Morgunblaðið - 10.08.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 10.08.2018, Síða 25
huga hvað væri til og svo áttum við alltaf að taka með okkur nesti úr skúffunni. Uppáhalds staður- inn hans afa var í Grænalóni og ég man þegar hann þurfti að fara í vöðlunum sínum að sækja öngul sem var fastur í botninum í vatn- inu. Við systkini mín og fleiri frændsystkini fórum í Grænalón um síðustu helgi og bættum stein- um í Þórðarvörðu sem byrjað var að hlaða fyrir afa árið 2016. Afi var alltaf góður við mig og ég á eftir að sakna hans mikið. Laufey Árnadóttir. Nú, þegar Afi í Vík hefur kvatt okkur rann upp fyrir mér fyrir al- vöru, hversu mikið ég hef til að þakka honum fyrir. Auðvitað eru það foreldrarnir sem móta barnið og nánasta umhverfi þess, en það eru svo ótrúlega mörg af mínum áhugamálum sem ég tók upp á mínum yngri árum sem ég hef þér að þakka. Ég man enn þá eftir JCB gröfunni sem var alltaf mið- punktur alls sem gekk á í Vík, en í minningunni hafðirðu alltaf tíma til að sinna okkur krökkunum líka. Óteljandi ferðir niður í fjöru að moka sand með bakkóinu, já það gleymist seint. Ekki man ég ná- kvæmlega hversu mörg ár ég fór á reiðnámskeið í Vík en það var allt- af fastur liður á hverju sumri. Ég þakka þó fyrir að það áhugamál virtist aldrei ná neitt sérstökum tökum á mér, enda veit ég ekki hvar það hefði endað, áhugamálin urðu alveg nógu mörg fyrir. Eitt það helsta sem átti allan minn huga og hjarta, og gerir enn, var að sjálfsögðu stangveiðin. Þó að pabbi hafi alltaf verið duglegur að fara með mig í veiði, held ég nú samt að mesta sökin á þessari fíkn minni liggi hjá þér, afi. Ég man ekki eftir því nokkurn tímann að mér hafi verið neitað um að fara út að veiða. Aftur á móti þakka ég þér fyrir að hafa þolað ókyrrðina í mér og er ég mjög þakklátur í dag fyrir það að geta komið þessari reynslu til góðra nota. Það var ein- hvern veginn þannig að þegar maður fór til afa og ömmu í Vík, þá var aldrei ekkert að gera. Fleiri áhugamál eru sprottin frá þér, golfsettið sem keypt var til þess að eiga það, nýttist held ég örugglega engum betur en mér og ég er handviss um að ef það hefði ekki verið til hefði ég aldrei leitað út í þá íþrótt. Aldrei datt mér heldur í hug þegar ég sá fluguhnýtingar- dót í fyrsta skipti, að það yrði eitt- hvað sem ég myndi ná að tileinka mér, en sú varð nú raunin. En það voru ekki bara áhugamálin sem spruttu frá þér. Nú starfa ég í mínu draumastarfi frá unga aldri og get kallað mig smið. Þó að bræður mömmu, Sveinn og Krist- ján, hafi átt stóran þátt í því að þetta hafi verið mitt draumastarf, þá varst það þú sem sást til þess að maður hefði alltaf eitthvað að gera sem tengdist þessu. Ég man enn þá eftir kofanum sem við smíðuðum í garðinum. Reyndar fékk ég lítið að koma að burðar- virki til að byrja með enda hefði það líklega aldrei endað vel. Ekki man ég nákvæmlega hversu gam- all ég var þá en líklega ekki eldri en 10 ára. Það sem við tók hins vegar eftir að burðarvirkið var komið upp var fjöldinn allur af breytingum, því ekki var forsvar- anlegt að kofaræksnið liti alltaf eins út. Einhverra hluta vegna er samt minnisstæðast það að við boltuðum kofann við bílskúrinn, af hverju veit ég ekki. Þegar allt kemur til alls hefur vera mín í Vík mótað mitt líf meira en ég gerði mér grein fyrir. Ástin og um- hyggjan sem alltaf ríkti skein og skín enn í gegn þegar maður fer á heimaslóðirnar. Það er vont að hugsa til þess að nú sértu ekki lengur hjá okkur, en svo ósköp gott að vita að núna ertu kominn á betri stað og verður alltaf til stað- ar fyrir okkur. Ég elska þig afi. Erlingur Snær Loftsson. Nú, þegar Þórður, „litli bróðir“ hennar mömmu, er látinn eru þau öll horfin börn Sveins frá Reyn- ishólum og Sólveigar frá Fagra- dal. Margs er að minnast og margt ber að þakka, þegar síungi, æðrulausi frændi minn er kvadd- ur. Fyrstu minningar mínar eru frá því um 1960, þegar Þórður og amma bjuggu vestrí og Sigga, Palli og elstu börn austrí í stóra myndarlega húsinu sem þau byggðu saman í Víkinni. Svo tóku við dásemdartímar þegar þau fluttu öll saman upp í „spítala“ og Áslaug var komin til sögunnar. Ég var svo heppin að vera sumarlangt sem barnapía hjá þeim Þórði og Áslaugu í bragganum sem fylgdi lóðinni þar sem þau byggðu húsið sitt og bjuggu áratugum saman. Alltaf var jafn gott að koma til þeirra og sívinnandi frændi minn sýndi mér og mínum mikla elsku- semi. Í vor þegar við Svana systir mín heimsóttum Þórð á Hjallatún var ýmislegt rifjað upp, til dæmis þegar hann og Hrólfur