Morgunblaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018 Sællegur Selur liggur í makindum á steini í Húsdýragarðinum í Reykjavík og myndar hjarta með nösunum þegar hann virðir fyrir sér litla mannfólkið sem er komið til að fylgjast með honum. Valli Xi Jinping, forseti Kína, sýnir norður- slóðum mikinn áhuga. Hann sagði í ræðu ár- ið 2014 að Kínverjar vildu verða „stórveldi“ við norðurpólinn. Kína varð árið 2013 áheyrnafulltrúi að Norðurskautsráðinu. Í janúar á þessu ári birtu kínversk stjórn- völd fyrstu norðurslóðastefnu sína. Þar er Kína sagt „nánast norður- skautsland“ þótt nyrsta byggð í Kína sé álíka langt frá norður- heimskautinu og Berlín sagði í grein The Economist um norður- slóðaáhuga Kínverja fyrr á árinu. Þar er einnig minnt á að norður- slóðir tengist stefnu Xi sem kennd er við belti og braut og miðar að gerð mannvirkja sem bæta sam- göngur og viðskipti milli Asíu, Afr- íku og Evrópu auk þess að styrkja stöðu Kína sem heimsveldis. Fyrir skömmu hófu risa-gasflutn- ingaskip beinar ferðir með fljótandi jarðgas (LNG) frá Sabetta-höfn á Jamal-skaga í Síberíu til hafnar í Kína. Þar var fyrstu skipunum fagnað af orkumálaráðherra Rúss- lands og orkumálastjóra Kína. Kín- verjar hafa lagt mikið fé til vinnslu jarðgass á þessum slóðum, hafnar og annarra mannvirkja. Almennt sigla skipin frá Sabetta vestur á bóginn til umskipunarhafn- ar, Rotterdam, þar sem fljótandi jarðgasið fer um borð í skip sem ekki eru sérsmíðuð til siglinga í Norður-Íshafi. Skipin sigla með farminn um Súez-skurð, Malakka- sund og til Kína. Sú ferð tekur 35 daga en með því að fara Norðurleiðina í austur til Kína má stytta ferðina í 19 daga. Vegna sóknar Kín- verja til yfirráða á Suður-Kínahafi hefur spenna vaxið þar milli flotavelda. Við að sigla norðurleiðina sjá Kín- verjar ekki aðeins þann kost að spara tíma heldur losna skip- in við að fara um hern- aðarlega mikilvægt Malakka-sundið sem auðvelt er fyrir keppinauta Kínverja að loka. Í kínverskum fjöl- miðlum er talað um „ísilagða silki- leið“, það er ný samgönguæð í norðri frá Kína vestur á bóginn á sjó og landi. Hugmyndir eru meðal annars uppi um að leggja norður- slóða-járnbraut frá Kína og um Finnland. Reynsla Ástrala Á þessari útrás kínverskra stjórnvalda er önnur hlið: Viðleitni til að fara inn á ný svið í sam- skiptum við önnur ríki, búa um sig á „gráum svæðum“ til að hafa sem mest ítök og áhrif. Ástralir hafa kynnst þessu betur en flestar vest- rænar þjóðir. Ástralska þingið samþykkti nú í júní nýja löggjöf til að útiloka er- lenda íhlutun í áströlsk stjórnmál. Þegar Malcom Turnbull forsætis- ráðherra kynnti frumvarpið á þingi Ástralíu í desember 2017 sagði hann að „aldrei fyrr“ hefði ástr- ölsku lýðræði og fullveldi verið ógn- að eins og nú af erlendum herferð- um í þágu ákveðinna skoðana. Allir vissu að með orðum sínum vísaði hann til tilrauna Kínverja til að koma ár sinni fyrir borð í Ástralíu. Ástralskur prófessor, Clive Hamilton, segir frá nýju lögunum og tilefni þeirra í grein á vefsíðu bandaríska tímaritsins Foreign Affairs undir lok júlí. Hann segir að áströlsk yfirvöld, leyniþjónustan og aðrir hafi staðið ráðþrota gagnvart vaxandi erlendri ásælni og þess vegna séu nú sett lög til að stemma stigu við athöfnum erlendra ríkis- stjórna sem falli ekki undir njósnir en er ætlað að skaða þjóðaröryggi Ástralíu eða hafa áhrif á ákvarðana- ferlið á vettvangi stjórnmála eða stjórnsýslu í Ástralíu. Refsileysi á þessu sviði hafi skapað svigrúm til athafna fyrir óprúttna erlenda að- ila. Reynsla Grænlendinga Óþarft er að fara alla leið til Ástralíu til að kynnast tilraunum Kínverja til að auka ítök sín. Líta má til Grænlands. Í mars 