Morgunblaðið - 25.08.2018, Page 41

Morgunblaðið - 25.08.2018, Page 41
DÆGRADVÖL 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Reyndu að forðast þá manneskju sem vill setjast niður og ræða viðskitpa- hugmynd sem þér líst ekkert á. Margir af draumum þínum munu rætast á næst- unni. 20. apríl - 20. maí  Naut Njóttu góðra stunda með öðrum og þiggðu öll boð um skemmtanir sem þér berast. Þér eru allir vegir færir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Dagurinn í dag er hagstæður fyrir fjármálaviðskipti. Gefðu þér líka tíma til að vera með fjölskyldunni og rifja upp gamlar minnningar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Sestu niður og farðu í gegnum málin, sérstaklega fjármálin, svo þú vitir upp á hár hvar þú stendur. Þú verður á ferð og flugi næstu vikurnar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Skyldurnar hvíla á þér eins og mara og þér finnst þær íþyngjandi. Deildu verk- efnum, þú þarft ekki að gera alla hluti einn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samstarfsfólk þitt kemur þér á óvart með einhverjum hætti. Ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana í máli sem skiptir þig miklu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Allt er breytingum háð og því skaltu ekki blekkja sjálfa/n þig með því að þú sért búin/n að skipa málum til eilífðar. Vinnan göfgar manninn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vinna þín hefur skilað góðum árangri og þú mátt vera stolt/ur af sjálf- um þér. Sláðu öðrum gullhamra og sjáðu hvað gerist. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú færð ekki neitt með því að sitja með hendur í skauti. Gaumgæfðu alla málavexti og hugsaðu þig svo vel um áður en þú kveður upp þinn dóm. 22. des. - 19. janúar Steingeit Njóttu þess að sinna skapandi verkefnum og leika við börnin. Þú getur verið hörð/harður í horn að taka ef þú vilt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft á tilbreytingu að halda en virðist finna öllu sem þér dettur í hug eitthvað til foráttu. Léttu á hjarta þínu við einhvern sem þú treystir vel. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú sýnir ást þína að hluta til með því að gefa ráð. Haltu ró þinni, þótt eitt og annað gangi á í kringum þig. Næstu vikur munu einkennast af miklum breyt- ingum. Það er svo margt sem fram fer ásamfélagsmiðlum í dag. Þar kjósa margir að segja frá eigin lífi í miklum smáatriðum, sem er þeirra val og oft hægt að hafa gaman af. Verra er þegar fólk tekur sig til og segir frá lífi annarra. Hver sem er getur lent í því að manneskja sem leiðist á næsta borði í kaffihúsi taki upp á því að segja frá samtalinu við hliðina á sér á Twitter. Stundum er þetta gert í gamni en önnur skipti til að hneykslast og er pólitískur rétt- trúnaður þá oft notaður til að rétt- læta það að trufla friðhelgi einkalífs annars fólks með innganginum „heyrt á næsta borði“. x x x Málið er að brot úr samtali eruekki endilega nóg til að dæma heila manneskju út frá. Kaldhæðni skilar sér ekki endilega á milli manneskja sem þekkjast ekki neitt, sérstaklega þegar önnur er aðeins að hlera. x x x Í sumar gekk ástarsaga sem átti aðhafa gerst um borð í flugvél eins og eldur í sinu um netheima og var á Twitter undir merkingunni #Plane- Bae. Þar sögðu flugfarþegar í beinni frá pari að kynnast, eða þannig leit það út, og netið hreifst með. Eða þangað til konan í ástarsögunni svaraði fyrir sig og gaf út yfirlýsingu í gegnum lögfræðing sinn. Þar sagði hún að hún hefði verið mynduð án leyfis og skrifaðar hefðu verið vangaveltur um einkalíf hennar sem ættu sér ekki endilega stoð í veru- leikanum. Þetta hefði haft í för með sér töluvert ónæði fyrir hana því fólk hefði leitað hana uppi bæði í net- heimum og alvörunni. Að lokum sagði hún: „#PlaneBae er ekki ást- arsaga, þetta er víti-til-varnaðar- saga um einkalíf, auðkenni, siðfræði og samþykki.“ x x x Fólk ætti að hafa þetta í huga næstþegar það ætlar að setja eitthvað á netið sem það heyrði út undan sér eða tekur mynd af alls ókunnu fólki. Oft er sagt að mynd segi meira en þúsund orð en stundum duga þús- und orð bara alls ekki til að segja alla söguna. vikverji@mbl.is Víkverji Því að laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum. (Rómverjabréfið 6.23) Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Frá henni berst ómur ör. Orðið haft um vembda kú. Í henni er mikill mör. Á miðjum katli jafnan sú. Helgi Seljan á þessa lausn: Oft munu barðar bumburnar bumba er aðal kýrinnar. Í bumbunni mikinn mör ég finn og mjög prýddi bumba ketilinn. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Ístrukarlinn bumbur ber, því bumba, kýrin, er föl, en eigin bumbu beltið ver. Úr bumbu ketils fær öl. Þetta er svar Helga R. Ein- arssonar: Snýst um trommu, kvið og kú. Um ketillag við fjöllum. Orðið bumba býst ég nú að blasi hér við öllum. Þessi er lausn Hörpu á Hjarð- arfelli Bumbur eru barðar. Bumba á vemdri kú. Bumbur belti varðar. Bumba ketils sú. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Bumbusláttur ómar ör. ýmsir bumbu nefna kú. er í bumbu mikill mör. Á miðjum katli bumba sú Þá er limra: „Bumba mín stöðugt stækkar, á stundaglasinu lækkar. en sí hrakar sjón“, segir hann Jón, „og dögunum fjölgar og fækkar.“ Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Árla dags ég blundi brá býsna hress og fór á stjá, gátu hef nú saman sett, sem er venju fremur létt: Kenndur við lyst á Akureyri. Eru kenndir við menntir fleiri. Sagður er hann sættir granna. Samastaður fyrstu manna. Ólafur G. Einarsson kenndi mér þessa vísu en þekkti ekki tildrög hennar né höfundinn: Þú sem ert útsmoginn alls staðar og andlegum vísdómi gæddur geturðu sagt mér af hverjum og hvar og hvenær sé andskotinn fæddur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Barlóms bumban er ótæpt slegin Í klípu „ÉG GÆTI ALDREI UNNIÐ VIÐ ÞAÐ SEM ÞÚ GERIR – OF MIKIL PAPPÍRSVINNA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HEFURÐU EITTHVAÐ ÍHUGAÐ ÓSK MÍNA UM LAUNAHÆKKUN?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að syngja uppáhaldslögin ykkar hástöfum í bílnum. SKRAMBANS! NÁÐIRÐU AÐ STARTA SLÁTTUVÉLINNI? HVAÐ GERÐIST Í NÓTT? ÉG ER MEÐ SVO MIKLA ÞYNNKU! ÉG FRÉTTI AÐ ÞÚ HEFÐIR REYNT AÐ DREKKA ALLT Á KRÁNNI! EN AF HVERJU ER ÉG ALLUR BLÁR OG MARINN? HINIR KÚNNARNIR MÓTMÆLTU! GJAFAPAKKNINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.