Morgunblaðið - 25.08.2018, Side 24

Morgunblaðið - 25.08.2018, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Úrræðaleysiog biðlist-ar blasa við alzheim- ersjúklingum og aðstandendum þeirra. Eftir því sem þjóðin verður eldri fjölgar tilfellunum, en lítið fer fyrir áætlunum um hvernig brugðist skuli við. Í Morgunblaðinu í fyrradag var fjallað um þá hlið vandans sem snýr að dagþjálfun fyrir heilabilaða. Á höfuðborgar- svæðinu eru 168 pláss í boði. 179 einstaklingar með heilabil- unarsjúkdóma eru á biðlista eftir dagþjálfun og hefur fjöld- inn farið upp í 200. Það er ljóst að það getur létt verulega undir með aðstand- endum fái sjúklingur pláss í dagþjálfun. Það er því furðu- legt að lesa að heilbrigðisráðu- neytið skuli þrátt fyrir langan biðlista hafa synjað beiðni Alz- heimersamtakanna um rekst- ur á 30 plássum. Í viðtali í Morgunblaðinu í fyrradag við Vilborgu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra samtak- anna, kemur fram að samtökin hafi verið tilbúin að sjá um rekstur þessara plássa og komin í samstarf við bæjaryf- irvöld í Garðabæ þegar beiðn- inni var hafnað. Eins og fram kemur í viðtal- inu reka samtökin þrjár sér- hæfðar dagþjálfanir á höf- uðborgarsvæðinu og getur biðlisti til að komast þar að verið allt að tólf til fimmtán mánuðir. Biðlistarnir eftir plássi segja ekki alla söguna um þörfina eins og fram kemur í frásögn Vilborgar: „Það sem er svo sorglegt er það að fæst- ir fara strax til læknis þegar grunur vaknar um heilabil- unarsjúkdóm. Það gerir að verkum að ástandið er komið á alvarlegt stig þegar það skref er loksins tekið. Þá hefst bið eftir tíma á Minnismóttökunni til þess að komast í greiningu en hún þarf að liggja fyrir til að fólk með heilabilunarsjúk- dóma eigi rétt á einhverju úr- ræði. Þegar greiningin liggur fyrir tekur aftur við bið eftir að komast í dagþjálfun, sem getur orðið löng.“ Vilborg lýsir því að oft sé um að ræða fullorðið fólk með fullorðinn maka, sem sé þá kominn í umönnunarhlutverk allan sólarhringinn, og geti ástandið orðið erfitt. „Við heyrum margar frásagnir fólks sem er gjörsamlega upp- gefið,“ segir Vilborg. „Þá er þetta ekki sterkur þrýstihópur því baráttuþrekið er lítið sem ekkert.“ Þessari lýsingu svipar mjög til frásagnar Steinunnar Þórð- ardóttur, lyf- og öldrunar- læknis, í viðtali við Sunnu- dagsblað Morgunblaðsins í mars. „Það slær mann hversu lítinn stuðning kerfið býður fólki, það er óhóflega löng bið í öll úrræði og margir aðstand- endur eru búnir á sál og lík- ama þegar þeir fá loksins að- stoð,“ sagði Steinunn í viðtalinu. „Ég hef séð allt of marga brotna algjörlega niður og gráta vegna aðstæðnanna sem þeir eru í.“ Heilabilunarsjúkdómar eru erfiðir við að eiga og stuðn- ingur mikilvægur. Sjúkdóm- urinn er nógu erfiður þótt ekki bætist við barátta um að fá viðunandi umönnun. Ástandið í þessum málum er ekki boð- legt. Átak þarf í mál- efnum heilabilaðra}Úrræðaleysi og biðlistar Það er dýrt aðbúa á Íslandi og teljast ekki ný sannindi. Þetta vita Íslendingar og hefur heldur ekki farið fram hjá útlendingum. Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins er fjallað um þá umræðu sem fram fer á netinu um ferðaþjónustu á Ís- landi. Það er sú umræða sem ferðamenn eru líklegir til að skoða áður en þeir ákveða hvert skal haldið. Náttúruperlur landsins vekja eftir sem áður hrifn- ingu ferðamanna en öðru máli gegnir um verðlagið. Ferða- menn eru hvattir til að hafa með sér mat og fylgja jafnvel rækilegar ráðleggingar um hvernig megi spara. Heyrist jafnvel það viðhorf að Ísland sé að verðleggja sig út af ferða- mannamark- aðnum. Margar ástæð- ur eru fyrir því að dýrt er að vera á Íslandi. Flug krónunnar er sýnu hærra nú en þegar lágt gengi hennar átti þátt í að ferðamannastraumurinn til Íslands braust fram beljandi fyrir tæpum áratug. Þá eru aðföng dýrari á Íslandi en víð- ast hvar annars staðar af aug- ljósum