Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018 Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is Baráttumenn fyrir lögleiðingu kann- abisefna fengu í gær stuðning úr óvæntri átt. Stjórnlagadómstóll Georgíu úrskurðaði að lagalegar refsingar fyrir einkanot á kannabis- efnum samræmdust ekki stjórnar- skrá landsins. Frá þessu er sagt í dagblaðinu Georgia Today og á AFP. Röksemdir dómstólsins voru þær að neysla kannabisefna væri ekki ógn við samfélagið heldur ein- ungis við heilsu neytandans og því bæri neytandinn einn ábyrgð á þeirri ákvörðun sinni að reykja þau. Ræktun og sala kannabisefna er þó enn bönnuð. Í ákvörðun stjórnlagadómstólsins er gerð undantekning í tilvikum þar sem kannabisneysla ógnar þriðja að- ila, til dæmis í skólum og á sumum almenningsstöðum. Fyrir úrskurðinn var refsing við einkanotum á kannabisefnum í Georgíu sekt upp á andvirði tæpra 21.000 króna. Georgíski þingmaðurinn og frjáls- hyggjumaðurinn Zurab Japaridze óskaði georgísku þjóðinni til ham- ingju með ákvörðunina: „Með þess- ari ákvörðun er Georgía orðin frjáls- ara land.“ Akaki Zoidze, þingmaður stjórnarflokksins Georgíska draumsins og formaður heilbrigðis- ráðs Georgíuþings, var ekki eins hrifinn. Sagði hann lögleiðingu kannabisefna hafa komið of snemma og að meiri tíma hefði átt að verja í undirbúning lagasetningar þess efn- is. Zoidze er meðhöfundur draga að nýrri fíkniefnalöggjöf en lögleiðing kannabisreykinga var ekki hluti af henni. Georgíumenn lögleiða kannabis  Georgía orðin „frjálsara land,“ segir þingmaður um ákvörðunina AFP Gras Vegna ákvörðunarinnar er neysla kannabisefna ekki refsiverð. Svo virðist sem að eldunum sem hafa geisað í Sví- þjóð undanfarna daga sé að slota. Frá þessu er sagt á fréttavef AFP. Sænsk stjórnvöld tilkynntu þetta í gær og franskir, ítalskir og þýskir slökkviliðsmenn sem komu til Svíþjóðar til að að- stoða við slökkvistörfin eru smám saman byrjaðir að halda heim. Hjálparsveitir frá þessum lönd- um komu að beiðni sænskra stjórn- valda til landsins auk slökkviliðs- manna frá Noregi, Danmörku og Póllandi þar sem hitinn í sumar hef- ur verið miklu hærri en vant er í Svíþjóð og sænskir slökkviliðsmenn því illa í stakk búnir til að kljást við eldana. Ekki hefur verið tilkynnt um nein dauðsföll vegna skógareld- anna. Skógareldunum að slota í landinu Heitt Eldarnir eru að slokkna. SVÍÞJÓÐ Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Þrátt fyrir fögur fyrirheit um kjarn- orkuafvopnun á Kóreuskaga eftir fund Donalds Trump Bandaríkjafor- seta og Kims Jong-un leiðtoga Norður-Kóreu í júní virðast Norður- Kóreumenn enn vera að smíða lang- drægar eldflaugar. Frá þessu er sagt á fréttavef Reuters og BBC. Eftir fund Trumps og Kims í Singapúr í júní lýsti Trump því yfir að engin kjarnorkuógn stafaði leng- ur af Norður-Kóreu. Með skoðun gervihnattarmynda af Norður-Kór- eu hafa bandarískar eftirlitsstofnan- ir hins vegar komist að þeirri nið- urstöðu að enn sé virk starfsemi í eldflaugaverksmiðjum landsins. Sanumdong-verksmiðjan, sem mynduð var, framleiddi Hwa- song-15, fyrstu norður-kóresku eld- flaugina sem vitað er að gæti dregið til Bandaríkjanna. Vökvadrifnar eldflaugar Að sögn Washington Post virðast Norður-Kóreumenn vera að smíða vökvadrifnar langdrægar eldflaugar í verksmiðjunni. Í samtali við frétta- mann Reuters tilkynnti embættis- maður Bandaríkjastjórnar hins veg- ar að framleiðsla á slíkum elflaugum væri ekki verulegt áhyggjuefni þar sem of langan tíma tæki að fylla þær af eldsneyti miðað við eldflaugar sem ganga fyrir eldsneyti í föstu formi. Þótt verksmiðjan virðist enn vera í fullum gangi eru Norður-Kóreu- menn enn í friðarviðræðum við ná- granna sína í suðri. Fulltrúar Norð- ur- og Suður-Kóreu hittust í þorpinu Panmunjom í gær til að draga úr spennu í samskiptum ríkjanna. Enn að smíða eldflaugar  Ekkert lát á vopnaframleiðslu í Norður-Kóreu þrátt fyrir loforð um afvopnun Ekki lengur ógn? » Mike Pompeo, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í síðustu viku að Norður- Kóreumenn væru enn að fram- leiða eldsneyti fyrir kjarnorku- sprengjur. » Þótt Sanumdong-verk- smiðjan sé starfræk hafa Norður-Kóreumenn rifið niður skotpalla í samræmi við loforð. Um 20.000 manns í Kaliforníu var skipað að yfirgefa heimili sín á mánu- daginn vegna villielda sem geisa nú í ríkinu. Frá þessu er sagt á fréttavef Huffington Post. Íbúar ríkisins hafa gagnrýnt stjórnvöld og varpað fram spurningum um hvort þau hafi brugðist nógu skjótt við og ítrekað nægi- lega vel hættuna sem steðjaði að íbúum sem ekki forðuðu sér tafarlaust. Sex hafa látið lífið í versta eldinum, Carr-eldinum í norðurhluta ríkisins. AFP Stjórnvöld gagnrýnd er Kalifornía brennur Íbúum skipað að yfirgefa heimili sín vegna elda í Bandaríkjunum Fimmtán manns eru látnir eftir árás á ríkisbygg- ingu í Jalalabad í Afganistan. Frá þessu var greint á AFP og The Guardian. Víga- menn réðust á bygginguna og tóku gísla eftir að félagi þeirra sprengdi sjálfan sig í loft upp við inngangshliðið. Byggingin sjálf er notuð af flóttamannastofnun afg- önsku ríkisstjórnarinnar. Öryggis- sveitir börðust við vígamennina í fimm klukkustundir áður en þeim tókst að endurheimta bygginguna. Lík sumra fórnarlambanna voru vart þekkjanleg vegna brunasára. Ekki er vitað hver stendur á bak við árásina en samtökin Ríki íslams hafa tilkynnt að liðsmenn sínir hafi ekki verið að verki. Talíbanar hafa einnig neitað sök. AFGANISTAN Ráðist á flótta- mannabyggingu Víg 15 manns létu lífið í árásinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.