Morgunblaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018 Meira til skiptanna VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. skiptum. Vesturfaraþættirnir hafi vakið mikla athygli á byggðum Vestur-Íslendinga og fjölmargar ferðir Íslendinga á þessar slóðir árétti áhugann. Í því sambandi bendir hún á að á annað hundrað Íslendingar hafi verið í skipulögðum ferðum vestra um helgina. „Í ferð- inni sagði ég í svolitlum hálfkæringi að allir Íslendingar ættu leynda ósk um að fara á þessar slóðir og ég held að í huga margra sé þær séu langþráður áfangastaður.“ Íslensk menning Mikil rækt hefur verið lögð við ís- lenska menningu í Manitoba. Í því sambandi má nefna að vest- uríslenska blaðið Lögberg Heims- kringla er það blað sem hefur verið gefið út lengur en nokkurt annað blað þjóðarbrots í Kanada og ís- lenskudeild Manitoba-háskóla í Winnipeg er sú eina sinnar teg- undar utan Íslands. Þjóðrækn- isfélag Íslendinga, sem fagnar 100 ára afmæli næsta vor með sérstakri afmælishátíð í Winnipeg, heldur úti víðtækri starfsemi í mörgum fé- lögum víðsvegar í Kanada og Bandaríkjunum og félagið Núna now sér um samskipti listafólks af íslenskum ættum og á Íslandi. „Öll svona samskipti eru auðvitað brothætt og ekki þarf nema að ein kynslóð detti út til þess að þau séu í hættu,“ segir Katrín. „Íslenskudeild Manitoba-háskóla skiptir til dæmis gríðarlega miklu máli til þess að halda þessum samskiptum lifandi, því fólk týnir niður tungumálinu, þó að merkilegt sé að heyra hvað margir hafa haldið í íslenskuna, ein- stök orð og menningarfyrirbæri. Rannsóknir hafa enda sýnt fram á að velferð fólks sé meiri ef það ræktar bæði móðurmálið og málið í nýja landinu. En það er merkilegt VIÐTAL Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra er reynslunni ríkari eftir ferð um Íslendingaslóðir í Norður- Dakóta í Bandaríkjunum og Mani- toba í Kanada um liðna helgi. „Það var merkilegt að heimsækja þessi svæði og finna þetta mikla vinarþel hjá þeim sem halda utan um sam- skipti Vestur-Íslendinga og Íslend- inga,“ segir hún. „Það er svo mikill einlægur vilji til þess að rækta sam- skiptin og það var magnað að skynja þennan mikla áhuga.“ For- sætisráðherra var sérstakur heið- ursgestur á Íslendingahátíðunum í Mountain og á Gimli. Hún segir að þrátt fyrir að hafa lesið um Vestur- Íslendinga og horft á sjónvarps- þætti um vesturfarana hafi hún ekki litið á sig sem sérfræðing í málum heimamanna, en heimsóknin hafi kennt henni margt, ekki síst um hvað varð um vesturfarana. „Ég lærði í skóla að fjöldi fólks fór frá Íslandi vegna ýmissa erf- iðleika og nú hef ég lært heilmikið um hvað síðan gerðist.“ Katrín segist finna fyrir vaxandi áhuga á Íslandi á umræddum sam- hvað margt fólk vestra hefur haldið mikið upp á tungumálið og sam- skiptin við Ísland þrátt fyrir að vera í allt öðrum heimi og lifa ólíku lífi.