voru send- ir með fullan bíl af krökkum til að létta á veisluundirbúningi. Þá var farið inn á heiði og við sáum tófu hlaupa niður brekku, þá gerðist Þórður minn nærri því „tófu- sprengur“. Ég hef aldrei séð ann- an eins sprett. Þetta mundi hann eiginlega betur en ég. Seinni árin þegar ég kom ásamt fjölskyldu í heimsókn var okkur alltaf tekið með sömu elskuseminni; minnist yndislegs dags við Vatnsá þar sem þau Þórður og Áslaug héldu ís- lenska matarveislu inn milli fjallanna fyrir börn og barnabörn og við fengum að njóta með þeim. Æðruleysi Þórðar var slíkt að til eftirbreytni er. Ég kveð Þórð frænda minn og sendi Áslaugu og fjölskyldu allri mína innilegustu samúðarkveðju. Guðrún Björk Tómasdóttir. Nú er hann Þórður, okkar kæri frændi, laus úr fjötrunum sem hann lenti í fyrir 7 árum. Hann fékk áfall, var að miklu leyti lam- aður öðrum megin og voru afleið- ingar þess þær að hann missti annan fótinn frá hné. Hann tók veikindum sínum vel, var alveg klár í kollinum fram á síðasta dag og alltaf jákvæður. Ef aðrir voru með væl og barlóm þá var við- kvæðið gjarnan: „Verið jákvæð.“ Þórður var yngstur fjögurra systkina, Hrefna var 3 árum eldri, Sigga móðir okkar var 5 árum eldri og Magga var elst, 10 árum eldri en Þórður. Tengsl og sam- heldni þeirra systkina voru alla tíð mjög mikil, kannski ekki síst vegna þess að þau misstu pabba sinn í sjóslysi í Vík 1941 þegar Þórður var 9 ára. Það var þeim öll- um mjög erfitt. Þórður átti lengi sama heimili og foreldrar okkar, fyrst í Fögru- brekku í Vík, sem þá var tvíbýlis- hús og oft svo mannmargt að Þórður gisti í hvítu tjaldi vestan við húsið. Það varð rýmra um alla þegar þeir mágarnir, Þórður og pabbi, höfðu byggt húsið sem nú er Mýrarbraut 13 í Vík. 1958 var flutt í það hús og þar varð hún yndislega Áslaug hluti af fjöl- skyldunni. Nokkrum árum síðar var húsið selt undir læknisbústað og í staðinn keyptur „gamli spít- alinn“, sem nú er Hátún 6. Þar bjuggu fjölskyldurnar tvær sam- an í nokkur ár í sátt og samlyndi, höfðu sameiginlegt eldhús og voru í raun sem ein fjölskylda. Þetta var einstök sambúð og bar aldrei skugga á, allir þessir krakkaormar og konurnar þrjár í eldhúsinu. Þetta var gott vega- nesti fyrir alla, samkomulagið sem þarna ríkti. Við eigum öll mjög góðar minn- ingar um Þórð, þennan trausta frænda, dugnaðarforkinn sem vann sig upp úr erfiðum aðstæð- um með vinnusemi og dugnaði og kom sér og sínum áfram með sóma. Við systkinin og fjölskyldur okkar kveðjum Þórð með þakk- læti fyrir samfylgdina og sendum Áslaugu og fjölskyldunni innileg- ar samúðarkveðjur. Anna, Sólveig, Ása, Sveinbjörg, Sveinn og Bjarni. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018 25 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opið hús, t.d. spil, pútt, boccia kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.54. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 535-2700. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar. Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30- 15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst. Úti boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega velkomin. Vitatorg, sími: 411-9450 Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14:00-15:30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnustofu kl. 13, gönguferð um hverfið kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, boccia kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, zumba dansleikfimi kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790. Seltjarnarnes Kaffispjall í krók kl.10.30. Leikfimi á Skólabraut kl. 11.00. Spilað í krók kl.13.30. Ath. miðvikudaginn 15. ágúst kl. 13.20 ætlum við á Gæðastund í Listasafni Íslands sem er í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Leiðsögn. Kaffi og bakkelsi á eftir. Skráning og upplýsingar í síma 8939800. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut og Eiðismýri. Strætó og einkabílar. Förum frá Skólabraut Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Rotþrær, heitir pottar og jarðgerðarílát Rotþrær – heildarlausnir með leiðbeiningum um frágang. Ódýrir heitir pottar – leiðbein- ingar um frágang fylgjar. Mjög vönduð jarðgerðarílát til moltugerðar. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Bókhald NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Vantar þig pípara? FINNA.is Dreifingardeild Morgun- blaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Hressandi morgunganga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.