Morgunblaðið - 25.08.2018, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Malcolm Turnbull, forsætisráðherra
Ástralíu, tapaði í gær formannssæti
ástralska Frjálslynda flokksins og
þar með forsætisráðherraembættinu.
Í stað hans er Scott Morrison, fyrr-
verandi fjármálaráðherra í ríkis-
stjórn Turnbull, tekinn við forsætis-
ráðuneytinu.
Morrison er meðal annars heilinn á
bak við flóttamannastefnu Ástralíu,
en í samræmi við hana hafa þúsundir
hælisleitenda verið fluttar í ríkis-
reknar flóttamannabúðir á Papúa
Nýju-Gíneu og Nárú.
Stöðug valdabarátta
Turnbull tók ekki þátt í leiðtoga-
kjörinu sem haldið var í gær eftir að
andstæðingar hans afhentu honum
tilsettan fjölda undirskrifta til að bola
honum úr formannsembættinu.
Hann hafði unnið slíkt leiðtogakjör
með naumindum gegn Peter Dutton,
aðeins fáeinum dögum fyrr. Baráttan
um formannsembættið var því milli
Duttons og Morrisons, sem vann
nauman sigur í seinni umferð kosn-
inganna með 53% atkvæða.
Turnbull er frjálslyndur í sam-
félagsmálum og miðjumaður sem
hefur sætt harðri gagnrýni af hálfu
íhaldsvængs flokksins, sem kennir
honum um dalandi gengi flokksins í
skoðanakönnunum og ósigra í auka-
kosningum. Fyrr í mánuðinum sauð
upp úr hjá þeim íhaldsmönnum sem
hafa verið óánægðir með Turnbull
þegar hann hugðist setja ný lög um
takmarkanir á losun gróðurhúsaloft-
tegunda sem andstæðingar hans
töldu að myndu hafa slæm áhrif á
ástralska efnahaginn. Turnbull dró
frumvarpið til baka en tókst þó ekki
að sefa flokkssystkini sín.
Hann hafði sagst ætla að hætta á
þingi ef honum yrði bolað úr embætti.
Verði af því gæti það leitt til falls allr-
ar ríkisstjórnarinnar, sem hefur að-
eins eins manns meirihluta á ástr-
alska þinginu.
Flokksuppreisnir á borð við þessa
eru nokkuð algengar í áströlskum
stjórnmálum. Turnbull komst sjálfur
til valda í svipaðri uppreisn gegn for-
vera sínum, harðlínuíhaldsmanninum
Tony Abbott, árið 2015. Morrison er
fjórði forsætisráðherra landsins á
fimm árum og síðustu fjórir forverar
hans (Turnbull, Abbott, Kevin Rudd
og Julia Gillard) misstu öll stuðning
flokksmanna sinna á þennan hátt.
Turnbull velt úr sessi
Scott Morrison er fjórði forsætisráðherrann í Ástralíu á fimm árum
Uppreisn íhaldsmanna gegn frjálslynda miðjumanninum Malcolm Turnbull
AFP
Ástralar Scott Morrison (til vinstri), nýr forsætisráðherra Ástralíu, tekur í
hönd Peters Cosgrove, landstjóra Ástralíu, eftir að hafa svarið embættiseið.
Fjórir létust og
20 særðust í
Finnlandi í gær
þegar rúta rakst
á fimm bíla,
steyptist af brú
og skall á lestar-
teina fyrir neðan.
Slysið gerðist í
bænum Kuopio í
miðhluta Finn-
lands. Bílstjórinn
komst lífs af og greindi lögreglunni
frá því að bremsan hefði bilað og
hann þannig misst stjórn á rútunni.
Þrír farþeganna létust á staðnum og
einn til viðbótar á meðan verið var
að flytja hina særðu á háskóla-
sjúkrahús Kuopio.