ástæðum. Þá er kaup hátt og borga þarf af lánum til fjárfestinga. Við verðlagningu þarf þó að hafa í huga að ekki er tjaldað til einnar nætur. Það er ekki gott ef sársaukinn í buddunni er orðinn svo mikill að bragð- ið finnst ekki af matnum. Náttúruperlur vekja hrifningu ferða- manna en öðru gegnir um verðlagið} Dýrtíð F yrir skömmu var hér á landi utan- ríkisráðherra Noregs, Ine Er- iksen Söreide. Ine er afar skel- eggur og hreinskiptinn stjórnmálamaður sem gaman var að kynnast er hún var í embætti varn- armálaráðherra Noregs. Fjölmiðlar fluttu skemmtilegar fréttir af ut- anríkisráðherrum Íslands og Noregs að rann- saka borgfirskt hey, en eins og flestir vita þá ætla íslenskir bændur að bjarga starfs- bræðrum sínum í Noregi um hey. Fullyrða má að rannsókn ráðherranna á „tuggunni“ í Borgarfirði hafi ekki verið ástæða ferðar norska ráðherrans til Íslands, líklegra er að heyið hafi verið í aukahlutverki en komið betur út á mynd en orkupakkinn frá Evrópusambandinu. Ráðherrann norski kom augljóslega til Íslands til að hafa áhrif á framgang orkupakkans hjá ríkisstjórn og al- þingi. Fundaði ráðherrann ásamt fylgdarliði m.a. með tveimur nefndum alþingis og brýndi þar fyrir þingmönn- um mikilvægi þess fyrir Noreg að pakki þessi yrði sam- þykktur af öllum EES-ríkjunum þremur. Nú vitum við ekkert hvað ríkisstjórnin ætlar að gera við orkupakkann og aldrei þessu vant þá heyrist ekki múkk í utanríkisráðherra Íslands. Þögn er sama og sam- þykki, sagði einhver. Á Noregi og Íslandi er nokkur munur er kemur að orku og Evrópusambandinu. Ísland er ekki tengt Evr- ópska orkumarkaðinum en Noregur er það og er Evr- ópusambandið gríðarlega háð gasi og olíu frá Noregi auk þess sem rafmagn er flutt yfir á meginlandið. Það er því alveg óþarfi af norska ráðherranum að gera sér ferð yfir hafið til að þrýsta á Íslendinga. Hér heima erum við farin að heyra sönginn um að það sé ekkert í þessum pakka sem hef- ur áhrif á Íslandi. Fínt, þá hljótum við að fá undanþágu frá orkupakkanum. Nú hafa verið innleiddir tveir orkupakkar á Íslandi. Sá sem innleiddur var síðast var slæmur og hafði þau áhrif að heimilin hafa þurft að greiða meira fyrir orkunotkun frá upptöku hans enda gerði „pakkinn“ lítið ann- að en að auka kostnað. Hvað verða orkupakk- arnir margir? Hvernig verður nr. 4 og 5 ? Veit einhver hvað verður í þeim? Er hægt að kíkja í pakkann? Það getur verið að Norðmenn líti svo á að það séu þeirra hagsmunir að innleiða „pakk- ann“. Kannski fara hagsmunir Íslendinga ekki saman með hagsmunum Norðmanna. Ákvörðun um framhaldið verður því að byggjast á hagsmunamati fyrir Ísland en ekki fyrir Noreg. Ég man ekki til þess að norskir stjórnmálamenn hafi sérstaklega gætt hags- muna Íslands í samskiptum við Evrópusambandið. Það kann að vera misminni. Það er sjálfsagt að hjálpa frændum okkar í neyð líkt og bændur gera nú með heysölunni. Norðmenn þurfa þó enga hjálp frá Íslendingum við að selja Evrópusamband- inu gas, olíu og rafmagn því fyrir nokkrum misserum átt- aði einhver snillingurinn sig á því að Evrópusambandið var orðið háð rússneskri orku. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Þriðji orkupakkinn og hey Höfundur er alþingismaður suðvestur kjördæmis og varafor- maður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Geir Gígja, sölu- og markaðs-stjóri Hótel Cabin, HótelKletts og Hótel Arkar, seg-ir mikla óvissu í ferðaþjón- ustunni. Verulegar breytingar hafi orðið í eftirspurn hjá hótelum. Haft var eftir Ólafi Torfasyni, stjórnarformanni Íslandshótela, í Morgunblaðinu í gær að reksturinn í sumar hefði verið umfram spár. Þá væri haustið farið að líta vel út. Geir Gígja segir sumarið hafa gengið ágætlega á Hótel Cabin, Hótel Kletti og Hótel Örk. „Óvissan er enn mikil. Það eru enn að berast afbókanir á stóra hópa. Evrópumarkaður er að breytast mikið. Hóparnir þaðan eru að minnka. Ísland virðist