Morgunblaðið - 25.08.2018, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 25.08.2018, Qupperneq 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Elsku besta amma. Við kveðjum þig með söknuð í hjarta. Það er ekki auðvelt að koma orðum að því hvað þú varst mikilvæg í okkar lífi. Þó að við byggjum aldrei í sama landi varst þú alltaf hjá okkur á einhvern hátt, við fund- um fyrir nálægð þinni. Þú taldir það ekki eftir þér að ferðast heimsálfanna á milli vel fram á áttræðisaldur til þess að heim- sækja okkur og til þess að vita hvar við værum svo að þú gætir staðsett okkur í huganum. Við vissum að þú hugsaðir alltaf til okkar, baðst fyrir okkur og send- ir alla englana þína yfir hafið þeg- ar eitthvað bjátaði á. Við trúðum á englana þína og hjálp þeirra. Nú ert þú þeirra á meðal. Þegar við heimsóttum þig á Ís- landi gerðir þú allt sem þú gast til þess að gera okkur dvölina sem besta og skemmtilegasta og láta okkur líða vel. Þú bjóst um okkur heima hjá þér svo að við gætum öll verið saman þótt þröngt væri, og varst óþreytandi að útbúa það sem okkur langaði mest í, hvort sem það var gómsætur grjóna- grautur eða nýbakaðar pönnu- kökur. Þú gafst okkur kærleika og ást, sýndir alltaf skilning og endalausa þolinmæði. Það var spennandi að draga kærleik- skortin þín og lesa fallegu skila- boðin sem okkur fannst alltaf passa vel við. Við lærðum af þeim án þess að gera okkur grein fyrir því. Þegar við vorum yngri lastu fyrir okkur á íslensku á kvöldin og fórst með faðirvorið fyrir svefninn. Þú miðlaðir til okkar ró, það var gott að vera hjá þér. Elsku amma, við erum þér óendanlega þakklát fyrir allt. Við söknum þín. Eva Marín, Óskar og Antonio Karl. Þorbjörg L. Marinósdóttir ✝ Þorbjörg Lax-dal Marinós- dóttir fæddist 7. apríl 1935. Hún lést 3. ágúst 2018. Útför Þor- bjargar fór fram 17. ágúst 2018. Sumt fólk heldur stöðu sinni gagnvart manni alla ævi; Þor- björg var alla tíð stóra systir okkar bræðra. Hún var elsta barn foreldra sinna og tók snemma ábyrgð, fyrst á systur okkar sem var þrem árum yngri en hún og síð- an á okkur bræðr- unum, sem vorum níu árum yngri. Mamma sagði okkur síðar hvernig Þorbjörg hefði þurft, 10 eða 11 ára gömul, að dragast með okkur tvíburabræður sína í kerru um Akureyrarbæ hvort sem henni líkaði það betur eða verr. Þetta var byrjunin á nánu sam- bandi okkar við stóru systur og okkur var ávallt mikilvægt að vita að hún væri á okkar bandi. Og þótt hún væri vitaskuld ekki ein um að sinna okkur fannst okkur hún oft og tíðum vera upp- alandi okkar. Það fór þó eftir skapsmunum hennar hvernig okkur reiddi af í samningaviðræðum um mögu- lega ávinninga okkur til handa. Það gustaði oft af henni og því ekki á vísan að róa um hvort hún vildi leika við okkur, lána okkur reiðhjólið sitt eða leyfa okkur að leika okkur í herberginu hennar svo eitthvað sé nefnt. Þá var mik- ilvægt að hitta á rétt augnablik. Engu að síður er það sem hún gerði fyrir okkur og með okkur bræðrunum yfirleitt hlýtt, gott og skemmtilegt í minningunni. Það