Morgunblaðið - 25.08.2018, Page 27

Morgunblaðið - 25.08.2018, Page 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Með þér í liði Alfreð Finnbogason Landsliðsmaðu attspyrnu „Tækifærið er núna.“ r í kn Registered trademark licensed by Bioiberica Vignir Vatnar er í 2.-5. sæti áEvrópumóti ungmenna íflokki keppenda 16 ára ogyngri. Eftir sigur í fyrstu þremur skákum sínu gerði Vignir jafntefli við Rússann Salemgarev í fjórðu umferð sem fram fór á fimmtudaginn og var þá í 2.-7. sæti með 3½ vinning. Mótið fer fram í Riga í Lettlandi og keppendur Ís- lands eru fimm talsins, þar af tvær stúlkur. Reynslan er mikilvæg á þessum vettvangi sem sést best á því að Vignir Vatnar tefldi á EM ung- menna í fyrsta sinn árið 2011, þá átta ára gamall, Gunnar Erik, sem teflir í flokki 12 ára og yngri og er með tvo vinninga af fjórum, var með í fyrra en nýliðarnir, Arnar Milutin í flokki 16 ára og yngri og Anna Katarina Thoroddsen og Soffía Berndsen, sem tefla í flokki stúlkna 10 ára og yngri, hafa aldrei verið með í svo sterku unglingamóti. Fimm efstir í St. Louis Það er ekki mikill gáski yfir tafl- mennsku fremstu skákmanna heims á „ofurskákmótinu“ í St. Louis í Missouriríki Bandaríkjunum. Þegar tefldar hafa verið fimm umferðir af níu er jafnteflishlutfallið 80%, fimm keppendur eru með þrjá vinninga en það eru auk heimsmeistarans Magn- úsar Carlsen þeir Caruana, Aronjan, Mamedyarov og Grischuk. Magnús lagði Karjakin í annarri umferð í 88 leikjum en hefur gert jafntefli í öðrum skákum. Skák ársins 2018 var tefld í Sánkti Pétursborg Glæsileg tilþrif komu úr annarri átt í vikunni eins og Ingvar Þ. Jó- hannesson fjallaði um á nýrri og glæsilegri heimasíðu skákhreyfing- arinnar. Í Sánkti Pétursborg luku keppni á sterku opnu minningarmóti um Viktor Kortsnoj þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson. Hannes fékk sex vinn- inga af níu og varð í 33. sæti af 268 keppendum og Guðmundur hlaut 5½ vinning og endaði í 55. sæti. Hvít- Rússinn Kirill Stupak sigraði með átta vinninga af níu. Viðureign sem tefld var í sjöttu umferð hefur lyft þessu móti á hærra plan og margir eru þegar farnir að kalla hana „skák ársins 2018“: David Paravjan – Savelí Golubov Petroffs-vörn 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Bd6 7. 0-0 0-0 8. c4 c6 9. Db3!? Þekkt afbrigði af Petroffs-vörn þar sem algengara er að leika 9. cxd5, 9. Dc2 eða 9. He1. 9. … dxc4 10. Bxc4 Rd7 11. He1 Rdf6 12. Rbd2 Rxd2 13. Bxd2 Db6 14. Dd3 Dxb2 15. Hab1 Da3 16. Dc2 Rd5? Hinn stóri afleikur svarts í skák- inni, staðan er vel teflanleg eftir 16. … b5. 17. Hb3 Da4 18. Bxd5 cxd5 19. Rg5 g6 20. Rxh7! Eins og svo oft byggist þessi mannsfórn á valdleysi en meira býr undir, 24. … Kxh7 er vitanlega svar- að með 25. Hh3+ og drottningin fell- ur. 20. … Bf5 21. Rf6+ Kg7 22. Bh6+! Sama þema og áður, 22. … Kxh6 er svarað með 23. Hh3+ og drottn- ingin fellur. Þetta var þó besti kostur svarts því að eftir 23. … Bxh3 24. Dxa4 Be6 er enn hægt að berjast. 22. … Kxf6? 23. g4! Frábær leikur. Drottningin er of stór biti að kyngja, 23. … Bxc2 24. Hf3+ Bf5 25. g5 mát. 23. … Bf4 !? Skemmtilegur varnarleikur en dugar skammt. 24. Dc7! Kynngimagnaður leikur, 24. … Bxc7 er svarað með 25. g5 mát! 24. … Bxh6 25. De5+ Kg5 26. h4+! Kxh4 27. Hh3+! Kg5 28. De7+! Lokahnykkurinn kallar fram línu- rof, svartur gafst upp því að 28. … f6 er svarað með 29. De3+ Kxg5 30. Dg3 mát. Í toppbaráttunni á EM 16 ára og yngri Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Vignir Vatnar Stefánsson við upphaf skákar sinnar í fjórðu umferð. Allt um sjávarútveg Ég er einstaklingur sem hefur lifað góðu lífi, á góða fjölskyldu og hef haft ánægju af hverju því sem ég hef tekið mér fyrir hend- ur, bæði í starfi og einkalífi. Heilsan hef- ur yfirleitt verið góð. En slíkt er ekki sjálf- gefið og dag nokkurn fór ég að finna fyrir sárum verkjum. Ég fór því til læknis þegar ég gerði mér grein fyrir því að verkirnir voru verri en eðlilegt mátti teljast. Í ljós kom að það var eitt- hvað að mér í mjöðminni og ég var hvattur til þess að taka mér frí frá vinnu sem ég átti afar erfitt með að hlýða. Loks uppgötvaðist að um beindrep var að ræða, svokallað fest- armein. Það er alltaf viss áfangi að vita hvað amar að manni. Vondu fréttirnar voru þær að ég átti ekki von á því að komast í skoðun hjá bæklunarlækni fyrr en í september, því langir biðlistar eru hjá bækl- unarlæknum spítalanna. Með hjálp guðs og góðra manna komst ég þó loks í skoðun á Landspítalanum eftir nokkra kvalafulla mánuði og var þar með kominn á biðlista í mjaðmaliðs- skipti, læknirinn sagði að ég mætti eiga von á að bíða í að minnsta kosti sjö mánuði í viðbót, þá mætti ég hringja og athuga málið. Ekki góðar fréttir það. Ég er þrjóskur og þrautseigur að upplagi og var mér bent á að Klínik- in í Ármúla gerði aðgerðir sem þess- ar. Gallinn væri bara sá að þeir væru ekki með samning við Sjúkratrygg- ingar Íslands þar sem um einkafyr- irtæki væri að ræða og aðgerðin kostaði kr. 1.200.000. Hvað leggur maður ekki á sig til þess að geta orð- ið nýtur þjóðfélagsþegn á ný? Yfir- læknirinn á Klínikinni, Hjálmar Þor- steinsson, benti mér þá á ákvæði í EB-reglugerð (EB nr. 883/2004). Hægt væri að fá slíka aðgerð gerða á EES- svæðinu og Sjúkra- tryggingar Íslands myndu sennilega greiða fyrir. Umsókn var skrifuð og einnig óskað eftir að aðgerðin yrði gerð hjá Klínikinni í Ár- múla. Því var hafnað en hins vegar var sam- þykkt að aðgerðin yrði gerð á einkasjúkrahúsi í Halmstad í Svíþjóð. Allt gekk þetta eftir og bara vitneskjan um það að komast í aðgerð hafði að vonum jákvæð áhrif á sálarlíf mitt og ég sá fram á betri daga. Í síðustu viku var aðgerðin gerð í Svíþjóð. Þjónustan á sjúkra- húsinu var til mikillar fyrirmyndar, alúðleg og fagleg. Það er engin skemmtiferð að þurfa að fara langa leið til þess að fara í aðgerð og reyn- ir verulega á þjakaðan sjúkling. Slík ferð krefst skipulags, mikils und- irbúnings, góðs aðstoðarmanns, tungumálakunnáttu o.fl. Kostnaður vegna þessa er þar að auki u.þ.b. þrisvar sinnum meiri en ef aðgerðin hefði verið gerð á einkasjúkrahúsi á Íslandi. Þótt ég sé afar þakklátur fyrir að hafa átt þess kost að komast í að- gerðina hafa auðvitað vaknað hjá mér margar spurningar. Er eðli- legra að skipta við einkasjúkrahús á EES-svæðinu en á Íslandi? Við vor- um þarna þrír Íslendingar á sama tíma. Sex til viðbótar hefðu getað fengið sams konar aðgerð á Íslandi ef samningar væru í gildi, t.d. við Klínikina, fyrir sambærilegan kostn- að. Biðlistar í aðgerð sem þessa eiga að heyra sögunni til. Afleiðingarnar eru nánast óbærilegar fyrir sjúk- lingana og kostnaðurinn sem hlýst af örorku- og sjúkrabótum hefur senni- lega ekki verið metinn. Fyrir nú ut- an öll verkjalyfin sem sjúklingar þurfa að bryðja meðan á bið stendur. Ekki bæta þau heilsuna og geta haft varanlegar afleiðingar fyrir marga. Sumir þurfa að fara á örorkubætur meðan beðið er eftir aðgerð og verða á meðan óvirkir þjóðfélagsþegnar. Ein af röksemdum þess að gera ekki samninga við stofnanir eins og Klín- ikina er sú að heilbrigðiskerfið megi ekki vera tvöfalt og enginn má „græða“ á heilbrigðiskerfinu. Mér vitanlega hafa eigendur áðurnefnds fyrirtækis aldrei tekið arð út úr því. Margir læknar framkvæma smærri aðgerðir á eigin stofum og hafa gert um langt skeið. Miðað við EB- reglugerðina er kerfið ekki tvöfalt, heldur þrefalt. Tilgangur þessara skrifa minna er ekki að gagnrýna heilbrigðiskerfið, ég hef oft notið góðs af því. Ég vil að- eins benda á að á meðan til er mann- skapur, kunnátta, tæki og tól til að gera aðgerðir hér á landi á að vera óþarfi að leggja það á sjúklinga að ferðast um langan veg til að fá bót meina sinna. Fólk sem hefur alla tíð greitt sína skatta hér á landi á held- ur ekki að þurfa að greiða aðgerðir úr eigin vasa, þótt margir geri slíkt. Það er eitthvað bogið við það að heil- brigðisráðherra og stjórnvöld skuli ekki hlusta á nein rök í þessu sam- bandi. Það væri óskandi að stjórn- völd gætu sett sig örlítið í spor þeirra fjölmörgu sem þurfa að líða óþarfa þjáningar mánuðum saman þegar hægt er að leysa málið með góðum vilja og á ódýrari máta en gert er í dag. Ég hvet ráðherrann til að finna leið til þess. Eftir Ísólf Gylfa Pálmason Ísólfur Gylfi Pálmason »Hér á landi er allt til alls fyrir aðgerðir og því er óþarfi að leggja það á sjúklinga að fara um langan veg til að fá bót meina sinna. Höfundur er fv. alþingismaður. isolfurgp@gmail.com Dýrara og erfiðara – er það betra fyrir sjúklinga?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.