Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Traka 21 lyklaskápurinn skráir hver hefur lykla fyrirtækisins undir
höndum hverju sinni. Skápurinn opnast og afhendir lykil aðeins
þeim sem hefur leyfi til þess. Þetta sparar utanumhald og eykur
öryggi. Lyklar tapast miklu síður og kostnaður vegna þess lækkar.
HVER ER MEÐ
LYKILINN?
Verð: 179.000 kr.
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
GENUINE SINCE 1937
Á dögunum var stolið á heimili í
Somerville í Massachusetts í Banda-
ríkjunum fiðlu sem metin er á
meira en 200 þúsund dali, yfir 20
milljónir króna. Þjófurinn seldi
hana daginn eftir veðlánara fyrir
50 dali, um 5.300 krónur. Sam-
kvæmt The New York Times hefur
hljóðfærinu verðmæta verið skilað
til eigandans.
Fiðlan var smíðuð á verkstæði
Ferdinando Gagliano, eins afkasta-
mesta og þekktasta fiðlusmiðsins í
Napólíborg á Ítalíu á seinni hluta
18. aldar. Þjófurinn braust inn og
stal fiðlunni ásamt öðru góssi – þar
á meðal tveimur seðlaveskjum og
tveimur myndavélum – meðan
heimamenn sváfu.
Eigandi fiðlunnar mat fiðluna á
um 100 þúsund dali, rúmar tíu millj-
ónir króna, en vitnað er í sérfræð-
inga sem segja hana mun meira
virði. Enda hafa hljóðfæri bestu
hljóðfærasmiða fyrri alda hækkað
mikið í verði og eru mörg hver í
eigu fjárfestingarsjóða.
Fiðluhöndlarinn Christopher
Reuning segir í samtali við The
New York Times að það sé ekki óal-
gengt að stolin hljóðfæri séu seld
veðlánurum fyrir afar lágt verð.
„Það er ómögulegt að selja stolnar
fiðlur. Margir telja þær vera gít-
ara,“ segir hann.
Fiðlusmiðurinn Ferdinando
Gagliano var af þriðju kynslóð
merkra hljóðfærasmiða sem smíð-
uðu fiðlur í svokölluðum Napólístíl.
Á þeim tíma var Napólí mikilvæg
miðstöð menningar og lista á Ítalíu,
þar sem ópera og tónlistarleikhús
blómstruðu. Þegar frægð Gagliano-
hljóðfæranna jókst hermdu smiðir
víða eftir þeim. Á síðustu árum hafa
tvær fiðlur smíðaðar af Ferdinando
Gagliano verið seldar á uppboðum,
fyrir um 22 og 24 milljónir króna.
Lét verðmæta fiðlu
fyrir 5.300 krónur
Christie’s
Verðmæt Ein af fiðlunum sem Gag-
liano smíðaði. Þessi var seld á upp-
boði fyrir rúmar 20 milljónir kr.
Fræðimenn jafnt sem heimamenn í
Taira-dalnum í Síle vilja að merkar
hellamyndirnar í Taira-hellinum
verði teknar á Heimsminjaskrá
Sameinuðu þjóðanna svo hægt
verði að byggja upp sjálfbæra
ferðaþjónustu í tengslum við þær.
Myndirnar voru dregnar upp af
hirðingjum fyrir tæplega þrjú þús-
und árum. Sænskur fornleifafræð-
ingur, Stig Ryden, uppgötvaði
myndirnar og kynnti árið 1944.
Hellirinn er í 3.150 metra hæð við
Atacama-eyðimörkina, einn þurr-
asta stað jarðar. Níu af hverjum tíu
myndum í hellinum sýna lamadýr,
en fornleifafræðingurinn Jose Be-
reguer telur heimamenn hafa á sín-
um tíma gert myndirnar sem lið í
bænum til guðanna um að fjölga í
lamaflokkum þeirra. Myndirnar
séu þannig óður til lífsmagnsins og
náttúrunnar. Aðrar myndir sýna til
að mynda refi, snáka, fugla og
hunda. Hirðingjar rækta enn lama-
dýr á svæðinu.
AFP
Lamadýr Fornleifafræðingurinn Jose Berenguer við nokkrar myndanna í Taira-hellinum í
Síle. Hellarnir eru í rúmlega 3.000 metra hæð og þar eru helstu hellamyndir landsins.
Vilja fá hellamyndir á Heimsminjaskrá
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
„Við verðum með eitthvað af nýju
efni í bland við eldra. Þú getur bara
sagt að við ætlum að fagna sumrinu
með fjölbreyttu lagavali,“ svarar
Ólöf Arnalds þegar hún er spurð
hvaða tónlistarkræsingar þau Skúli
Sverrisson bassaleikari ætli að bera
á borð fyrir gesti Norræna hússins
kl. 21 í kvöld. Förum ekki nánar út í
sálminn um íslenska sumarið 2018.
