Morgunblaðið - 25.08.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
„Það hefur frekar dregið úr aðsókn
hjá okkur, almennt séð,“ segir Guð-
rún Helga Stefánsdóttir, kynningar-
og markaðsstjóri Borgarsögusafns
Reykjavíkurborgar spurð um að-
sókn ferðamanna á sýningarstaði
safnsins í sumar. Sýningarstaðir
Borgarsögusafnsins eru í Árbæjar-
safni, Landnámssýningunni í Aðal-
stræti, Ljósmyndasafni Reykjavík-
ur, Sjóminjasafni Reykjavíkur og í
Viðey. Þá hófust sögusýningar í hús-
inu við Aðalstræti 10 fyrir nokkru
síðan.
„Við gerum ráð fyrir því að það sé
annars vegar vegna breyttrar hegð-
unar ferðamanna, þeir dvelji skemur
og leyfi sér ef til vill minna vegna
þess að krónan hefur verið það sterk.
Hitt atriðið er að samkeppnin er
meiri, framboðið af afþreyingu fyrir
ferðamenn er sífellt að aukast,“ segir
Guðrún, spurð um hverjar hún telji
vera ástæðurnar fyrir minni aðsókn
en undanfarin ár.
Sýnileiki safnsins á netinu hefur
verið aukinn til þess að nálgast
ferðamenn betur og þá segir Guðrún
að huga þurfi að því að bjóða upp á
efni á fleiri tungumálum, t.d. kín-
versku. „Enskan hefur dugað ágæt-
lega til þess að ná til ferðamanna en
ég held að við verðum að fara að
huga að því hvernig við nálgumst
ferðamenn frá Asíu betur.“
Gífurleg aðsókn í Hörpu
Markaðsstjóri Hörpu, Edda H.
Austmann Harðardóttir, segir að
verið sé að taka saman aðsóknartöl-
ur sumarsins. Hún segir þó að að-
sóknin í Hörpu sé alltaf mjög mikil.
„Auk þess er almenn ánægja með að-
gengi. Við vorum með gjaldtöku á
salerni yfir hásumarið, sem ríkti sátt
með og aðkoma var alltaf hrein og
falleg,“ segir Edda í samtali við
Morgunblaðið. Hún segir að fram-
boð viðburða hafi breyst. „Við erum
að læra meira um eftirspurnina, al-
gengt er að ferðamenn vilji sækja
hádegistónleika eða koma á viðburði
í lok dagsferða. Við reynum að bjóða
upp á dagskrá á mismunandi tímum
dags,“ segir Edda.
Þúsundir daglega í heimsókn
„Það er mikill straumur, mikið af
hópum frá skemmtiferðaskipum
kemur á útsýnispallinn. Við erum að
taka á móti 2-3 þúsund manns, að
meðaltali, á dag inn í húsið,“ segir
Eva Björnsdóttir, sölustjóri Perl-
unnar, spurð um aðsókn á safnið í
húsinu og aðra aðstöðu í Perlunni í
sumar.
Þá segir Eva að gjaldtaka á útsýn-
ispall Perlunnar hafi ekki haft mikil
áhrif. „Einhver fyrirtæki hættu að
koma en þau voru ekki mörg, teljast
á fingrum annarrar handar. Íslend-
ingunum finnst þetta svolítið erfitt
en margir hverjir skilja þetta. Flest-
allir labba mjög sáttir út,“ segir Eva.
Þar sem aðgangur að útsýnispallin-
um er innifalinn í t.a.m. miða á safnið
gera flestir gestir sér ferð þangað.
Gestum Borgarsögusafnsins fækkar
Morgunblaðið/RAX
Ferðamannastaðir Landnámssetrið á Aðalstræti er vinsæll viðkomustaður
fyrir ferðamenn. Setrið er einn af sýningarstöðum Borgarsögusafnsins.
Dregið úr aðsókn á sýningarstaði Borgarsögusafns Reykjavíkurborgar Meiri samkeppni hefur
áhrif Breytt ferðamannahegðun Ánægja með sumarið í Hörpu Ferðamenn streyma í Perluna
Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13
Sími 577 1313
kistufell.com
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
Allar almennar
bílaviðgerðir
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Tjaldbúinn er fjögurra ára lundi
sem heitir Karen, og hún kann sko
sannarlega að meta tjaldið, hún fór
ekki út úr því í allan dag,“ segir Guð-
rún Ósk Jóhannesdóttir, starfs-
maður Sæheima í Vestmannaeyjum,
í samtali við Morgunblaðið, en Sæ-
heimar birtu á facebook-síðu sinni í
gær mynd af lunda sem hafði það
notalegt inni í litlu og loðnu tjaldi .
Önnur nýlunda í Sæheimum er að
þrjár lundapysjur komu í vigtun í
gær, en að sögn Guðrúnar Óskar
vissu þau af einni til viðbótar sem
ekki kom í vigtun og að lokum hafa
nokkrar til viðbótar sést úti á sjó.
Lundinn sem fór
í sjúkraþjálfun
„Karen er búin að vera hjá okkur
frá því að hún var pysja. Hún hafði
meiðst á fæti þegar hún festi hann
og gat hvorki synt né gengið og lá
bara á maganum. Pysjan var skírð
eftir bjargvætti sínum, sem heitir
Karen og er dýralæknir, en hún tók
hana í sjúkraþjálfun þannig að hún
styrktist í fætinum og getur orðið
gengið og synt, en þreytist fljótt,“
segir Guðrún Ósk.
Yfirmaðurinn á safninu hafi farið
til Reykjavíkur og keypt tjaldið, sem
var sett uppi á skrifstofu Sæheima,
en þar heldur Karen til.
