Morgunblaðið - 10.08.2018, Qupperneq 31
verk þeirra yrðu flutt og er Gísli
Magnússon sá eini sem frumflytur
glænýtt verk, en önnur hafa áður
verið flutt í ýmsum myndum á tón-
leikum hér og þar. Annars er fjöl-
breytileiki, framúrstefna og til-
raunir mest lýsandi fyrir
Tvístrun-tónleikana; allt í bland og
mikil breidd, allt frá raftónlist til
hefðbundinnar hljóðfæratónlistar og
margt þar á milli,“ segir Pétur og
lætur þess getið að framan af hafi
fleiri með klassísk tónverk sótt um
heldur en með annars konar og
óhefðbundnari tónlist.
„Þetta er að breytast og samtökin
leggja engar línur. Nú langar okkur
til að vekja athygli á að það er miklu
meira að gerast í tónlistinni á Ís-
landi. Bæði í raftónlist, gjörningum
og innsetningum, enda æ meiri
skörun að verða á milli listgreina.“
Frelsi í listaheimi
Máli sínu til stuðnings bendir Pét-
ur á að umsóknir sem berist sam-
tökunum séu í meira mæli en áður
frá myndlistarfólki. „Viðmiðið hvað
telst gjaldgengt sem tónverk er sí-
fellt að verða frjálslegra í listaheim-
inum. UNM hvetur til fjölbreytni,
en síðan er undir dómurunum komið
að skera úr um ef upp koma álita-
mál.“
Spurður hvað gæti hugsanlega
orkað tvímælis, nefnir hann hljóð-
færasmíð og -hönnun, jafnvel leik-
hús. „Það má ræða það lengi,“ svar-
ar hann svo þegar hann er spurður
hvernig það sem ekki heyrist geti
verið tónlist. Og tekur dæmi: „Tón-
skáld býr til hljóðfæri, sem ætlað er
fyrir spunatónlist, og þá má velta
fyrir sér hvar tónverkið sé. Er það
tónlistin, sem flutt er af þeim sem
spinna á staðnum?“.
Sjálfur kveðst Pétur sem tónskáld
vera að mörgu leyti á þessum nót-
um, því undanfarið hafi hann verið
að rannsaka hvort eitthvað annað en
hljóð geti verið hluti af tónverki.
Efniviður hans er myndefni, raf-
hljóð, hreyfing, gjörningar svo fátt
eitt sé talið. Hann spilar þó enn á
fiðluna sína og notar hana m.a. í víd-
eótónverkin sín.
Eftir skilgreiningar Péturs á tón-
verki er yfirskrift tónleikanna skilj-
anlegri en ella. Tvístrun er nefnilega
annað orð yfir dreifingu.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Tónverk sjö ungra tónskálda voru valin
til flutnings á tónleikum UNM í Berg-
en. Kammersveitin Elja mun einnig
flytja verk eftir þau á tónleikunum
Tvístrun annað kvöld, en þó yfirleitt
ekki þau sömu. Einnig tekur sveitin til
flutnings verk tveggja tónskálda, sem
hér eru síðast upptalin, en voru einnig
valin í umsóknarferlinu.
Bára Gísladóttir
rannsakar hljóðblæ ýmissa hljóð-
færa og skapar oft dimman og dökkan
hljóðheim. Hún spilar á kontrabassa í
eigin verki á Tvístrun-tónleikunum.
Fjóla Evans
býr í Kanada og hefur látið til sín
taka þar. Hún er svolítið í að rannsaka
hljóðblæ, en annars byggjast verk
hennar meira á íslenskri náttúru og
náttúrufyrirbærum, sem hún málar
með tónum.
Gísli Magnússon
er á svipaðri leið varðandi vinnu með náttúruna og
hvernig hún þýðist yfir í músikina, en niðurstaða hans
er allt önnur en Fjólu.
Gylfi Guðjohnsen
er í hefðbundnari kantinum og með verk fyrir gít-
arkvintett á Tvístrun-tónleikunum. Hann er svolítið að
rannsaka eðli hljóðsins og hvernig hægt er að láta
hljóðfæri tvinna saman hljóð og búa þannig til nýtt.
Inga Magnes Weisshappel
er tónskáld og myndlistarkona, sem
vinnur mikið með vídeó, dans og hreyf-
ingu í tónverkum sínum. Tónverkið ann-
að kvöld er ný útgáfa af lokaverkefni
hennar í LHÍ, en í Bergen verður hún
með sinfóníuverk.
Ingibjörg Friðriksdóttir
er fyrst og fremst í raftónlist og hef-
ur gert mjög mikið af hljóðinnsetn-
ingum. Tónverk hennar í Bergen er fyrir
flygil, sem geymir m.a. ping pong kúlur
og skopparabolta, en hér heima verður
flutt einhvers konar rafútgáfa af sama
verki.
Örnólfur Eldon
er búsettur í Þýskalandi og semur
tónlist sem byggist mikið á rými. Á
laugardaginn verður flutt einleiksverk
fyrir fiðlu þar sem rýmið spilar stórt
hlutverk.
Katrín Helga Ólafsdóttir
er með verk þar sem hún skiptir út hefðbundnum
nótum fyrir liti. Hún er að rannsaka hvað getur verið
nótnaritun og vinnur m.a. með grafík.
Gulli Björnsson
býr í Arizona í Bandaríkjunum. Hann spilar bæði á
klassískan- og rafmagnsgítar og hefur verið að gera til-
raunir með að blanda saman og búa til nýja hljóðheima
úr þessum ólíku hljóðfærum.
