Morgunblaðið - 25.08.2018, Side 44

Morgunblaðið - 25.08.2018, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Dans- og raftónlistarhátíðin Plur Iceland verður haldin í fyrsta sinn um helgina. Að hátíðinni standa þrír plötusnúðar og tónlistarmenn sem leggja áherslu á EDM (elek- tróníska danstónlist). „Plur“ er hugtak þekkt í reifmenningunni ytra og er skammstöfun fyrir ensku hugtökin frið, ást, samein- ingu og virðingu. Aðstandendur hátíðarinnar, meðlimir Plur Iceland, eru þeir PVCKDROP, Seth Sharp og Stitch-Face, sem munu jafnframt spila á hátíðinni. Að sögn Hjartar Andra Hjartarsonar, eða Stitch- Face, vonast þeir í Plur Iceland til þess að hátíðin verði árleg héðan í frá. Vona þeir að hátíðin hjálpi við að innleiða þá menningu sem fylgir sambærilegum hátíðum ytra inn í raftónlistarsenuna hér á landi. Hátíðin mun fara fram í Iðnó þar sem mun koma fram hópur plötu- snúða, söngvara, söngkvenna og danshópa á við Sam Shards, JHAU5, Haukur Pál, BS Tempo, Thorisson á saxófón, Jó-Jó gæjar og fleiri skemmtikraftar. Hátíðin hefst í Iðnó í kvöld, laug- ardag, kl. 22 og er mælt með því að gestir komi á góðum dansskóm. ninag@mbl.is Dansinn dunar í Iðnó Ljósmynd/Plur Iceland Dansveisla Þríeykið í Plur Iceland stendur fyrir danshátíðinni í Iðnó. Listamaðurinn Anton Lyngdal, öðru nafni Mr. Awkward Show, opnar sýninguna „Reflection of My Childhood“ í Gallery Porti, Lauga- vegi 23b, í dag klukkan 17. Þema sýningarinnar er óður til æskunnar, þar sem m.a. er leitað fanga í leikfangasmiðju listamanns- ins. Notast hann við legókubba í skúlptúr sínum sem eiga að skapa þá hliðstæðu draumaveröld sem til varð vegna erfiðra aðstæðna í æsku. Einnig verða sýnd glerverk sem eru handblásin af listamanninum í Hol- landi en Anton er búsettur í Rotter- dam og starfar í Hollandi, Dan- mörku og Íslandi. Hefur hann unnið að listsköpun og hönnun frá unga aldri og m.a. tekið þátt í ýmsum samsýningum og einkasýningum hér heima og í Hollandi, Danmörku og Ítalíu. Sýningin verður opnuð í dag kl. 5 í Gallery Port og mun Mr. Awkward sjálfur fremja gjörning og flytja rapp og söng yfir bassaleik, sem er hljóðblandaður af Yen Order. Sýningin stendur til 30. ágúst. Æskan endurspegluð í Gallery Porti Ljósmynd/Gallery Port Æskuþema Anton Lyngdal, Mr. Awk- ward Show, opnar sýningu tileinkaða æsk- unni í Gallery Porti við Laugaveg í dag. Norður af norminu nefnist ljós- myndasýning sem opnuð var á þrðjudag í anddyri Norræna húss- ins og stendur hún yfir til 9. sept- ember. „Sýningin er innblásin af ljós- mynd eftir hinn þekkta verkfræð- ing, ævintýramann og ljósmyndara Ivars Silis (f. 1940) sem verið hefur hluti af artóteki Norræna hússins frá byrjun safnsins,“ segir í tilkynn- ingu en á þeirri mynd má sjá hóp fólks sem slegið hefur upp útilegu- tjöldum. „Fullorðna fólkið er að ræða málin á meðan börnin baða sig i heitri laug. Hið stórbrotna um- hverfi ljær myndinni ævintýra- legan og óraunverulegan ljóma, þrátt fyrir að í raun sé um hvers- dagslegar aðstæður að ræða. Það er þetta samspil hversdagsleika og nær áþreifanlegrar nærveru kynngimagnaðrar náttúrunnar sem hinir fimm ljósmyndarar sýning- arinnar eiga sameiginlegt að hafa næmt auga fyrir,“ segir um sýn- inguna. Á henni megi sjá verk eftir ljós- myndara sem ýmist búi, hafi búið eða heimsótt Grænland. Margar af myndunum séu teknar við Oqaatsut við Diskóflóa á vesturströndinni. Í tilefni af 50 ára afmæli Nor- ræna hússins verða verkin færð artóteki hússins og gefst almenn- ingi því kostur á að fá þau lánuð heim þegar sýningu lýkur. Ljós- myndararnir sem verk eiga á sýn- ingunni eru Anders Berthelsen, Jonas Ersland, Jukka Male, Ivars Silis og Saga Sig en Saga er eini ís- lenski ljósmyndarinn. Samspil hversdagsleika og náttúru Strákar Ljósmynd eftir Sögu Sig, ein þeirra sem sjá má á sýningunni í Norræna húsinu. Adrift 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 22.00 Kvíðakast IMDb 6,2/10 Bíó Paradís 18.00, 20.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 20.00 Undir trénu 12 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 18.00 Loveless 12 Metacritic 86/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 22.00 Hleyptu sól í hjartað 16 Bíó Paradís 18.00 Heima IMDb 8,6/10 Bíó Paradís 22.00 Crazy Rich Asians Sambíóin Álfabakka 12.30, 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30, 22.10 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00 The Happytime Murders 16 Laugarásbíó 18.00, 20.00, 22.00 Smárabíó 17.30, 19.30, 20.00, 22.20 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 19.30 Slender Man 16 Smárabíó 19.50, 21.50, 22.10 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 21.50 Ant-Man and the Wasp 12 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 70/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Egilshöll 20.00 Mile 22 16 Laugarásbíó 22.15 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 20.10, 22.30 Háskólabíó 21.10 Borgarbíó Akureyri 21.30 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00, 19.50 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30 Sambíóin Keflavík 17.30 Smárabíó 13.30, 14.30, 16.40, 17.20, 19.40 Háskólabíó 15.30, 18.30, 20.50 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 The Spy Who Dumped Me 16 Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.25 The Equalizer 2 16 Metacritic 50/100 IMDb 7,1/10 Smárabíó 22.20 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 18.10 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 51/100 IMDb 6,5/10 Laugarásbíó 17.00 Christopher Robin Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 12.30, 13.00, 15.20, 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.50 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.20 Sambíóin Akureyri 15.00, 17.15 Sambíóin Keflavík 15.00 Úlfhundurinn Metacritic 61/100 IMDb 6,9/10 Laugarásbíó 13.50 Smárabíó 13.00, 15.10, 17.40 Háskólabíó 15.40 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 12.30, 15.00, 17.30, 20.00 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.30 Sambíóin Kringlunni 14.30 Sambíóin Akureyri 15.00 Sambíóin Keflavík 15.00 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 14.00, 15.50 Smárabíó 12.50, 15.10, 17.30 Háskólabíó 15.30 Borgarbíó Akureyri 17.30 Draumur Smárabíó 13.00, 15.20 Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í neðansjávarrannsóknarstöð Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 12.30, 14.40, 15.00, 17.00, 17.30, 19.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.10 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 The Meg 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há- lendi Íslands þar til mun- aðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 15.50, 18.10 Bíó Paradís 20.00 Mission Impossible -Fallout 16 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verkefni misheppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 18.00, 21.00, 22.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 15.00, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 21.55 Sambíóin Akureyri 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.