„Við höfum ekki verið að sýna
hana mikið á safninu, hún er svolítið
feimin, þannig að hún heldur til hjá
okkur á skrifstofunni,“ segir Guðrún
Ósk.
Spurð hvers vegna Karen sé
svona grá í framan segir hún að það
sé vetrarbúningur lundans, en hafði
ekki skýringu á því hversvegna Kar-
en væri í vetrarlit í ágúst, ef til vill
væri tíðarfarinu sunnanlands í sum-
ar um að kenna.
Lundinn Karen
flutti inn í lítið tjald
Sæheimar vigtuðu þrjár pysjur í gær
Ljósmynd/Sæheimar
Notalegt Feimni lundinn Karen
kunni vel við sig í nýja tjaldinu.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráð-
herra segir að stöðugildum lög-
reglumanna á landinu fjölgi á næsta
ári um 45 til 50. Hún fagnar því að
fjárframlög til löggæslumála muni
aukast um 1,5 milljarða króna á
næsta ári og verði samtals 16,6
milljarðar króna, samkvæmt fjár-
lagafrumvarpi fjármálaráðherra
fyrir árið 2019.
„Það verða á
milli 45 og 50 ný
stöðugildi hjá
lögreglunni til á
næsta ári. Sum
þeirra verða
eyrnamerkt sér-
staklega, eins og
fjölgun stöðu-
gilda við landa-
mæravörslu. En
auðvitað verður
einnig haldið áfram að bregðast við
þörfinni vegna fjölda ferðamanna,“
sagði Sigríður í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Ég er í ágætu sambandi við lög-
regluembættin í landinu og hef
heimsótt þau flest. Það er ýmislegt
sem menn benda á, af ýmsum toga.
Þeir benda á að endurnýja þurfi
ýmsan búnað lögreglunnar, endur-
nýja og bæta bílakost, auk þess sem
sums staðar er rætt um þörfina á að
fá fleiri menn á vaktir,“ sagði Sigríð-
ur.
Mikil áhersla á nýliðun
Hún segir að ekki hafi öll lög-
regluembættin úti á landi getað
mannað stöður þótt fjárheimildir
hafi verið fyrir hendi og það sé mikið
áhyggjuefni. „Við leggjum mikla
áherslu á að nýliðun útskrifaðra
menntaðra lögreglumanna standi
undir þörfinni til framtíðar og höf-
um á þessu ári ráðist í sérstakt átak
í þeim efnum,“ sagði ráðherra.
Ráðherra fagnar sérstaklega
auknum fjárframlögum til lög-
gæslumála á næsta ári, sem verði
aukning um 1,5 milljarða króna og
útgjöldin fari því úr 15,1 milljarði
króna á þessu ári í 16,6 milljarða á
því næsta. „Þess mun auðvitað sjá
stað í störfum lögreglunnar þegar
framlög til hennar eru aukin um 1,5
milljarða króna á milli ára. Fyrir
löngu er tímabært að endurnýja
ýmsan búnað lögreglunnar, sem set-
ið hefur á hakanum eftir hrunið. Allt
lýtur þetta auðvitað að því að búa
betur að lögreglumönnum,“ sagði
dómsmálaráðherra.
Umræðan á villigötum?
Sigríður kveðst telja að umræðan
sem stundum hefur komið upp, um
að það sé niðurskurður í fjárfram-
lögum til lögreglunnar, sé ekki alveg
í samræmi við raunveruleikann.
Dómsmálaráðuneytið birti í fyrra-
dag súlurit sem sýnir fjárframlög til
löggæslumála á Íslandi frá 2007 til
ársins í ár og eins hver framlögin
verða á næsta ári, samkvæmt fjár-
lagafrumvarpi fjármálaráðherra
(sjá súlurit). „Hvert lögregluemb-
ætti forgangsraðar hjá sér, sam-
kvæmt því mati sem þar er talið rétt-
ast. Verkefni breytast auðvitað líka
og eru mismunandi eftir stöðum og
jafnvel innan ársins,“ sagði sigríður.
Sigríður rifjar upp að Karl Steinar
Valsson yfirlögregluþjónn hafi ný-
verið bent á að lögreglustarfið og
þjónusta lögreglu við almenning hafi
breyst mikið.
„Kröfurnar hafa breyst og nú er
gerð krafa um alls konar löggæslu,
sem við áttum alls ekki að venjast
hér á árum áður. Auðvitað er sýni-
leiki lögreglu á götunni enn mjög
mikilvægur, en kröfurnar um sýni-
leikann hafa verið að breytast að
undanförnu. Við leggjum meira upp
úr vel búnum lögreglubílum nú en
áður og fjölgun lögreglubíla,“ sagði
Sigríður.
„Aðalatriðið er það að heildar-
útgjöld til löggæslumála eru að
aukast og hafa verið að aukast, eftir
hinn mikla niðurskurð sem varð á ár-
unum 2009 til 2013,“ sagði Sigríður
Andersen dómsmálaráðherra að lok-
um.
Lögreglumönnum
fjölgi um 50 á næsta ári
Fjárframlög til löggæslu aukast um 1,5 milljarða 2019
Heildarútgjöld til löggæslumála
Milljarðar króna á verðlagi ársins 2018
Heimild:
Dómsmálaráðuneytið
16
12
8
4
0
2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
13,1 12,6
11,3 10,7 11,1 10,8 11,2
11,8
12,6
13,5
14,5 15,1
16,6
Samkvæmt ríkisreikningi Samkvæmt fjárlögum Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
Sigríður Á.
Andersen
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lögregla Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra segir að heildarútgjöld
til löggæslumála hafi verið að aukast eftir niðurskurð á árunum 2009 -’13.