Morgunblaðið - 02.08.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2018SJÓNARHÓLL
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
ARNÞÓR
Í kjölfar efnahagsniðursveiflunar árið 2008 þar semmargir töpuðu fjármunum sem þeir ætluðu aðnota sem ellilífeyri og með bættri heilsu og vellíð-
an fólks er líklegt að einstaklingar kjósi að vera leng-
ur á vinnumarkaði en áður, sé þess kostur.
Spár gera ráð fyrir að árið 2024 verði 25% vinnandi
fólks í Bandaríkjunum 55 ára
eða eldri en til samanburðar
var þessi hópur eingöngu
12% árið 1994. Það má ætla
að þessi breyting muni hafa
sambærileg áhrif á íslenskan
vinnumarkað og til marks um
það hafa stjórnvöld nú þegar
lagt fram áætlanir um hækk-
un lífeyrisaldurs úr 67 í 70
ár.
Þessi aukning á vinnuafli
er áhugaverð, sérstaklega í
ljósi þess að á sama tíma eru
mörg hefðbundin störf að
hverfa vegna tæknibreytinga
og sjálfvirknivæðingar og
önnur að breytast. Þá hafa
aldrei áður verið eins margar
kynslóðir saman á vinnu-
markaði í einu, en Z-
kynslóðin (þeir sem fæddir
eru eftir 1995) er nú þegar farin að taka virkan þátt í
atvinnulífinu. Það má færa rök fyrir því að sú fjöl-
breytni sem skapast með ólíkum kynslóðum í vinnu á
sama tíma sé jákvæð, en á sama tíma getur það verið
mikil áskorun fyrir fyrirtæki að fá fólk á ólíkum aldri
til að vinna saman.
Mannauðsfólk stendur því frammi fyrir því að
skapa starfsumhverfi og vinnustaði sem henta bæði
ungum sem öldnum þar sem styrkleikar allra nýtast
til aukinnar velgengni fyrirtækja og stofnana.
Við slíka vinnu þarf að einblína á styrkleika hverr-
ar kynslóðar fyrir sig og tryggja að þær læri hver af
annarri. Ungu fólki finnst vinnubrögð þeirra sem
eldri eru oft gamaldags og barn síns tíma en eins
finnst þeim sem eldri eru oft ekki mikið til nútíma-
legra vinnubragða koma. Uppskriftin að árangursríku
samstarfi beggja hópa er að finna hinn gullna meðal-
veg og halda öllum aðilum upplýstum um þær breyt-
ingar sem gera þarf á vinnubrögðum og tryggja að
fólk sé meðvitað um ástæður þeirra og tilgang. Höfum
í huga að fyrirtæki hafa spjarað sig þrátt fyrir að
hlutirnir hafi verið gerðir með gamla laginu undan-
farna áratugi og þau munu áfram
gera það þrátt fyrir að yngri kyn-
slóðin fari aðrar leiðir að settu
marki.
Til að tryggja þekkingaryfir-
færslu er nauðsynlegt að blanda
saman kynslóðum í verkefna- og
vinnurými. Þannig geta þeir sem
yngri eru lært af þeim sem eru
eldri og reyndari og ekki síður
geta þeir sem eldri eru lært af
þeim yngri. Þrátt fyrir að ein-
staklingur sé kominn yfir miðjan
aldur er ekki þar með sagt að
hann geti eða vilji ekki læra af
þeim sem yngri eru. Svo lengi lær-
ir sem lifir og þeir starfsmenn
sem hafa í hyggju að vera lengur á
vinnumarkaði en ella gera sér oft-
ast nær grein fyrir því að þeir
þurfa að aðlagast breyttum að-
stæðum.
Með fleiri kynslóðum á vinnumarkaði er nauðsyn-
legt að skilja þarfir ólíkra hópa þegar kemur að vinnu-
tíma og vinnutilhögun. Það er algengt að yngri kyn-
slóðir vilji haga störfum sínum á annan hátt en fyrri
kynslóðir og skilin milli vinnu og einkalífs eru
sífellt að breytast. Rannsóknir hafa sýnt að ungt fólk
kýs að haga vinnudegi sínum öðruvísi en þeir sem
eldri eru. Báðir hópar geta skilað af sér jafn vel unnu
verki þó að það sé unnið á ólíkum tímum. Það þarf
hins vegar að tryggja skilning beggja hópa á þessari
ólíku nálgun á vinnutíma.
Það er í mörg horn að líta þegar kemur að því að
skipuleggja vinnustaði og vinnuumhverfi í nútíma
fyrirtæki. Lykillinn að velgengni er að ná að skapa
fjölbreyttan vinnustað þar sem fólk af öllum aldri og
kyni ber virðingu fyrir þörfum hvert annars.
MANNAUÐSMÁL
Brynjar Már Brynjólfsson,
formaður Mannauðs, félags
mannauðsfólks á Íslandi
Breyttur vinnumarkaður
”
Mannauðsfólk stendur
því frammi fyrir því að
skapa starfsumhverfi og
vinnustaði sem henta
bæði ungum sem öldn-
um þar sem styrkleikar
allra nýtast til aukinnar
velgengni fyrirtækja og
stofnana. Við slíka vinnu
þarf að einblína á styrk-
leika hverrar kynslóðar
fyrir sig og tryggja að
þær læri hver af annarri.
FORRITIÐ
Hvort sem selja þarf humar til Evr-
ópu eða senda pakka af nýprjón-
uðum sokkum til Egilsstaða verður
að reyna að halda sendingarkostn-
aðinum í lágmarki. Það þýðir að nota
þarf hvern fersentímetra á vöru-
brettinu og fylla hvern pappakassa
þannig að sem minnst pláss fari til
spillis.
Það er tiltölulega auðvelt að finna
út bestu leiðina til að pakka þétt og
vel ef sendingarnar eru alltaf eins,
en hvað ef raða þarf saman ólíkum
vörum á hvert bretti eða ofan í hvern
kassa? Þá breytist vinnudagurinn
fljótt í einn allsherjar Tetris-leik,
þar sem minniháttar mistök geta
reynst dýr.
Paccurate (www.paccurate.io) er
ný lausn sem miðar að því að auð-
velda vörusendingar. Forritið þarf
að vita stærð hverrar einingar eða
kassa, og reiknar síðan út bestu leið-
ina til að fylla box eða bretti af til-
tekinni stærð og gerð.
Höfundar Paccurate segja þær
lausnir sem fyrir eru á markaðinum
gallaðar að því leyti að þær ýmist
miða við fyrirframgefnar röðunar-
formúlur sem taka illa mið af nýjum
vörum og óvenjulegum vöru-
samsetningum, eða þá að þær ein-
faldlega leggja saman rúmmál hvers
hlutar í sendingu og ætlast svo til
þess að starfsmaður á gólfi púsli öllu
saman í ílát af tiltekinni stærð.
Á Paccurate bæði að hjálpa selj-
endum að ofáætla síður sendingar-
kostnað (og þar með auka líkurnar á
sölu), hjálpa starfsfólki vöruhúsa að
nota tíma sinn betur og hámarka
nýtingu á flutningsgetu. ai@mbl.is
Til að fullnýta hvern
pakka og palettu