Morgunblaðið - 01.08.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
*NÝ
R
HYUNDAI
IX35 2.0 CRDI
PREMIUM PANORAMA
4x4, dísel, sjálfskiptur – í nokkrum litum,
með leðri, glerþaki, leiðsögukerfi, bakkmyndavél o.fl.
Verð aðeins kr. 3.990.000
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum
*e
ft
ir
ár
sb
íll
fy
rs
ta
sk
rá
ni
ng
8.
20
15
Sigmundur Már Herbertssonkörfuboltadómari á 50 áraafmæli í dag. Hann er einn
af reynslumestu dómurum í ís-
lenskum körfuknattleik og hefur
12 sinnum verið valinn dómari árs-
ins. Hann hefur dæmt flesta leiki
allra íslenskra dómara á erlendri
grundu, en leikirnir eru alls 223 í
68 borgum víðsvegar í Evrópu. En
nú er mál að linni því í reglum
FIBA, Alþjóðakörfuknattleiks-
sambandsins, segir að dómari
megi ekki dæma eftir að fimmtugu
hefur verið náð og er því ferli Sig-
mundar á alþjóðavettvangi því lok-
ið.
„Það er ekkert aldurstakmark á
Íslandi þannig að menn eru ekki
lausir við mig þar. Ég held ótrauð-
ur áfram að dæma meðan ég hef
heilsu og gaman af því.“
Sigmundur Már er Njarðvík-
ingur og spilaði körfubolta með
Njarðvík í meistaraflokki en hætti
ungur og tók dómarapróf á Íslandi
1994 og fékk alþjóðaréttindi
2003.„Hápunkturinn var í Ríga í
Lettlandi þegar ég dæmdi í Evrópukeppni landsliða 2015. Keppnin
var þá haldin í fjórum löndum, íslenska karlalandsliðið komst þá í
fyrsta skipti á lokamót Evrópulandsliða og lék í Berlín, en ég dæmdi
fjóra leiki sem voru i Ríga.“
Sigmundur er starfsmaður Njarðvíkurskóla og vinnur í sérdeild
fyrir börn með hegðunarraskanir. „Þetta er bæði mjög skemmtilegt
og krefjandi á sinn hátt,“ segir Sigmundur um samanburð á starfinu í
skólanum og á körfuboltavellinum.
Áhugamál Sigmundar eru íþróttir af öllum toga. „Dómgæslan er
lífsstíll þar sem dómarar þurfa að halda sér í formi og viðhalda fag-
legri þekkingu. Maður getur ekki farið í það af hálfum huga þegar
maður ætlar að ná árangri. Eiginkonan og synirnir hafa alltaf staðið
þétt við bakið á mér og hvatt mig áfram, án þeirra væri þetta ekki
hægt.“
Eiginkona Sigmundar er Sigurbjörg Eydís Gunnarsdóttir, leik-
skólakennari á Gimli í Njarðvík. Synir þeirra eru Herbert Már, f.
1992, og Gunnar Már, f. 2001. „Við hjónin erum núna á Benidorm og í
tilefni dagsins ætlum við út að borða í listamannaþorpinu Altea sem
er hérna rétt hjá.“
Heldur ótrauður
áfram að dæma
Sigmundur Már Herbertsson er fimmtugur
Síðasti FIBA-leikurinn Sigmund-
ur í Chemnitz í Þýskalandi á Evr-
ópukeppni 20 ára karlalandsliða.
S
ímon Eðvald Traustason
fæddist í Vest-
mannaeyjum 1.8. 1948
og ólst þar upp til sex-
tán ára aldurs. Hann
lauk Gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja 1964, stundaði nám við
Iðnskólann í Vestmannaeyjum og
lærði þar húsasmíði og lauk bú-
fræðiprófi frá Bændaskólanum á
Hólum í Hjaltadal vorið 1967. Þá
lauk hann einkaflugmannsprófi
1982.
Símon vann við tamningar hjá
H.J. Hólmjárn á Vatnsleysu í
Skagafirði sumarið 1967 og síðar á
jarðýtum hjá Búnaðarsambandi
Skagfirðinga fyrstu búskaparárin.
Símon hóf búskap að Egg í
Hegranesi vorið 1969. Síðar festi
hann kaup á jörðinni Ketu í
Símon Eðvald Traustason, bóndi á Ketu í Hegranesi – 70 ára
Slakað á heima í garði Símon Eðvald og eiginkona hans, Ingibjörg Jóhanna með börnunum sínum fjórum.
Eyjapeyinn sem varð
bóndi í Skagafirðinum
Hjón í 50 ár Símon og Ingibjörg héldu upp á gullbrúðkaup um síðustu helgi.
Reykjavík Ragnhildur Hansen Guðmundsdóttir fæddist 26. september 2017 í
Reykjavík. Hún vó 13 merkur og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðrún Jó-
hannsdóttir og Guðmundur Halldór Friðriksson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón