Morgunblaðið - 10.08.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 10.08.2018, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018 ✝ Þórður JónSveinsson fæddist 11. nóv- ember 1931. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Hjallatúni 3. ágúst 2018. Foreldrar hans voru Sólveig Sig- urveig Magnús- dóttir, f. 4.3. 1900 í Fagradal, d. 12.3. 1992, og Sveinn Jónsson, f. 4.3. 1892 í Reyn- ishólum, d. 6.3. 1941. Systur hans voru: Magnúsína Guðrún, f. 1921, d. 2006: Sigríður Jóna, f. 1926, d. 2014, og Hrefna, f. 1929, d. 2010. Þórður kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Áslaugu Höllu Vilhjálmsdóttur, f. 3.5. 1940, á aðfangadag 1960. Hún var dótt- ir Vilhjálms Á. Magnússonar bónda á Stóru-Heiði og Arndís- ar Kristjánsdóttur. Börn þeirra: 1) Arndís, f. 20.9. 1960, d. 26.10. 2011. Hennar maður var Magn- ús Guðni Emanúelsson, þau skildu en þeirra synir eru: Em- anúel Þórður, hans kona er Eva þeirra sonur er Grétar Logi. Fyrir átti Sigrún Birni Frosta og Söru Mekkín, þeirra faðir er Sigurður Magnússon. Þórður var fæddur og uppal- inn í Vík og fór í unglingaskóla í einn vetur, en hann fór snemma að vinna, því pabbi hans lést þegar hann var á tíunda árinu. Hann byrjaði hjá breska hern- um 11 ára gamall við að teyma vagnhesta upp á Reynisfjall. Í framhaldinu vann hann ýmis störf til ársins 1965, m.a. í bygg- ingavinnu á Keflavíkurflugvelli og hjá Vegagerðinni. Hann hóf traktorsgröfuútgerð 1965, fyrstu árin ásamt Guðlaugi í Reynishólum. Þennan rekstur stundaði hann til 75 ára aldurs en samhliða því vann hann á bif- reiðaverkstæði Verslunarfé- lagsins, einnig hjá Vegagerð ríkisins um árabil við byggingu brúa á Skeiðarársandi, hjá Byggingafélaginu Klakki við múrverk og fl. og við bensín- afgreiðslu í Skálanum. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á veiðiskap og ferðalög- um. Eftir starfslok fór hann á námskeið og lærði útskurð. Árið 2011 fékk hann heilablóðfall og lamaðist öðrum megin og flutt- ist þá á dvalarheimili. Útför Þórðar fer fram frá Víkurkirkju í dag, 10. ágúst 2018, klukkan 13. Lind Breiðfjörð Eyjólfsdóttir, þeirra börn eru: Magnús Guðni, Ar- on Eyjólfur og stúlka óskírð. Jón Þór, hans dóttir er Guðrún María, barnsmóðir Stella Guðnadóttir, þau skildu. Yngstur er Guðlaugur. 2) Sveinn, f. 2.5. 1964, hans kona er Inger Schiöth, þeirra börn eru Magdalena Katrín og Breki Þór, hans kær- asta er Sigríður Helga Stein- grímsdóttir. 3) Sólveig Þórð- ardóttir, f. 2.7. 1967, hennar maður er Árni Eiríksson. Þeirra börn eru Eiríkur og Laufey. Fyrri maður Sólveigar er Loftur Erlingsson, þau skildu. Börn þeirra: Erlingur Snær, hans kona er Hlín Magnúsdóttir, son- ur þeirra er Elvar Máni og Ás- rún Halla, hennar unnusti er Magnús Þór Ingólfsson. 4) Vil- hjálmur, f. 29.4. 1975, d. 1.5. 1975. 5) Kristján, f. 22.7. 1976, hans kona er Sigrún Jónsdóttir, Pabbi er dáinn, hann fékk hvíldina síðasta föstudag, 7 árum og 2 dögum eftir að hann fékk áfallið sem kippti undan honum fótunum og út úr venjubundnu lífi. En þótt áfallið væri alvarlegt þá lét hann aldrei bugast og stefndi alltaf að því að geta aftur farið að veiða og ferðast. Svo langaði hann líka að geta haldið áfram að skera út í tré. Pabbi missti föður sinn í hörmulegu sjóslysi í Vík og átti sá missir eftir að hafa mikil áhrif á allt hans líf. Pabbi var mjög dulur um sína líðan og hann mundi ekki neitt eftir pabba sínum þótt hann væri 9 ára gamall þegar pabbi hans lést. Pabbi fór ungur að vinna til að sjá fjölskyldunni far- borða og 11 ára var hann farinn að vinna við að teyma hesta uppá Reynisfjall fyrir herinn og skóla- gangan var ekki nema eitt ár hjá honum og hann gat ekki þegið boð um að koma til Reykjavíkur og mennta sig í rafvirkjun því vinnan hafði forgang. Því lagði hann alltaf mikla áherslu á að við börnin myndum sækja okkur menntun og vildi hann allt til vinna að við gætum það. Í gegnum tíðina vann pabbi við ýmis störf en lengst af var hann að vinna á vinnuvélum og í 40 ár var hann með traktors- gröfu, fyrst í samstarfi við Guð- laug í Reynishólum en síðar einn. Pabbi vann með gröfu við brúar- framkvæmdirnar á Skeiðarár- sandi. Frá því ég var smágutti man ég eftir mér með pabba við að dytta að JCB gröfunni og svo fékk ég að fara með honum á gröfunni þegar hann var að grafa rusla- gryfjur og þá fékk ég fyrst að kynnast því hvernig var að vinna á svona vinnuvélum. Það voru ófáar ferðirnar sem ég fór með pabba gangandi eða í akandi niður í fjöru um helgar, sjórinn togaði alltaf í hann. Flestar helgar var farið í bíl- túra annað hvort til Lauga og Rögnu í Hólunum eða til Halldórs og Unnu á Brekkum. Pabbi hafði mikinn áhuga á veiðum og hann smitaði mig af þeirri bakteríu og margar voru ferðirnar sem farnar voru upp á Heiðarvatn til að veiða á stöng, bæði vorum við að veiða úr landi og stundum fengum við lánaðan bátinn á Litlu-Heiði. Pabbi og Kristján bróðir mömmu voru miklir vinir og með Kristjáni komst hann í ádrátt og stanga- veiði í Heiðarvatni. Ég var með pabba þegar hann fékk maríulax- inn í Tungufljóti og ég man ekki eftir pabba glaðari í bragði eftir veiði. Mamma og pabbi ferðuðust talsvert en mest nutu þau þess að fara í Grænalón að Fjallabaki og á sá staður stóran sess í hjörtum fjölskyldunnar og var oft marg- mennt þegar fjölskyldan hittist þar, hann var formaður félagsins í yfir 20 ár og stóð alveg sína plikt við endurbyggingu á húsinu þar fyrir tíu árum síðan. Pabbi var al- veg ótrúlega hjálpsamur og þess fengum við börnin hans að njóta og ef eitthvað þurfti að gera var pabbi mættur. Hann var mikill fjölskyldumaður og vildi hafa fjöl- skylduna sem oftast í kringum sig og best leið honum á Mýrarbraut- inni ef stórfjölskyldan var öll sam- ankomin þótt honum fyndist stundum nóg um hávaðann í börn- unum. Takk, pabbi minn, fyrir ást þína, stuðning og aðstoð við okkur fjölskylduna í gegnum tíðina. Ég veit að Vilhjálmur bróðir og Dísa systir munu taka vel á móti þér. Þinn, Sveinn. Elsku pabbi er búinn að fá hvíldina. Erfiðum kafla lokið hjá honum, það er gott en samt svo erfitt fyrir okkur sem eftir lifum. En nú er hann kominn til barnanna sinna, Vilhjálms og Dísu, þau hafa án efa tekið vel á móti honum. Barnæskan áhyggju- laus, sorg sem ég man svo vel þeg- ar Vilhjálmur bróðir fæddist og dó svo strax aftur, sú minning er greypt í huga minn. Pabbi vann mikið í burtu, mamma með okkur heima, vorum á Skeiðarársandi þegar Skeiðarárbrúin var opnuð, en pabbi vann við hana. Man svo margar góðar stundir með þeim mömmu, tjaldferðalögin austur að Tungufljóti, þegar pabbi var að veiða, samverustundirnar í veiði- húsinu við Vatnsá, þar kom fjöl- skyldan saman á hverju sumri. Grænalón á hverju sumri, veitt í net og á stöng, man meðan enn þá var ætur fiskur í vatninu, hann var sko góður, nú bara puttar og óætir flestir, það er synd. Síðustu árin komst pabbi ekki til að vera með okkur næturlangt í Grænalóni en oftast komst hann innúr til okkar í heimsókn og naut þess að vera með okkur dagstund, kom síðast í fyrra, yndislegt. Ferðalögin eftir að þau keyptu sér húsbíl og við Árni og krakkarnir ferðuðumst með þeim um allt land. Greiðvik- inn var elsku pabbi með eindæm- um, þegar við byggðum við húsið okkar, 2005 til 2006 þá nánast flutti hann til okkar, og það voru ekki vindhögg slegin meðan hann var að hjálpa okkur, hann var allt- af svo duglegur og vildi halda áfram við verkin. Bara ef hann fékk lúrinn sinn eftir hádegismat- inn, þá voru allir vegir færir fram á kvöld. Og þetta var ekkert mál í hans huga, hann þurfti að hjálpa. Þegar hann hætti að vinna dreif hann sig á námskeið og lærði út- skurð, skar út fjölmargar klukkur og gestabækur, þvílíkir dýrgripir, svo fallegt hjá honum og vandað, eins og annað sem hann gerði. Áfallið þegar pabbi fékk heilablóð- fall og lamaðist, þá breyttist allt hjá okkur, en mest hjá þeim mömmu, þá fór hann á elliheimili, en áfram var hann sóttur ef við komum í heimsókn, þá kom hann í mat og kaffi til að hitta okkur al- mennilega. Hann gafst aldrei upp, ætlaði að ná sér aftur og flytja heim til mömmu, keypti sér sjós- töng og hjól og ætlaði að fara aftur að skera út. Hann var svo ótrúlega jákvæður í öll þessi 7 ár, allir voru honum svo góðir og honum leið svo vel. Hvað segir þú pabbi? „Bara gott, það þýðir ekkert ann- að,“ sagði hann alltaf. Fyrir ári var sett upp tafla á Hjallatúni þar sem heimilisfólkið setti gullkorn eða eitthvað frá sér. Þegar ég kom austur sá ég þetta og sagði hvað þetta væri sniðugt. „Hvað heldur þú að ég hafi sett?“ sagði pabbi við mig. Ég horfði á töfluna smá stund og sagði svo: „Verum já- kvæð.“ Alltaf þurfti hann að fá fréttir af krökkunum, hvað þau væru að gera. Stelpurnar okkar Ásrún Halla og Laufey settust stundum við píanóið á Hjallatúni og spiluðu fyrir afa sinn og mikið þótti honum vænt um það og ekki síður mér. Elsku mamma stóð alltaf sem klettur við hlið pabba, takk elsku mamma. Elsku pabbi, hjartans þakkir fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig og mína fjöl- skyldu. Sólveig Þórðardóttir. Fallinn er frá mikill öðlingur. Litla Grundargengið var í Grænalóni á Fjallabaki, griðastað fjölskyldunnar allrar, og vorum við í miðju kafi að leggja net og veiða þegar Þórður veiktist mjög og var Sveinn friðlaus þar til hann komst af stað „niðrúr“ til að vera með pabba sínum. Tengdafaðir minn var Stór- menni, sem bar tilfinningar ekki utan á sér en undir hrjúfu yfir- borði sló hlýtt hjarta, sem hafði reynt eitt og annað í gegnum tíð- ina. Þórði var kippt út úr tilveru sinni fyrir 7 árum þar sem hann stóð í fullu fjöri og málaði Mýr- arbrautina, nýta átti þurrkinn. Honum féll aldrei verk úr hendi og var alltaf að og ef hann var ekki heima var hann „vestur í húsi“ að bauka eitthvað. Hann var einstak- lega bóngóður og var alltaf boðinn og búinn að aðstoða ef við þurftum á því að halda, hvort sem var við pípulagnir, grafa fyrir palli eða sækja sand eða fjörugrjót. Allt gert í gulu JCB gröfunni sem var einkennandi fyrir hann. Sonur okkar fór ekki varhluta af þessari gröfudellu og urðu afmæl- istertur fyrstu árin að vera í JCB líki og skyldu vera í rétta gula litn- um. Þórður var minn Haukur í horni þegar Sveinn var í burtu vegna vinnu sinnar og Áslaug tengda- mamma ekki fjarri. Hann hafði sterkar skoðanir og lá ekki á þeim, og við vorum ekki alltaf sammála, en létum þar við sitja. Eitt árið var Grundargengið á leið í Grænalón ásamt Þórði og Ás- laugu og vorum á tveimur bílum. Ég keyrði að þessu sinni enda þykir mér einstaklega gaman að jeppast og keyra lóðrétt upp brekkur, stokka og steina. Þegar við nálgumst Grænafjallið eða hálsinn, festi ég bílinn í Jökulda- lakvísl (áin hafði grafið undan bakkanum) Þarna sat ég pikkföst með framhjólin uppi á bakkanum og afturhjólin á kafi sem og krók og tjaldvagn. „Konur og bílar“ hnussaði í Þórði og lét nokkur vel valin lýsingarorð um þá vankunn- áttu falla á meðan hann dró mig upp úr pyttinum. Hvað gerist næst? Nú festir Þórður bílinn sinn á sama stað í pyttinum! Sveini var skemmt (og mér reyndar líka) þegar Sveinn skellti mér aftur undir stýri til að draga þann gamla upp úr umræddum pytti. Þórður nefndi aldrei aftur „konur og bílar“ í mín eyru. Þórður var góður afi og gat ver- ið afar hrekkjóttur ef svo bar und- ir og „skeggjaði“ krakkana svo að þau báru rauða kinn út býtum. Þegar hann veiktist og við tóku erfið veikindi kom kannski best í ljós hvaða mann hann hafði að geyma. Ég held að flestir hafi bú- ist við því að Þórður yrði „erfiður sjúklingur“ enda í fullu fjöri og ákveðinn maður á ferð, en annað kom á daginn. Hann varð mjúkur maður, tók á veikindum sínum með æðruleysi og var þakklátur fyrir allt og alla sem önnuðust hann. Fylgdist vel með sínu fólki og sérstaklega unga fólkinu sínu. Mér þykir afar vænt um þá nánd sem myndaðist milli þeirra feðga. Tengdamamma stóð vakin og sofin við hlið þessa mæta manns sem nú hefur fengið langþráða hvíld frá veikindum sínum. Með vinsemd og virðingu kveð ég mætan tengdaföður. Megi allt gott þig geyma, elsku Þórður. Þín, Inger. Fáein fátækleg orð til minning- ar um Þórð Sveinsson tengdaföður minn er það minnsta sem maður getur látið af hendi rakna í þakk- lætisskyni fyrir góð samskipti. Þórður var kominn undir sjö- tugt þegar við Sólveig rugluðum saman reytum, Þórður þá kominn á eftirlaunaaldur en hvergi nærri af baki dottinn, með í gangi pöntun á nýrri traktorsgröfu sem hann svo fékk og vann á í sex ár. Þórður var mikill fjölskyldumaður, vakinn og sofinn yfir börnum og barna- börnum, vildi allt fyrir þau gera og sjá þau sem oftast. Það voru ófáar ferðirnar hans Þórðar til okkar, fyrst á Selfoss og svo í Flóann teldi hann sig geta lagt hönd á plóg við smíðar, barnapössun eða hvað eina. Okkur Þórði kom vel saman, báðir þrjóskir með eindæmum, vissum það og vorum ekkert að eyða orku í að snúa hvor annars skoðunum. Þórður og Áslaug voru ferðaglöð og margar eftirminni- legar ferðir fórum við saman víða um land. Aðdáun vakti hve Þórður var alltaf birgur í bílnum af alls- kyns verkfærum og varahlutum, ekki spurning hvort það væri með heldur hvar það væri. Á Þórði sást ekki oft að hann hneykslaðist á fólki en þó mátti engu muna með tengdasoninn þegar við vorum stödd á Ísafirði og ég fylltist miklum áhuga á að kaupa þar bát sem lá á bryggjunni merktur til sölu, taldi þetta upp- lagt fley á Grænalón. Eftir tals- verða rekistefnu var báturinn keyptur, honum hvolft ofan á felli- hýsið okkar og fluttur suður á því með talsverðu brasi þar sem nokkrar gistinætur voru eftir í ferðalaginu. Þegar Þórður fagnaði 75 ára aldri hnoðaði ég saman vísukorni í gamni og alvöru og gaf honum. Honum líkaði hún ekki verr en svo að hún fór í ramma upp á vegg. Genginn þriðja fjórðung er. Þórður tengdakarlinn. Hann er líkur sjálfum sér. En alltaf stækkar skallinn. Gröfuna hann gaf frá sér að gengnum góðum vetri. Enginn hefur verið mér né mínu fólki betri. Horft yfir ævi og störf Þórðar er manni ljóst að lífið er ekki alltaf leikur en hann tók því sem að höndum bar af æðruleysi, dugnaði og ósérhlífni. Við fjölskyldan eig- um eftir að sakna góðs manns og hugsa til hans um ókomna tíð. Árni Eiríksson, Skúfslæk. Elsku afi, þú fallinn ert nú frá. Það sem ég er mest þakklát fyrir er hversu mikið þú stóðst með mér í einu og öllu, þér leið svo illa þegar þú fréttir að ég hefði fallið á sveinsprófinu en brostir svo ótrúlega breitt þegar ég sagði þér að ég hefði náð, þú knúsaðir mig og sagðir: Ásrún, ég er svo stoltur af þér. Ég á eftir að sakna þess að kíkja yfir á Hjallatún til þín þegar ég kem til Víkur og spjalla um daginn og veginn, spila á píanóið fyrir þig og horfa á þig lygna aftur augunum á meðan til að njóta tón- anna. Ég var svo heppin að fá að vinna á Hjallatúni þar sem afi bjó í 2 sumur, fyrra árið vann ég í þvottahúsinu en seinna árið vann ég við aðhlynningu og fékk ég að eyða miklum og dýrmætum tíma með afa, leggja kapal, borða sam- an og auðvitað spjalla alveg heilan helling. Við eigum svo ótal margar góðar minningar saman en Grænalón finnst mér samt alltaf toppa allt annað, ég er svo þakklát fyrir að þú kynntir mig fyrir þess- um draumastað sem ég elska svo heitt. Það var og er alltaf toppur sumarsins að koma í Grænalón. Núna seinasta ferðin í Grænalón fyrir viku síðan fórum við rétt eftir að þú fórst frá okkur, ferðin var skrýtin en góð á sama tíma. Minn- ingar voru rifjaðar upp alla helgina, settum út öll net og grill- uðum 2 fiska og átum til heiðurs þér og röltum svo auðvitað inn með vatninu og bættum i Þórðar- vörðu. Ég samdi lítið ljóð til minn- ingar um þig og leyfi því að fylgja hér með. Í Grænalóni er best að vera, alla daga er nóg að gera. Út á bát og allir í vesti. Það segir afi, já afi besti. Þórðarvörðu við fórum að hlaða, það var gaman og gerð‘alla glaða. Fjölskyldurnar koma hér saman. Allir elska Grænalón því hér er svo gaman. Við söknum þín, ó elsku afi. Við elskum þig, ó elsku afi. Í hjörtum okkar munt þú alltaf búa. Í sorg og söknuði minnumst við þín. Í Grænalóni þar sem sál þín skín. Ásrún Halla Loftsdóttir. Mig langar að minnast hans afa míns. Ég var bara 5 ára þegar afi veiktist fyrir 7 árum þannig að ég man lítið eftir honum öðruvísi en á sjúkrahúsi eða elliheimili. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til afa á elliheimilið, hann tók vel á móti okkur krökkunum og átti alltaf nammi í skúffunni sem hann benti okkur á að fara í til að at- Þórður Jón Sveinsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR MAGÐALENA JÓHANNSDÓTTIR frá Ósi, Kálfshamarsvík, Melabraut 34, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 4. ágúst. Útförin fer fram í Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 15. ágúst klukkan 13. Jóhann Kristinsson Ester Kristinsdóttir Andrés G. Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR LONG, kvikmyndagerðarmaður, vélstjóri, rennismiður og þúsundþjalasmiður, sem lést föstudaginn 3. ágúst, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 14. ágúst klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda Valdimar Long Björg Long Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HELGA S. ÞORKELSDÓTTIR, lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn 8. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 13. ágúst klukkan 13. Andrés Þórðarson Þorkell Andrésson Nanna Þóra Andrésdóttir Laufey Ámundadóttir Fanney Hrafnsdóttir Andrés Þorkelsson Guðberg Hrafnssson Lilja Guðrún Þorkelsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.