Morgunblaðið - 10.08.2018, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Sællegur Selur liggur í makindum á steini í Húsdýragarðinum í Reykjavík og myndar hjarta með nösunum þegar hann virðir fyrir sér litla mannfólkið sem er komið til að fylgjast með honum.
Valli
Xi Jinping, forseti
Kína, sýnir norður-
slóðum mikinn áhuga.
Hann sagði í ræðu ár-
ið 2014 að Kínverjar
vildu verða „stórveldi“
við norðurpólinn. Kína
varð árið 2013
áheyrnafulltrúi að
Norðurskautsráðinu. Í
janúar á þessu ári
birtu kínversk stjórn-
völd fyrstu norðurslóðastefnu sína.
Þar er Kína sagt „nánast norður-
skautsland“ þótt nyrsta byggð í
Kína sé álíka langt frá norður-
heimskautinu og Berlín sagði í
grein The Economist um norður-
slóðaáhuga Kínverja fyrr á árinu.
Þar er einnig minnt á að norður-
slóðir tengist stefnu Xi sem kennd
er við belti og braut og miðar að
gerð mannvirkja sem bæta sam-
göngur og viðskipti milli Asíu, Afr-
íku og Evrópu auk þess að styrkja
stöðu Kína sem heimsveldis.
Fyrir skömmu hófu risa-gasflutn-
ingaskip beinar ferðir með fljótandi
jarðgas (LNG) frá Sabetta-höfn á
Jamal-skaga í Síberíu til hafnar í
Kína. Þar var fyrstu skipunum
fagnað af orkumálaráðherra Rúss-
lands og orkumálastjóra Kína. Kín-
verjar hafa lagt mikið fé til vinnslu
jarðgass á þessum slóðum, hafnar
og annarra mannvirkja.
Almennt sigla skipin frá Sabetta
vestur á bóginn til umskipunarhafn-
ar, Rotterdam, þar sem fljótandi
jarðgasið fer um borð í skip sem
ekki eru sérsmíðuð til siglinga í
Norður-Íshafi. Skipin sigla með
farminn um Súez-skurð, Malakka-
sund og til Kína. Sú ferð tekur 35
daga en með því að
fara Norðurleiðina í
austur til Kína má
stytta ferðina í 19
daga.
Vegna sóknar Kín-
verja til yfirráða á
Suður-Kínahafi hefur
spenna vaxið þar milli
flotavelda. Við að sigla
norðurleiðina sjá Kín-
verjar ekki aðeins
þann kost að spara
tíma heldur losna skip-
in við að fara um hern-
aðarlega mikilvægt Malakka-sundið
sem auðvelt er fyrir keppinauta
Kínverja að loka. Í kínverskum fjöl-
miðlum er talað um „ísilagða silki-
leið“, það er ný samgönguæð í
norðri frá Kína vestur á bóginn á
sjó og landi. Hugmyndir eru meðal
annars uppi um að leggja norður-
slóða-járnbraut frá Kína og um
Finnland.
Reynsla Ástrala
Á þessari útrás kínverskra
stjórnvalda er önnur hlið: Viðleitni
til að fara inn á ný svið í sam-
skiptum við önnur ríki, búa um sig
á „gráum svæðum“ til að hafa sem
mest ítök og áhrif. Ástralir hafa
kynnst þessu betur en flestar vest-
rænar þjóðir.
Ástralska þingið samþykkti nú í
júní nýja löggjöf til að útiloka er-
lenda íhlutun í áströlsk stjórnmál.
Þegar Malcom Turnbull forsætis-
ráðherra kynnti frumvarpið á þingi
Ástralíu í desember 2017 sagði
hann að „aldrei fyrr“ hefði ástr-
ölsku lýðræði og fullveldi verið ógn-
að eins og nú af erlendum herferð-
um í þágu ákveðinna skoðana. Allir
vissu að með orðum sínum vísaði
hann til tilrauna Kínverja til að
koma ár sinni fyrir borð í Ástralíu.
Ástralskur prófessor, Clive
Hamilton, segir frá nýju lögunum
og tilefni þeirra í grein á vefsíðu
bandaríska tímaritsins Foreign
Affairs undir lok júlí. Hann segir að
áströlsk yfirvöld, leyniþjónustan og
aðrir hafi staðið ráðþrota gagnvart
vaxandi erlendri ásælni og þess
vegna séu nú sett lög til að stemma
stigu við athöfnum erlendra ríkis-
stjórna sem falli ekki undir njósnir
en er ætlað að skaða þjóðaröryggi
Ástralíu eða hafa áhrif á ákvarðana-
ferlið á vettvangi stjórnmála eða
stjórnsýslu í Ástralíu. Refsileysi á
þessu sviði hafi skapað svigrúm til
athafna fyrir óprúttna erlenda að-
ila.
Reynsla Grænlendinga
Óþarft er að fara alla leið til
Ástralíu til að kynnast tilraunum
Kínverja til að auka ítök sín. Líta
má til Grænlands.
