taka við sér aftur.
Það hefur ekki verið sama þörf á at-
vinnuhúsnæði fram að þessu. Við
greinum hins vegar að það hefur
skapast þörf á nýbyggingum. Það er
skortur á atvinnuhúsnæði almennt,
bæði skrifstofum og iðnaðarhúsnæði.
Valmöguleikar á leigu- eða kaup-
markaði í atvinnuhúsnæði eru orðnir
ansi takmarkaðir,“ segir Þorvaldur.
Hentar stórfyrirtækjum
Hann segir bygginguna í Urðar-
hvarfi vera meðal fárra á höfuðborg-
arsvæðinu sem henta stórfyrirtækj-
um, eða stofnunum, sem þurfa mörg
þúsund fermetra. Áætlað sé að um
þúsund manns muni starfa í húsinu.
Það verði því mikil lyftistöng fyrir
Hvörfin. Kópavogsbær hafi sýnt
áhuga á verkefninu og liðkað fyrir því.
Um 56% af flatarmáli byggingar-
innar verða tekin í notkun næsta vor
og hinn hlutinn svo í áföngum.
Þorvaldur segir að ólíkt fyrri
þensluskeiðum hafi hið opinbera
haldið að sér höndum með verklegar
framkvæmdir síðustu ár. Nú séu þó
vonandi framundan mörg stórverk-
efni hjá hinu opinbera, á borð við
byggingu nýs Landspítala, uppbygg-
ingu umferðarmannvirkja o.fl. Þá
segir Þorvaldur farið að hægja á upp-
byggingu hótela. Þá séu vísbendingar
um að miklar hækkanir á verði íbúð-
arhúsnæðis séu að baki.
Býst við stöðugleika
„Það er jöfn og góð sala í íbúðar-
húsnæði sem er á lægra verðbilinu og
hentar til dæmis fjölskyldufólki. Það
má búast við að íbúðamarkaðurinn
verði tiltölulega stöðugur næstu miss-
erin. Mörg íbúðaverkefni eru á fram-
kvæmdastigi eða eru að fara af stað.
Ég tel að það muni ganga ágætlega að
fylla upp í umtalaðan skort á íbúðum.
Ég á von á að hækkanir verði lítið um-
fram verðlagshækkanir.“
Þorvaldur segir kostnað við bygg-
ingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgar-
svæðinu hafa aukist síðustu ár. Nýjar
kröfur, aukið flækjustig, lóðarkostn-
aður og leyfisgjöld eigi meðal annars
þátt í því. Fátt bendi til að brugðist
hafi verið við gagnrýni á þessa þróun.
„Ég fæ ekki séð að það sé verið að
bregðast við því. Hvorki í gjaldtöku
né í skipulagsskilmálum sem hafa
töluvert um það að segja hver bygg-
ingarkostnaður er. Það eru sífellt að
koma inn nýjar og hamlandi kröfur
um ýmis atriði í íbúðabyggingum sem
auka kostnað. Þá er ferlið við að fá
verkefni samþykkt hjá skipulags- og
byggingaryfirvöldum sífellt að lengj-
ast og verða flóknara. Það eru til
dæmis kröfur sem lúta að atriðum
eins og blágrænum ofanvatnslausn-
um, sem eru orðnar algengar í nýjum
hverfum. Það þýðir að meðhöndla
skuli ofanvatn og veita því á náttúru-
legan hátt niður í jarðveg, innan lóð-
ar, án þess að veita því í fráveitukerfi
borgarinnar,“ segir Þorvaldur og
nefnir fleiri dæmi um kröfur sem
auka kostnað við byggingu íbúða.
Dýrar kröfur hækka íbúðaverð
„Það eru ýmsar takmarkanir á
hönnun og formi húsa, takmarkanir á
stigahúsum, þ.e.a.s. lausnum fyrir
svalaganga, kröfur um verslunar- og
þjónusturými á jarðhæð íbúðarhúsa
hér og þar og kvaðir um leiguíbúðir.
Þá má nefna kröfu um djúpgáma í
sorphirðu sem er gríðarlega dýr
lausn. Svona mætti lengja telja,“ seg-
ir Þorvaldur. Hann segir djúpgáma
kosta 300-400 þúsund á íbúð í íbúðar-
húsnæði sem félagið er að byggja í
Vogabyggð í Reykjavík. Þá kosti
krafa um bílastæði í kjallara um 4,5
milljónir á stæði, samanborið við
stæði ofanjarðar sem kosti um 250
þúsund. Niðurstaðan sé sú að hús-
næði sem ÞG Verk er að byggja í
Vogabyggð kostar u.þ.b. 30% meira í
byggingu en íbúðarhúsnæði, sem nú
er í byggingu og til sölu, við Álalæk á
Selfossi.
Fyrirtækin þurfa meira húsnæði
Forstjóri ÞG Verks segir skort á atvinnuhúsnæði Telur að íbúðaverð muni ekki hækka mikið
Teikning/ÞG Verk
Horft af Arnarhóli Áformað er að afhenda fyrstu íbúðirnar á Hafnartorgi fyrir áramót. Við hlið Hafnartorgs má sjá drög að nýjum höfuðstöðvum Landsbankans. Harpan er svo lengst til hægri.
Ljósmynd/ÞG Verk
Dalvegur ÞG Verk byggir um 10 þús. fermetra atvinnuhúsnæði á lóðinni.
Þorvaldur
Gissurarson