mátti að vísu búast við ákúr- um frá henni fyrir sitthvað sem við þóttumst alsaklausir af, svo að á tímabili var hún okkar mór- alski áttaviti. En við áttuðum okkur smám saman á skilaboðunum og fórum eftir þeim, enda þótti okkur afar vænt um hana og óttuðumst af- leiðingarnar af hugsanlegri óhlýðni okkar. Í heimsóknum til hennar á efri árum rifjuðust upp atburðir sem okkur fannst mikið til koma á sín- um tíma og skiptu hana einnig máli. Starf hennar, þegar hún var 16 ára, og í vist í breska sendiráðinu, sem þá var í Höfða, fannst okkur bregða sérstökum ljóma á heimili okkar enda var hún sótt í fínum bíl með einkennisklæddum bíl- stjóra! Svo lærði hún þar ensku sem hún brá fyrir sig við fjölmörg tækifæri, jafnvel eftir að Alz- heimersjúkdómurinn var farinn að ræna hana tjáningargetu. Dvöl hennar í Húsmæðraskólan- um á Varmalandi, sem varði þó ekki nema einn vetur um tvítugt, tengdi hana fjörutíu öðrum stúlk- um sem hittust mánaðarlega alla tíð síðan. Hún hefði viljað verða kennari sem ekki varð vegna fjárskorts á heimilinu, að því er hún sagði. En okkur fannst mun merkilegra að hún kynnti fjölskyldu sinni nýja aðferð við að elda jólasteikina! Síðar kynnti hún okkur aðferð til að lesa framtíð okkar í tölum. Þorbjörg var andlega sinnuð og leitaði eftir dýpri merkingu lífsins. Á fullorðinsárum var hún virk í Guðspekifélaginu og Samfrímúrarareglunni síðan, ræktaði andlega hæfileika sína og lærði jóga til að verða sam- ferðamönnum að gagni. Við gerð- um okkur grein fyrir því að hún hefði getað lært hvað sem var ef tækifæri hefði til þess gefist. Við fylgdumst með því hvernig hún annaðist börn sín, eiginmann og síðar foreldra okkar af natni og reisn. Þannig var hún ávallt að þjóna öðrum. Þegar rykið sest á farinn veg situr eftir þakklæti fyrir að hafa átt kærleiksríka stóra systur. Gretar L. Marinósson, Karl L. Marinósson. Við systkinin í St. Ósíris minn- umst systur okkar Þorbjargar L. Marinósdóttur, er hvarf til hins eilífa austurs 3. ágúst síðastlið- inn. Þorbjörg gekk í Alþjóðlega frímúrarareglu karla og kvenna Le Droit Humain árið 1996 og gegndi þar margvíslegum trúnaðarstörf- um. Þorbjörg var sannur frímúr- ari og vann öll sín störf af alúð og trúmennsku. Nú er leiðir skilja er okkur efst í huga þakklæti fyrir einlæga vináttu og ánægjulegt samstarf. Hvíl þú í friði og megi sú hönd, er heillastjörnunni stýrir, gæta þín vinur á vegferð um lönd við öll munum kanna um síðir. (Gunnar Einarsson frá Bergskála) Við kveðjum kæra systur með söknuði og virðingu og flytjum ástvinum hennar einlægar sam- úðarkveðjur. F.h. St. Ósíris, Katrín Guðmunda Einarsdóttir. „Það verður tómlegt að halda áfram göngu lífsins án Þorbjarg- ar. Hún hefur verið órjúfanlegur partur af mínu lífi frá því ég kynntist Guðbjörgu dóttur henn- ar sex ára gömul, minni bestu vinkonu alla tíð síðan þá. Upp frá því var hún alltaf til staðar fyrir mig í blíðu og stríðu. Þorbjörg umvafði mig hlýju og kærleika, uppörvaði mig og hvatti eins og ég væri hennar eig- in