2018 settu stjórnvöld á Grænlandi kínverska ríkisfyrir- tækið China Communication Contstruction Company á lista yfir fimm fyrirtæki með heimild til að gera tilboð í þrjú flugvallarverkefni á Grænlandi. Nokkrum vikum síðar létu þrír lykilráðherrar dönsku ríkisstjórn- arinnar til sín taka vegna málsins: forsætisráðherrann, utanríkisráð- herrann og varnarmálaráðherrann. Claus Hjort Frederiksen, varnar- málaráðherra Dana, hitti Jim Matt- is, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, í Washington í maí. Að fund- inum loknum sagði ráðherrann: „Það er augljóst að Bandaríkja- mönnum stendur ekki á sama um fjárfestingar Kínverja á Græn- landi.“ Mattis hefði vikið að her- væðingu Kínverja á eyjum á Suður- Kínahafi, hún ætti að vera áminn- ing þegar hugað væri að Grænlandi. Í lögum frá 2009 sem tryggja Grænlendingum stjórn eigin mála segir að séu öryggishagsmunir í húfi falli viðkomandi mál undan- tekningarlaust undir forræði dönsku ríkisstjórnarinnar. Danska stjórnin telur flugvallaframkvæmd- irnar snerta þjóðaröryggi. Í fyrstu mölduðu grænlensk stjórnvöld í móinn en nú ætla stjórnir landanna að kanna hvernig tryggja megi að til flugvallanna renni danskt fjár- magn frá ríki, einkaaðilum eða báð- um saman. Þetta minnir á það sem gerðist fyrir tveimur árum þegar kínverskt fyrirtæki lýsti áhuga á að kaupa herstöðina í Grönnedal á vestur- strönd Grænlands sem Danir höfðu lokað og flutt starfsemina til Nuuk. Þá allt í einu sagði danska varnar- málaráðuneytið að stöðin yrði ekki seld heldur notuð undir birgðir og til æfinga. Upphaflega reistu Bandaríkjamenn þessa stöð í seinni heimsstyrjöldinni til að verja þar- krýólít-námu fyrir Þjóðverjum. Reynsla Íslendinga Á Arctic Circle (Hringborði norð- ursins) hér í Reykjavík í október 2017 kynntu Kínverjar að þeir hefðu áhuga á að reisa stöð til vís- indarannsókna á Grænlandi án þess að nefna ákveðinn stað. Geri þeir það verður það þriðja rann- sóknastöð á vegum Kínversku heimskautastofnunarinnar á norðurslóðum. Kínverjar opnuðu sumarið 2004 fyrstu rannsóknastöð sína á norður- slóðum í Nýja-Álasundi á Sval- barða. Er stöðin þar meðal margra erlendra vísindastöðva og reistu Kínverjar þar tvílyft 500 fm hús sem getur hýst um 20 manns. Kínverska heimskautastofnunin fjármagnar nú byggingu 800 fer- metra húss á Kárhóli í Reykjadal í Þingeyjarsýslu. Skóflustunga var tekin 2014 og átti að hefja rann- sóknir árið 2016 en var frestað til 2017. Nú hefur verið ákveðið að verja 380 m. kr. til framkvæmdanna og opna stöðina í haust. Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir 200 m. kr. kostnaði en hann verði að minnsta kosti 500 m. kr. sagði í nýlegri frétt ríkisútvarpsins. Sjálfseignastofnun heimamanna, Aurora Observatory, stendur fyrir framkvæmdunum. Bygging og rekstur Kárhóls- stöðvarinnar vekur alþjóðlega at- hygli og er talin til marks um sókn Kínverja á norðurslóðir. Þeir hafi náð mikilvægri fótfestu hér. Kínverskum ferðamönnum fjölg- ar mikið ár frá ári. Sé litið á tölur komu 5.780 Kínverjar hingað sem ferðamenn árið 2008 en voru 86.003 árið 2017. Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu á næsta ári og gegnir henni í tvö ár. Þetta er mesta ábyrgðarstaða sem íslensk stjórnvöld takast á hendur á al- þjóðavettvangi og mikilvægt að hún fari vel úr hendi og trúverðugleiki fullveldisins aukist en minnki ekki við þessa áraun og þann þrýsting sem henni fylgir. Eftir Björn Bjarnason » Óþarft er að fara alla leið til Ástralíu til að kynnast tilraunum Kín- verja til að auka ítök sín. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Kínverskur þrýstingur nær og fjær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.