Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018 25 Raðauglýsingar Styrkir Styrkir Styrkir STJÓRN VINA VATNAJÖKULS AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI Vinir Vatnajökuls eru hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs. Samtökin styrkja rannsóknir, kynninga- og fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs. Umsóknarfrestur stendur FRÁ 1. ÁGÚST TIL 30. SEPTEMBER 2018. Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu samtakanna www.vinirvatnajökuls.is Tilkynningar Kynning á frummatsskýrslu Í samræmi við lög nr. 106/2000 m.s.br. er frum- matsskýrsla vegna stækkunar fiskeldis Matorku í Húsatóftum í Grindavík úr 3.000 tonnum í 6.000 tonn verður haldinn kynningarfundur á skrifstofu félagsins, Hlíðasmára 6, 3. hæð miðvikudaginn 8. ágúst kl. 15.00. Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar. Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá kl. 14.30-15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst. Úti-botsíavöllur verður á torginu í sumar og við minnum á qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega velkomin. Vitatorg, sími 411-9450 Gjábakki Kl. 20 félagsvist. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13 og eftirmið- dagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, botsía kl.10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, síðdeg- iskaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, leikfimi í salnum Skóla- braut kl. 11. Spilað í króknum kl. 3.30, bíó-ferð á MAMA MIA, farið verður frá Skólabraut kl. 13.45. Fyrir frekari upplýsingar um ferðina hafið samband við Thelmu í síma 8663027. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristniboðs- salnum. Ræðumaður Beyene Gailassie. Allir velkomnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Þjónusta Verktaki - Ráðgjöf - Verkefnavinna Reynsluríkur lögg. iðnmeistari á besta aldri tekur að sér ýmis smáverk / ráðgjöf í verktöku. Vönduð vinnubrögð. Vinsamlega gerið fyrirspurnir á h34@simnet.is ÝmislegtBílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsbílar Til sölu húsbíll Ford Arf 2005 árg. Ekinn 46.630 km. Dísel. 6 gíra beinskiptur. Skráður fyrir 4 farþega. Tvöföldu að aftan, aftur- hjóladrifinn. Segl skrúfað niður yfir útihurð. Belti og svefnpláss fyrir 4. Mikið skápapláss. Stór ísskápur með frysti ásamt eldavél. WC og sér sturtuklefi. Bíll í topp lagi. Tilbúinn í sumarfríið. Ásett verð 4.995.000 kr. Athuga ýmis skipti. Upplýsingar í síma 893-7065. Húsviðhald StyrkirStyrkir atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á FINNA.is ✝ ÞórhallurBirkir Lúð- víksson fæddist á Akureyri 21. júní 1993. Hann lést 22. júlí 2018. Foreldrar Þór- halls eru Lúðvík Gunnlaugsson, fæddur 31. mars 1957, og Jóna Sig- urgeirsdóttir, fædd 24. ágúst 1957. Systkini Þórhalls eru. Helga Ósk Lúðvíksdóttir, fædd 5. maí 1977, maki Sigmar Ingi Ágústsson, fæddur 6. febrúar 1979, Lúðvík Trausti Lúðvíksson, fædd- ur 17. desember 1979, maki Agnes Þorleifsdóttir, fædd 22. janúar 1983, og Sigurgeir Lúðvíksson, fædd- ur 16. maí 1990. Jarðsett verður frá Akur- eyrarkirkju miðvikudaginn 1. ágúst, klukkan 13.30. Þann 22. júlí kom símtalið. Símtalið sem ég var búin að ótt- ast svo lengi að kæmi, en von- aði að til þess kæmi ekki. Þór- hallur er dáinn, litli bróðir minn er farinn frá okkur. Lífið hefur aldrei kýlt mig jafn fast niður og þarna. Ég fékk að fylgjast með litla glaða drengnum sem hann var. Uppátækjasamur, hjálpsamur, hjartahlýr og skemmtilegastur af öllum. Litla bróður sem saumaði bikiní handa stóru systur í skólanum, litla bróður sem ég fór með á Korn-tón- leika, litla bróður sem passaði svo vel upp á börnin mín. Ég fékk líka að horfa upp á bug- aðan og örvæntingarfullan ung- an mann sem réð ekki við lífið. Eitthvað gerðist þegar hann kynntist heimi fíkniefnanna og hann fór á bólakaf. Fíknin tók hann frá okkur. Hann var búinn að reyna að sigrast á henni en hún náði alltaf yfirhöndinni aft- ur. Ég á engin orð. Hann var 25 ára