Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018 Eftir málarekstur í um áratug hefur áfrýjunardómstóll í Kaliforníu úr- skurðað að Norton Simon-listasafnið í Pasadena megi eiga tvö meistara- verk frá 16. öld eftir þýska endur- reisnarmálarann Lucas Cranach eldri. Málverkin sýna Adam og Evu í fullri líkamsstærð. Nasistar neyddu árið 1940 hollenska listaverkasalann Jacques Goudstikker til að selja þeim verkin fyrir brotabrot af verð- mæti þeirra. Goudstikker flúði Evr- ópu í kjölfarið. Eftir seinni heimsstyrjöldina skil- uðu bandamenn málverkunum til hollenskra stjórnvalda. Árið 1966 seldi hollenska ríkið verkin rúss- neskum safnara sem fimm árum seinna seldi þau bandaríska iðnjöfr- inum Norton Simon, sem setti þau í safn sitt. Tengdadóttir Goudstikker fór í mál við safnið árið 2007 og krafðist þess að fá málverkin, sem réttmætur eigandi þeirra. Sam- kvæmt lokaúrskurði dómstólsins í gær var þeim rétti fyrirgert þegar verkin voru seld árið 1966. „Með sögunni sem fylgir þessum verkum eru þau eins og ör á safninu. Það er virðingarleysi að láta þau vera þar til sýnis,“ hafa fjölmiðlar eftir tengdadóttur Goudstikker. Norton Simon Museum Meistaraverk Lucas Cranach málaði Adam og Evu fyrir nær 500 árum. Heldur málverkum eftir Lucas Cranach Ný skýrsla frá Háskóla Suður- Kaliforníu sem birt var í gær sýnir að ekkert hefur breyst síðustu ár hvað varðar jafnari þátttöku kynjanna á hvíta tjaldinu. Konur voru aðeins 31,8 prósent þeirra persóna sem fá að tjá sig í kvik- myndum sem framleiddar eru vest- anhafs en það er nokkurn veginn sama hlutfall og fyrir ellefu árum. Skýrslan byggist á rannsókn þar sem eitthundrað vinsælustu kvik- myndir hvers árs frá 2007 voru skoðaðar. Meðal annars sem kemur fram er að konur sem eru dökkar á hörund voru einungis í aðal- hlutverki í fjórum kvikmyndum í fyrra og að hvítir leikarar fóru með 70,7 prósent allra þeirra hlutverka þar sem leikararnir tjá sig með orð- um. „Það er fjölradda kór sem kallar á breytingar en Hollywood hefur engu breytt hvað varðar skipan í hlutverk,“ er haft eftir einum skýrsluhöfunda í The Guardian. Konur tala jafn lítið í myndum og 2011 Óbreytt Frances McDormand hreppti Óskar í ár og kallaði eftir breytingum. Hljómsveitin Greifarnir stendur nú níunda árið í röð fyrir útihátíð á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi um verslunarmannahelgina. Held- ur hljómsveitin dansleiki á laugar- dags- og sunnudagskvöld. Á sunnu- dagskvöld verður síðan brekkusöngur í brekkunni fyrir neðan SPOT. DJ Einar heldur uppi fjörinu þegar Greifarnir taka hlé. Sérstakur gestur hljómsveitar- innar í ár verður Felix Bergsson en hann var fyrsti söngvari hljóm- sveitarinnar þegar hún sló í gegn seint á síðustu öld. Greifarnir með útihátíð í Kópavogi Dansleikur Gleði á einum af fyrri hátíð- um Greifanna á skemmtistaðnum SPOT. Vargur 16 Bræðurnir Erik og Atli eiga við fjárhagsvanda að stríða. Þeir grípa til þess ráðs að smygla dópi. Morgunblaðið bbbmn IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 22.00 Undir trénu 12 Agnes grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífs- myndband og hendir honum út. Atli flytur þá inn á for- eldra sína, sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 18.00 101 Reykjavík Metacritic 68/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 18.00 Heima IMDb 8,6/10 Bíó Paradís 20.00 Hearts Beat Loud Bíó Paradís 20.00, 22.00 Óþekkti hermaðurinn 16 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 17.30 The Florida Project 12 Metacritic 92/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 22.00 The Party 12 Bíó Paradís 22.00 BPM (120 Beats Per Minute) 12 Bíó Paradís 17.30 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 66/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30, 22.00 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.30 Smárabíó 16.20, 17.00, 19.40, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 21.50 Mission: Impossible Fallout 16 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verkefni misheppnast. Metacritic 86/100 IMDb 8,5/10 Laugarásbíó 16.40, 19.45, 22.40 Sambíóin Álfabakka 15.00, 16.30, 18.00, 19.30, 21.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 23.00 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.30, 20.30, 22.00 Sambíóin Akureyri 16.30, 19.30, 22.30 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.30 Smárabíó 16.30, 19.00, 19.50, 22.10, 22.20 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.15 Sambíóin Egilshöll 22.30 Sambíóin Akureyri 22.30 The Equalizer 2 16 Myndin fjallar um fyrrver- andi lögreglumann sem er nú leigumorðingi. Metacritic 50/100 IMDb 7,1/10 Smárabíó 19.40, 22.30 Háskólabíó 20.50 Borgarbíó Akureyri 21.30 Hotel Artemis 16 Myndin gerist í framtíðinni þegar óeirðir geisa í Los An- gelis. Nunna rekur leynilega slysavarðsstofu fyrir glæpa- menn. Háskólabíó 18.10 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Smárabíó 15.10, 17.30 Háskólabíó 20.30 Tag 12 Metacritic 56/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 20.00 Ocean’s 8 Debbie Ocean safnar saman liði til að fremja rán á Met Gala-samkomunni í New York. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 61/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Kringlunni 19.40 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.15 Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að annast Jack-Jack á með- an Helen, Teygjustelpa, fer og bjargar heiminum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,9/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 17.00 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Mavis kemur Drakúla á óvart með því að skipuleggja fjöl- skylduferð á lúxus skrímsla skemmtiferðaskipi, þannig að hann geti fengið hvíld frá eigin hótelrekstri. Metacritic 59/100 IMDb 6,7/10 Smárabíó 15.00, 17.20 Háskólabíó 17.50 Borgarbíó Akureyri 17.30 Draumur Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Smárabíó 14.50 Önd önd gæs Gæsapiparsveinn, þarf að tengjast tveimur týndum ungum nánum böndum á leið sinni suður á bóginn. Smárabíó 11.00 Hope van Dyne og Dr. Hank Pym skipuleggja mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að vinna með The Wasp, til að leiða í ljós leynd- armál úr fortíðinni. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 70/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Akureyri 20.00 Ant-Man and the Wasp 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Ís- lands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.20, 21.10 Bíó Paradís 20.00 Skyscraper 12 Myndin fjallar um fyrrum aðal samningamann alríkis- lögreglunnar í gíslatöku- málum, sem Johnson leikur, en hann vinnur nú við öryggisgæslu í skýja- kljúfum. Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 20.00 Borgarbíó Akureyri 19.30 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.