dóttir. Fyrir það er ég henni óendan- lega þakklát. Eftir því sem árin liðu urðum við góðar vinkonur. Við hittumst reglulega og þá oftast á „rauðum dögum“ eins og hún sagði en það voru sunnudagar. Þorbjörg hélt upp á rauða lit- inn, sagði að hann gæfi sér orku og hvatti mig til þess að nota meiri lit í klæðaburði. Henni fannst ég oft of mikið í svörtu, lit sem hún vildi sjálf lítið nota. Fyrir henni var lífið allt annað en svart og hvítt, heldur litríkt, og það speglaðist bæði í fallegum klæðaburði hennar og í fallegu heimilinu sem svo notalegt var að koma á. Hún verður ávallt fyrirmynd mín í því hvernig hún tókst á við lífið með æðruleysi, gleði og fal- legu brosi. Mér finnst þetta ljóð eftir Vil- borgu Dagbjartsdóttur lýsa vel lífsviðhorfi hennar. Þú segir: Á hverjum degi styttist tíminn sem við eigum eftir. Skref fyrir skref færumst við nær dauðanum – en ég þræði dagana eins og skínandi perlur upp á óslitinn silfurþráðinn Á hverju kvöldi hvísla ég glöð út í myrkrið; enn hefur líf mitt lengst um heilan dag Hanna Valdís Guðmundsdóttir. Sigurbjörg vin- kona mín er látin eftir erfið veik- indi. Lilla, eins og hún var alltaf kölluð, hóf nám í KÍ 1956, ári seinna en ég. Hún var eins og himnasending á vegi mínum. Það er yndislegt að eignast góða vin- Sigurbjörg Guðmundsdóttir ✝ SigurbjörgGuðmunds- dóttir sérkennari fæddist 28. mars 1938. Hún andaðist 15. júlí 2018. Útför Sig- urbjargar fór fram í kyrrþey að henn- ar ósk hinn 20. júlí 2018. konu. Núna er þakklæti mér efst í huga. Við spyrjum og skiljum ekki skap- arann. Hvers vegna óbærileg veikindi og missir? Við fáum engin svör. Þegar ég lít til baka koma margar góðar minningar upp í hugann. Æskuheimili þeirra systkina var á Gránufélagsgötu á Akureyri. Mér er minnisstæð fyrsta ferð mín norður. Þá vildi svo til, að móðir þeirra var að búa til slátur. Ég var strax látin hjálpa til við sláturgerðina, var alveg óvön slíku en tókst samt að sauma ein- hvern veginn. Þá var nú glatt á hjalla á heimili Lillu að loknu verki. Lilla var mjög trúuð kona. Við sóttum oft fundi í KFUK og ræddum allt milli himins og jarð- ar. Hún gat rökstutt sjónarmið sín án þess að vera óréttlát. Svo liðu árin. Við stofnuðum heimili hvor í sínum landshluta. Alltaf þegar ég var stödd á Akureyri í heimsókn hjá vinum og ættingjum notaði ég tækifærið að líta inn hjá Vilbergi og Lillu, sem tóku mér með vinsemd og al- úð. Lilla var einstaklega mikil hannyrðakona þrátt fyrir minni mátt í annarri hendinni. Ég á fallegan heklaðan kraga og peysu sem hún færði mér. Í einni heimsókninni til þeirra kom ég auga á stórt enskt bibl- íudagatal; á því voru bæði ritn- ingarstaðir og myndir. Næst þegar hún kom í heimsókn gaf hún okkur samskonar dagatal. Hún birtist ævinlega með eitt- hvað óvænt í poka handa mér. Við munum eftir þessum orð- um: „Góðar þykja mér gjafir þín- ar en betri vinátta þín.