Morgunblaðið - 10.08.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Kókosjógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stefnt er að byggingu sjö íbúða
þjónustukjarna fyrir fatlaða á Sel-
fossi. Yrði það fimmti þjón-
ustukjarninn á þjónustusvæði
byggðasamlagsins Bergrisa sem
nær frá Ölfusi og austur að Lóma-
gnúp. Auk þess falla fjögur sjálf-
stæð heimili fyrir fatlaða undir
starfsemi byggðasamlagsins.
Liðlega 20 fatlaðir einstaklingar
eiga heima á fjórum þjónustu-
kjörnum á Suðurlandi en tveir
þeirra eru á Selfossi, einn í
Hveragerði og einn í Þorlákshöfn.
Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, fé-
lagsmálastjóri Sveitarfélagsins Ár-
borgar, segir að brýn þörf sé á
fjölgun. Nefnir hún að íbúum hafi
fjölgað mjög á svæðinu, ekki síst á
Selfossi. Meðal íbúa séu fatlaðir
og aldraðir og það kalli á fjölgun
rýma en langt síðan bætt var við
búsetukostum. Hún segir fagn-
aðarefni að sveitarfélögin stefni að
byggingu sjö íbúða þjónustukjarna
á Selfossi. Þar verði búseta með
aðstoð allan sólarhringinn.
Fulltrúar sveitarfélaganna sam-
þykktu samhljóða á fundi í júní að
ráðast í þessar framkvæmd, að
fengnu samþykki allra sveit-
arstjórna. Stofnkostnaður er áætl-
aður 233 milljónir króna og Íbúð-
arlánasjóður hefur samþykkt að
veita stofnframlag upp á rúmar 38
milljónir. Fleiri fjármögnunar-
leiðir eru til athugunar. Kosin var
bygginganefnd en hún hefur ekki
komið saman fullskipuð vegna
breytinga í kjölfar kosninga.
Þannig var gert ráð fyrir að bæj-
arstjórinn í Árborg yrði formaður
en nýr bæjarstjóri tekur til starfa
á næstu dögum.
Fjögur sjálfstæð heimili fatlaðra
á Suðurlandi eru einnig með
samninga við þjónustusvæðið, Sól-
heimar, Skaftholt, Breiðabóls-
staður og Kerlingardalur.
Þungur rekstur
Sveitarstjórnarmenn segja sér-
stakar aðstæður á Suðurlandi þar
sem þessi heimili eru en fjárveit-
ingar hafi ekki fylgt. Fram kom í
frétt Morgunblaðsins á síðasta ári
að reksturinn væri þungur og að
unnið væri að heildarúttekt á fjár-
málum Bergrisans. Rúmlega 16
milljóna króna halli varð á rekstri
byggðasamlagsins á síðasta ári og
Guðlaug segir ljóst að hallinn
verði mun meiri í ár. Hún segir að
sveitarfélögin séu í stöðugum við-
ræðum við ríkið til að reyna að fá
lagfæringar á fjárveitingum.
Auk heimilanna rekur Bergris-
inn þjónustumiðstöð þar sem
starfrækt er skammtímavistun
fyrir þjónustusvæðið og verndaða
vinnustaði á Selfossi, í Þorláks-
höfn og á Flúðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þéttbýli Selfoss þenst út og íbúum fjölgar stöðugt. Það kallar á aukna þjónustu á öllum sviðum.
Nýr þjónustukjarni fyrir
fatlaða byggður á Selfossi
Tugmilljóna króna tap á byggðasamlaginu á hverju ári
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sólmyrkvi verður sjáanlegur frá Ís-
landi á laugardagsmorgun og nær
hámarki kl. 8.44 séð frá höfuðborg-
arsvæðinu. Tunglið mun hylja sólu
að hluta til og er því um deildar-
myrkva að ræða.
Sólmyrkvinn verður mestur norð-
vestanlands þar sem tunglið hylur
um 14% sólar, en á Hornströndum
hylur tunglið um 14,5% sólar. Hægt
er að nálgast frekari upplýsingar um
hvenær sólmyrkvinn byrjar víða á
landinu á Stjörnufræðivefnum.
Seinast var deildarmyrkvi á Ís-
landi 21. ágúst í fyrra en þá huldi
tunglið aðeins 2% sólar. Hins vegar
sást þá almyrkvi í Bandaríkjunum á
sama tíma. Á laugardag mun enginn
almyrkvi verða sýnilegur frá jörðu.
Hlífðarbúnaður nauðsynlegur
Þegar horft er á sólmyrkvann er
nauðsynlegt að nota viðeigandi hlífð-
arbúnað. Sævar Helgi Bragason,
umsjónarmaður Stjörnufræðivefjar-
ins, mælir með sólmyrkvagleraugum
eða logsuðugleri.