Í mars 2018 settu stjórnvöld á
Grænlandi kínverska ríkisfyrir-
tækið China Communication
Contstruction Company á lista yfir
fimm fyrirtæki með heimild til að
gera tilboð í þrjú flugvallarverkefni
á Grænlandi.
Nokkrum vikum síðar létu þrír
lykilráðherrar dönsku ríkisstjórn-
arinnar til sín taka vegna málsins:
forsætisráðherrann, utanríkisráð-
herrann og varnarmálaráðherrann.
Claus Hjort Frederiksen, varnar-
málaráðherra Dana, hitti Jim Matt-
is, varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, í Washington í maí. Að fund-
inum loknum sagði ráðherrann:
„Það er augljóst að Bandaríkja-
mönnum stendur ekki á sama um
fjárfestingar Kínverja á Græn-
landi.“ Mattis hefði vikið að her-
væðingu Kínverja á eyjum á Suður-
Kínahafi, hún ætti að vera áminn-
ing þegar hugað væri að
Grænlandi.
Í lögum frá 2009 sem tryggja
Grænlendingum stjórn eigin mála
segir að séu öryggishagsmunir í
húfi falli viðkomandi mál undan-
tekningarlaust undir forræði
dönsku ríkisstjórnarinnar. Danska
stjórnin telur flugvallaframkvæmd-
irnar snerta þjóðaröryggi. Í fyrstu
mölduðu grænlensk stjórnvöld í
móinn en nú ætla stjórnir landanna
að kanna hvernig tryggja megi að
til flugvallanna renni danskt fjár-
magn frá ríki, einkaaðilum eða báð-
um saman.
Þetta minnir á það sem gerðist
fyrir tveimur árum þegar kínverskt
fyrirtæki lýsti áhuga á að kaupa
herstöðina í Grönnedal á vestur-
strönd Grænlands sem Danir höfðu
lokað og flutt starfsemina til Nuuk.
Þá allt í einu sagði danska varnar-
málaráðuneytið að stöðin yrði ekki
seld heldur notuð undir birgðir og
til æfinga. Upphaflega reistu
Bandaríkjamenn þessa stöð í seinni
heimsstyrjöldinni til að verja þar-
krýólít-námu fyrir Þjóðverjum.
Reynsla Íslendinga
Á Arctic Circle (Hringborði norð-
ursins) hér í Reykjavík í október
2017 kynntu Kínverjar að þeir
hefðu áhuga á að reisa stöð til vís-
indarannsókna á Grænlandi án þess
að nefna ákveðinn stað. Geri þeir
það verður það þriðja rann-
sóknastöð á vegum Kínversku
heimskautastofnunarinnar á
norðurslóðum.
Kínverjar opnuðu sumarið 2004
fyrstu rannsóknastöð sína á norður-
slóðum í Nýja-Álasundi á Sval-
barða. Er stöðin þar meðal margra
erlendra vísindastöðva og reistu
Kínverjar þar tvílyft 500 fm hús
sem getur hýst um 20 manns.
Kínverska heimskautastofnunin
fjármagnar nú byggingu 800 fer-
metra húss á Kárhóli í Reykjadal í
Þingeyjarsýslu. Skóflustunga var
tekin 2014 og átti að hefja rann-
sóknir árið 2016 en var frestað til
2017. Nú hefur verið ákveðið að
verja 380 m. kr. til framkvæmdanna
og opna stöðina í haust. Fyrstu
áætlanir gerðu ráð fyrir 200 m. kr.
kostnaði en hann verði að minnsta
kosti 500 m. kr. sagði í nýlegri frétt
ríkisútvarpsins. Sjálfseignastofnun
heimamanna, Aurora Observatory,
stendur fyrir framkvæmdunum.
Bygging og rekstur Kárhóls-
stöðvarinnar vekur alþjóðlega at-
hygli og er talin til marks um sókn
Kínverja á norðurslóðir. Þeir hafi
náð mikilvægri fótfestu hér.
Kínverskum ferðamönnum fjölg-
ar mikið ár frá ári. Sé litið á tölur
komu 5.780 Kínverjar hingað sem
ferðamenn árið 2008 en voru 86.003
árið 2017.
Ísland tekur við formennsku í
Norðurskautsráðinu á næsta ári og
gegnir henni í tvö ár. Þetta er
mesta ábyrgðarstaða sem íslensk
stjórnvöld takast á hendur á al-
þjóðavettvangi og mikilvægt að hún
fari vel úr hendi og trúverðugleiki
fullveldisins aukist en minnki ekki
við þessa áraun og þann þrýsting
sem henni fylgir.
Eftir Björn
Bjarnason » Óþarft er að fara alla
leið til Ástralíu til að
kynnast tilraunum Kín-
verja til að auka ítök sín.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Kínverskur þrýstingur nær og fjær