“ Svo var það óvissuferðin henn- ar Lillu. Hún sótti mig og við stefndum til Reykjavíkur. Þetta var svo sannarlega mikið ævin- týri. Við skoðuðum gróðrarstöð- ina Mörk og drukkum þar kaffi saman. Hún var alltaf svo hug- ulsöm. Þau Sigurbjörg og Vilberg áttu sér annað heimili í Kópavogi, sem þau kölluðu sumarbústað. Það auðveldaði mér að skerpa á sambandinu við þau á ný. Oft dáðist ég að þeim hjónum í afa- og ömmuhlutverkinu. Mér fannst afar notalegt að sitja í eldhúsinu hjá þeim yfir kaffibolla og spjalla. Ekki kemst ég hjá því að minn- ast á Hjálpræðisherinn í þessum orðum um vinkonu mína, Lillu. Vilberg og Sigurbjörg hafa unnið í sjálfboðavinnu fyrir Hjálpræðisherinn árum saman. Hress og markviss náungakær- leikur birtist í þessu starfi. Lilla var einstaklega virk í starfi Heimilissambandsins á Ak- ureyri. Konurnar unnu sitt hvað í höndunum sem var síðan selt en ágóðinn rann til kristniboðsins. Ekki var verra að hlusta á valda framhaldssögu eða hugvekju svona í lokin. Allt skyldi það vera uppbyggilegt fyrir sálarlífið. Kæri Vilberg og fjölskylda, við biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur og hugga. Í voða, vanda og þraut vel ég þig förunaut. yfir mér virztu vaka og vara á mér taka. Jesús mér fylgi í friði með fögru engla liði. (H. Pétursson) María og Óskar. Eitt af öðru hverfa þau, vina- fólkið okkar kæra heima á Reyðar- firði, inn í óendanleika eilífð- arinnar og nú hefur hún Óla Bubba kvatt okkur hinztu kveðju en hún hét fullu nafni Ólöf Guðbjörg. Löng og erfið var sjúkdómsbarátta hennar, en alltaf hélt hún reisn sinni og eðlislægri hlýju samfara þeirri launfyndni sem hún var svo rík af og hitti alltaf beint í mark án þess að særa. Hún var afar hugguleg kona og bar sig einkar vel, en mann- kostirnir báru af öllu. Við Hanna höfðum af henni kær kynni, ég kom oft í heimsókn til þeirra hjóna, hennar og Ingólfs vinar míns, oftast í þeim er- indagjörðum að biðja hann að liðsinna okkur um píanóleik sinn, hvort sem var í leiksýn- ingum, á þorrablótum eða öðru slíku. Það var undur notalegt og gott að sækja þau Ólu Bubbu heim og minnisstæðast þegar Ingólfur var eitthvað tregur, vantreysti sér í krefj- andi verkefnin, að þá sagði Óla Bubba að auðvitað gerði hann þetta og þar með var björninn unninn. Hanna kynntist Ólu Bubbu vel er þær unnu saman á dansleikjum í Félagslundi ásamt henni Rúnu Ellerts, þeg- Ólöf Guðbjörg Pálsdóttir ✝ Ólöf GuðbjörgPálsdóttir fæddist 13. desem- ber 1936. Hún lést 8. ágúst 2018. Útför Ólafar fór fram 17. ágúst 2018. ar þau hjón Ingólf- ur og Óla réðu þar ríkjum, og það þótti Hönnu vera góðar stundir, þótt erfiðar væru að af- loknum vinnudegi, og alveg sérstak- lega gott að vinna með þessari rösku og vandvirku konu með sína léttu og hlýju lund, ómet- anlegir eiginleikar í hverju sem var. Hún var einkar vel liðin hvar sem hún var í vinnu með handtök sín örugg og rösk og það sagði mikið um manngerð- ina einnig. Það er sannarlegt þakkarefni á lífsins leið að mæta slíku við- móti vermt einlægni og glettni orðheppninnar, en hún var rómuð fyrir hana ekki síður en eiginmaðurinn og þau hjón samvalin í því sem öðru. Heimilið var