Framúrstefna og fjölbreytileiki
NOKKUR ORÐ PÉTURS EGGERTSSONAR UM UNGU TÓNSKÁLDIN OG VERK ÞEIRRA
UNM Pétur Eggertsson, tón-
skáld og einn þriggja stjórn-
armanna í Íslandsdeild UNM.
Morgunblaðið/Valli
» „Annars er fjöl-breytileiki, fram-
úrstefna og tilraunir
mest lýsandi fyrir
Tvístrun-tónleikana;
allt í bland og mikil
breidd, allt frá raftónlist
til hefðbundinnar
hljóðfæratónlistar og
margt þar á milli.“
Miðar á tónleikana fást á tix.is.
Hægt er að kaupa passa sem gildir
á báða tónleikana.
Frásögn rannsóknar-blaðakonunnar norsku,Lene Wold, af heiðurs-morðum í Jórdaníu er
ótrúleg og sláandi. Nokkrum sinnum
á ári heyrum við af heiðursmorðum í
fréttunum en fæst-
ir kippa sér upp við
það og kenna um
annarri menningu,
trú og eitraðri
karlmennsku ein-
hverskonar. Þeir
sem fremja heið-
ursmorð eru oftar
en ekki íslams-
trúar, en eins og
kemur skýrt fram í máli Rahmans
þá hafa heiðursmorð ekkert að gera
með trúna, heldur snúast þau fyrst
og fremst um menningu og hefðir,
og síðast en ekki síst, heiður. Lýs-
ingar föðurins á því hve heiður skipt-
ir jórdanskar fjölskyldur miklu máli
eru áhrifamiklar og vekja miklar
vangaveltur. Í hans augum, og
flestra Jórdana, að því er virðist, er
ekkert mál að fórna einum, eða
fleiri, fjölskylumeðlim fyrir heiður
fjölskyldunnar í heild.
Það sem verra er er hvers vegna
heiðursmorð eru framin. Snemma í
bókinni segir Rahman frá því hvern-
ig hann varð vitni að því þegar barn-
ung skólasystir hans var grýtt til
dauða vegna þess að hún hafði
„freistað manns“ og þau höfðu „gert
hluti“. Hér er mjög augljóslega um
nauðgun að ræða. Gjaldið sem
nauðgarinn þarf að greiða er að
kasta fyrsta steininum. Litla, varn-
arlausa stúlkan þarf hins vegar að
gjalda með lífi sínu. Svo er það
ástæðan fyrir heiðursmorðinu sem
Wold fjallar sérstaklega um í sögu
sinni. Samkynhneigð. Við lifum
sannarlega í landi þar sem hjóna-
bönd samkynhneigðra eru leyfileg.
Fordómar gegn hinsegin fólki fara
minnkandi með hverri kynslóð. Sú
er alls ekki staðan í Jórdaníu, en það
sem er hvað áhugaverðast er hvern-
ig Amina, systirin sem lifði af,
skyggnist í Kóraninn og finnur ekk-
ert um það að samkynhneigð sé
bönnuð. Það er hins vegar algeng
túlkun á sögu í Kóraninum, sögunni
um Lot, sem veldur því að samkyn-
hneigðir eru jafnan grýttir í
strangtrúuðum múslimskum sam-
félögum. Amina túlkar söguna hins
vegar ekki svoleiðis, og treystir á
orð Kóransins um fyrirgefningu
þegar hún ákveður að segja til syst-
ur sinnar.
Það sem á eftir kemur er mikil
sorg og mikill ótti. Rahman er að
lokum neyddur, meðal annars af eig-
inkonu sinni, til þess að endurheimta
heiður fjölskyldunnar. Hann hefur
engar útskýringar og hann iðrast
ekki. Hann var fórnarlamb. Hann
varð að gera þetta. Tvær dætur voru
lítið gjald til þess að bjarga heiðri
allrar fjölskyldunnar.
Tvær dætur lítið gjald til
að bjarga heiðri fjölskyldunnar
Raunsaga
Heiðra skal ég dætur mínar
bbbbm
Eftir Lene Wold.
Þýðandi: Örn Þ. Þorvarðarson
Draumsýn gefur út. 2018. Kilja. 179 bls.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR
Ljósmynd/Sturlason
Sláandi „Frásögn rannsóknarblaðakonunnar norsku, Lene Wold, af heið-
ursmorðum í Jórdaníu er ótrúleg og sláandi,“ segir í rýni um bók Wold.
Staðfest hefur verið að dánarorsök
Margot Kidder var ofskammtur
áfengis og lyfja, en kanadíska leik-
konan fannst látin 13. maí sl. Leik-
konan, sem varð 69 ára, öðlaðist
frægð í hlutverki Lois Lane, kær-
ustu Súperman, í kvikmyndum á
áttunda og níunda áratugnum. Í
vor sagði Camilla Fluxman Pines,
umboðsmaður Kidder, að hún hefði
dáið eðlilegum dauðdaga í svefni,
en í nýrri frétt The Guardian stað-
festir Maggie McGuane, dóttir Kid-
der, að hún hafi framið sjálfsmorð.
McGuane sagði þungu fargi af sér
létt að geta loksins upplýst sann-
leikann. „Það er mikilvægt að tala
opið og heiðarlega þannig að engin
skömm fylgi þessu,“ segir McGuane
og hvetur fólk sem glímir við geð-
sjúkdóma til að leita sér læknis-
aðstoðar. Kidder þjáðist af geðræn-
um kvillum stóran hluta ævi sinnar,
en hún varð skuldum hlaðin eftir
bílslys 1990 og þurfti að notast við
hjólastól um tveggja ára skeið.
Leikkona Margot Kidder á góðri stundu.
Margot Kidder
framdi sjálfsmorð