vera of dýr áfangastaður fyrir marga á þeim markaði, sérstaklega hópferðir. Breytingin á genginu er helsti áhrifavaldurinn. Verðlistahækk- anir hjá okkur á síðustu árum eru inn- an við hækkun launavísitölu. Við erum að halda okkur í takt við það. Ef ég reikna verðið í evrum erum við hins vegar að tala um 80-90 prósent verð- listahækkanir frá árinu 2013,“ segir Geir um verðbreytingarnar. Úr 161 krónu í 125 krónur Til upprifjunar var miðgengi evru 161 króna 24. ágúst 2013 en var 125,35 krónur í gær, 24. ágúst 2018. Við það bætast launahækkanir á Ís- landi sem hafa verið mun meiri en í helstu viðskiptalöndum. Geir segir gengisþróunina fyrst og fremst hafa áhrif á eftirspurnina frá Evrópu. Þótt ferðamönnum frá Bandaríkjunum og Asíu sé vissulega að fjölga sé neyslumynstur þeirra annað. Þeir dvelji skemur og ferðist minna um landið en Evrópumenn. „Það er mikil óvissa um vetur- inn. Þótt bókunarstaðan líti ágæt- lega út í vetur er mjög óvíst hver út- koman verður. Ferðaskrifstofur eru búnar að taka frá vissan fjölda her- bergja í von um að selja þau. Síðan kemur í ljós 4-8 vikum fyrir dagsetn- inguna hvort þeim tekst að selja gistinguna eða ekki. Það er ekkert gefið í því,“ segir Geir sem telur þessa óvissu munu draga úr upp- byggingu hótela á næstunni. Hreiðar Hermannsson, forstjóri Stracta hótels, segir útlit fyrir að salan í ár verði 3-4% undir áætlunum. Það sé þó í krónum talið mesta sala frá upp- hafi hjá hótelinu. Alls eru 150 herbergi á Stracta hótelinu í nágrenni Hellu. Hótelið var opnað 2014 og er útlit fyrir að nettósala verði 800 milljónir í ár. Besti ágúst frá upphafi Hreiðar segir söluna í apríl og maí hafa valdið vonbrigðum. Hins veg- ar hefði salan í júlí og ágúst verið betri en horfur voru á. Ágústmánuður sé besti mánuður frá upphafi. „Við erum mjög kátir. Haustið framundan lítur vel út. HM í knatt- spyrnu (14. júní til 15. júlí) virðist hafa haft heilmikil áhrif, því það afbókaðist mikið í maí til júlí. Það fór svo að ganga til baka. Mótið virðist hafa haft heilmikil áhrif. Við höfum aldrei fengið svo margar afbókanir.“ Hann segir miklu muna fyrir reksturinn hvort evran kosti 125 eða 130 krónur. Þegar selt sé fyrir 1 millj- ón evra muni 5 milljónum í krónum. „Evran þyrfti að vera í 135-137 kr. svo við værum á pari við norsku krónuna. Við erum að slást um sömu gestina.“ Páll L. Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri Keahótela, segir nýt- inguna á herbergjum félagsins í sumar svipaða og í fyrrasumar. „Nýtingin var örlítið lakari fyrri part sumars. Hún var hins vegar betri síðari hluta sumarsins. Bókunarstaðan í haust og að áramótum er á sama róli og á sama tíma í fyrra.“ Páll segir meðalverð á nótt hafa lækkað milli ára. Útlit sé fyrir sam- drátt í tekjum Keahótela milli ára. Það skýrist m.a. af gengisbreytingum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Horft frá Hörpu Lúxushótel er að rísa við Austurhöfn í Reykjavík. Gjaldskráin hækkað um 80-90% í evrum Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík, segir sum- arið hafa verið annasamt. „Það hefur gengið mjög vel í sumar og alveg áber- andi vel á Diamond Suites en það hefur verið stanslaus ásókn og allar svíturnar nær fullbókaðar. Þörfin fyrir fimm stjörnu gistingu er ein- faldlega að aukast hratt.“ Steinþór segir að þótt árið líti nú vel út megi ekki gleyma því að „stór skellur varð í apríl og maí sem kom á óvart“. Hann segir eftirspurnina að breytast. Þjóðerni gesta, lengd dvalar og aðrar áherslur séu að breytast. „Það er áberandi að við fáum fleiri Bandaríkjamenn en Evrópumenn. Vel borg- andi kúnnar koma með mjög skömmum fyrirvara, allt nið- ur í viku fyrirvara,“ segir Steinþór. Hann segir að vegna skemmri fyrirvara sé erfitt að spá fyrir um síðasta fjórðung ársins. Í heild sé hann þó bjartsýnn. Mikil ásókn í lúxusinn HÓTEL KEFLAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.