Morgunblaðið - 25.08.2018, Side 42
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Davíð Þór hefur skrýðstmargvíslegum hempum ígegnum tíðina (sjáum til
hvað ég fer langt með þetta trúar-
líkingamál …), sinnt ritstýringu,
þýðingum og grínaktugheitum, en
sem Radíusbróðir var hann í for-
vígi endurnýjunar íslenskra gam-
anmála ásamt Fóstbræðrum. Ný
kynslóð, nýjar
áherslur. Tón-
listinni hefur
hann líka sinnt,
m.a. í gegnum
Káta pilta og svo
gaf hann út
plötu með sveit-
inni Faríseunum, samnefnda, árið
1996, þar sem hann lék sér m.a.
með trúarminni.
Nú þjónar Davíð Þór sem
prestur í Laugarnesprestakalli en
það stoppar hann ekki í að þjóna
tónlistargyðjunni um leið, nú í
Sannlega segi ég yður …
gegnum pönksveitina Austur-
vígstöðvarnar. Davíð er einn
þeirra presta sem reyna að sinna
eðli og eigindum nútímans, trúr
sinni köllun um leið og hann vand-
ar sig við það að vera „maður“.
Eigum við að kalla slík sjálfsögð-
heit framsækni? Fleiri slíkir, eins
og Hildur Eir Bolladóttir, hafa
gert vel í því að leggja sig fram –
með kostum og göllum – og hafa
uppskorið virðingu og aðdáun fyr-
ir. Þessi plata hér, Útvarp Satan –
16 pönklög, er á vissan hátt liður í
þessu. Hér er aldrei mælt undir
rós eða af þekkilegheitum heldur
talað hressilega út um hin og þessi
málefni. Þetta er argasta pönk,
umslagshönnun (einkanlega bækl-
ingur) heiðrun á framlagi Crass og
viðlíka anarkískra pönksveita til
dægurtónlistarinnar. Þetta er há-
pólitísk plata, þar sem stungið er á
kýlum endalaust og Davíð og fé-
lagar skirrast ekki við að draga
mann og annan til ábyrgðar, t.a.m.
er titillinn meðvitað háð og gagn-
rýni á Útvarp Sögu og þann vit-
leysisgang sem þar þrífst. Trump,
Bjarni Ben. og auðvaldslýðurinn
fá á kjaftinn, „þekkirðu þennan –
þetta er bróðir hans!“. Hamar (gít-
ar) og sigð tróna glæst efst á upp-
lýsingabæklingi þannig að enginn
ætti að þurfa að efast um hvert
hugmyndafræðilega inntakið er.
Sveitin er þá með hnífjafnt kynja-
hlutfall en sveitina skipa þau
Díana Mjöll Sveinsdóttir (söngur),
Helga Elísabet Beck Guðlaugs-
dóttir (bassi), Jón Knútur Ás-
mundsson (trommur), Jón Hafliði
Sigurjónsson (gítar), Þórunn
Gréta Sigurðardóttir (hljómborð)
og svo syngur Davíð og spilar á
ukulele.
Eins og segir: hér er grodda-
legt pönk og keyrslunni linnir
aldrei. Við erum í fimmta gír allan
»Hér er aldrei mæltundir rós eða af
þekkilegheitum heldur
talað hressilega út um
hin og þessi málefni.
Séra Davíð Þór Jónsson bregður sér í hlutverk eldklerks og messar yfir
lýðnum með fulltingi sveitarinnar Austurvígstöðvanna.
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal
Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 17.7 - 16.12.2018
ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019
BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu – 18.5. – 31.12.2018
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
15.5. - 15.9.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Bíó Paradís býður upp á sérstaka
dagskrá til heiðurs sænska leik-
stjóranum Ingmar Bergman, 30.
ágúst til 9. september, í samstarfi
við sænska sendiráðið. Fjórar kvik-
myndir eftir Bergman verða sýnd-
ar, boðið upp á pallborðsumræður í
tengslum við myndirnar og sér-
staka gesti og einnig verður sett
upp sýning í anddyri kvikmynda-
hússins með æviágripi listamanns-
ins í máli og myndum auk vídeósýn-
ingar með 32 sjaldgæfum mynd-
brotum sem veita innsýn í líf og
störf listamannsins, að því er fram
kemur í tilkynningu. Í ár eru 100 ár
liðin frá fæðingu Bergmans en
hann lést árið 2007.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra mun setja dagskrána kl. 19 á
fimmtudaginn með ávarpi. Sama
dag verður sýnd kvikmyndin Sum-
arið með Moniku (Sommaren med
Monika) frá 1953.
