Morgunblaðið - 25.08.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.08.2018, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á sumarhusavorn.is Stefán Þór Vignisson, stjórnarformaður og einn fjögurra eigendaMVA byggingaverktaka, á 40 ára afmæli í dag. Hann hefur veriðí byggingabransanum í fimmtán ár en MVA var stofnað 2012. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar á Egilsstöðum en Stefán er þaðan og hefur búið þar mestalla tíð. MVA verktakar sérhæfa sig í byggingum og breytingum á mann- virkjum svo sem íbúðarhúsum, sumarhúsum, bryggjusmíði og brúar- gerð. Starfsmenn eru í kringum 25. „Við höfum sinnt verkefnum um allt Austurland, alveg frá Hornafirði og að Þórshöfn. Við erum núna að vinna uppi á Kárahnjúkum í viðhaldi þar á steyptum mannvirkjum. Við erum nýbúnir að steypa brú í Beru- firði og erum að leggja lokahönd á hana, erum að setja upp handrið.“ Brúin er hluti af nýjum veg um Berufjarðarbotn sem styttir hringveg- inn um þrjá og hálfan kílómetra og þegar hann verður tilbúinn verður í fyrsta sinn hægt að aka allan þjóðveg eitt á bundnu slitlagi. „Vonandi verður hægt að opna hann í haust.“ Stefán segist ekki hafa mikinn tíma fyrir áhugamál, vinnan taki það mikinn tíma. „Ég er t.d. ekki búinn að taka mér neitt frí í ár. Það er ein- staka sinnum sem ég kemst á enduro-hjól.“ Sambýliskona Stefáns er Jóna Bryndís Eysteinsdóttir hárgreiðslu- kona og synir þeirra eru Vignir Steinn ellefu ára og Kristján Darri fjög- urra ára. Stefán var ekki búinn að ákveða hvað hann ætlaði að gera í dag í til- efni afmælisins en hann mun halda svakalegt partí í september. Stjórnarformaðurinn Stefán staddur við loftgöng á Jökulsá í Fljótsdal þar sem síðasta deginum fyrir fertugsafmælið var eytt. Er að stytta hring- veginn fyrir austan Stefán Þór Vignisson er fertugur í dag Ú lfar Jónsson fæddist í Hafnarfirði 25.8. 1968 og ólst þar upp, lengst af í Norður- bænum. Hann var í Víðistaðaskóla, stundaði nám við Flensbogarskóla, stundaði nám við Houston Baptist University í Houston í Texas og við University of Louisiana og lauk þaðan prófi í viðskiptafræði með markaðsfræði sem sérsvið 1993. Auk þess lauk hann námi sem PGA-golfkennari á vegum Golfsambandsins og PGA- samtakanna vorið 2008. Þá hefur hann sótt fjölda námskeiða í við- skiptafræði og í golfi og golf- þjálfun. Úlfar kynntist golfíþróttinni níu ára og stundaði hana af kappi frá upphafi hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði: „Pabbi hafði farið í golf með félögum sínum, á Hvaleyrarvellinum. Hann hafði tek- ið mig með og skilið mig eftir við skálann með eina kylfu og golfkúlu. Ég hafði kynnst ýmsum íþrótta- greinum en þarna fann ég mína grein og þá varð ekki aftur snúið.“ Á unglingsárunum byrjaði Úlfar einnig að vinna á golfvellinum á Úlfar Jónsson, golfþjálfari og fv. atvinnukylfingur – 50 ára Hjónin og börnin Talið frá vinstri: Aron Úlfarsson, Úlfar, Hilmar Jón Úlfarsson, Helga og Unnur Elsa Reynisdóttir. Margfaldur meistari og kylfingur aldarinnar Þjálfarinn Það er að ýmsu að hyggja í golfi, t.d. að halda rétt um kylfuna. Kópavogur Klara Guðbjörg Hringsdóttir fæddist 3. október 2017 kl. 22.53. Hún vó 3.240 og var 48 cm löng. For- eldrar hennar eru Iðunn Sæmundsdóttir og Hringur Pálsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.