Morgunblaðið - 10.08.2018, Page 1

Morgunblaðið - 10.08.2018, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. Á G Ú S T 2 0 1 8 Stofnað 1913  186. tölublað  106. árgangur  VILDI AÐ LAGIÐ YRÐI ÓÞOLANDI OG FALLEGT TILRAUNIR OG TVÍSTRUN ÞETTA VERÐUR ERFITT TÍMABIL HJÁ CARDIFF KAMMERSVEITIN ELJA OG UNM 30 ARON EINAR ÍÞRÓTTIREMILÍANA TORRINI 33 Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Samskipti Forsætisráðherra ræðir við Robert T. Kristjanson, fiskimann á Gimli.  Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir mikla möguleika á auknum viðskiptum við Kanada og enn betri menningarlegum sam- skiptum, ekki síst á milli Háskóla Íslands og Manitoba-háskóla í Winnipeg. Forsætisráðherra var heiðurs- gestur á Íslendingahátíðum í Mountain í Norður-Dakóta í Banda- ríkjunum og á Gimli í Manitoba um liðna helgi og er reynslunni ríkari, eins og fram kemur í viðtali við Morgunblaðið. »10-11 Möguleikar á aukn- um samskiptum við Vesturheim Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is 33% fleiri innritast nú á verk- eða starfsnámsbrautir í framhalds- skólum en í fyrra. Mest aukning var í ásókn í nám í rafiðngreinum og málmiðngreinum. 653 þeirra nemenda sem sóttu um skólavist í framhaldsskólum eru inn- ritaðir á verk- eða starfsnámsbrautir eða um 16%. Stærstur hluti þeirra sem sóttu um skólavist innritaðist á bóknáms- eða listnámsbrautir, eða 69% nemenda. 15% nemenda innrit- uðust á almenna námsbraut eða framhaldsskólabraut en það er lægra hlutfall en síðustu ár. Menntaskólanum við Hamrahlíð bárust flestar umsóknir þetta árið eða 749. Verzlunarskóli Íslands fékk næstflestar umsóknir eða 642 og þar á eftir kom Menntaskólinn við Sund en honum bárust hátt í 600 umsókn- ir. Ögn færri umsóknir bárust Menntaskólanum í Reykjavík en vant er eða 360. Háskóli Íslands var viðbúinn því að fjölgun yrði í umsóknum fyrir þetta skólaár vegna styttingar námstíma til stúdentsprófs. Fleiri þreyttu A-prófið, aðgangspróf fyrir háskólastig, en í fyrra. 480 þreyttu prófið þetta árið en 425 manns þreyttu það í fyrra. Munurinn er rúm ellefu prósent. »6 33% fleiri innritast í verk- og starfsnám  Mest aukning í nám í raf- og málm- iðngreinum  MH vinsælasti skólinn Rauðhólar í Heiðmörk mynduðust þegar gufa safnaðist undir hrauni, og sprakk upp, fyrir um 5.700 árum. Þetta segir Páll Einarsson, jarð- eðlisfræðingur og fyrrverandi prófessor við Há- skóla Íslands. Aðspurður hvort það hafi verið talin náttúruspjöll þegar jarðefni úr hólunum var nýtt m.a. í byggingu Reykjavíkurflugvallar á síðustu öld svarar hann: „Nei nei, þetta var löngu áður en menn fundu upp það orð!“ Morgunblaðið/Eggert Hólarnir sem mynduðust fyrir 5.700 árum  Vöxtur í sölu snjall- og heilsu- úra hefur verið mikill undan- farin ár. Sam- kvæmt bráða- birgðaáliti Tollstjóra, voru flutt inn 6.503 snjall- og heilsu- úr til landsins á fyrri helmingi ársins, það nemur um 220% aukn- ingu frá árinu 2016. Ríkarður Sigmundsson, fram- kvæmdastjóri Garmin-búðarinnar, segir mikla sprengingu í sölu tækj- anna undanfarin ár og í fyrra hafi hann séð merki um að sala dýrari úra væri að aukast. » 14 Aukin sala snjallúra Sala snjallúra hefur aukist mikið. Teitur Gissurarson Jón Birgir Eiríksson Merki eru um samdrátt hjá ferðaþjón- ustufyrirtækjum á landsbyggðinni, segir ferðamálastjóri. Heildarfjölgun ferðamanna sem fóru í gegnum Kefla- víkurflugvöll í júlí var 2,5%, en fjölg- unin virðist ekki skila sér út á land. Því lengra sem farið er frá höfuðborgar- svæðinu, því meiri er samdrátturinn, að því er virðist. Ferðamenn stoppa skemur „Menn eru að tala um lélegan maí. Auðvitað er það mismunandi eftir svæðum og fyrirtækjum en menn bú- ast við að í sumar verði ferðamenn jafnmargir eða færri en í fyrra. Það er svona tónninn,“ segir Arnheiður Jó- hannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, aðspurð hvort hún hafi tekið eftir merkjum um dvínandi aðsókn ferðamanna á Norð- urlandi. „Menn leita í ódýrari gistingu. Síðan eru menn bara að versla frekar í mat- vörubúðum en á veitingastöðum,“ seg- ir hún og bætir við: „Skýringin er sú að ferðamenn stoppa skemur á land- inu og þá fara þeir síður út á land.“ Hringvegurinn lykilatriði Ívar Ingimarsson, framkvæmda- stjóri Ferðaþjónustunnar Óseyri á Egilsstöðum og stjórnarmaður í SFA, tekur í sama streng og segir: „Ég held að ansi margir finni fyrir samdrætti en auðvitað er það misjafnt eftir staðsetn- ingu.“ Hann segist einnig telja að sterkara gengi krónunnar valdi styttri ferðum hjá ferðamönnum sem veldur því að staðir langt utan við hringveg- inn fái síður gesti til sín. „Ég held að hjá flestum sé þetta ekki eins gott og var í fyrra.“ Yngvi Hrafn Kristjánsson, eigandi Hótel Mývatns, segist ekki hafa fundið fyrir samdrætti í gistingu eða veit- ingasölu en segist þó hafa tekið eftir minni minjagripasölu en verið hefur síðustu ár. Samdráttur í ferðaþjón- ustu finnst víða um land  Ferðaþjónustufólk finnur fyrir minni aðsókn ferðamanna MMerki um samdrátt »2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.