Samkvæmt finnska fréttamiðl-
inum Yle voru farþegar rútunnar um
20 talsins og voru þeir flestir finnsk-
ir lífeyrisþegar búsettir í Svíþjóð.
Rútan var á leiðinni til Rauhalahti-
hótelsins.
Sauli Niinistö,forseti Finnlands,
og Juha Sipilä forsætisráðherra
vottuðu ættingjum hinna látnu sam-
úð sína.
Fjórir látn-
ir í slysi í
Finnlandi
Rúta keyrði fram
af brú í Kuopio
Slys ́Brúin sem
rútan ók fram af.
Stjórnlagadóm-
stóll Simbabve
hefur staðfest
lögmæti forseta-
kosninganna sem
haldnar voru í lok
júlí og sigur Em-
mersons Mnan-
gagwa forseta.
Allir níu dóm-
ararnir komust
að þeirri niður-
stöðu að Nelson
Chamisa, frambjóðanda stjórn-
arandstöðunnar í kosningunum,
hefði ekki tekist að sanna að Mnan-
gagwa hefði haft rangt við. Forset-
inn kallaði eftir sátt á Twitter-síðu
sinni eftir að dómurinn var kveðinn
upp: „Nelson Chamisa, dyr mínar
eru opnar og faðmur minn opinn, við
erum ein þjóð og við verðum að láta
þjóðina ganga fyrir. Leggjum nú öll
deilumál okkar til hliðar.“
Kosningarnar fóru friðsamlega
fram en ofbeldi braust út eftir að
þeim lauk og lögreglan felldi sex í
mótmælum þegar tilkynning um úr-
slit dróst á langinn.
Staðfesta
kosningu
Mnangagwa
Emmerson
Mnangagwa
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Ríkisstjórn Spánar samþykkti í gær
tilskipun þess efnis að líkamsleifar
einræðisherrans Franciscos Francos
yrðu grafnar upp og fjarlægðar úr
grafhýsinu sem stendur honum til
heiðurs í Dal hinna föllnu, fimmtíu
kílómetra frá Madríd.
„Við erum að fagna fjörutíu árum
lýðræðis á Spáni; stöðugri og þrosk-
aðri stjórnarskrárbundinni reglusemi
... og þetta samræmist því ekki að
halda uppi grafarminnismerki þar
sem við vegsömum enn Franco,“
sagði varaforsætisráðherrann, Car-
men Calvo, á blaðamannafundi eftir
að tilskipunin var samþykkt á ríkis-
stjórnarfundi.
„Sem staðfast evrópskt lýðræð-
isríki getur Spánn ekki leyft tákn-
merki sem sundra Spánverjum,“
sagði Pedro Sánchez forsætisráð-
herra um málið. Hann hefur gert það
að forgangsmáli að fjarlægja líkams-
leifar Francos úr Dal hinna föllnu síð-
an hann komst til valda og vill að
minnismerkinu þar verði breytt í stað
„sáttar og minninga“. Hefur hann
jafnframt lagt áherslu á að „óhugs-
andi“ væri fyrir önnur fyrrverandi
einræðisríki í Evrópu að halda uppi
fasískum minnismerkjum.
Þingið á eftir að staðfesta tilskipun
ríkisstjórnarinnar en búist er við því
að hún hljóti samþykki. Tilskipunin
nýtur stuðnings Sósíalistaflokks
Sánchez, vinstriflokksins Podemos og
basknesku og katalónsku þjóðern-
isflokkanna. Andstæðingar frum-
varpsins telja ríkisstjórnina vera að
„opna gömul sár“ með því að grafa
upp líkið.
Bein Francos fjarlægð
Ríkisstjórn Spánar samþykkir tilskipun um að fjarlægja
líkamsleifar Franciscos Francos úr grafarminnismerki
AFP
Spánn Grafarminnismerki Francos
í Dal hinna föllnu, stutt frá Madríd.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Luigi Di Maio, ráðherra efnahags-
mála og aðstoðarforsætisráðherra
Ítalíu, hefur hótað því að minnka
fjárframlög Ítalíu í sjóði Evrópu-
sambandsins ef það fellst ekki á að
taka við 150 flóttamönnum sem
eru í skipi undan ströndum Ítalíu
og hafa ekki fengið að koma í land.