“ Framtíðin Íslensku, opinberu gestirnir komu víða við og Katrín hitti ótrú- lega marga í þessari annars stuttu ferð. Hún segir að margir hafi rætt um hvernig samskiptin yrðu í fram- tíðinni, á hverju ætti að byggja fyrir utan grunninn. „Ég held að íslenskudeildin skipti þar miklu máli og mikilvægt er að vera með nýjar rannsóknir eins og til dæmis rannsókn Magnúsar Þórs Þorbergssonar á leiklistarhefð Vestur-Íslendinga. Mér fannst líka áhugavert að hitta Guy Madden og heyra hvað hann er að gera, en vegna tengslanna nýtir hann Ísland sem sögusvið fyrir sig. Hann vinnur ekki endilega með fortíðina heldur skapar eitthvað nýtt úr efniviðnum. Það er mikil áskorun.“ Íslendingahátíðirnar í Mountain og á Gimli eiga sér langa sögu og ís- lenskir ráðamenn hafa verið sér- stakir gestir á þeim um árabil. Katrín segir að þær hafi verið mjög áhugaverðar en sér hafi komið á óvart hvað þær eru ólíkar. „Hátíðin á Gimli er margfalt stærri og fjöl- mennari en um leið miklu formfast- ari. Hlutirnir voru flæðiskenndari í Mountain. Samfélögin eru líka ólík og maður finnur strax muninn á landamærunum. Ég fann samt að á báðum stöðum leggur fólk mikið upp úr hátíðunum, vill rækta tengslin og er einlægt í þeirri nálg- un.“ Um aldamótin var komið á sam- starfi milli Manitoba-háskóla og Háskóla Íslands. Ráðstefnur voru haldnar til skiptis í skólunum, fyrst með 18 mánaða millibili og síðar á tveggja ára fresti. Þessi samskipti lögðust af fyrir nokkrum árum en nú hefur verið ákveðið að endur- vekja þau og verður næsta ráð- stefna í Reykjavík haustið 2019. Katrín segir mjög mikilvægt að Há- skóli Íslands og sérstaklega ís- lenskudeildin sé í góðu samstarfi við Manitoba-háskóla. „Sumir við- mælendur mínir ræddu sérstaklega um Veröld – hús Vigdísar sem okk- ar stofnun í erlendum tungumálum og þar með í menningarlegum sam- skiptum og þar eru möguleikar. Síðan eru miklir möguleikar á að auka viðskiptin á milli landanna.“ Kynjajafnréttismál Forsætisráðherra segist hafa fundið fyrir miklum áhuga á kynja- jafnréttismálum og það hafi henni þótt gaman að heyra. „Ísland hefur greinilega náð í gegn sem rödd á því sviði og það er frábært. Mér fannst líka áhugavert að finna hvað víða er mikill áhugi á íslenskum stjórnmálum. Það kom mér á óvart hvað fólk virðist fylgjast vel með. Allir voru með á hreinu hverjir skipuðu ríkisstjórnina og hvað væri í gangi.“ Dagskráin var þétt og meðal ann- ars hitti Katrín Brian Pallister, for- sætisráðherra Manitoba. Einnig sveitarstjórnarráðherra, umhverf- isráðherra og jafnréttisráðherra, nokkra þingmenn og sveitarstjórn- armenn og fylkisstjóra Manitoba. Hún segir að loftslagsmál hafi verið Pallister hugleikin. Hann hafi kynnt sér markmið Íslands á þeim vett- vangi og þau hafi rætt möguleika á samskiptum á því sviði. Auk þess hafi hún töluvert verið spurð út í ís- lenska nýsköpun og tækni, einkum með vísan í fyrirtækin Marel og Össur. Bjartsýni Katrín áréttar að ferðin hafi verið mjög áhugaverð og hún lét þess víða getið að hún yrði að koma aft- ur. „Við fórum hratt yfir og mér Áhugaverð saga og auknir möguleikar  Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er reynslunni ríkari eftir ferð um Íslendingaslóðir í Vesturheimi Kveðjustund Eric Stefanson bauð til lokaveislu eftir hátíðina á Gimli. Gimli Grant Stefanson, formaður Íslend- ingadagsnefndar, fræðir forsætisráð- herrahjónin Gunnar Sigvaldason og Katrínu Jakobsdóttur um víkingagarðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.