Gjörningur í sólarhring
Í tilefni af opnun dagskrárinnar
mun listamaðurinn Martin Lima De
Faria flytja gjörning í anddyri bíós-
ins í heilan sólahring þar sem hann
notast við gjallarhorn Bergmans til
að láta fjöður dansa í vindi í hvert
skipti sem barn fæðist á Landspít-
ala Íslands. „Með þessu vill De
Faria fagna lífinu að hætti Berg-
mans, en hann verður í beinu sam-
bandi við spítalann og mun fram-
kvæma fjaðradansinn við hverja
barnsfæðingu í 24 tíma samfleytt,
frá miðnætti 29. ágúst til miðnættis
30. ágúst,“ segir í tilkynningu.
Frekari upplýsingar um dag-
skrána má finna á bioparadis.is og
á facebooksíðu bíósins.
Dagskrá helguð
Bergman í Bíó Paradís
AFP
Áhrifamikill Bergman leikstýrði um
60 kvikmyndum og stýrði yfir 170
leiksýningum á ferli sínum og hafði
mikil áhrif á báðar listgreinar.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Þetta er þægileg danstónlist ef
ég ætti að lýsa þessu,“ segir
hústónlistarmaðurinn Alexander
Gabríel Hafþórsson um fyrstu
plötu sína sem nú er að koma út
hjá Möller Records undir titlinum
Cocky-Yo. „Hvatinn er ást mín á
allri tónlist. Það fellur ekki undir
neina flokka
sérstaklega.“
Alexander
gengur einn-
ig undir
listamanns-
nafninu Ugly
Since 91
(Ljótur síðan
91) og gefur
nýju plötuna út undir því nafni.
„Það er smágrín,“ segir hann um
nafnið. „Einn af uppáhaldshús-
tónlistarmönnunum mínum heitir
Hot Since 82 og Kristófer Ingi
Júlíusson félagi minn kom með
þessa frábæru hugmynd að lista-
mannsnafni.“
Ljótur síðan 91
Alexander segir tónlistina á
plötunni mestmegnis rafræna tón-
list þar sem hann spilar á hljóm-
borð auk þess sem eitthvað heyr-
ist af gítarleik. „Í raun og veru
vann ég þessa plötu stuttu eftir að
ég kom mér upp hljóðveri sem ég
var búinn að vera að vinna að síð-
an ég var krakki. Þetta er bara af-
raksturinn af þeirri vinnu, sem
byrjaði öll með einni góðri MacBo-
ok Pro.“
Cocky-Yo er fyrsta sólóplata
Alexanders en hann hefur áður
unnið í tónlist með hljómsveitinni
Valbý-bræðrum ásamt hálfbróður
sínum, Jakob Valby. „Við erum að
rappa og höfum verið með þessa
hljómsveit í um sex ár. Ég hef
verið í hljómsveitum og spilað
bæði á trommur og gítar.“
Von er á fyrstu plötu Valbý-
bræðra stuttu eftir útgáfu Cocky-
Yo og vann Alexander að báðum
plötunum samtímis auk þess sem
hann hefur haft í nógu að snúast í
einkalífinu. „Ég var að eignast
mitt fyrsta barn og hef sett margt
til hliðar af þeim völdum. Þessi
plata er að fara í prentun og eftir
það ætla ég að fara á fullt í að
halda útgáfupartí og allt þannig.“
Hljóðklippur af meisturum
Í lögum sínum á plötunni notast
Alexander við ýmiss konar hljóð-
klippur af uppistöndurum og úr
kvikmyndum sem hann vill að
njóti sín með tónlist hans. „Ég
nota til dæmis viðtöl við Bill
Hicks, Terence McKenna og
George Carlin á næstu plötu. Þeir
voru og eru miklir meistarar og
boðuðu byltingarkenndan hugs-
unarhátt, bara um að taka lífið
ekki of alvarlega og passa að það
sé ekki verið að svindla á manni
hægri vinstri, hvort sem það er
ríkisstjórnin eða eitthvað annað.
Ég tók líka eitthvað úr myndunum
Boondock Saints og 2001: A Space
Odyssey, myndum sem mér fannst
eiga við. Ég er algjör kvikmynda-
nörd og hef verið lengi. Þetta eru
gullmolar sem mér finnst að eigi
að njóta sín betur en bara í einni
kvikmynd.“
Alexander segir að lögin á plöt-
unni séu bæði hugsuð til að spila á
langferðum en einnig sem partílög
og þau kalli fram glaðlegt og sól-
ríkt andrúmsloft. Næsta plata sem
Alexander hyggst gefa út telur
hann að verði íhugulli og trega-
fyllri. Jón Friðrik Sigurðarson
masteraði plötuna fyrir Alexander.
„Byrjaði allt með einni
góðri MacBook Pro“
Alexander Gabríel gefur út fyrstu sólóplötu sína
Ljósmynd/Sigga Elefsen
Sólríkt Alexander segir að lögin séu bæði hugsuð til að spila á langferðum
og sem partílög. Þau kalli fram glaðlegt og sólríkt andrúmsloft.