Morgunblaðið - 01.08.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
Skólar & námskeið
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 17. ágúst
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
UGLÝSINGA:
nn 14. ágúst.
SÉRBLAÐ
jallað um þá
em í boði er
að auka við
ærni í haust
og vetur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
PÖNTUN A
fyrir þriðjudagi
Í blaðinu verður f
fjölbreyttu valkosti s
fyrir þá sem stefna á
þekkingu sína og f
Þar sem fram undan
er líklega ein mesta
ferðahelgi ársins býð
ég ykkur að taka undir
eftirfarandi bæn með
mér ef þið finnið ykkur
í því.
Bæn
Umhyggjusami og
umvefjandi Guð, frels-
ari og eilífi lífgjafi!
Blessaðu öll þau sem ferðast um
landið okkar um þessa helgi og í
sumar. Gef að þau fái notið náttúr-
unnar, hins óviðjafnanlega lands-
lags, fegurðar sköpunar þinnar.
Forðaðu þeim sem ferðast um landið
okkar frá öllu illu, hættum, slysum
og tjóni. Hjálpaðu okkur að reynast
góðir gestgjafar og minntu ferða-
mennina og okkur öll á að sýna
ábyrgð og tillitssemi og leið þau og
okkur heil heim með dýrmætar
minningar í farteskinu.
Blessaðu einnig þau sem ferðast
til fjarlægra landa. Forðaðu þeim
einnig frá slysum, hættum og öllu
illu. Frá hvers kyns háska eða tjóni.
Gefðu að ferðalagið gangi vel og
samkvæmt áætlun. Gef að við fáum
að upplifa eitthvað nýtt og spenn-
andi og getum um leið notið áningar
og friðar með góðum ferðafélögum
og í þakklæti til þín sem skapar,
græðir, nærir og gefur líf. Í þakklæti
til þín sem vilt að við njótum þess
besta sem þú hefur skapað og gefið
og lífið hefur upp á að bjóða.
Hjálpaðu okkur öllum að minnast
ábyrgðar okkar gagnvart náung-
anum og náttúrunni hvar sem við er-
um og hvert sem við förum. Minntu
okkur á að sýna aðgát og tillitssemi í
umferðinni og í samskiptum öllum.
Vera umburðarlynd og kurteis og
sýna þeim virðingu sem
á vegi okkar verða og
veita þeim aðstoð og
stuðning sem á þurfa að
halda.
Gefðu að ferðin og
fríið verði skemmtilegt
og skilji eftir bjartar og
góðar minningar.
Hjálpaðu okkur að
njóta eðlilegra samvista
í faðmi fjölskyldu, vina
eða kunningja og gef að
við eignumst jafnvel
nýja kunningja og vini.
Hjálpaðu okkur að hafa augun opin
fyrir eigin velferð og náungans og
koma þeim til hjálpar sem hjálpar er
þurfi. Leiddu okkur svo öll heil og
sæl heim að nýju.
Þess biðjum við þig, náðugi og
miskunnsami Guð. Þig sem ert höf-
undur lífsins og einn ert fær um að
viðhalda því um eilífð.
Í Jesú nafni. Amen.
Friðarkveðja
Láttu friðinn úr hjarta þínu
spretta sem ilmandi blóm svo hann
verði að angan sem smýgur og fyllir
loftið af kærleika.
Með friðar- og kærleikskveðju og
blessunaróskum.
Lifi lífið!
Bæn fyrir fólki
á ferðalögum
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
»Hjálpaðu okkur að
minnast ábyrgðar
gagnvart náunganum og
náttúrunni. Sýna aðgát
og tillitssemi í umferð-
inni, í umgengni og í
samskiptum öllum.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Þegar ég var mun yngri fórum við
hjónin oft til Þingvalla með unga
dóttur okkar og tókum þá rútu
austur. Höfðum með okkur nesti
og komum til baka að kvöldi með
rútu. Þá voru fastar ferðir og eng-
in vandamál.
Nú er ég kominn á níræðisaldur
og hættur að keyra bifreið. Ég
sendi tölvupóst á BSÍ og Kynn-
isferðir og hringdi í marga. Eina
svarið sem ég fékk var frá Kynn-
isferðum, þar sem okkur var bent
á að fara í ferð sem heitir „Gullni
þríhyrningurinn“ og þá færum við
á Gullfoss, Geysi og Þingvelli og
fararstjóri fræddi okkur á leiðinni.
Þetta myndi ekki kosta okkur
nema rúmar 15.000 kr. fyrir okkur
bæði.
Eldra fólk, sem aðeins hefur
ellilífeyri til ráðstöfunar, getur
ekki veitt sér slíkan lúxus. Getur
einhver frætt okkur um hvort aðr-
ar leiðir séu færar?
Bestu þakkir.
Magni R. Magnússon og
Steinunn Guðlaugsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hvernig kemst bíllaust
eldra fólk til Þingvalla?
Þjóðgarður Fátt jafnast á við haustlitadýrðina á Þingvöllum.
Morgunblaðið/Ómar
Í reglugerð um
hollustuhætti á sund-
og baðstöðum segir
að gestir skuli þvo
sér án sundfata áður
en þeir ganga til
laugar. Á engum
sundstöðum sem ég
þekki til er fylgst
með því að gestir
geri það. Yfirleitt
þvo Íslendingar sér
en stór hluti útlendinga gerir það
ekki.