þegar hann kvaddi okkur, hefði átt að vera að byrja lífið en ekki enda það. Elsku Þórhallur, með augun full af tárum kveð ég þig. Þú ert skærasta stjarnan á himn- inum núna og ég veit að þú fylgist með okkur og passar upp á okkur, elsku drengurinn minn. Minning þín mun lifa með okkur og ég passa að börnin mín fái að heyra sögurnar af uppátækjum þínum og hversu mikið þú gladdir okkur og gerð- ir lífið skemmtilegra. Þín stóra systir, Helga Ósk. Elsku Þórhallur frændi minn er farinn allt of fljótt frá okkur. Það er eins og haustið hafi komið of snemma. Allt er grátt og söknuðurinn er mikill. Skrefin í dag eru þung að kveðja ljúfan dreng. Við Þórhallur vorum frá fæð- ingu tengd sterkum böndum. Mikill samgangur var milli heimila og við vorum ætíð góðir vinir. Systkinin Anna, Einar og Lúðvík eignuðust okkur öll á sama árinu með þriggja mán- aða millibili. Ég held fast um hugljúfar minningarnar sem ylja mér í hjarta á þessum erf- iðu tímum, en þær eru ansi margar. Ég minnist þess þegar við horfðum á bannaðar myndir og þú fullvissaðir mig um að það væri allt í lagi, þú myndir passa mig. Það einkenndi þig, þú varst hugrakkur og fékkst góðar hugmyndir. Jóna, mamma þín, bannaði okkur að klifra upp á kofann í Rimas- íðunni þegar við vorum að fara út í garð að leika og það var það fyrsta sem við gerðum, þú varst hvatvís og flest sem þér datt í hug varðst þú að fram- kvæma. Bestu tímarnir voru þegar ég, þú og Harpa vorum hjá ömmu og afa í Lerkilundi. Ýmist á kafi í rifsberja- runnanum hennar ömmu eða að rífa upp rabarbara í garðinum, það skipti engu máli hvort við fengum leyfi eða ekki, við fram- kvæmdum það sem okkur datt í hug, enda mikil læti og fjör í kringum okkur. Það var nauð- synlegt að hafa einn dreng með frænkum sínum tveimur. Við litum upp til þín og þú kenndir okkur margt, má þar helst nefna á hjólabretti! Þú varst samt alltaf ljúfur og góður, ég man vel eftir risaeðlunni sem þú gafst mér í sjö ára afmæl- isgjöf, þú valdir hana alveg sjálfur. Þú varst svo ánægður með sjálfan þig. Þú skilur eftir stórt skarð í okkar þríeyki og eftir stöndum við Harpa tvær. Sársaukinn við andlát þitt er mikill. Elsku frændi minn, ég veit að amma tekur vel á móti þér með opnum örmum. Ég kveð þig í dag hugsandi um ljúfsárar minningarnar sem ég mun halda fast í, enda eru þær margar og góðar, elsku ljúfi og góði drengurinn minn. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Guðrún Gísladóttir. Elsku dásemdar Þórhallur. Mikið sem það er sárt að kveðja. Fyrir nokkrum dögum sendir þú mér svona líka fallegt myndskeið af undursamlegu blómi í fullum blóma. Hunangs- flugur börðust um blómið fagra og blómið gaf með sér. Þér mætti líkja við blómið, þú ert (ég kýs að tala um þig í nútíð) líkt og blómið stór og glæsi- legur, gullfallegur og góðhjart- aður. Þitt gullna hjarta er þinn helsti kostur að mér finnst. Ár- lega, þegar ég á afmæli, kemur þú í afmæliskaffi til mín. Það þykir mér vænt um. Það er erf- itt að hugsa til þess að þú kom- ir ekki í ár. En þótt þú komir ekki veit ég að þú verður með mér og fjölskyldunni í anda, sem og á öðrum stærri dögum. Þú hefur nefnilega alltaf hugs- að vel um þitt fólk. Gott dæmi um það er mín mikilvægasta og kærasta minning af þér, sem er símtalið sem við áttum fyrr í sumar. Þú hringdir einfaldlega til að athuga hvernig ég hefði það og segja mér hve vænt þér þætti um mig. Þá minningu þykir mér ofboðslega vænt um. Ég veit að ég tala fyrir hönd fleiri en mín þegar ég segi að þín verði sárt saknað. Ég veit líka að líf þitt var ekki alltaf dans á rósum. Þannig að í stað þess að syrgja ætla ég að reyna að fagna því að hafa kynnst þér og vona að þér líði betur á þeim stað sem þú ert kominn á. Þú sem ferð ferð aldrei allur Hverju sinni skilur þú eitthvað eftir Hluta af þér – í mér (Sverrir Páll Erlendsson) Ég mun aldrei gleyma þér. Þú ert mér afar kær. Uppá- halds frændi minn. Uppáhalds. Þín, Jóna Marín. Þórhallur Birkir Lúðvíksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.