Líklega eru þeir einir sáttir sem fá
tækifæri að sjá til sólar eins og
reyndar Ólöf og Skúli þegar þau
halda tónleika á Spáni síðsumars.
En áður og næst á dagskrá hjá
þeim eru fyrrnefndir tónleikar í tón-
leikaröð Norræna hússins á mið-
vikudagskvöldum í sumar og eru
þeir sjöundu í röðinni.
„Gestir hússins geta búist við upp-
lifun fullri af tónlistarlegum töfr-
um,“ fullyrða tónleikahaldarar um
tónleika þeirra Ólafar og Skúla. Sjálf
er Ólöf er svolítið hófstilltari i lýs-
ingum sínum, en lofar samt góðri og
heimilislegri stemmningu. „Þetta
verða innilegir tónleikar,“ segir hún
brosandi.
Hvor með sinn ómþýða stíl
„Ætli við leikum ekki svona tólf til
fimmtán lög, bæði eftir hvort okkar
um sig, kannski þó ívið fleiri eftir
mig, og einnig lög sem við höfum
samið í sameiningu. Við erum mjög
spennt að fá tækifæri til að spila í
Norræna húsinu, sem er frábær tón-
leikastaður með góðan hljómburð og
gott andrúmsloft.“
Spurð hver sé helsti munurinn á
lögum eftir hana og hann, segir Ólöf
að þótt þau séu hvort með sinn stíl-
inn eigi lög beggja það sameiginlegt
að vera frekar ómþýð. „En ef til vill
er flóknari hljómræna í lögum
Skúla,“ bætir hún við.
Auk þess að syngja spilar Ólöf á
fjölda hljóðfæra og hyggst hún
draga tvö þeirra fram úr pússi sínu í
kvöld; gítar og charango, sem er
suður-amerískt strengjahljóðfæri.
„Ólöf Arnalds semur dásamleg, per-
sónuleg lög sem hún syngur með
einstakri rödd sinni,“ segir í tilkynn-
ingu frá Norræna húsinu. Og þau
orð eru höfð um Skúla að hann sé
uppátektarsamur bassaleikari og
magnað tónskáld. Aðspurð segir
Ólöf að Skúli láti henni sönginn eftir
eins og endranær og ekki sé á döf-
inni að hann taki undir með henni.
Bæði eiga farsælan tónlistarferil
að baki. Ólöf hefur gefið út fjórar
plötur, sem allar hafa fengið lof og
prís gagnrýnenda og hefur m.a.
samið lag með Björk. Skúli hefur
starfað með þekktu tónlistarfólki
eins og Lou Reed og Laurie And-
ersson og gefið út plötur með frum-
sömdu efni, m.a. Seríu I og Seríu II.
Hæg heimatökin
Ólöf og Skúli höfðu verið sam-
starfsfólk í tónlistinni í tólf ár áður
en þau rugluðu saman reytum fyrir
fimm árum. „Við unnum saman að
öllum plötunum mínum og seríu-
plötum Skúla. Samstarfið varð þó
óneitanlega nánara þegar við urðum
par, enda hæg heimatökin,“ segir
Ólöf og kveðst aðspurð ekki hafa
hugmynd um hversu oft þau hafa
komið fram saman á tónleikum.
Undanfarin ár hafi þau til dæmis
reglulega haldið tónleika í Menning-
arhúsinu Mengi, þar sem Skúli er
listrænn stjórnandi og þau stofnuðu
ásamt fleirum fyrir allnokkru síðan.
Músik fyrir kvöldverðargesti
Og spurð hvort ekki komi stund-
um upp listrænn ágreiningur svarar
Ólöf neitandi og segir þau raunar
vera alveg glettilega sammála.
Þessa dagana eru þau að semja
tónverk fyrir pop-up veitingastað
Ólafs Elíassonar, myndlistamanns,
og systur hans, Viktoríu, kokks, í
Marshall-húsinu, en systkinin munu
reka staðinn tímabundið í tólf vikur
frá og með 11. ágúst. „Við og/eða úr-
valslið hljóðfæraleikara munum
leika verkið einu sinni í viku í tólf
vikur. Allt sem leikið er í salnum
verður tekið upp og er meiningin að
tónlistin verði sífellt flóknari og
meira útsett með viku hverri. Úr
þessu verður svo tónverk sem við
munum nefna Music for Diners,“
segir Ólöf að lokum.
Innilegir tónleikar
Ólöf Arnalds, söngkona og gítarleikari, og Skúli Sverris-
son bassaleikari halda tónleika í Norræna húsinu í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Tónlistartvíeyki Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson höfðu verið samstarfs-
fólk í tónlistinni í 12 ár áður en þau rugluðu saman reytum fyrir fimm árum.