Viðbjóðurinn
Mjög algengt er í Sundlauginni
í Laugardal og Sundlaug Vestur-
bæjar að útlendir ferðamenn þvoi
sér ekki. Þetta hefur ágerst eftir
því sem ferðamönnum hefur fjölg-
að og er nú komið út í viðbjóðs-
lega vitleysu.
Ég þekki best til í Laugardals-
lauginni, kem þar mjög oft. Fjöl-
margir útlendir karlar klæðast
sundskýlu í búningsklefa og fara
beinustu leið út í laug, stundum
með örstuttu stoppi í sturtunum,
svona rétt til að sýnast. Konur
segja að þetta sé afar alengt í
kvennaklefanum. Aldrei hef ég
séð starfsmenn gera athugasemd-
ir við þetta háttalag. Þetta vita
fjölmargir og fara aldrei í laug-
arnar, þeim hugnast ekki sóða-
skapurinn.
Engar undanþágur
Örfáir gestir benda útlending-
unum á að laugin sé ekki til
þvotta, til þess eru sturturnar.
Viðbrögðin eru þá skrýtin og engu
líkara en sumir hafi ekki gert sér
grein fyrir tilganginum með sturt-
unum og snúa til baka og þvo sér.
Aðrir snúa upp á sig og fara út í.
Þetta ástand er algerlega
óviðunandi. Reglan er sú að annað
hvort þvær fólk sér áður en það
fer ofan út í laug eða
það fer ekki út í. Hér
er enginn millivegur.
Enginn gestur á að
vera undanþeginn
reglum. Punktur.
Annaðhvort eða!
Vissulega er menn-
ing þjóða og þjóð-
arbrota mismunandi.
Má vera að hingað
komi fólk sem geti
ekki hugsað sér að
afhjúpa nekt sína,
jafnvel í sturtunum. Fyrir þetta
fólk eru til hálflokaðir sturtuklef-
ar, að minnsta kosti í Laugardals-
lauginni. Sé það ekki nóg á þetta
fólk ekki að fara í sundlaugar á
Íslandi. Engan afslátt á að gefa á
hreinlæti sundlaugargesta. Upp-
runi, menning, siðir eða annað er
ekki gild afsökun. Hér gildir ein-
faldlega annað hvort eða.
Sagt upp störfum
Við sem stundum sundlaug-
arnar veltum því oft fyrir okkur
hvers vegna starfsfólk í búnings-
klefum hafi ekki eftirlit með því
að gestir þvoi sér. Fyrir nokkrum
árum sagði einn sturtuvörðurinn,
eldri maður sem nú er hættur
störfum, að það þýddi ekki neitt
að fylgjast með gestum, þá kæm-
ust starfsmenn ekki í önnur brýn
störf. Sem sagt, eftirlit með hrein-
læti sundlaugargesta er fullt
starf. Öðrum eldri manni var sagt
upp störfum fyrir að framfylgja
reglum, krefjast þess með smá of-
forsi að gestir færu í sturtu.
Þurra fólkið
Eitt sinn sat ég í ágætum hópi í
heita pottinum og var þar spjallað
um heima og geima. Þá kemur
einn Íslendingur askvaðandi beint
úr búningsklefa, skraufþurr. Ein-
hver spurði hvort hann hefði farið
í sturtu áður en hann kom út.
Landinn sagðist ekki hafa gert
það, hann væri að fara í pott.
Honum var þá sagt að hann skyldi
andskotast til baka og þvo sér og
þá fengi hann að koma ofan í
pottinn, fyrr ekki. Eftir tíu mín-
útur kemur skrattakollur til baka
og segist hafa þvegið sér og hvort
við værum nú ánægð. Sem sagt,
hann þvoði sér fyrir okkur, ekki
af þörf eða vegna þess að reglur
laugarinnar krefðust þess.
Nær daglega sér maður fólk af
báðum kynjum koma úr búnings-
klefum, skraufþurrt, og fer beint í
sundlaug eða potta. Þetta er auð-
vitað algjör viðbjóður og ekki
sæmandi rekstraraðilanum að
öðrum gestum sé boðið upp á
slíkt.
Mannréttindin
Borginni virðist vera algjörlega
sama um þessi mál. Að þeirra
mati eru mannréttindin fólgin í
því að sleppa kynjamerkingum á
salernum sem í eigu og umsjón
Reykjavíkurborgar. Ég held að
ég tali fyrir munn flestra sem
sækja sundlaugar þegar ég full-
yrði að það er réttur hvers sund-
laugargests að geta farið ofan í
sundlaug vitandi það með vissu að
allir gestir hafi þvegið sér áður
en þeir fara ofan í.
Upplýsing og eftirlit
Hægt er að grípa til tveggja
ráða. Annað er að starfsmenn hafi
beinlínis eftirlit með því að gestir
fari í sturtu og þvoi sér. Hitt er
að allir útlendir gestir sem kaupi
sig í laug fái afhenta spjald með
einföldum reglum og myndrænum
leiðbeiningum. Á því standi meðal
annars að annað hvort sé farið að
reglum eða gestinum verði mein-
að að fara ofan í laugina.
Við þetta ástand verður ekki
unað lengur, borgaryfirvöld þurfa
að taka á þessu. Strax.
Fólk sem mengar sundlaugar
Eftir Sigurð
Sigurðarson »Nær daglega sér
maður fólk af báðum
kynjum koma úr bún-
ingsklefum, skrauf-
þurrt, og fer beint í
sundlaug eða potta.
Þetta er auðvitað
algjör viðbjóður.
Sigurður Sigurðarson
Höfundur er skrifstofumaður.
sigurdur.sigurdarson@simnet.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á