Morgunblaðið - 25.08.2018, Page 1

Morgunblaðið - 25.08.2018, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 5. Á G Ú S T 2 0 1 8 Stofnað 1913  199. tölublað  106. árgangur  VAR DRULLU- SOKKUR NÚMER EITT FRELSISROKK Á HÚRRA FULLVELDISAFMÆLIÐ ER TILEFNIÐ 45TRYGGVI BEIKON 12 Morgunblaðið/Eggert Rigning Kylfingar hafa margir hverjir þurft að þola mikla vætutíð í sumar.  Á suðvesturhorni landsins hafa minni golfklúbbar utan höfuðborg- arsvæðisins staðið í þungum rekstri í sumar. Þessi klúbbar reiða sig á sölu vallargjalda sem hefur dregist sam- an um allt að 30%. Búast má við því að rekstur margra þeirra verði röngum megin við núllið. Slæmt sumar hefur aftur á móti haft lítil sem engin áhrif á rekstur stærri klúbba á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru félagsmenn margir og sala á vallargjöldum einungis afar lítill hluti af heildarrekstrartekjum. »22 Minni golfklúbbar grátt leiknir af slæmu sumri „Landið er jafnvel dýrara en þú hafðir ímyndað þér,“ fullyrðir blaðamaður USA Today í nýlegri umfjöllun fjölmiðilsins þar sem ferðamönnum voru lagðar línurnar um ferðalag til Íslands. Þrátt fyrir fjöldann allan af lofsamlegum greinum um Ísland síðasta árið er umræðan um hátt verðlag á land- inu orðin mikil erlendis, bæði í skrifum fjölmiðla og á samfélags- miðlum. Á vinsælustu ferðasíðum heims, svo sem Tripadvisor.com, skiptast ferðamenn á góðum ráð- um um hvernig komast má í gegn- um Íslandsferð án þess að fjár- hagurinn fari úr skorðum og er það fyrst og fremst fæðiskostn- aður sem ferðamönnunum blöskr- ar. Þar skrifa margir um sjokk sem þeir fá á veitingastöðunum; einn segir sér hafa brugðið við 27.000 króna reikning fyrir hefð- bundna máltíð fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Þá eru ferðamenn hvattir til að nýta sér þau þrjú kíló af soðinni og unninni matvöru sem má taka með sér til Íslands. Um þetta og hvaða náttúruperlum ferðamenn hvetja hver annan til að missa ekki af er fjallað í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Af mest sóttu ferðamannastöðum Íslands fær Jökulsárlón bestu umsögnina á Tripadvisor.com en Þingvellir að- eins lakari umsögn sem og Bláa lónið. julia@mbl.is Dýrara en þú hélst  Aldrei jafnmikið skrifað um Ísland sem dýrt ferðamanna- land  Ferðamenn kunna best að meta Jökulsárlón Morgunblaðið/Ómar Dýrtíð Verðlagið er í brennidepli í umfjöllun erlendis um Íslandsferðir. Nokkrir smábátar voru á makrílveiðum rétt við höfnina í Keflavík í gær og var mokveiði í gær- morgun en rólegra er leið á daginn. Þegar tal- að var við Gylfa Bergmann hafnarstarfsmann um miðjan dag í gær var verið að landa úr þremur bátum og þrír biðu löndunar. „Þeir hafa síðustu daga verið að fiska vel frá höfninni út fyrir Helguvík og Leiru og út undir Garðskagaflös. Í fyrradag sá maður alls staðar vaðandi makríl,“ sagði Gylfi en um 20 bátar hafa landað í Keflavík. Makrílafli smábáta var í gær kominn yfir 2.000 tonn samtals og hafa 38 bátar landað afla, en kvóta var úthlutað til 180 báta. Herja ST er aflahæst minni báta á vertíðinni með yfir 136 tonn, en sex bátar voru í gær komnir með yfir 100 tonn. Ingvar Þór Péturs- son, skipstjóri á Herju frá Hólmavík, segir að vertíðin hafi gengið misjafnlega og makríllinn sé dyntóttur. Þeir hafi mest verið að veiðum innst í Steingrímsfirði ásamt 2-3 öðrum bátum. Mikið æti og mikið líf sé í firðinum; fiskur, fugl og hvalur. Aflinn er fluttur um Þröskulda í Búðardal þar sem hann er frystur. Bátum sem róa frá Ólafsvík hefur gengið vel á makrílnum eins og á hinum svæðunum. Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ, segir að um tugur báta hafi landað makríl í Ólafsvík. Þeir aflahæstu hafi náð að landa tvisvar á dag, allt að 20 tonnum. aij@mbl.is Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Mokveiði á makríl rétt utan við höfnina Á makríl Stutt var á miðin fyrir smábáta, sem voru á veiðum rétt utan við höfnina í Keflavík í gær. Íbúar í stórhýsunum við Pósthússtræti gátu fylgst með.  Þórdís Kol- brún R. Gylfa- dóttir ferða- mála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra hefur ákveðið að leggja af verk- efnið Átak til at- vinnusköpunar sem styrkt hefur nýsköpunarverk- efni og atvinnuskapandi framtak frá árinu 1996. Þórdís greinir frá þessu í pistli í Sunnudagsmogg- anum og segir atvinnuumhverfi gjörbreytt og verkefnið skarast á við Tækniþróunarsjóð. Fénu sé bet- ur varið til annarra verkefna. Styrkfé verði varið með öðrum hætti Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Halldór Þorgeirs- son lét af störfum sem forstöðumað- ur loftslagssamn- ings Sameinuðu þjóðanna í lok júlí. Hann er nú að koma sér fyrir á Íslandi eftir langa búsetu í Bonn. Óvenju- heitt var í Bonn þegar Morgunblaðið tók hann þar tali í byrjun mánaðarins. Halldór segir áhrifin af núverandi losun gróðurhúsalofttegunda eiga eftir að koma fram að fullu. „Við þurfum að ná því marki að heimslosunin hætti að aukast og fari að minnka. Heimslosunin er enn að aukast. Við þurfum að draga hratt úr henni vegna þess að afleiðingar veð- urfarsbreytinga ráðast mikið af því hversu langan tíma það tekur að draga úr losuninni. Gróðurhúsaloft- tegundir eru enda svo áratugum skiptir í andrúmsloftinu.“ Var aðeins upphafsskrefið „Þegar horft er á Parísarsam- komulagið í heild sinni þá er enn á brattann að sækja. Við höfum misst mikinn tíma. Framlögin sem þjóð- irnar lögðu fram áður en Parísar- samkomulagið náðist voru aðeins upphafsskrefið. Það þarf mun meira til. Þær aðgerðir sem þegar eru komnar í gang lofa góðu. Það er margt sem er að takast vel. Þetta þarf hins vegar að gerast miklu hraðar,“ segir Halldór um þessa áskorun. »20 Hlýnunin á eftir að koma fram Halldór Þorgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.