hennar aðals- merki, allt bar hinni verkhögu konu og listrænu handbragði hennar ljósan vott. Hún var sönn móðir sona sinna, henni harmsefni mikið er Páll sonur þeirra lézt löngu fyrir aldur fram og sannarlega var hún líka húsmóðir af beztu gerð. Hún Óla Bubba er kvödd með þakklæti í hug okkar hjóna fyrir vinhlýja samfylgd, þar fór um veg kona sem eingöngu skilur eftir sig ljómandi minn- ingar. Sonum hennar og þeirra fólki eru sendar innilegar sam- úðarkveðjur. Megi sumarblærinn blíði fylgja henni inn á ókunn lönd í heiðblámans firð. Helgi Seljan. Jóna frænka er farin. Farin á vit feðra sinna, ömmu og afa í Naustvík. Ég vil þakka Jónu frænku samferðina, tímann okkar sam- an í Guðlaugsvík. Þegar ég kom í sauðburðinn snemma í maí. Það var dýrðartími. Fékk að hætta í skólanum á undan hin- um krökkunum til að fara í sveitina, að taka á móti nýju lífi í fjárhúsunum í Guðlaugsvík. Jólin bliknuðu í samanburði við að fara í Guðlaugsvík. Þvílík eftirvænting, þvílík gleði. Eins og sannri húsmóður sæmir stóð Jóna frænka mest í eldhúsinu og töfraði fram hverja máltíðina á fætur ann- arri. Hver móran bökuð á eftir annarri og hvarf jafnóðum ofan í krakkaskarann. Aldrei fékk ég nóg af móru, einfaldri súkkulaðiköku með glassúr- kremi sem Jóna frænka gerði einstaka. Þegar mamma sótti mig á miðju sumri á leið sinni í Naustvík var ég orðin búlduleit og sæl enda fimm máltíðir á dag í Guðlaugsvík, allar reiddar fram af Jónu frænku. Uppvaskið eftir matinn, mat- arbúrið sem var eins og æv- intýraland fyrir krakkann mig og gæðastundirnar allar fyrir Guðbjörg Jóna Guðmundsdóttir ✝ Guðbjörg JónaGuðmunds- dóttir fæddist 5. desember 1935. Hún lést 31. júlí 2018. Útför Guð- bjargar Jónu fór fram 15. ágúst 2018. framan sjónvarpið eftir útiveru dags- ins. Allt minningar sem mér eru kær- ar nú þegar ég kveð Jónu frænku. Jóna frænka var kvenskörungur; dugleg, ósérhlífin og ákaflega gest- risin. Eðalhjónin Jóna og Skúli voru einstakt par, sem mynduðu sterka umgjörð sem setti heimilislífið í Guðlaugsvík í allt annað samhengi. Gagn- kvæm virðing, yfirvegun og kærleikur. Börnin öll og dýrin, maður lifandi. Ég vildi hvergi annars staðar vera. Guðlaugs- vík, alltaf söm, alltaf eins og að koma heim. Lífsgæði er hægt að meta á margan hátt. Dvöl í sveit fyrir borgarbarn, öll sumur frá fimm til tólf ára aldurs. Þar sem dýr- in réðu ríkjum, hundarnir Snotra og Lappi, kindurnar all- ar og Snoppa mín sem vildi ekkert með mig hafa og vapp- aði á braut með lömbin sín. Baslið og búskapurinn í bíl- hræinu Skrapa og í búinu góða, Litla kofa. Þetta eru lífsgæði. Lífsgæði sem móta einstakling til fram- tíðar. Slík tækifæri voru ekki í boði fyrir alla. Sumrin í Guð- laugsvík var dýrmætur tími í lífi mínu, hann var okkar tími, okkar Jónu frænku, og fyrir hann er ég henni þakklát. Elsku Skúli, Guðrún, Helgi, Unnur, Anna og Gummi, missir ykkar er mikill en minning Jónu frænku lifir í hjörtum okkar sem henni voru sam- ferða. Sandra. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.