„Það sést ekkert með berum aug-
um, það þarf sólmyrkvagleraugu, en
það virkar líka að horfa í gegnum
logsuðugler. Venjuleg sólgleraugu
virka ekki því þau ná ekki að deyfa
ljósið frá sólinni nógu vel,“ segir
Sævar. Sýnileiki sólmyrkvans fer al-
gerlega eftir veðri en hann mun sjást
þar sem er heiðskírt.
Ætti að sjást vel
Spáin gerir ráð fyrir því að háský
verði yfir borginni og eru því góðir
möguleikar á að sjá sólmyrkvann, að
sögn Haralds Eiríkssonar veður-
fræðings.
„Ég myndi álíta að veðurskilyrði
væru best á Norðurlandi, í Eyjafirði
og jafnvel Skagafirði. Spáin lítur líka
vel út á Suður- og Suðausturlandi.
En það er um að gera að fylgjast
með spánni, hún getur alltaf breyst
eins og við þekkjum,“ segir Harald-
ur.
Sólmyrkvi sést á laugardagsmorgun
Sólmyrkvi mun sjást frá Íslandi Deildarmyrkvi þar sem tunglið hylur 10-14% sólar Nauðsynlegt
að nota verndarbúnað þegar horft er á sólmyrkvann Þarf að vera heiðskírt svo að myrkvinn sjáist
Sólmyrkvi laugardaginn 11. ágúst
Deildarmyrkvi á sólu mun sjást frá öllu landinu ef vel viðrar á laugardagsmorgun
Deildarmyrkvi hefst Deildarmyrkvi nær hámarki Deildarmyrkva lýkur
Höfuðborgarsvæðið kl. 8:10
Ísafjörður kl. 8:10
Akureyri kl. 8:11
Höfuðborgarsvæðið:
Tunglið þekur 10% sólar kl. 8:40
Ísafjörður: Tunglið þekur 14% sólar kl. 8:47
Akureyri: Tunglið þekur 12% sólar kl. 8:48
Höfuðborgarsvæðið kl. 9:19
Ísafjörður kl. 9:25
Akureyri kl. 9:25
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Vélarbilun varð í hægri hreyfli flug-
vélar Air Iceland Connect í gær.
Flugvélin var nýfarin í loftið frá
Reykjavíkur-
flugvelli þegar
bilunin uppgötv-
aðist og sneri
vélin þá við og
lenti í Reykja-
vík. Engan sak-
aði um borð en
mikinn reyk
lagði frá flugvél-
inni að sögn
sjónarvotta. 44
farþegar voru um borð í vélinni sem
var á leið til Egilsstaða. Var þeim
boðin áfallahjálp á vellinum eftir
lendingu í Reykjavík.
Leifur Guðjónsson, sjómaður frá
Grindavík, var um borð í vélinni og
var skiljanlega brugðið. „Ég sit
hægra megin í vélinni, lít út um
gluggann og sé að hreyfillinn er orð-
inn stopp. Svo kallar flugstjórinn í
kallkerfið að við þurfum að snúa við
vegna þess að annar hreyfillinn hafði
stöðvast.“ Að sögn Leifs greip í kjöl-
farið um sig nokkur geðshræring um
borð í vélinni. „Maður var bara
smeykur enda mikil óvissa í gangi.
Svo var lendingin í Reykjavík mjög
harkaleg. Ég var bara mjög hrædd-
ur.“ Stuttu síðar var fengin önnur vél
til að flytja farþegana austur. „Það
gekk mjög vel. Maður trúði varla að
maður yrði það óheppinn að lenda í
tveimur bilunum í röð svo maður var
nokkuð rólegur. En ég fann það þeg-
ar vélin lenti á Egilsstöðum, hvað
lendingin var harkaleg í Reykjavík,“
segir Leifur.
Mikill viðbúnaður var á Reykja-
víkurflugvelli í kjölfar atviksins og
þótti Leifi viðbrögðin til fyrirmynd-
ar. „Þau stóðu sig vel starfsfólkið og
eiga hrós skilið, gerðu allt rétt í þess-
um aðstæðum.“
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Air Iceland Connect, segir það
eðlileg vinnubrögð að slökkt sé á
hreyfli við þessar aðstæður. Vélarn-
ar séu vel í stakk búnar til að fljúga
með einum hreyfli.
Áætlað er að málið verði rannsak-
að af rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa von bráðar.
„Lendingin var
mjög harkaleg“
Bilun í vél Air Iceland Connect í gær
Leifur Guðjónsson