Flóttamennirnir, sem flestir eru
frá Erítreu, hafa beðið um borð í
skipinu Diciotti í fimm daga við
höfn borgarinnar Cataniu í sikil-
eyska héraðinu Agrigento. Skipið
bjargaði flóttamönnunum úr báti
sem var á reki á Miðjarðarhafinu
fyrir tíu dögum en Matteo Salvini,
innanríkisráðherra Ítalíu, segir að
fólkið fái ekki að stíga á land fyrr
en önnur lönd Evrópusambandsins
fallist á að taka við því.
Fólkið í mótmælasvelti
Þar sem flóttafólkinu er haldið
um borð í skipinu á ábyrgð ítölsku
ríkisstjórnarinnar hefur málið vak-
ið deilur um hvort Salvini hafi með
ákvörðun sinni í raun handtekið
fólkið og hneppt það í varðhald án
dóms og laga. Davide Faraibe, lög-
fræðingur úr ítalska Demókrata-
flokknum sem er í stjórnarand-
stöðu, hefur farið um borð í skipið
og segir að flóttafólkið hafi nú haf-
ið mótmælasvelti.
Ríkissaksóknari Agrigento-hér-
aðs, Luigi Patronaggio, hefur
einnig farið um borð og hóf í gær
rannsókn á því hvort flóttafólkinu
væri haldið föngnu á ólöglegan
hátt. Salvini sagði það vera starf
sitt að vernda landamæri Ítalíu.
„Ef einhverjir eru að hugsa um að
handtaka mig eru þeir á villigötum
því ítalska þjóðin biður um að
haldið sé uppi lögum og reglu og
höfð sé stjórn á innflutningi fólks,“
sagði Salvini.
Salvini er formaður Norður-
bandalagsins, hægriflokks sem sit-
ur nú í ríkisstjórn Ítalíu ásamt
Fimmstjörnuhreyfingunni. Di
Maio, formaður Fimmstjörnu-
hreyfingarinnar, skrifaði á
Facebook-síðu sinni um málið á
fimmtudaginn var að Ítalir hefðu
séð á síðustu mánuðum hverju það
skilaði að sýna Evrópusambandinu
linku og hverju það skilaði að
ganga hart fram.
„Ef ekkert kemur út úr fundi
framkvæmdastjórnar ESB á
morgun [í gær], ef þeir ákveða að
gera ekkert varðandi Diciotti og
dreifingu á flóttamönnunum, þá
verðum við í Fimmstjörnuhreyf-
ingunni ekki lengur reiðubúin til
að greiða 20 milljarða evra til Evr-
ópusambandsins á hverju ári,“
skrifaði Di Maio.
„Evrópusambandið verður að
skilja að ítalska ríkisstjórnin er
orðin gröm,“ sagði Salvini í viðtali
við ítalska dagblaðið Corriere
Della Sera. „Við höfum fengið nóg
af orðagjálfri og litlum árangri.“
Tölur frá ráðuneyti Salvinis
sjálfs sýna að komum flóttamanna
til Ítalíu hefur fækkað verulega
frá því í fyrra, um áttatíu prósent.
Hóta ESB vegna flóttamanna
Aðstoðarforsætisráðherra Ítalíu segir stjórn landsins hafa fengið nóg af „orða-
gjálfri ESB“ Rannsakað hvort flóttafólki sé haldið föngnu án dóms og laga
AFP
Ítalía Flóttamenn á þilfari skipsins Diciotti við höfn Cataniu á Sikiley. Fólk-
inu hefur verið haldið á skipinu í fimm daga að undirlagi ríkisstjórnarinnar.
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is